Morgunblaðið - 12.03.1988, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. MARZ 1988
27
Hótel ísland:
Nýr salur
opnaður með
tónleikum
„NORÐUR salur" Hótels íslands
verður opnaður sunnudaginn 13.
mars nk. kl. 21.
Breska popphljómsveitin Elec-
trical Theatre skemmtir gestum
ásamt íslenskum, dönskum og
bandarískum hljómlistarmönnum.
Einnig koma fram Tríó Guðmundar
Ingólfssonar, söngkonan Andrea
Gylfadóttir, danski saxistinn Mikael
Hove og bandaríski trompetleikar-
inn Jeff Davies.
(Fréttatilkynning)
Tónleikar í
Háteigskirkju
KAMMERSVEIT Háteigskirkju
heldur tónleika i Háteigskirkju
sunnudaginn 13. mars kl. 16.
Á efnisskránni eru verk frá bar-
okktímanum: Kanon og Gigue eftir
J. Pachelbel og konsert fyrir hljóm-
sveit og sembal í f-moll og einnig
svíta fyrir hljómsveit og einleiks-
flautu í h-moll, hvort tveggja eftir
J.S. Bach. Einleikari á flautu er
Martial Nardeau, konsertmeistari er
Sean Bradley en Orthulf Prunner
stjómar og leikur á sembal.
(Fréttatilkynning)
Lækjarskóli í
Hafnarfirði:
Opin vika
vegna 60
ára afmælis
BJÖRN Ólafsson, skólastjóri
Lækjarskóla í Hafnarfirði, sagði
í samtali við Morgunblaðið að í
tilefni af 60 ára afmæli skólans
stæði nú yfir opin vika i skólan-
um og þema hennar væri „Við
Lækinn í 60 ár“. Opna vikan
byrjaði sl. fimmtudag og eru
nemendurnir t.d. með daglega
þætti i Útvarpi Hafnarfjarðar.
Bjöm sagði að í útvarpsþáttunum
væru meðal annars viðtöl sem nem-
endumir tækju sjálfir. „Allir 570
nemendur og 37 kennarar skólans
taka á einhvem hátt þátt í opnu
vikunni," sagði Bjöm. „Nemend-
umir taka til dæmis fyrir lífríki
Lækjarins, skólann og lífshætti
fólksins. Næstkomandi föstudag og
laugardag verður svo sýning á
handavinnu nemenda, þeir sýna
leikþætti og kór syngur á sal,“ sagði
Bjöm.
Föstuvaka í Hafnaifjarðarkirkju
FÖSTUVAKA verður haldin í
Hafnarfjarðarkirkju sunnudag-
inn 13. mars og hefst hún kl.
20.30.
Ræðumaður verður séra Sigfinn-
ur Þorleifsson sjúkrahúsprestur og
flytjendur tónlistar Eiður Ágúst
Gunnarsson óperusöngvari, Hlíf
Siguijónsdóttir og kór Hafnarfjarð-
arkirkju undir stjóm Helga Braga-
sonar organista kirkjunnar.
Fastan er tími íhugunar í kirkj-
unni. Hún horfír þá til Krists á
krossgöngunni, fómar hans og
elsku, sem leið lausnar og friðar
fyrir mannlífíð allt. Tónar og töluð
orð á föstuvöku beina athyglinni til
friðar hans og blessunar, sem
lífsgleði skapar.
Mættu sem flestir njóta góðrar
stundar á föstuvöku í Hafnarfjarð-
arkirkju.
(Fréttatilkynning)
Nú eru aðeins nokkrir mánuðir
síðan hinn nýi MAZDA 626
kom á markaðinn og er ekki of-
sögum sagt að fáir nýir bílar
hafi fengið eins lofsamlegar
umsagnir og viðurkenningar
og hann. Héreru nokkrar:
auto
motor
sport
* Kjörinn„HEIMSINS BESTI
BÍLL“ af lesendum „AUTO
MOTOR UND SP0RT“
Nú 5. árið í röð kusu lesendur
þessa virta þýska bílatímarits
MAZDA ,626 „HEIMSINS
BESTA BÍL“ í millistærðar-
flokki innfluttra bíla. Á annað
hundrað þúsund kröfuharðir
Þjóðverjar tóku þátt I þessari
árlegu kosningu og sigraði
MAZDA 626 með yfirburðum í
sínum flokki.
Blaðamenn AUTO M0T0R
UND SPORT höfðu áður gert
samanburðarprófun á 5 vin-
sælum bílum I millistærðar-
flokki á þýskum markaði. Úr-
slit urðu:
1. MAZDA 626 GLX
2. Audi 80 1.9E
3. Ford Sierra 2.0i GL
4. Peugeot 405 SRi
5. Renault 21 GTX
„Sögulegur viðburður" sagði
Auto Motor und Sport, því
þetta er I fyrsta skiptið, sem
japanskur bíll vinnur slíka
samanburðarprófun.
AUtO
ZEITUNG
EUROPA POKAL
Árlega efnir þýska bílatímarit-
ið „AUTO ZEITUNG“ til sam-
keppni um „Evrópubikarinn".
Til keppninnar þetta ár voru
valdar 12 gerðir bíla, sem
kepptu 13 riðlum. í dómnefnd-
inni voru 8 bílagagnrýnendur
og gefa þeir stig fyrir samtals
60 atriði. Úrslit urðu:
1. BMW 318i
2. MAZDA 626 GLX
3/4. Audi 80
3/4. Peugeot405
5/6. Opel Ascona
5/6. Volkswagen Passat
7. Renault 21
8. Mercedens Benz 190
9/10. HondaAccord
9/10. Mitsubishi Galant
11. Ford Sierra
12. Citroen BX
Munurinn á stigum BMW
318i, sem er dýrari bíll, og
MAZDA 626 var þó vart mark-
tækur því að hann var innan
við þriðjungur úr prósentu-
stigi!
freie
fahrt
KLUBJOURNAL DES ARBÖ
1. gullverðlaun
hjá FREIE FAHRT
MAZDA 626 hlaut 1. gullverð-
laun i samkeppni, sem fram
fer árlega á vegum „FREIE
FAHRT" sem er gefið út af fé-
lagi bifreiðaeigenda I Austur-
ríki. í dómnefndinni voru 43
einstaklingar, þar á meðal
hinn heimsfrægi kappaksturs-
maður Niki Lauda, en að auki
höfðu lesendur blaðsins at-
kvæðisrétt. 9 bílar kepptu í ár:
MAZDA 626, Toyota Corolla,
Honda Prelude, Honda Civic,
Daihatsu Charade, Opel Sena-
tor, Peugeot 405, Citroen AX
og Rover 825. MAZDA 626 sigr-
aði keppinauta sína með mikl-
um yfirburðum og má geta
þess að þetta er I fyrsta skipt-
ið, sem japanskur bíll hlýtur
þessi eftirsóttu verðlaun!
Fyrstu 3 sætin skipuðu:
1. MAZDA 626
2. Peugeot 405
3. Citroen AX
Mikið hrós ekki satt? En
MAZDA 626 á það skilið! Því
ekki að kynnast MAZDA 626 af
eigin raun? Við bjóðum ykkur
að koma og skoða þennan frá-
bæra bíl. Verðið mun svo koma
ykkur þægilega á óvart, það er
frá aðeins 710 þús. krónum.
(Gengisskr. 04.03 88 stgr.verö Sedan 1.8L
5 gira m/vökvast.)
Opið laugardaga frá kl. 1-5
3
BÍLABORG HF. FOSSHALSI 1. S.68 12 99.
MAZDA 626
JIEIMSINS BESTIBILL!!
I