Morgunblaðið - 15.04.1988, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 1988
35
Borgardómur:
Manní dæmdar 8 milljóna króna
bætur vegna slyss í Broadway
BORGARDÓMUR hefur dæmt Veitingahúsið Álfabakka 8 hf., sem rek-
ur skemmtistaðinn Broadway, til að greiða 26 ára gömlum manni 8
milljónir króna vegna meiðsla er maðurinn varð fyrir á skemmtistaðn-
um. Maðurinn féll aftur fyrir sig af handriði við dansgólf Broadway
og er 100% öryrki eftir slysið.
Anna Júlíana Sveinsdóttir söng-
kona.
messósópran og Lára Rafnsdótt-
ir píanóleikari munu halda tón-
leika í Borgarneskirkju laugar-
daginn 16. apríl nk.
Anna Júlíana stundaði söngnám
í tónlistarháskólunum í Munchen,
Köln og Aachen í Þýskalandi og
lauk þaðan einsöngvara- og kenn-
araprófí. Hún hefur haldið fjölda
ljóðatónleika bæði hérlendis og í
Danmörku, Þýskalandi og Banda-
ríkjunum. Hún var ráðin við Ríkis-
óperuna í Aachen veturinn 1977—
1978 og söng þar fjölda óperuhlut-
verka. Anna Júlíana er þekkt fyrir
túlkun sína á ýmsum óperuhlut-
verkum hér á landi og má þar nefna
Czipru í Sígaunabaróninum, Böggu
í Litla sótaranum, Carmen í sam-
nefndri óperu og Amneris í Aidu. í
vor mun hún syngja á ljóðatónleik-
um í Osló og á tónlistarhátíðinni í
Bergen.
Lára S. Rafnsdóttir pianóleikari.
Lára S. Rafnsdóttir stundaði tón-
listamám á ísafírði hjá Ragnari
H. Ragnar og síðan í Reykjavík,
þar sem hún lauk einleikaraprófí
frá Tónlistarskólanum í Reylq'avík
árið 1968. Framhaldsnám stundaði
hún við Guildhall School of Music
and Drama í London og lauk þaðan
einleikara- og kennaraprófí árið
1972. Veturinn 1976—77 dvaldi
hún í Köln í Þýskalandi við tónlist-
amám. Lára hefur komið fram á
fjölda tónleika hérlendis sem er-
lendis. Hún starfar nú við Söngskól-
ann í Reykjavík og Tónlistarskólann
í Reykjavík.
Tónleikamir í Borgamesi hefjast
kl. 14 og er efnisskráin fjölbreytt
með lögum eftir íslenska og erlenda
höfunda. Tónleikamir eru haldnir á
vegum Tónlistarfélags Borgarfjarð-
ar.
(Fréttatilkynning)
Slysið varð 2. júní árið 1986.
Maðurinn settist upp á handrið, sem
er umhverfís dansgólf Broadway og
féll aftur fyrir sig, niður í stiga.
Fallið var um 3,60 metrar og lenti
maðurinn á höfðinu. Örorka manns-
ins frá slysdegi er talin 100%. Þegar
slysið varð var handriðið 90 cm hátt
og hafði verið hækkað um 15 cm
eftir að kona féll þar niður og slasað-
ist í febrúar sama ár. Eftir slys kon-
unnar hafði viðbótahækkun verið
skrúfuð utan á handriðið, svo það
var 120 cm á þessum stað, en sú
upphækkun var ekki til staðar þegar
maðurinn slasaðist.
Af hálfu mannsins var því haldið
fram, að stefndi, Veitingahúsið Alfa-
bakka, megi búast við að gestir í
húsinu séu meira og minna ölvaðir
meðan þeir hafíst við þar inni og því
verr í stakk búnir tíl að varast hætt-
urr heldur en annars væri. Um sé
að ræða brún á danspalli, þar sem
fólk er á ferð og flugi í dansi og við
slíkar aðstæður sé sérstök hætta á
að fólk falli yfir handriðið. Þá hafí
stefndi ítrekað fyrir slysið fengið
sérstök tilefni til að veita hættu-
ástandinu athygli og ráða bót á því.
Önnur slys hafí orðið við handriðið,
sem hafí gefíð stefnda slík tilefni.
Hækkun handríðanna úr 75 cm í 90
cm hafí verið alls ófullnægjandi að-
gerð. Af byggingarreglugerð megi
ráða, að handrið þetta var allt of
lágt. Jafnvel þó ófullnægjandi kröfur
til öryggis séu gerðar í byggingarlög-
gjöf og af yfirvöldum byggingarmála
leysi það stefnda alls ekki undan
skyldu hans gagnvart gestum veit-
ingahússins um að gætt sé fyllsta
öryggis þar inni. Stefnanda verði
ekki að neinu leyti sjálfum kennt um
slysið, enda sé framburður vitna um,
að hann hafí sest upp á handriðið
og sveiflað fótum fram á við, ótrygg-
ur. Var af hálfu stefnanda krafíst
að stefndi greiddi skaða- og miska-
bætur að flárhæð krónur 25milljónir.
Stefndi, Veitingahúsið Álfabakka
8 hf., kvaðst að lögum enga bóta-
ábyrgð bera á slysi stefnanda, sem
sjálfur hafí valdið slysi sínu með stór-
felldu gáleysi. Var þar vitnað í fram-
burð vitna, um að maðurinn hafi
sest upp á handriðið og baðað út
öngum. Það hafí ekki skipt sköpum
um slysið hvort handriðið hafí verið
75 cm, 90 cm, eða 120 cm. Aðrar
aðstæður í veitingahúsinu hafí ekki
valdið slysinu, heldur alfarið eigin
athafnir stefnanda. Handriðið hafí
sem slíkt fullnægt kröfum bygging-
aryfírvalda og ákvæðum byggingar-
reglugerðar. Allur búnaður veitinga-
hússins, þ. á m. handriðið og hækk-
anir á því, hafí verið hannaður, upp-
settur og endurbættur af sjálfstæð-
um, faglærðum verktökum. Beri
stefnda því hvorki sakar- né annars
konar bótaábyrgð út af handriðinu
eða öðrum búnaði hússins, jafnvel
þó talið yrði að betur hefði mátt
gera til vamar slysum og slys stefn-
anda mætti rekja til vanbúnaðar, en
það væri ósannað. Skapi engum
bótaskyldu að útiloka ekki með sér-
stökum öryggisráðstöfunum alla
möguleika á þvi, að menn geti vísvit-
andi sett sig í slysahættu, svo sem
stefnandi hafí gert. Stefndi lagði
áherslu á, að dómar Hæstaréttar í
skaðabótamálum vegna slysa í
tengslum við búnað fasteigna sýni
ótvírætt, að sakarmatið snúist um
það, hvort umbúnaður hafí verið í
samræmi við lög og reglugerðir eða
ekki.
í niðurstöðu dómsins segir, að
upplýst verði að telja að algengt
hafí verið að fólk fyllti sér á handrið-
ið á dansgólfínu og settist á það, að
stefnandi hafi lyft báðum fótum bein-
um frá handriðinu og að þá hafí
hann skyndilega misst jafnvægið og
fallið aftur á bak. Handriðið hafí
verið 90 cm á hæð og uppfyllt þar
með byggingarreglugerð um hæð
handriða. Forsvarsmenn stefnda hafí
séð, að sérstök hætta hafí verið á
þessum stað og þess vegna látið setja
upphækkun, svo handriðið var 120
cm. Ef sú upphækkun hefði verið til
staðar þegar slysið varð, þá verði
að telja yfirgnæfandi líkur fyrir því
að stefnandi hefði ekki sest á þessum
stað og þvi ekki fallið 3,60 m á höfuð-
ið niður í stigann.
Borgardómarinn, Garðar Gíslason,
taldi að orsök slyssins hafí legið
bæði í gálausu athæfí stefnanda
sjálfs og þeirri vangæslu forsvars-
manna stefnanda að hafa fjarlægt
upphækkunina á handríðinu, sem
átti að draga úr hættu á þessum
stað. Yrði því að skipta sök að jöfnu.
Tjón stefnanda þótti hæfilega metið
15 milljónir króna og miski hans 1
milljón, samtals 16 milljónir. Veit-
ingahúsinu var gert að greiða honum
helming þessarar flárhæðar, eða 8
milljónir króna, með vöxtum frá slys-
degi. Þá var veitingahúsinu einnig
gert að greiða stefnanda 500 þúsund
krónur í málskostnað.
Tónleikar í Borgar-
neskirkju á morgun
ANNA Júlíana Sveinsdóttir
FERÐASKBIFSTOFA FÍB
UmMfíMÐA.
IFIUOI Otí Bll!
Þjónusta okkar er ölium opin.
Hjá Ferðaskrifstofu FÍB sérhæfum við okkur í flugi og bíl, einfaldlega
vegna þess að þar getum við boðið þér vel.
Vegna traustra tengsla okkar við ýmis systursamtök í Evrópu getum við
boðið þér hagstæð bílaleigukjör eða flutning á eigin bíl, sé þess óskað;
vandaða gistingu og skemmtilegar ökuleiðir.
Viljirðu njóta frísins í flugi og bíl, hafðu þáfyrstsamband
við okkur. Við finnum með þér vænlegustu kostina,
- í ánægjulegt frí, nákvæmlega
að þínum óskum.
FERÐASKRIFSTOFA FIB
BORGARTÚNI 33 SÍMAR 29997 & 622970