Morgunblaðið - 12.03.1988, Page 43

Morgunblaðið - 12.03.1988, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. MARZ 1988 43 ÚRVAUFERÐIR UM FJARLÆC LÖHD PERÚ Þann 3. júní leggjum við upp í 18 daga ferð til Perú sem er heillandi heimur mannlífs og náttúru. Þar leggjum við mikla áherslu á að skoða stórkostlegar minjar hinnar fornu menningar Inkanna og förum t.d. til „týndu borgarinn- ar“ Machu Picchu sem er í 2300 metra hœð. Þangað flúðu Inkar undan Spánverjum. Við heimsœkjum einnig frum- skóga Amazon, skoðum höfuð- borgina Lima og kynnumst sér- stœðu mannlífi við Titicaca vatnið. Fararstjóri er Sigurður Hjart- arson sagnfrœðingur, sérfrœðing- ur í sögu rómönsku Ameríku. Verð 98.000 kr* Innifalið í verði: Flug, gisting í tveggja manna herb., morgunverð- ur, skoðunarferðir, 5 hádegisverðir og 3 kvöldverðir. íslensk farar- stjórn. Tœplega þriggja vikna ferðir til Rómar og Sorrento á Ítalíu. Við hefjum ferðina í Róm og skoðum borgina eilífu á 4 dögum. Hvern langar ekki að sjá staði eins og Kolosseum, Kapitólhœð- ina, Péturskirkjuna, Sixtínsku kapelluna og Forum Romanum? Frá Róm ökum við til Sorrento við Napólíflóann. Þangað hafa menn leitað hvíldar og endurnœr- ingar öldum saman. í Sorrento dveljum við í tæpar tvœr vikur. Meðal staða í nágrenni Sorr- ento sem Erna Sigurðardóttir, fararstjóri Úrvals, skipuleggur skoðunarferðir til eru eldfjallið frœga, Vesúvíus; Pompei, sem grófst í ösku í eldgosi árið 79 e. Kr. og er nú meðal frœgustu fornleifa sem til eru - og gleymum ekki Kaprí, eyjunni yndislegu sem liggur skammt undan Sorrento- skaga. Þessa staði œttu Úrvalsfar- þegar ekki að láta hjá líða að heimsœkja. Verð frá 63.300 kr.* Innifalið í verði: Flug, gisting í tveggja manna herb., morgunverð- ur, akstur til og frá flugvelli erlend- is. íslensk fararstjórn. Brottför: 24. júní, 11. júlí og 19. ágúst. THAILAND Þann 25. október höldum við í þriggja vikna ferð til Thai- lands. / þessu austrœna œvintýra- landi skoðum við okkur vel um undir öruggri fararstjórn Jóhannes- ar Reykdal. Við byrjum í höfuðborginni Bangkok og höldum þaðan norður í land og heimsœkjum Chiang Mai sem var höfuðborg fyrsta thailenska konungsríkisins. Og enn förum við norðar, til Chiang Rai. Undir lok ferðarinnar dveljum við í rúma viku á Pattaya bað- ströndinni. Þaðan heimsœkjum við t.d. orkídeubúgarð í Chonbury, safírnámur við Chantabury, 'FRDASKRIFSrOFAN ÚRVAL - fólk sem kann sitl tae' Pósthússtrœti 13 - Sími 26900 menntasetur búddamunka í Djitta Bhavn og skoðum brúna yfir Kwaifljótið. Verð 90.300 kr.* Innifalið í verði: Flug, gisting í tveggja manna herb., morgunverð- ur, flutningur til og frá flugvöllum erlendis og íslensk fararstjórn. MIÐ-EVRÓPA Þann 16. ágúst hefst 15 daga ferð um Luxembourg og fegurstu svœði Þýskalands, Frakklands og Sviss. Ferðast er í fýrsta flokks loftkœldum hópferðabíl og gist á góðum hótelum. Meðal annars heimsækjum við Móseldalinn og Svartaskóg, Heidelberg, Basel, Lindau við Bodensee, Munchen og Trier. Þessi ferð er tvímœlalaust sú rétta fyrir þá sem vilja sœkja heim marga af fegurstu stöðum Evrópu en vera lausir við að aka sjálfir. Friðrik G. Friðriksson er fararstjóri en farþegar hans úr fyrri rútuferðum Úrvals róma einstaka fararstjórn hans. Verð 67.200 kr.* Innifalið í verði: Flug, gisting, morgunverður, 10 kvöldverðir, skoðunarferðir og íslensk farar- stjórn. * Verð miðast við staðgreiðslu í reiðufé. Komdu við og fáðu bœkling- inn eða hringdu og við sendum þér hann. í Úrvalsbœklingnum ’88 finnur þú úrval sérferða í allar áttir. IALLAR ATTIR YDDA F12.22/SÍA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.