Morgunblaðið - 15.04.1988, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 1988
47
Þessir hringdu
• •
Oryrkjar ættu að
fá ókeypis áskrift
H.P. Hraundal hringdi:
„Mig langar til að koma þeirri
fyrirspurn á framfæri til Stöðvar
2 hvort þeir geti ekki gefið ellilí-
feyrisþegum ókeypis áskrift? Er
ekki tími til kominn? Þá fínnst
mér að ekki veitti af að lífga uppá
Ríkissjónvarpið með því fá Ingva
Hrafn aftur á skjáinn. Hann hefur
ekki sagt annað en sannleikann."
Seðlaveski
Handunnið seðlaveski með
mynstri á annari hliðinni en
fangamarkinu „LK“ á hinni tap-
aðist í síðustu viku. Finnandi er
vinsamlegast beðinn að skila því
til lögreglunnar eða hringja f síma
43372.
Hver samdi
áramótaskaupið?
Sjónvarpsáhorfandi hringdi:
„Hver samdi síðasta
áramótaskaupið sem sjónvarpið
var með. Mig minnir að það hafi
ekki verið gefið upp á sínum tíma
en nú ætti að vera kominn tími
til að upplýsa þetta."
Kettlingur
Bröndóttur kettlingur fannst
við Grandaskóla sl. föstudag. Eig-
andi hans er beðinn að hringja í
síma 13804.
Úr
Gyllt Citizenúr með svartri ól
tapaðist á Valbjamarvelli í Laug-
ardal fyrir skömmu. Finnandi er
vinsamlegast beðinn að hringja í
síma 54079.
E. T. A.
Til Velvakanda.
í ævintýrum HoffmannB er það
næstum hversdagslegt að látnir
Iáti til aln taka með einum- eða
öðrum hætti löngu eftir dauðann.
Tónskáldið Gluck, sem lézt árið
1787 f Vín, leikur verk sln í Berlln
árið 1809. Náttúrufræðingurinn
Leeuwenhoek, grafinn f Delft árið
1723, temur flær 1 Frankfurt á
þriðja tug nftjándu aldar. I ævin-
týrunum kemur lflta fram mfldll
áhugi á hvere konar vélum, eink-
um hvemig þær geta bilað þegar
sízt skyldi. Skyldi E.T.A. Hoff-
mann sjálfur hafa verið á ferii og
bera einhveija ábyrgð ,á þeim
óveryumiklu vandræðum sem
Rlkissjónvarpið átti I með textavél
sína að kvöldi föstudagsins langa
I sendingu þar sem vélin upp-
nefndi hann „Theu Hoffmann"?
Reynir Axelsson
Thea Hoffmann
Þrándur Thoroddsen hringdi: bréf er byggt á misskilningi. í
„Fyrir skömmu birtist bréf I þættinum sem Rejmir talar um
Velvakanda sem bar fyrirsögnina var verið að fjalla um smásöguna
E.T.A. Hoffmann en höfundur
þess var Reynir Axelsson. Þetta
Hnetubijótinn eftir sænsku skáld-
konuna Theu Hoffmann."
Bjórinn getur verið mikill skaðvaldur
Til Velvakanda.
Ég dvaldist um tíma I Þýska-
landi. Skammt frá hótelinu sem ég
bjó á var verið að endurbyggja
hús. Við það unnu menn úr hinum
ýmsu iðngreinum. Það vakti at-
hygli okkar sem dvöldum á þessu
hóteli, að það fyrsta sem þessir iðn-
aðarmenn gjörðu þegar þeir komu
á morgnana var að koma fyrir bjór-
kassa á stað þar sem þægilegast
var að ná til bjórsins.
Kona sem var dvalargestur á
umræddu hóteli sagði frá því að
dóttir sín hefði dvalið um tíma við
nám I Þýskalandi og haft með sér
fjölskyldu sína. Maðurinn, sem var
iðnaðarmaður, stundaði sfna iðn-
grein. Hann vandist á að neyta
bjóráins daglega með vinnufélögum
sínum með þeim afleiðingum að
hann missti fótfestuna og hrökkl-
aðist frá konu og bömum.
Sjáist maður drekka úr bjór-
flösku á vinnustað þykir það ekkert
tiltökumál. En ef sá hinn sami sæist
vera að sturta ofan í sig úr
brennivínsflösku mundu margir
hneykslast og jafnvel leggja til að
maðurinn viki af vinnustað. Þannig
berst áfengið inn I llkama manna
I formi bjórs og kippir undan þeim
fótfestunni.
Gisli Kristjánsson
HEILRÆÐl
Er reykskynjarinn í lagi?
Bilaður reykskynjari er „falskt" öryggi. Prófaðu því reykskynjar-
ann þinn reglulega. Sjáðu til þess að rafhlöður séu ávallt I lagi.
Við skulum vona að þú þurfir aldrei að vakna við hljóðið I reyk-
skynjaranum vegna eldsvoða á heimilinu, en mundu að hann á að
vekja þig á hættustundu.
Vertu eldklár.
Tökum höndum saman
gegn launamisrétti
Kæri Velvakandi.
Það þætti ekki sérlega góður né
fær læknir sem réðist með lyfjum,
hnífi og skrumi að einkennum sjúk-
dóms og aðeins þeim en hugsaði
ekki um að komast að rótum meins-
ins. Ekki væri það heldur góður
tannlæknir sem ijarlægja myndi
þann hluta skemmdrar tannar sem
uppúr stæði en skildi rótina eftir.
Slökkviliðsmaðurinn væri einnig til
lítils gagns ef hann beindi vatns-
bunu sinni að reyknum en hugsaði
ekki um að sprauta á upptök elds-
ins. Við höfum öll heyrt að það að
pissa I skóinn sinn á köldum degi
þegar verkjar I tæmar af kulda sé
skammgóður vermir.
En eitthvað þessu líkt, einhver
slík vinnubrögð eru viðhöfð af þeim
sem bera eiga hag verkafólks og
annarra láglaunamanna fyrir
brjósti. Afleiðingamar eru óleyst
vandamál sem þarfnast skjótrar
úrlausnar og enn fleiri vandamál
sem vaxa upp af gróandi illgresi,
' og af því er nóg I þessu þjóðfélagi.
Sjúkdómurinn heldur áfram að
breiða úr sér og skemma út frá
sér. Verkimir vara og vanlíðanin
eykst. Eldurinn brennur og breiðist
út þangað til ekkert er lengur til
sem brunnið getur. Vatnið kólnar I
skónum og veldur enn meiri vanlíð-
an þegar kólnar úti veður og fijósa
tekur.
Til að leysa vandamálin sem al-
þýða þessa lands á við að gllma
þarf kunnáttumenn, athafnamenn,
fólk sem kann til verka, fólk sem
þekkir vandann og veit hvemig
bregðast á við honum. Þetta fólk
er alþýða þessa lands, verkamenn
og aðrir láglaunamenn. Þetta er
fólkið sem mjmda þarf með sér sam-
stöðu til að geta gert stóra hluti,
því hér þarf Grettistaki að ljrfta og
einungis er það hægt með samtaka-
mætti alþýðuhnar þar sem hver
höndin vinnur með annarri og allir
em samhuga. Vandamálin sem
verkafólk og annað láglaunafólk á
við að glíma em jrfírþyrmandi og
þrúgandi. Húsnæðisleysi, húsnæði I
sambýli nagdýra, skordýra og vetur
konung, fataleysi, kvíði og þung-
ljmdi svo eitthvað sé nefnt. Allt er
þetta vegna peningaleysis, lágra
launa, kvikindislegs launamisréttis,
þó nóg sé til af peningum, mat og
húsnæði I landinu.
í staðinn fyrir að leysa þessi mál
á að byggja ráðhús, jarðgöng undir
Hvalfjörð, jarðgöng milli Önundar-
fjarðar, Súgandafjarðar og Skutuls-
flarðar við ísafjarðardjúp. Svo við
minnumst ekki á bruðlið hjá aðals-
fólki þessa lands, kokteilboðin, veisl-
umar, fríðindin og styrkina, og ut-
anlandsferðimar sem borgað er af
hinu opinbera. Hvaðan koma öll
þessi verðmæti sem aðallinn bmðlar
með á sama tíma og alþýðan á að
spara, herða sultarólina og líða
skort? Auðvitað frá hinum vinnandi
manni, láglaunamanninum, verka-'
manninum. Hinum sanna athafna-
manni hins (slenska þjóðfélags.
Hvað fær hann I staðinn? Fýrirlitn-
ingu og enn meiri fyrirlitningu. Og
hver er það sem hjálpar honum að
ná rétti sínum, annar en ófær starfs-
kraftur nema I augum aðalsins.
Alþýða þessa lands þarf að taka
höndum saman ef hún á að geta
lifað mannsæmandi lifi I þessu landi.
Hún þarf að vinna að málum sínum
sjálf, taka málin I sínar hendur,
mynda samstöðu, en láta ekki ófæra
menn ráðskast með hagsmuni sína.
Það þarf færan, raunsæjan og
reynslunni ríkari lækni til að gfíma
við hættulegan sjúkdóm. Færan
slökkviliðsmann sem veit hvert hann
á að beina bununni til að ráða niður-
lögum eldsins. Hæfir menn þurfa
að taka við málum alþýðunnar,
menn sem þekkja vandann: matar-
leysið, húsnæðisleysið, peningaleys-
ið, lífsleiðann og kuldann. Menn sem
bjóða ekki útigangsmanninum, sem
er að farast úr vosbúð og naglakuli
á tánum, að brosa framan I heiminn
og pissa I skóna sína.
Einar Ingvi Magnússon
Kynningarfundur
meðdönskum
framleidendum giafavara
Danska sendiráðið heidur kynningarfund í samvinnu við Félag
danskra gjafavöruf ramlelðenda á Hótel Sögu f immtudaginn
21. apríl og föstudaginn 22. apríl.
Þar munu 20 danskir framleiðendur gjafavara verða viðstaddir til þess
að komast í samband við íslenska innflytjendur og verslanir með gjafa-
vörur og til þess að sýna framleiðslu sína, svo sem
skreytingar, fatnað, postulíns- og glervörur, listmuni úr pappír, fegr-
unar- og snyrtivörur, vörurtil auglýsinga, skreytingarfyrirverslaniro.fi.
Sendiráðiö hefur pegar sent boösbréf, kynningarbækiinga og tilkynningareyðublöö
til margra islenskra fyrirtækja. Vegna þess áhuga sem kynningarfundurinn hefur
vakiö, getaþau fyrirtækisem ekki þegar hafa móttekiö áöurnefnd gögn en óska
eftirþvíaö fá þau, haft samband við sendiráöiö í dag, föstudag, ísíma:91-621230.
DANSKA
SENDIRÁÐIÐ