Morgunblaðið - 15.04.1988, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 1988
51
foúm
FOLK
■ BRODDI Kristjánsson tapaði
fyrir HoUendmginum Ronnie
Michels í fyrstu umferð úrslita-
keppni Evrópumeistaramótsins í
badminton, sem hófst í Kristian-
sand í Noregi í gær. Broddi tap-
aði,'7:15 og 10:15. Þórdís Edvard
tapaði í kvennaflokki, 3:11 og 2:11,
fyrir Anne Gibson frá Skotlandi.
■ KAISERSLA UTERN hefur
ákveðið að selja markaskorarann
Harald Kohr til Köln fyrir 1.5
millj. marka. Kohr hefur varið
markahæsti leikmaður félagsins
undanfarin tvö ár.
■ DANSKI landsliðsmaðurinn
Lars Lunde, sem leikur með
Aauru í Sviss, slasaðist alvarlega
í bílslysi um sl. helgi. Lunde, sem
lék með Bayem MUnchen, liggur
meðvitundarlaus á sjúkrahúsi og
óttast læknar að hann hafi fengið
heilaskemmdir við þungt höfuð-
högg.
■ LASSE Viren, hlauparinn
kunni frá Finnlandi, sem hefur
unnið fjögur gull á Ólympíuleikum
- í 5.000 og 10.000 km hlaupi,
ætlar að taka þátt í maraþonhlaupi
í Parls 15. maí. Viren hefur mikinn
hug á að keppa í maraþonhlaupi á
ÓL í Seoul.
HANDKNATTLEIKUR
Aðalsteinn Jónsson
fér til Schutterwald
Eigandi félagsins, Edgar Heuberger, kom til
íslands til að ganga frá samningum við Aðal-
stein, sem fertil V-Þýskaland í ágúst
AÐALSTEINN Jónsson, vinstri-
handarskytta úr Breiðabiik,
hefur ákveðið að ganga til liðs
við v-þýska liðið Schutterwald
og leika með því nœsta keppn-
istímabil. Aðalsteinn, sem er
25 ára íþróttakennari, hefur
verið einn af lykilmönnum
Breiðabliks undanfarin ár.
Eigandi Schutterwald, Edgar
Heuberger, var á meðal áhorf-
enda þegar Breiðablik og Valur léku
bikarúrslitaleikinn í Laugardals-
höliinni. Hann kom gagngert ís-
lands til að ræða við Aðalstein.
„Það er þó nokkuð síðan að þetta
mál kom upp, en ég ákvað að bíða
rólegur og hugsa mig vel um, áður
en ég tæki ákvörðun. Eftir leikinn
gegn Val settumst við Heuberger
niður og ræddum málin. Þá ákvað
ég að taka boði Schutterwald. Þetta
er tilvalið tækifæri til að reyna eitt-
hvað nýtt og sjá hvemig mér geng-
ur á framandi slóðum. Ég verð hjá
félaginu eitt ár til að byrja með.
Eftir það tek ég ákvörðun um, hvað
verður um framhaldið," sagði Aðal-
steinn, sem heldur til V-Þýskalands
í byijun ágúst, ásamt eiginkonu
sinni Elísabetu Sveinsdóttur og
tveggja ára syni, Amóri Sveini.
Elísabet hefur hug á að stunda nám
í markaðsfræði, en hún starfar í
Markaðsdeild Iðnaðarbankans. „Ég
hef einnig áhuga á að stunda nám
með því að leika með Schutter-
wald,“ sagði Aðalsteinn, sem er
ekki ókunnugur í Schutterwald,
sem er í Svartaskógi. Hann var þar
í æfingabúðum með Breiðablik sl.
sumar í tíu daga. Þá kynntist hann
Heuberger, sem lék með Göpping-
en, þegar Geir Hallsteinssyni, þjálf-
ara Breiðabliks, lék með liðinu.
Schutterwald, sem leikur í 2. deild,
á góðan möguleika á að tryggja sér
sæti í Bundesligunni. Þess má geta
Siguijón Sigurðsson, leikmaður úr
Haukum, lék með félaginu í vetur,
en hann er kominn heim.
Morgunblaðið/Bjami
AAalstelnn Jónsson, landsliðsmaður úr Breiðablik, skoraði 51 mark í 1.
deildarkeppninni í vetur.
HANDKNATTLEIKUR
„Spennandi verk-
efni að taka
við KR-liðinu“
- segirJóhann Ingi Gunnarsson, sem kemurheim íjúní
I ARMANDO Ufarte, sem tók
við þjálfarastöðunni af Cesar Luis
Menotti hjá spænska 1. deildarlið-
inu Atletico Madrid, var í gær
rekinn frá félaginu. Ufarte, sem
var áður leikmaður Atletico, hafði
aðeins verið þjálfari liðsins í þijár
vikur. Honum samdi ekki við for-
seta félagsins, Jesus Gil, og f fram-
haldi af því var hann látinn taka
pokann sinn. Gil sagðist vera óhress
með að Ufarte hafi ekki haft'sam-
ráð við Jose Maria Maguregui sem
mun þjálfa liðið næsta keppnistíma-
bil.
UJOHN McEnroe, bandaríski
tenniskappinn skapmikli, tekur þátt
í sínu fyrsta tennismóti eftir sjö
mánaða hvfld frá tennis f Japan f
dag. McEnroe, sem Qórum sinnum
hefur verið kjörinn besti tennisleik-
ari heims, lék síðast á opna
bandarísk mótinu í september er
hann fékk tveggja mánaða keppnis-
bann vegna óíþróttamannslegrar
framkomu. Hann er nú númer 25
á lista yfír bestu tennisleikara
heims. Hann hefur hug á að bæta
úr því á þessu ári.
■ BRIAN Horton, þjálfari
enska 2. deildarliðsins Hull, var
látinn taka pokann sinn eftir tapið
gegn Swindon í fyrrakvöld. Liðinu
hefur gengið mjög illa undir stjóm
hans og hefur ekki sigrað í sfðustu
15. deildarleikjum sínum.
„EFTIR góða umhugsun ákvað
ég aðtaka boði KR-inga. Ég
þekki vel til fólagsins, þar æm
óg var þjálfari KR fyrir sex
árum. Þvf tel óg vita, að hverju
óg geng. Það verður spennandi
og skemmtilegt verkefni að
taka við KR-liðinu,“ sagði Jó-
hann Ingi Gunnarsson, hand-
knattleiksþjálfari, sem kemur
heim frá V-Þýskalandi í júní.
ijú félög voru inni í myndinni
hjá mér. KR, Valur og Víking-
ur. Ég hugleiddi boð félaganna vel.
Valsliðið er yfirburðarlið á íslandi,
sem á eftir að styrkjast mikið við
komu Sigurðar Sveinssonar. Félag-
ið leikur á heimavelli og þá leikur
lang besti markvörður landsins,
Einar Þorvarðarson, með Valslið-
inu.
Víkingsliðið hefur verið nær
ósigrandi undanfarin ár. Víkingar
ætla að byggja hratt upp nýtt lið.
KR-liðið hefur ekki náið að vinna
titla undanfarin ár. KR hefur feng-
ið mjög öflugan liðsstyrk, þar sem
þeir Alfreð Gfslason og Páll Ólafs-
son em. Það er því spennandi verk-
efni að snúa KR-liðinu upp f iið, sem
getur verið í toppbaráttu. KR-liðið
er skipað ungum og efnilegum leik-
mönnum, sem hafa fengið góða
kennslu hjá ólafi Jónssyni. Ég
þekki Ólaf vel og veit að ég kem
ekki að tómum kofanum hjá KR.
Ólafur, sem er þjálfari sem á eftir
að vera í sviðsljósinu. Hefur gert
góða hluti hjá KR,“ sagði Jóhann
Ingi.
Erflður vetur framundan
Jóhann Ingi sagði að það væri erfið-
ur vetur framundan hjá íslenskum
handknattleik. Þátttaka íslenska
landsliðsins á Ólympíuleikunum í
Seoul á eftir að setja mark sitt á
1. deildarkeppnina næsta vetur.
„Deildarkeppnin hefst ekki fyrr en
í nóvember, þannig að þeir hand-
knattleiksmenn sem leika ekki með
landsliðinu, standa uppi verkefnis-
lausir f sex mánuði. Landsliðsmenn-
imir geta ekki æft og undirbúið sig
með félögum sfnum fyrir 1. deildar-
keppnina. Þá getur farið svo, að
þeir komi þreyttir og leiðir heim frá
Seoul - það fer þó allt eftir því
hvemig landsliðinu gengur þar,“
sagði Jóhann Ingi.
Jóhann Ingl Qunnarsson
„Það er mitt hlutverk að halda þeim
leikmönnum KR-liðsins, sem em
ekki í landsliðinu, við efnið. Það
verður að koma á móti eða mótum
fyrir þá leikmenn sem em heima,
á meðan landsliðið er á ferðinni."
Jóhann Ingi sagðist koma heim f
júní, en hann byijaði að þjálfa hjá
KR á fullum krafti 1. ágúst.
HANDKNATTLEIKUR
Kvennalandsliðið til
Portugals og Frakklands
KVENNALANDSLIÐIÐ íhand-
knattleik takur þótt í tveimur
mótum í ár. Fyret heldur liðiA
til Portugals í júnf og sföan
tekur liðiA þátt f C-keppni
HM, sem fer fram í Frakk-
landi í október. Framundan
er þvf mesta verkefni sem
kvennalandslið hefur fengið.
Sex þjóðir taka þátt f móti,
sem fer fram í Portugal
14.-19. júní. Það em landslið
Portugals, Frakklands, ítaliu,
Sviss, Spánar og íslands.
B-keppnin fer fram í Frakklandi
26. október til 1. nóvember. Átta
þjóðir hafa þegar tryggt sér sæti
í keppninni. Það em landslið ís-
lands, Frakklands, Hollands,
Svfþjóðar, Spánar, ítalfu, Sviss
og Portugal.
Tvö sæti em laus. Bretiand,
Belgía og Tyrkland leika um eitt
sætið og um hitt sætið keppa
Grikkland og ísrael.
HANDKNATTLEIKUR
Gunnar Gunnarsson
á heimleið
GUNNAR Gunnarsson, leik-
maður IFK Malmö, undir stjórn
Þorbjarnar Jenssonar, mun að
öllum Ifkindum leika á íslandi
nœsta keppnistfmabil. Malmö
tryggði sór sœti f 1. deildinni f
Svfþjóð og vill ekki sleppa
Gunnari, en hann er þó ákveð-
inn f að koma heim.
að er mest spennandi að koma
heim, eins og staðan er f dag,“
sagði Gunnar. „Það virðist vera að
færast mikið Qör í handboltann
heima og það væri gaman að vera
með næsta keppnistímabil."
Gunnar lék með Vfkingi áður en
hann fór til Svfþjóðar, en þar hefur
hann leikið undanfarin ár.
„Ég hef ekkert ákveðið hvert ég
fer. Það kom inér svo á óvart að
við skyldum komast í 1. deild að
ég hef ekki enn áttað mig á því.
En þrátt fyrir það vil ég koma heim
og taka þátt í gróskunni sem er í
fslenskum handbolta."