Morgunblaðið - 15.04.1988, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 1988
7
Einar Már Guðmunds-
son hlýtur Bjartsýnis-
verðlaun Brostes
Segist bæði bjartsýnn og þakklátur
TILKYNNT var í gær að rithöf-
undurinn Einar Már Guðmunds-
son hlyti Bjartsýnisverðlaun
Brestes i ár. Verðlaunin eru
veitt í 8. sinn og nema um 180
þúsund krónum íslenskum. For-
seti íslands, frú Vigdís Finn-
bogadóttir, sem er vemdari
verðlaunanna, hefur þegar sam-
þykkt veitinguna sem fer fram
í júní. Varð henni að orði að
islenska verðlaunanefndin hlyti
að hafa lesið hug sinn. „Ég varð
ákaflega bjartsýnn,“ sagði Ein-
ar Már Guðmundsson er hann
var inntur eftir viðbrögðum
sinum.
Einar sagðist að vonum vera
þakklátur fyrir verðlaunaveiting-
una og sagði hana koma sér vel
„Það er alltaf erfítt að meta þýð-
ingu verðlauna fyrirfram en ég
vona auðvitað að þau hafí örvandi
áhrif á fleira en fjárhaginn, til
dæmis útgáfu á verkum mínum."
Einar sagði verðlaunaveitinguna
ekki koma sér mjög á óvart. Hann
bjó og starfaði í Danmörku í 6 ár
og hafa bækur hans komið út á
öllum Norðurlöndunum utan Finn-
lands. „Riddarar hringstigans"
kemur bráðlega út í Þýskaiandi.
Árið 1982 hlaut Einar fyrstu
verðlaun Almenna bókafélagsins
Guðmundur
Matthíasson
skipaður
varaflug-
málastjóri
MATTHÍAS Á. Mathiesen, sam-
gönguráðherra, hefur skipað
Guðmund Matthíasson vara-
flugmálastjóra í eitt ár. Þá hef-
ur Þórarinn Guðmundsson,
deildarstjóri, verið skipaður
framkvæmdastjóri Flugleið-
söguþjónustu Flugmálastjórn-
ar.
Haukur Hauksson, varaflug-
málastjóri, hefur fengið eins árs
leyfí frá störfum, til að starfa hjá
Ratsjárstofnun utanríkisráðuneyt-
isins. Á meðan mun Guðmundur
gegna starfi hans, en hann er jafn-
framt framkvæmdastjóri Flugum-
ferðarþjónustunnar.
fyrir skáldsögu sína „Riddara
hringstigans". Auk hennar hafa
komið út 2 skáldsögur og 3
Ijóðabækur. Þá hefur hann þýtt
verk Bretans Ians McEwans og
skrifað tímaritsgreinar í dönsk og
norsk tímarit. Aðspurður sagðist
Einar vera að ljúka við sögusafn
sem kemur út með haustinu auk
þess sem hann er að þýða verk
eftir Ian McEwan.
BSRB- nefnd endur-
skoðar kjarasamninga
Einar Már Guðmundsson
Á ráðstefnu aðildarfélaga BRSB
um kjara- og efnahagsmál 13.
apríl var kosin 6 manna nefnd
til að auðvelda samráð við end-
urskoðun samninga félags-
manna. Nefndina skipa Kristján
Thorlacius, Einar Ólafsson,
Haraldur Hannesson, Ragnhild-
ur Guðmundsdóttir, Pálína Sig-
uijónsdóttir og Albert Kristins-
son.
Ráðstefnuna sóttu fulltrúar að-
ildarfélaga BSRB ,auk stjómar
bandalagsins og var einróma sam-
þykkt ályktun þar sem segir að
ráðstefnan mótmæli harðlega
skertum kaupmætti launa. Hvetur
ráðstefnan til samstöðu opinberra
starfsmanna við að hefja baráttu
fyrir endurheimt kaupmáttar með
öllum tiltækum ráðum.
' Þá segir að ráðstefnan telji að
vegna ólíkrar aðstöðu í samning-
um, t.d. vegna mismunandi gild-
istíma og forms samninga aðildar-
félaganna, geti ekki verið um heild-
arsamflot að ræða. Því telji fundur-
inn að félögin hljóti að leita eftir
endurskoðun launaliðar samning-
anna og hvetur þau til eins víðtæks
samráðs og aðstæður leyfí.
Krabba-
meinsfélag-
inu gefið fé
GUÐJÓN E. Guðmundsson,
Hrafnistu í Hafnarfirði hefur
gefið Krabbameinsfélaginu
200.000 krónur til minningar um
eiginkonu sina, Margréti Páls-
dóttur, sem fæddist 21. október
1905 og lést 20. febrúar 1984.
Guðjón óskar þess að þessir fjár-
munir renni í verkefni félagsins í
þágu krabbameinssjúklinga.
Þá hafa félagar í Félagi íslenskra
gullsmiða gefíð félaginu 116.000
krónur til minningar um Óskar
Kjartansson og aðra félagsmenn
sem látist hafa úr krabbameini.
Gjöfin er ætluð til að stuðla að út-
gáfu bókar fyrir krabbameinssjúkl-
inga og aðstandendur þeirra.
Krabbameinsfélagið þakkar
þessar stórhöfðinglegu gjafír svo
og aðrar gjafír sem félaginu hafa
nýlega borist í sama tilgangi, segir
í frétt frá félaginu.
ÞETTA ER
DAGURINN
ÞÚ ÞARFT EKKI
AÐ BÍÐA
KOMDU Á GAMLA
BÍLNUM OG FARÐU
HEIM Á NÝJUM
VOLVO
Glœnýr Volvo fyrir gamla bílinn þinn.
Þú borgar 25% út,
með andvirði bílsins og/eða peningum.
Við lánum afganginn
í 18-30 mánuði.
ÞETÍA ER DAGURINN
Vf h 4 i Á
SKEIFUNNI 15 SÍMI 691610
ÞETTA ER STAÐURINN