Morgunblaðið - 12.04.1988, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. APRÍL 1988
Verkfalli VR hef-
ur ekki verið aflýst
Morgunblaðið/Bjami
Frá félagfsfundi VR á Hótel Sögu á sunnudag þar sem nýgerðir samningar við félagið voru kynntir.
Beðið eftir úrslit-
um atkvæða-
greiðslu á morgun
ÞRIGGJA daga atkvæða-
greiðslu meðal félagsmanna
V erslunar mannaf élags
Reykjavíkur um samþykkt eða
synjun samningsins við vinnu-
veitendur lýkur á morgun. Boð-
uðu verkfalli VR-félaga í stór-
mörkuðum og matvöruverslun-
um hefur ekki verið aflýst, að
sögn Magnúsar L. Sveinssonar,
formanns VR, og kemur það til
framkvæmda á fimmtudag ef
samningurinn verður felldur.
Allsheijaratkvæðagreiðsla með-
al félagsmanna VR hófst í gær-
morgun og stendur áfram yfir í
dag og á morgun. Aðalkjörstaður
verður á skrifstofu VR í Húsi
Verslunarinnar í Kringlunni, en
einnig verður kosið á nokkrum
stærri vinnustöðum. Kjörstöðum
verður síðan lokað klukkan 18 á
morgun, miðvikudag, og ættu úr-
slit að liggja fyrir einhvem tíma
fyrir miðnætti svo hægt verði að
taka ákvörðun um afboðun eða
framkvæmd verkfalls á fímmtu-
dag. Magnús L. Sveinsson sagði
að ef samningurinn yrði felldur
yrði mjög fljótlega tekin ákvörðun
um boðun verkfalls á fleiri stöðum
en í stórmörkuðum og matvöru-
verslunum.
Félagsfundur VR var haldinn á
Hótel Sögu á sunnudag og var
nýgerður samningur félagsins við
vinnuveitendur kynntur þar.
Magnús L. Sveinsson sagði í sam-
tali við Morgunblaðið í gær að
byijunarhækkanir á töxtum væru
almennt 2.500-2.700 krónur á
mánuði, eða um 7-9%. Þá þýddi
aukin desemberuppbót 1% hækkun
hjá skrifstofufólki og 2% hækkun
hjá afgreiðslufólki. Magnús sagði
að á öllu samningstímabilinu
hækkuðu lægstu mánaðarlaun hjá
afgreiðslufólki um 6.185 krónur.
eða um 20,63%, en mánaðarlaun
afgreiðslufólks eftir 10 ára starf
hjá sama vinnuveitanda hækkuðu
um 8.858 krónur, eða um 23,28%.
Lægsti taxti skrifstofufólks hækk-
aði um 6.041 krónu á mánuði á
samningstímanum, eða um
18,26%. „Eins og sést af þessum
dæmum er hér um að ræða ívið
meiri hækkanir en samið var um
í Akureyrarsamningunum," sagði
Magnús.
I/EÐURHORFUR Í DAG, 12.4. 88
YFIRLIT f gær: Yfir Baffinslandi og Grænlandi er víðáttumikil 1942ja
mb hæð, en hægfara 993ja mb lægð austur við Noreg. Talsvert
frost verður áfram.
SPÁ: Austan- og norðaustanátt á landinu, kaldi eða stinningskaldi
og él með norður- og austurströndinni en sumstaðar hvasst og
snjókoma syðst. Áfram frost um allt land.
I/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á MIÐVIKUDAG og FIMMTUDAG: Fremur hæg austan-
og norðaustanátt og lítilsháttar él við norðausturströndina og á
stöku stað suðvestanlands er þurrt og víðast bjart verður annars
staðar. Frost 9—10 stig.
TÁKN: y, Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- ■j o Hitastig: 10 gráður á Celsius
•f Heiðskírt stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður • V Skúrir
Á w er 2 vindstig. y El
Léttskýjað / / / / / / / Rigning = Þoka
r t / z= Þokumóða
* / * 5 5 •) Súld
Skýiað / * / * Slydda / * / oo Mistur
* # * 4 Skafrenningur
Alskýjað * * * * Snjókoma * * * K Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær aö ísl tíma
hrtl veður
Akureyri +7 snjóél
Reykjavfk +6 léttskýjað
Bergen 0 snjóél
Helsinki vantar
Jan Mayen +4 snjéél
Kaupmannah. 8 skýjað
Narssarssuaq +6 léttskýjað
Nuuk +7 heiðsklrt
Osló 4 skýjað
Stokkhólmur 2 skýjað
Þórshöfn 0 anjóél
Algarve 18 þokumóða
Amsterdam 11 skýjað
Aþena vantar
Barcelona 17 hálfskýjað
Berlfn 11 akýjað
Chicago 4 skýjað
Feneyjar 16 hðlfskýjað
Frankfurt 13 skýjað
Glasgow 10 skúr
Hamborg 9 skur
Las Palmas 20lóttskýjað
London 14 léttskýjað
Los Angeles 16 akýjað
Lúxemborg 12 léttskýjað
Madrfd 16 alskýjað
Malaga 18 akýjað
Mallorca 19 akýjað
Montreal 6 akýjað
NewYork 8 Iétt8kýjað
Parfs 14 helðsklrt
Róm vantar
Vfn 13 hélfskýjað
Washington 7 helðskfrt
Winnlpeg +2 skýjað
Breytingar á siða-
reg-lum blaðamanna
BREYTINGAR á siðareglum
Blaðamannafélags íslands voru
samþykktar á aðalfundi félags-
ins sl. laugardag. í þeim felst að
ekki er hægt að kæra til siða-
nefndarinnar nema leitað hafi
verið tíl þeirra fjölmiðla, sem
framið hafa meint brot og við-
brögð þeirra ekki talin fullnægj-
andi. Þá var sett inn ákvæði um
að ekki er hægt að visa til siða-
nefndar ummælum blaðamanna,
sem skrifa t.d. gagnrýni undir
fullu nafni. Frekari endurskoðun
á siðareglunum var ákveðin fyrir
næsta aðalfund félagsins.
Kærum til siðanefndar BÍ hefur
§ölgað verulega síðustu ár. Á fund-
inum kom fram að árið 1987 fjall-
aði nefndin um 10 kærumáj en
þegar hafa 6 mál verið kærð til
neftidarinnar það sem af er þessu
ári.
Lúðvík Geirsson fréttastjóri Þjóð-
viljans var endurkjörinn formaður
BI. Varaformaður er Guðmundur
Sv. Hermannsson blaðamaður á
Morgunblaðinu, gjaldkeri er Birgir
Guðmundsson fréttastjóri á Tíman-
um og ritari Jóhanna Harðardóttir
dagskrárgerðarmaður. Meðstjóm-
endur em Sigmundur Emir Rúnars-
son fréttamaður á Stöð 2, Sigurdór
Sigurdórsson blaðamaður á DV og
Kristján Kristjánsson blaðamaður á
Degi. í varastjóm em Bryndís
Kristjánsdóttir ritstjóri Vikunnar,
Kristján Þorvaldsson fréttasstjóri
Alþýðublaðsins og Þorgrímur
Gestsson fréttamaður hjá ríkisút-
varpinu.
Ekið á bíla
og staura
ÖKUMAÐUR, sem var á leið eft-
ir Ártúnsbrekku skömmu fyrir
miðnætti á laugardag, missti
stjóm á bifreið sinni, sem hafn-
aði á ljósastaur. Manninum, sem
grunaður er um ölvun, varð ekki
meint af, en bifreiðin skemmdist
töluvert.
Aðfaranótt fostudagsins ók mað-
ur bifreið sinni á fjórar kyrrstæðaT
bifreiðar við Hávallagötu. Að sögn
lögreglu virðist sem maðurinn hafí
ekið greitt upp Hofsvallagötu og
beygt inn Hávallagötu. Ekki tókst
honum beygjan betur en svo, að
bifreið hans lenti utan í §órum
kyrrstæðum bifreiðum, sem allar
skemmdust nokkuð. Maðurinn ók á
brott, en lögreglan hafði uppi á
honum skömmu síðar. Hann er
grunaður um ölvun við akstur.
KaffibaunamáUð fyr-
ir Hæstarétt í maí
MÁL ákæruvaldsins gegn fimm
forsvarsmönnum Sambands
íslenskra samvinnufélaga, svo-
kallað „kaffibaunamál" verður
flutt i Hæstarétti í byijun maí.
Málið fjallar um innflutning Sam-
bandsins á kaffibaunum til Kaffí-
brennslu Akureyrar árin 1979-
1981. Deilt var um hvort Kaffí-
brennslunni hefðu borið afsláttar-
greiðslur vegna viðskiptanna, en
forsvarsmenn Sambandsins töldu
þessar greiðslur eign þess. Notaðir
voru tveir vörureikningar fyrir
hveija sendingu og tók skrifstofa-
SÍS í London lán fyrir lægri reikn-
ingnum, en sendi þann hærri til
Kaffíbrennslu Akureyrar til inn-
heimtu. Mismunurinn rann til SÍS.
Málið verður flutt fyrir Hæsta-
rétti þann 4. maí næstkomandi.
Veijendur munu ætla að leggja
fram viðbótargögn f málinu, sem
lúta að ýmsum þáttum þess. Ekki
fengust nánari upplýsingar um
gögn þessi hjá lögmönnunum.
Amarnes keypt
til Siglufjarðar
Siglufirði.
STAPAVÍK hf„ útgerðarfyrir-
tæki Sæmundar Árelíussonar ®
Siglufirði, hefur keypt skuttog'
aranna Arnames ÍS-42 (áður Ing'
ólfur) af Torfunesi hf. á ísafirði.
Amamesið hefur fengið einkenu-
isstafína SI-70, sem eru sömu ein-
kennisstafir og fyrra skip útgerðaT'
innar, Sveinborg, var með en hún
var seld til Akureyrar og heitir nu
Þorsteinn. Amamesið er 348 lesta
stálskip og hefur það verið ejid-
umýjað mikið. mj.