Morgunblaðið - 12.03.1988, Page 61
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. MARZ 1988
61
ÍÞRÓTTIR UNGLINGA / LYFTINGAR
Lyftingafélag Akureyrar sendi öflugan hóp til þessarar keppni. Efri röð: Kristján Pálsson aðstoðarmaður, Hermann
Snorri Jónsson, Kristján Magnússon og Tryggvi Heimisson. Neðri röð: Aðalsteinn Jóhannsson og Snorri Amaldsson.
Afmælismót Lyftingasambands íslands:
Unglingar frá Akureyri
og Ármanni kepptu
UNGLINGASÍÐAN leit inn á
afmælismót lyftingasambands
íslands. Flestir keppendur þar
voru yfir aldursmörkum ungl-
ingasíöunnar en þarna voru þó
keppendur frá LFA og Ármanni
sem voru á „réttum11 aldri.
Eftir að hafa fylgst með mótinu
um hríð tók blaðamaðurinn þá
Ingólf Sigurðsson og Birgi Eiríks-
son úr Ármanni tali. Þeir eru báðir
nemendur í Digra-
Andrés nesskóla í Kópavogi
Pétursson en leggja það samt
skrifar á. s|g ag fara til
Reykjavíkur til að
æfa lyftingar. Við spurðum þá fyrst
hvemig það hefði borið til að þeir
fóm að æfa lyftingar.
Ingólfur varð fyrstur fyrir svömm
og sagði að hann hefði unnið í bak-
aríi og einn af starfsmönnunum þar
æfði- lyftingar. Hann hefði hvatt sig
til að mæta á æfingu og athuga
málið. Það hefði hann gert og líkað
vel. Síðan hefði hann dregið Birgi
með sér og þeir hefðu æft nokkuð
reglulega í nokkra mánuði.
Hvernig líst svo vinum og vanda-
mönnum á að þið skuluð æfa lyft-
ingar?
Báðir piltamir ypptu öxlum og
sögðu að yfirleitt litist öllum vel á
það. Birgir sagði að foreldmm
sínum litist ágætlega á þessar æf-
ingar en það væri helst frá kunn-
ingjunum sem hann fengi að heyra
smá glósur. Það væri þó ekki mikið
og mest í gríni.
Það skemmtilegasta við lyftingam-
ar væri að keppa og þeir Ingólfur
og Birgir em báðir staðráðnir í því
að halda áfram að æfa lyftingar.
Byrjaði á námskeiAi hjá Jóni
Páli
Lyftingafélag Akureyrar sendi
fríðan flokk pilta á þetta mót og
við tókum tvo þeirra tali. Þetta em
þeir Tryggvi Jóhann Heimisson og
Snorri Amaldsson. Snorri er 13 ára
en Tryggvi 16 ára.
Snorri segist hafa byijað að æfa
eftir að hann var á námskeiði hjá
Jóni Páli fyrir norðan. Tryggvi
sagðist hafa byijað á vaxtarrækt
en smám saman snúið sér að lyft-
ingunum. Það er mikill kraftur í
LFA og æfa þeir félagamir fjómm
sinnum í viku.
Aðalástæðuna fyrir því að þeir æfa
segja þeir vera að þetta er góður
félagsskapur og svo væri þetta auð-
vitað holl og góð íþrótt.
Þeir sögðu að foreldrar þeirra hefðu
verið dálítið hræddir við lyftingam-
ar og talið að mikil slysahætta
fylgdi þessari íþrótt. En núna hefðu
þau séð að það er mun minna um
meiðsli í lyftingum en t.d. boltaí-
þróttunum. Nú em milli 6 og 8 sem
æfa með LFA á þeirra aldri og
næsta verkefni sem þeir em að æfa
fyrir er Norðurlandamót unglinga
næsta haust.
Með þessum orðum kvöddum við
þessa vösku lyftingakappa og ósk-
uðum þeim góðs gengis í keppninni.
Ingólfur setur hér glæsilegt íslandsmet ! sínum aldursflokki.
HANDKNATTLEIKUR / GRUNNSKOLAMOT
Hagaskóli og Árbæjarskóli sigruðu
Hagaskóli sigraði í handboltakeppni gmnnskólana á aldrinum 13
til 15 ára stúlkna. Réttarholtskóli varð í öðm sæti og Breið-
holtskóli í þriðja.
í piltaflokki sigraði Árbæjarskóli, Breiðholtskóli varð í öðm sæti og
Álftamýrarskóli í þriðja. 17 skólar sendu liði á mótið, bæði í stúlkna
og piltaflokki. Umsjónarmaður mótsins var Viðar Símonarson, íþrótta-
kennari.
Hagaskóll sigraði i stúlknaflokki.
Árbæjarskóll sigraði í piltafiokki. Hér eru sigurvegaramir ásamt þjálfara sínum, Sigurbergi Sigsteinssyni.