Morgunblaðið - 15.04.1988, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 1988
-tl
Háskólinn í Victoria í Kanada:
Erfir um 11,6 millj. til efl-
ingar íslenskum fræðum
Dr. Ríkharður Beck, prófessor í norrænum fræðum, sem lést
fyrir nokkrum árum hálfníræður að aldri og kona hans, Margr-
ét, arfleiddu háskólann í Victoria í Kanada að 2.500 bindum úr
bókasafni sínu, auk 300.000 dollara eða rúmlega 11,6 milljóna
ísl. kr. Skal fénu varið til eflingar rannsókna í íslenskum fræð-
um og þangað fengnir fræðimenn til að halda fyrirlestra. Að
auki mun háskólinn styrkja með fjárframlögum ráðstefnur er
fjalla um íslenskar bókmenntir.
„Þetta er stórgjöf," sagði Har-
aldur Bessason, rektor Háskólans
á Akureyri. „Ég veit engin dæmi
þess að einstaklingar hafí áður
gefíð jafn háa upphæð til eflingar
íslenskum fræðum erlendis nema
þá íslandsvinurinn Fisk."
Dr. Ríkharður var fæddur og
uppalinn í Svínaskála við Reyðar-
flörð. Hann varð snemma formað-
ur á bát en tók gagnfræðapróf
og seinna stúdentspróf utanskóla.
Rúmlega tvítugur hélt hann til
náms í Bandaríkjunum og lauk
doktorsprófi frá Comell-háskóla í
New York-ríki. Hann kenndi einn
vetur hjá Þjóðræknisfélaginu í
Vesturheimi en var síðan skipaður
prófessor við Pennsylvaniu-
háskóla í Pittsburg um tíma.
Lengst af starfsævinnar var
hann prófessor í norrænum
tungumálum við háskólann í
Grand Folks í Norður-Dakota.
„Norrænudeildin var eiginlega
hann og hann byggði hana mjög
vel upp,“ sagði Haraldur.
„Ríkharður kenndi nánast öll
norrænu tungumálin og virtist
vera í sambandi við alla rithöf-
unda á Norðurlöndum, sem sendu
honum áritaðar bækur sínar. Þeg-
ar hann lét af störfum og flutti á
Vesturströndina gaf hann háskó-
lanum í Grand Folks hluta úr
bókasafni sínu og annan hluta
þess gaf hann til íslands. Hann
var alltaf að gefa bækur.“
Ríkharður starfaði mikið að
félagsmálum fólks af norrænum
uppruna í Norður-Ameríku í Qöl-
mörg ár og var forseti Þjóðrækn-
isféiags íslands í Vesturheimi.
Hann var auk þess um skeið for-
seti félags til eflingar norrænum
fræðum í Bandaríkjunum.
Hjónin Margrét og dr. Ríkharður Beck.
Húnavaka
Blönduósi.
HIN ÁRLEGA Húnavaka Ung-
mennasambands Austur-Hún-
vetninga (USAH) hefst laugar-
daginn 16. april með sýningu á
Litla sótaranum. Að vanda verð-
ur dagskrá Húnavöku fjölbreytt
með ýmsum listviðburðum og
dansleikjum en Húnavöku lýkur
Verslunar-
menn á Húsa-
vík felldu
Húsavík.
Verslunarmannafélag
Húsavikur sem telur um 100
meðlimi felldi nýgerðan kjara-
samning með 23 atkvæðum gegn
einu. Þrír seðlar voru auðir.
Fundurinn ssamþykkti jafnframt
tillögu til samninganefndar um að
lægstu laun yrðu ekki lægri en einn
flórði af hæstu greiddu launum í
landinu. í gærkvöldi hélt trúnaðar-
mannaráð fund og ræddi næstu
skref í málinu.
- Fréttaritari
á Blönduósi
með dansleik á laugardagskvöld-
ið 24. aprU þar sem hljómsveitin
Lexia leikur fyrir dansi.
Sigurlaug Hermannsdóttir á
Blönduósi er formaður USAH og
sagði hún í samtali við Morgun-
blaðið að allir ættu að fínna eitt-
hvað við sitt hæfí á þessari Húna-
vöku. Það vekur athygli að Hús-
bændavakan hefur breytt um nafti
og heitir nú Vökudraumur. Sigur-
laug Hermannsdóttir sagði að þetta
væri tilraun til að bijóta þennan
hefðbundna dagskrárlið upp. Núna
væri jafnframt boðið upp á mat
samhliða skemmtiatriðunum en það
hefði ekki verið áður. Draumaprins-
inn Flosi Ólafsson endurskoðandi
og snyrtir mun flytja hátíðarræðuna
en séra Hjálmar Jónsson góðkunn-
ingi Húnvetninga og hagyrðingur
mun sjá um veislustjóm. Auk þeirra
sem að framan greinir mun koma
fram tónlistarfólk úr Skagafírði,
nemendur gmnnskóla Blönduóss
með rokksýningu, leikhópur frá
Skagaströnd og hljómsveitin Ár-
bandið mun sjá um tónlist þetta
kvöld. Vökudraumnum er ætlað að
rætast í félagsheimilinu á Blöndu-
ósi 20. apríl.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsaon
Sigurlaug Hermannsdóttir ný-
kjörinn formaður USAH.
Á sumardaginn fyrsta verður
skátamessa í Blönudósskirkju kl.
13 og að henni lokinni verður skrúð-
ganga í félagsheimilið á sumar-
skemmtun grunnskólans. Ýmsir
kórar munu sækja Húnvetninga
heim og má þar nefna samkór
Hvanneyrar og Rökkurkórinn í
Skagafírði. Margrét Bjömsdóttir
frá Sauðárkróki verður með sýn-
ingu á grafíkmyndum á hótelinu
og Tónlistarfélagið verður með fjöl-
breytta dagskrá á Húnavöku.
- Jón Sig.
Ráðstefna um
kennaramenntun
RÁÐSTEFNA um kennaramennt-
un verður haldin á vegum mennta-
málaráðuneytisins á morgun,
laugardag. Ráðstefnan er haldin
í samvinnu við Bandalag kennara-
félaga, Háskóla tslands og Kenn-
araháskóla íslands.
Er þetta 4. ráðstefnan sem þessir
aðilar standa að á þessu ári í kjölfar
athugunar Eftiahags- og framfara-
stofnunarinnar í París (OECD) á
fslenska skólakerfínu.
Hin fyrsta þeirra (30. jan. sl.) fjall-
aði almennt um niðurstöður athugun-
arinnar og þá gagnrýni á íslenska
skólakerfíð sem birtist í OECD-
skýrslunni. í kjölfarið voru skipu-
lagðar 4 ráðstefnur um vandamál
og þróunarmöguleika einstakra
skólastiga. Ætlunin er að nota niður-
stöðumar til hliðsjónar við forgangs-
röðun þróunarverkefna á næstu
árum. Ráðstefna um grunnskólastig-
ið var haldin 19. mars sl. og fram-
haldsskólastigið 9. apríl sl. í október
nk. er svo fyrirhuguð ráðstefna um
málefni háskólastigsins.
Á ráðstefnunni nk. laugardag
verður fjallað um þarfir í grunn-
menntun, endurmenntun og fram-
haldsmenntun kennara í almennum
bóknámsgreinum svo og list- og
verkgreinum á grunnskóla- og fram-
haldsskólastigi, þann vanda sem við
er að etja og leiðir til úrbóta. Flutt
verða fjögur stutt framsöguerindi,
en megináhersla lögð á störf í starfs-
hópum. Ráðstefnan endar svo á pall-
borðsumræðum.
Ráðstefnan, sem er haldin í Borg-
artúni 6 kl. 9.30—16.00, er öllum
opin og þátttakendum að kostnaðar-
lausu. Boðið verður upp á léttan
málsverð í hádeginu. Æskilegt er að
menn hringi í síma 25000 og láti
vita af þátttöku.
INNLENT