Morgunblaðið - 15.04.1988, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 1988
29
Atríði úr kvikmyndinni Skelfinum.
Laugarásbíó frum-
sýnir Skelf inn
LAUGARÁSBÍÓ frumsýnir í
dag myndina Skelfinn (The
Hidden). Með aðalhlutverk í
myndinni fara Michael Nouri
og Kyle Maclachlan.
í Skelfínum segir frá veru sem
kemur sér fyrir í líkömum sak-
lausra karla og kvenna, sem um-
tumast við það og gera hina ólík-
legUStu hluti. (Úr fréttatilkynningu)
Kynningardagur Stýri-
mannaskólans í Reykjavík
Stýrimannaskólinn f
Reykjavík heldur hinn árlega
kynningardag sinn á morgun,
iaugardaginn 16. april. Dagur-
inn verður settur kl. 14. Margt
ítölsk dag-
blöð í
Bókakaffi
ÍTALSKA stórblaðið Corriere
Della Sera fæst nú í fyrsta skipti
í lausasölu hér á landi. Það er
bókabúðin Bókakaffi, Garða-
stræti 17, sem tekið hefur að sér
sölu og áskriftarumboð fyrir
blaðið á íslandi.
Mun þetta vera í fyrsta skipti,
sem ítalskt dagblað fæst í
Reykjavík. Hingað kemur blaðið
flugleiðis og fæst eins og tveggja
daga gamalt í Bókakaffí. Corriere
Della Sera kostar 100 krónur í
lausasölu hér á landi.
(Fréttatilkynning)
verður á dagskrá. Göte Sund-
berg forstöðumaður Sjóminja-
safnsins á Álandseyjum af-
hendir málverk og gömul tæki
varðandi siglingar til varðveislu
f Stýrimannaskó lanum.
Björgunarsjóður nemenda Stý-
rimannaskólans verður formlega
stofnaður og ráðamönnum af-
hentir undirskriftalistar, en
stofnfé sjóðsins eru sölulaun
nemdenda, sem þeir fengu í sinn
hlut fyrir merkjasölu á Merkis-
dögum SVFÍ sl. haust, en þeir
seldu 44% þeirra merkja, sem voru
seld í Reylqavík.
Nemendur sýna skólann og
kynna starfsemi hans, ýmis fyrir-
tæki munu kynna hið nýjasta og
markverðasta í siglinga- og fiski-
leitartækjum. Slysavamafélagið
sýnir björgunartæki og þyrla
Landhelgisgæslunnar kemur á
svæðið og verður til sýnis, verði
hún ekki bundin vegna starfa
sinna. Kvenfélagið Hrönn verður
með kaffísölu og veitingar í mat-
sal Sjómannaskólans.
Sunnudaginn 17. apríl heldur
Göte Sundberg fyrirlestur og kvik-
myndasýningu á hátíðasal skótas.s
um siglingar Álandseyinga og
hefst hann kl. 16.
(Fréttatilkynnwg)
Dönsk bókakymiing
í Norræna húsinu
Fyrirlestur um þróun
myndgreiningartækni
FYRIRLESTUR verður haldinn á
vegum læknadeildar Háskóla ís-
lands og læknaráðs Landspftalans
f dag. Prófessor Auguste Wacken-
heim frá háskólasjúkrahúsinu f
Strasbourg í Frakklandi heldur
fyrirlestur er hann nefnir „Semio-
logy of the Cervical Spine in Con-
ventional Radiology, CT and
MRI“.
Fundir LH. ráðs á Selfossi
FUNDIR III. ráðs verða haldnir á
Hótel Ársölum á Selfossi dagana
16. og 17. aprfl. Skráning hefst
laugardaginn 16. aprfl kl. 12.30.
Fundurinn hefst kl. 14 og stendur
til 21 og er á dagskránni eru félags-
mál og ræðukeppni. Á sunnudaginn
hefst skráning kl. 9.30 og fundurinn
stendur frá kl. 10.30 til 15.10. Á
dagskránni eru félagsmál og hádeg-
iserindi. Jón R. Hjálmarsson fræðslu-
stjóri á Suðurlandi flytur erindi sem
hann kallar „Kynning á heima-
byggð". Síðan verður ýmis fræðsla.
Grafíksýning verður í anddyri hót-
elsins þar sem Svava Sigríður Gests-
dóttir sýnir en hún er í ITC-deildinni
Seljum á Selfossi.
Gestgjafadeildimar Seljur á Sel-
fossi og Stjömur í Rangárþingi sjá
um fundina sem em öllum opnir.
(Úr fríttatilkynningu)
í fyrirlestri þessum lýsir prófessor
Wachenheim þróun myndgreiningar-
tækni og notkun nýrra aðferða svo
sem tölvusneiðmyndun og seguló-
mun við greiningar og ákvarðanir á
sjúkdómum í hálshrygg.
Prófessor Wachenheim er heims-
kunnur fyrir rannsóknir sínar og
þróunarstörf í geislagreiningu, eink-
um á sviði taugasjúkdóma. Hann er
forstöðumaður myndgreiningarsviðs
háskólasjúkrahússins í Strasbourg
og m.a. einn af aðalritstjórum tima-
ritsins „Neuroradiology".
■Fyririesturinn verður haldinn í
Eirbergi á Landspítalalóð og hefst
hann kl. 13 í dag. (Fréttatilkynning)
SÍÐASTA bókakynning Norræna
hússins á þessu vorí verður laug-
ardaginn 16. þ.m. kl. 16.00 og
verða þá kynntar danskar bæk-
ur. Lisa Schmalensee sendikenn-
arí fjallar um þær bækur, sem
voru gefnar út í Danmörku á
síðasta árí og gestur kynningar-
innar, ríthöfundurinn Hanne
Maríe Svendsen, ræðir um bók-
menntir og les úr verkum síniun.
Hanne Marie Svendsen fæddist
árið 1933 og lauk kandidatsprófí í
dönsku og þýsku frá Kaupmanna-
hafnarháskóla 1958 og hefur síðan
bæði kennt við háskólann og unnið
við danska ríkisútvarpið, þar sem
hún er nú aðstoðarleikstjóri í leik-
listar- og bókmenntadeild. Hún hóf
ritferil sinn með bókinni „Pá rejse
ind i romanen" 1962 og síðan hefur
hver bókin rekið aðra. Fyrstu bæk-
ur hennar voru um fræðileg efni,
en síðan sneri hún sér að þvi að
skrifa skáldsögur. Hún er talin
meðal mestu ritsnillinga Danmerk-
ur nú á dögum og þykja bækur
hennar, sem eru blanda af raunsæi
og ímyndun, mjög skemmtilegar
aflestrar.
Skáldsaga hennar „Guldkuglen"
sem kom út árið 1985, var lögð
fram af hálfu Danmerkur til bók-
menntaverðlauna Norðurlandaráðs
1986. Af öðrum bókum hennar má
nefna „Dans under frostmáne"
(1979), „Klovnefísk" (1980), „Sam-
tale með gud og fandens oldemor"
(1982) og „Kajla pá fyret" (1987).
(Frétt&tilkynning)
Broddur í
Kaupstað
íMjódd *
KONUR af Skeiðum verða með
brodd til sölu í Kaupstað í Mjódd
í dag, föstudag, eftir hádegi.
Allur ágóði af sölunni rennur til
byggingar setustofu langlegudeild-
ar Ljósheima á Selfossi.
Samband sunnlenskra kvenna
verður með fjáröflun um allt Suður-
land um næstu helgi til styrktar
þessu sama málefni.
(Fréttatílkynning:)
Hollensk hljómsveit
heldur tónleika
Sinfóní uh(j óms veit unglinga frá
Haag í Hollandi heldur tónleika i
Ytri-Njarðvíkurkirkju I kvöld kl.
20.30.
Hljómsveitin er búin að vera hér
á landi í tvær vikur og hefur haldið
tónleika í Reykjavík, Vestmannaeyj-
um, Selfossi, Mosfellsbæ og víðar.
Hljómsveitina skipa nemendur á
Ráðstefna um
tónlistarskóla
tónlistarskólakennara gengst fyr-
ir ráðstefnu í Reykjavík dagna 16.
og 17. aprfl nk. og verður hún
haldin i Æfinga- og tilraunaskóla
Kennaraháskóla íslands við Há-
teigsveg.
Á dagskrá ráðstefnunnar eru fyr-
irlestrar, umræður og hópstarf, auk
þess sem nemendur úi tónlistarskól-
um munu flytja ýmiss konar tónlist.
í fréttatilkynningu frá Félagi tón-
listarkennara segir að við undirbún-
ing ráðstefnunnar hafí það verið
haft að leiðarljósi að efni hennar
höfðaði til allra tónlistarkennara og
þar skapaðist grundvöllur gagnlegra
skoðanaskipta og umræðna um skip-
an tónlistaruppeldis hérlendis i
framtíðinni.
aldrinum 14—25 ára og leika þau
verk eftir þekkta og óþekkta höfunda
og íslensk verk verða einnig á efnis-
skránni. Á tónleikunum kemur einnig
fram Lúðrasveit Tónlistarskólans í
Keflavík.
Aðgangur er ókeypis og öllum
heimill meðan húsrúm leyfír.
(F réttatilkynning)
Gæludýrasýning
í Reiðhöllinni
ÝMSAR tegundir gæludýra verða
á gæludýrasýningu sem haldin
verður I Reiðhöllinni i Viðidal
næstkomandi helgi, dagana 16. og
17. apríl. Einnig verða sýndar
vörur til gæludýrahalds. Á sýning-
nnni verður til dæmis efnt til feg-
urðarsamkeppni katta og Sch&-
ferhundar leika listír sinar.
Meðal annars sem sýnt verður er
flöldi fugla í ýmsum gerðum búra,
sýning á fjölmörgum skrautfískum,
1400 lftra fískabúr og ýmsar gerðir
nagdýra, til dæmis kanínur, naggrís-
ir, mýs og hamstrar verða sýndar í
sérstakri hamstrahöll.
Sýningin verður opin frá klukkan
10-22 báða dagana. Veitingasala
verður á staðnum.
Lónli Blú Bojs fyrir 10 árum síðan, Engilbert Jensen, Rúnar Júlíusson, Gunnar Þórðarson og Björg-
vin Halldórsson.
Lónlí Blú Bojs í Hollywood
HLJÓMSVEITIN Lónlí Blú Bojs
skemmtir um þessar mundir í
veitingahúsinu Hollywood.
Sveitin hefur ekki komið fram
á skemmtunum i 10 ár.
Lónlí Blú Bojs skipa þeir Björg-
vin Halldórsson, Engilbert Jensen,
Gunnar Þórðarson og Rúnar Jú-
líusson. Þeir slógu í gegn fyrir 10
árum með lögum eins og Harðsn-
úna Hanna, Það blanda allir landa
og Heim í Búðardal.
Hljómsveitin kom fram um
síðustu helgi í Hollywood fyrir
troðfullu húsi og fékk geysigóðar
viðtökur. Hún mun skemmta þar
í kvöld og annað kvöld og einnig
um næstu helgi ásamt Rokksveit
Rúnars Júlíussonar.
(Fréttatilkynning)