Morgunblaðið - 12.03.1988, Qupperneq 63
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. MARZ 1988
63
KORFUKNATTLEIKUR
Dómstóll ÍSÍ aflétti
banni ívars Webster
Má byrja að leika með Haukum strax
Banninu sem dómstóli Korfu-
knattleikssambands íslands
dæmdi ívar Webster, leikmann
Hauka, í fyrir skömmu, var í gær
aflétt af dómstóls íþróttasam-
bands íslands.
ívar missti fimm leiki úr en getur
verið með Haukum í þeim þremur
leikjum sem liðið á eftir í Úrvals-
deildinni, gegn ÍR, KR og Breiða-
bliki, og svo í úrslitakeppninni,
ef liðið nær að tryggja sér sæti Ivar Webster.
þar. fvar lék hvorugan leikinn
gegn B-liði Njarðvíkur í bikar-
keppninni og heldur ekki úrvals-
deildarleikina gegn Val, Grindavík
og Njarðvík.
Dómstóll KKÍ dæmdi hann á
sínum í bann til 1. apríl.
Upphaf þessa máls er hnefahögg
sem ívar veitt Bimi Hjörleifssyni,
leikmanni Breiðabliks, er þeir
gengu til búningsklefa í leikhléi
viðureignar liða þeirra í úrvals-
deildinni 12. desember sl.
BADMINTON / LANDSLEIKUR
Öruggur sigur á
Bandaríkjunum
ÍSLAND sigraði Bandaríkin,
4:1, í landsleik í badminton í
TBR-húsinu í gærkvöldi. Eini
vinningurinn sem Bandaríkin
fengu var einliðaleikur kvenna,
sem Þórdfs Edwald neyddist til
að gefa vegna meiðsla.
Sigur íslands var næsta auð-
veldur, aðeins þurfti oddalotu
í einni viðureign, í tvíliðaleik karla.
Broddi Kristjánsson byrjaði á því
að sigra Chris Jogis, þrefaldan
bandarískan meistara, ömgglega í
einliðaleiknum, 15:7, 15:8. Þá var
komið að tvíliðaleik karla þar sem
Armann Þorvaldsson og Ámi Þór
Hallgrímsson sigmðu þá John Britt-
onogChrisJogis 15:9,9:15,15:9.
í tvfliðaleik kvenna sigmðu Elísabet
Þórðardóttir og Inga Kjartansdóttir
þær Lindu French og Pamelu Ow-
ens 15:8,15:10. Síðasta viðureignin
var tvenndarleikur þar sem Guð-
mundur Adolfsson og Inga Kjart-
ansdóttir sigmðu John Britton og
Pamelu Owens 15:13, 15:11.
Þórdís Edwald meiddist strax í
fyrsta leik, tognaði á fæti og varð
að hætta.
GETRAUNIR
Risapottur
Það er allt útlit fyrir að pottur-
inn í Getraunum verði með
stærsta móti í dag. Um síðustu
helgi gekk vinningurinn ekki út og
ofan á það bætist að nú er svoköll-
uð „Sprengivika" en þá er bætt
álitlegri summu við pottinn.
Vinningspotturinn um síðustu helgi
var 1,1 miljón kr. en gekk ekki út
þar sem enginn var með 12 rétta
og reyndar aðeins þrír með 11 rétta.
Sú upphæð bætist því við söluna í
þessari viku og potturinn er því
a.m.k. þrefaldur og það er mjög
líklegt að vinningsupphaeðin verði
rúmar þrjár miljónir í dag.
í síðustu „Sprengiviku" var aðeins
einn með 12 rétta, ungur Kópavogs-
búi og fékk hann í sinn hlut rúm-
lega hálfa þriðju miljón.
Á getraunaseðli helgarinnar em
þrír leikir úr ensku bikarkeppninni,
en aðrir leikir em úr deildakeppn-
inni.
Morgunblaðiö/Börkur
Broddl Kristjánsson, nær myndavélinni, fjaðurboltann yfír netið (viðureign-
inni gegn Chris Jogis í einliðaleiknum.
KORFUBOLTI
Elrflcur Slgurðsson.
BLAK
ÍS sigraði
KAnyrðra
STÚDENTAR sigruöu KA,
3:2, í úrslitakeppni íslands-
mótsins íblaki karla á Akur-
eyri í gærkvöldi, í hörku-
spennandi og skemmtileg-
um leik.
IS vann fyrstu hrinuna 9:15,
heimamenn þá næstu 15:9,
Stúdentar svömðu í sömu mynt
og unnu aftur 9:15 en í fjórðu
hrinu mglaðist
kerfið og KA-
menn unnu 15:8!
Oddahrinan vár
síðan löng og
spennandi en Stúdentar höfðu
betur, 15:11. Með þessum eyja
deildarmeistarar Stúdenta enn
möguleikaá íslandsméiataratitl-
inuni, þó svo Þróttarar standi
betur að vígi.
Skúli Unnar
Sveinsson
skrífar
fráAkureyrí
KORFUKNATTLEIKUR / OLYMPIULEIKAR
KKÍ hættir við þátt-
töku í undankeppni ÓL
Körfuknattleikssamband ís-
lands hefur ákveðið að hætta
við þátttöku í undankeppni
Ólympíuleikanna sem fram fer í
Hollandi í sumar. Stjóm Ólympíu-
nefndar íslands sá ekki ástæðu til
að styrkja KKÍ til fararinnar og því
var hætt við ferðina, enda fjár-
hagslegur gmndvöllur ekki fyrir
hendi.
Þetta kemur sér mjög illa fyrir okk-
ur, enda vomm við búnir að gera
ráð fyrir styrk frá Ólympíunefnd-
inni og okkur fínnst það undarlegt
að KSÍ skuli fá styrk til undan-
keppni en ekki við,“ sagði Kristinn
Albertsson, gjaldkeri KKÍ, ( sam-
tali við Morgunblaðið í gær. „Við
emm búnir að vinna mikið starf við
undurbúning þessarar ferðar og það
er því mjög slæmt fyrir okkur að
þurfa að hætta við, en upphæðin
sem við fómm fram á er ekki nema
helmingur þess sem KSÍ fær.
Þessi forkeppni fer fram í Hollandi
og stendur í tvær vikur, frá 28.
júní til 10. júlí og síðustu vikur
höfum við verið að kanna hvaða
þjóðir ætla að taka þátt i keppninni.
Það em rúmlega 20 þjóðir sem taka
þátt í mótinu, en þetta er líklega
stærsta körfuknattleiksmót sem
haldið hefur verið í Evrópu frá upp-
hafí.
Meðal þjóða sem taka þátt í mótinu
em margar svipaðar að styrkleika
og íslendingar og því er það mjög
slæmt fyrir okkur að missa af þessu
tækifæri."
Knattspymusamband íslands er
eina sérsambandið sem hefur verið
styrkt til undankeppni Ólympíuleik-
anna í Seoul. KSÍ fékk 400.000 kr.
í fyrra og mun fá svipaða upphæð
á þessu ári.
„Það geta ekki allir fengið pening
hjá okkur þó að slíkt væri óskandi
og það hefur verið regla hjá okkur
að styrkja ekki sérsambönd til þátt-
töku ( undankeppni nema þau eigi
vemlega möguleika á að komast
áfram," sagði Gísli Halldórsson
formaður Ólympíunefndar íslands í
samtali við Morgunblaðið í gær.
„KSÍ var þó undantekning frá þess-
ari reglu og þar em enn möguleik-
ar fyrir hendi. Þar að auki kom
umsókn KKÍ óvenju seint og það
var lítill tími til stefnu."
Dýrmæl
stig til
Þórsara
Framlengdur
spennuleikurá
Akureyri
„ÉG ER geysilega ánægður
með sigurinn í kvöld, en við
vorum klaufar að missa þetta
niður í jafntefli. Við erum nú
komnir upp fyrir Breiðablik á
botninum, en þetta er þó ekki
búið. En þeir gætu auðvitað
náð okkur, þannig að þetta er
ekki búið. Og svo eigum við
eftir úrslitaleikina við lið úr 1.
deild,“ sagði gamla brýnið
Eiríkur Sigurðsson, sem
tryggði Þórsigurá UBK, ígær-
kvöldi.
Það var greinilegt að mikið var
í húfí því leikmenn vom
taugaóstyrkir og gekk illa að hitta
ofan í körfuna til að byija með.
■■■■■i Þórsarar höfðu þó
Anton lengstum frum-
Benjaminsson kvæðið og komust
skrífarfrá um miðjan
ureyn hálfíeik í átta stiga
forskot, sem var mesti munur í
leiknum. Blikar skriðu svo yfír og
leiddu með einu stigi í hálfleik. A
síðustu sekúndu fyrri hálfleiks
grýtti Bjami Össurarson, Þórsari,
knettinum frá sínum eigin vallar-
helmingi og ofan í! Skoraði þar með
þriggja stiga körfu, sem reyndist
dýrmæt er upp var staðið!
Seinni hálfleikur var mjög jafn og
spennandi, liðin skiptust um að
hafa forystu, og hleyptu andstæð-
ingnum aldrei langt fram úr. Geysi-
leg barátta einkenndi leikinn.
Er 14 sek. vom eftir af venjulegum
leiktíma og staðan 86:87, fékk Þór
víti, og Eiríkur Sigurðsson skoraði
úr öðra þeirra. Framlengt var og
Þórsarar reyndust sterkari á enda-
sprettinum. Aftur var Eiríkur (
sviðsljósinu í lok framlengingarinn-
ar. Gerði þriggja stiga körfu og
skoraði svo úr víti á síðustu sekúnd-
unum. Tryggði Þór þar með dýr-
mætan sigur.
Guðmundur Bjömsson, Bjöm
Sveinsson, Eiríkur Sigurðsson og
Bjami Össurarson léku allir vel hjá
Þór og hjá Blikum vom Kristján
Rafnsson og Kristinn Albertsson
bestir. Einnig var Guðbrandur Stef-
ánsson sterkur.
Þór-UBK
97 : 95
íþróttahöllin ó Akureyri, úrvaisdeildin
í körfuknattleik, fostudaginn 11. mars
1988.
Gangur leiksins: 6:6, 14:14, 20:14,
25:17, 33:33, 43:44, 50:48, 60:62,
69:70, 73:74, 82:81, 84:87, (87:87) -
92:89, 93:93, 97:95.
Stig Þórs: Guðmundur Bjömsson 20,
Eiríkur Sigurðsson 17, Björn Sveinsson
17, Bjami össurarson 12, Ágúst Guð-
mundsson 9, Jón Már Héðinsson 8,
Konráð óskarsson 6, Jóhann Sigurðs-
son 6, Einar Karlsson 2.
Stíg UBK: Kristján Rafnsson 21,
Kristinn Albertsson 19, Guðbrandur
Stefánsson 17, Sigurður Bjamason 12,
Hannes Nesley 11, Ólafur Adolfsson
10, Óskar Ðaldursson 5.
Áhorfendur: 53.
Dómar&r: Gunnar og Sigurður Val-
geiresynir, og dœmdu erfiðan leik vel.
Staðan
UMFN... ...14 12 2 1236:1023 24
ÍBK 11 3 1094: 930 22
Valur ...13 8 6 1022: 883 16
KR ...14 8 6 1136: 999 16
Haukar.. ...13 7 6 964: 920 14
UMTO.... ...14 7 7 1024:1016 14
IR ...13 6 7 951: 977 12
Þór ...16 2 13 1126:1456 4
UBK ...14 1 13 807:1165 2