Morgunblaðið - 15.04.1988, Qupperneq 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 1988
fclk í
fréttum
STÓRSTIRNI
Beta á ferð og flugi
Reuter
Elísabet Taylor var stödd i Bankok í Thailandi
siðastliðinn þriðjudag. Þar veitti hún viðtöku enn
einni gjöfinni frá sínum heittelskaða milljónamœr-
ingi Malcolm Forbes. Elísabet fékk agnarlitinn
gibbon-apa sem hún virðir fyrir sér á myndinni.
Thailenskir náttúrufræðingar hafa látið í ljós
^ óánægju með gjöfina. Þeir segja að veiðimenn
þurfi að skjóta móðurina til að ná apaunganum
af henni og í ofanálag séu lífslíkur apans við
þessar óeðlilegu aðstæður fjarska litlar.
Reuter
Leikkonan fór frá Thailandi til Japan og var í
Tokyo síðastliðinn miðvikudag. Á blaðamanna-
fundi sem haldinn var á hóteli þar í borg skoraði
hún á Japana að gefa eins mikið fé og frekast
væri unnt til að vinna bug á' eyðniveirunni. Elisa-
bet Taylor er formaður bandaríska eyðnirann-
sóknarsjóðsins.
DÓMARARAUNIR
Á leið í
fegurðarsamkeppni
Neskaupstað
Ekki var jafn auðvelt fyrir alla dómara á fegurðarsamkeppni
Austurlands að komast á áfangastað keppniskvöldið, eins og
sést á myndinni. Á henni er Inga Þorvaldsdóttir frá Seyðisfirði að
leggja af stað yfir Fjarðarheiðina áleiðis til Neskaupstaðar til að
sinna dómarastarfinu. Hún lagði af stað ásamt §órum félögum sínum
á jeppa, en þau sneru við og lögðu á heiðina á þremur vélsleðum
og komust á þeim til Neskaupstaðar.
- Ágúst
FRAKKLAND
Bók um forsetatíð
Giscard d’Estaing
vekur umtal
Valery Giscard d’Estaing var
forseti Frakklands árin 1974
til 1981, en það ár beið hann lægri
hlut í kosningum fyrir Francois
Mitterand núverandi forseta
landsins. Giscard er ekki í fram-
boði í forsetakosningunum 24.
þessa mánaðar, en er engu að
síður umtalaður maður í heimal-
andi sínu þessar vikumar. Ástæð-
an er sú að nýlega kom út bók
hans um fyrstu embættisárin.
Bókin kallast Le Pouvoir et la
Vie eða Valdið og lífíð. Hún var
söluhæsta bókin í Frakklandi í
marsmánuði og gagnrýnendur
hafa hrósað Giscard fyrir ritsnilld-
ina. I bókinni em ekki venjulegar
endurminningar, heldur hugleið-
ingar um lífíð á valdastóli, settar
fram með háfleygum orðum eins
og tíðkast meðal Frakka. Ná-
kvæmar lýsingar í bókinni á smá-
legum atvikum koma heim við það
orð sem fór af nákvæmni Gis-
cards, sem sumir vildu kalla smá-
munasemi.
Mestu púðri eyðir bókarhöfund-
ur í að sýna fram á að stjómend-
ur séu eins og annað fólk. Honum
em jafnframt ofarlega í huga mál
eins og konur í stjómmálum og
dauðarefsing. í Frakklandi var,
meðan dauðadómum var enn full-
nægt á síðasta áratug, ætlast til
þess að forsetinn hefði af þeim
nokkur afskipti er ekki vom að-
eins formið eitt, og hefur þetta
sýnilega valdið Giscard mikilli sál-
arangist.
Forsetinn fyrrverandi segir frá
samskiptum sínum við ýmsa menn
og er Helmut Schmidt, fyrram
kanslari Vestur-Þýskalands,
þeirra fyrirferðarmestur. Giscard
talar um að samband þeirra hafi
verið einstaklega gott, líkara trún-
I bók Giscards verður honum tfðrætt um Helmut Schmidt, fyrrum
kanslara Vestur-Þýskalands.
Valery Giscard d’Estaing og
kona hans Anne-Aymone i kvöld-
verðarboði á alþýðuheimili.
aðarvináttu en samskiptum
tveggja þjóðarleiðtoga. Þá rekur
höfundur erótískar hugleiðingar
sem frú Alice Saunier-Seité vakti
með honum í embættisferð þeirra
til Korsíku. Hún fór með ráðu-
neyti háskólamála í stjómartíð
Giscards.
í bókinni er einnig vikið að því
uppátæki forsetahjónanna að fara
í hálf-opinber kvöldverðarboð á
alþýðuheimili. Sumir skopuðust
að þessum heimsóknum og farsi
um þær komst á fjalimar alla leið
uppi á íslandi. Giscard ver heim-
sóknimar af talsverðum ákafa og
segir að þær hafi verið frjálslegar
og afslappaðar og oft staðið langt
fram á nótt, enda hafi þau hjón
rætt þær af ánægju eftir á.
(Time & Herald Tribune)
VALERY
GISCARD
D’ESTAING
LE POUVOIR
ET LAVIE
hi
____________Ó2____________
Giscard dEstaing, fyrrum
Frakklandsforseti, hefur skrif-
að bók um fyrstu embættisár
sin. Hún kom nýlega út i
Frakklandi og hefur vakið
mikla eftirtekt.