Morgunblaðið - 01.05.1988, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. MAÍ 1988
Undanþága SAS:
Brotá
samstöðu
verslun-
armanna
- segirPéturA.
Maack
„Formaður Verslunarmannafé-
lags Suðumesja gaf SAS undan-
þágu einn og sér, án vitundar
allra annarra félagsmanna í
verkalýðsfélögum á svæðinu og
án samráðs við forystu félagsins
eða önnur verkalýðsfélög,“ sagði
Pétur A. Maack, formaður verk-
fallsstjórnar VR í samtali við
Morgunblaðið.
„Þetta var gert í blóra við þá
stefnu, sem mörkuð hefur verið í
verkfallsaðgerðum. Þegar ljóst var
að maðurinn hefði gengið á bak
orða sinna um verkfallsvörslu,
gengu okkar menn út,“ sagði Pétur.
Pétur sagðist líta á þessa aðgerð
formanns VS sem brot á samstöðu
verslunarmanna. „Við teljum að
þama hafí ekki verið rétt að farið,
það á að ganga það sama yfír er-
lend flugfélög og íslensk í þessu
verkfalli," sagði Pétur.
Stympst í flugstöðinni.
Keflavík:
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Flugvél frá SAS afgreidd
með leyfi verslunarmanna
_ci,
Keflavík.
Verslunarmannafélag Suðurnesja gaf SAS mönnum grænt ljós
á að þeir mættu sjálfir innrita farþega I vél félagsins i Flugstöð-
inni í gær. Þá höfðu SAS menn undirritað yfirlýsingu til VS um
að samkomulag þeirra við Flugleiðir væri úr gildi fallið þar sem
félagið gæti ekki staðið við fyrra samkomulag. Verkfallsverðir
úr VR sem voru Suðurnesjamönnum til aðstoðar reiddust sam-
komulaginu og yfirgáfu flugstöðina. SAS vélin hélt siðan til
Kaupmannahafnar full af farþegum um hálf tólf og hafði brott-
för hennar þá seinkað um tæpa 3 tíma.
Flug Amarflugs gekk eðlilega fyrir sig og fór vél kl. 07:00 full
af farþegum til Amsterdam, en þijár vélar Flugleiða fóru til Evrópu
og komu verkfallsverðir í veg fyrir innritun farþega þeirra.
Til lítilsháttar átaka kom milli farþega sem ætluðu að fljúga með
Flugleiðum og verkfallsvarða. Ekki urðu alvaleg meiðsl á fólki í átök-
um þessum, en verkfallsvörður, ung stúlka í Verslunarmannafélagi
Suðumesja hlaut minniháttar áverka og voru danskir ferðamenn sem
gengu hvað harðast fram kærðir til lögreglunnar á Keflavíkurflug-
velli sem varð að skerast í leikinn.
Morgunblaðið/Börkur
Málaðá vegg í Mosfellsbæ
NEMENDUR i eldri bekkjum Varmárskóla f Mosfellsbæ tóku sig til
á föstudag og hófu vinnu við risamálverk, eins konar fresku, á einn
vegginn í sal skólans. Unnu þeir langt fram á nótt, lögðu sig sfðan
f skólanum og tóku aftur tíl við verkið f bftið á laugardag. Myndin
var tekin á laugardagsmorgun og eins og sjá má er verkið langt
komið.
Siinnudagshugvelgan
SÉRA Guðmundur Óli Ólafsson
prestur í Skálholti mun skrifa
sunnudagshugvekju Morgun-
blaðsins næstu mánuði.
Séra Guðmundur lauk embætt-
isprófí frá Háskóla íslands árið
1953 en stundaði síðan fram-
haldsnám í trúfræði og guðfræði
Marteins Lúthers í Noregi og
Þýskalandi á ámnum 1953 og
1954. Hann vígðist sóknarprestur
til Skálholtsprestakalls 1955 og
hefur þjónað því kalli síðan. Hann
var ritstjóri „Hestsins okkar" frá
1963 til 1970 og ritstjóri Kirkju-
ritsins 1971-1978. Af öðrum rit-
störfum má m.a. nefna bemsku-
og æskusögu séra Friðriks Frið-
rikssonar, sem KFUM gaf út, og
þýðingu bókarinnar „Hér stend
ég“ — um ævi Lúthers eftir Ro-
land Bainton.
FVrsta hugvelcja sr. Guðmund-
ar óla birtist í blaðinu í dag.
Sr. Halldór Gunnarsson í Holti
Séra Guðmundur Óli Ólafsson
hefur skrifað hugvekjuna undan-
fama mánuði og færir blaðið hon-
um bestu þakkir fyrir ánægjulegt
samstarf.
Flutningarnir fyrir varnarliðið:
Lögbannið á út-
boðið framlengt
LÖGBANN á útboð flutninga-
deildar Bandaríkjahers vegna
Handbolti:
Eínsmarks
sigur gegn
Japan
Tókió. Frá Júlíusi Signrjónssyni.
JÚLÍUS JÓNASSON lék sinn
besta landsleik og setti nfu mörk,
þegar íslenska landsliðið sigraði
það japanska 24:23 f jöfnum og
spennandi leik í ólympfuhöllinni
f Tókýó í Japan í gær að viðstödd-
um 2.000 áhorfendum.
Heimamenn höfðu frumkvæðið
lengst af, voru yfírleitt marki yfir
í fyrri hálfleik, en staðan í hléi var
12:11. Á fyrstu 10 mínútum seinni
hálfleiks voru íslendingamir ávallt
einum eða tveimur færri, staðan
breyttist í 19:16 ogþegar 12 mínút-
ur voru eftir höfðu heimamenn náð
fjögurra marka forystu, 21:17.
Þá kom besti kafli fslenska liðsins
og það sýndi sitt rétta andlit. Einar
Þorvarðarson lokaði markinu og
vamarleikurinn var öruggur. Þegar
þijár mínútur vom til leiksloka og
staðan 22:21 varði Einar víti og
Atli Hilmarsson jafnaði í næstu
sókn. Júlíus náði forystunni fyrir
ísland, Niyasita, sem gerði níu
mörk, jafnaði, en Atli gerði sigur-
markið fímm sekúndum fyrir leiks-
lok.
Mörk íslands: Júlíus Jónasson
9/2, Atli Hilmarsson 7/2, Þorgils
Óttar Mathiesen 3, Karl Þráinsson
2, Jakob Sigurðsson 2 og Ámi Frið-
leifsson 1.
sjóflutninga fyrir varnarliðið
milli Bandarikjanna og íslands
hefur verið framlengt til 13.
maf næstkomandi og jafnframt
ákveðið að yfirheyrslur vegna
málsins fari fram þann 9. maí.
Gildandi samningur um flutn-
inga tO varnarliðsins rann út á
laugardag og deila flutninga-
deildar Bandaríkjahers og
Rainbow Navigation um lög-
mæti útboðsgagna kemur enn f
veg fyrir að hægt sé að semja
fyrir næsta tímabil, sem hefst
1. maf.
Flutningamir fyrir vamarliðið
voru boðnir út í febrúar í fyrra
í TILEFNI hátíðisdags verka-
lýðsins f dag, 1. maí, gangast
verkalýðsfélögin í Reykjavfk fyr-
ir kröfugöngu og útifundi.
Kröfugangan verður farin frá
Hlemmi og gengið niður á Lækj-
artorg, þar sem fundurinn verð-
ur haldinn.
Áætlað er að göngumenn safnist
saman á Hlemmi upp úr klukkan
13.30, en gangan leggur af stað
klukkan 14. Lúðrasveit verkalýðs-
ins og lúðrasveitin Svanur fara fyr-
ir göngunni.
Fundaretjóri á Lækjartorgi verð-
ur Ragna Bergmann. Ávörp flytja
Hjálmfríður Þórðardóttir, ritari
Dagsbrúnar, Pálfna Sigurjónsdóttir,
formaður Hjúkranarfræðingafélags
og útboðsgögnum skilað í marz,
en samningstímabilið var frá 1.
maí 1987 til 30. aprfl 1988. Eim-
skip hlaut þá 65% flutninganna
en Rainbow Navigation 35%, en
samkvæmt samningi þjóðanna,
koma 65% flutninganna í hlut þess
ríkis, sem lægsta tilboðið á, en
hitt í hlut hins. Nú voru flutning-
amir boðnir út í marz síðastliðnum
og tilboðum átti að skila síðari
hluta aprflmánaðar. Rainbow
Navigation kærði útboðsgögnin,
þar sem stjómendur skipafélags-
ins efuðust um lögmæti þeirra.
Lögbann var þá sett á útboðið til
29. apríl, en framlengt á föstudag
til 13. maí.
Islands, og Guðmundur Hallvarðs-
son, formaður Sjómannasambands
Reykjavíkur. Baldvin Halldóreson
leikari mun lesa ljóð á fundinum.
Hvorki kröfuganga né útifundur
verða í Hafnarfirði og er það í
fyrsta skipti í 40 ár, sem Hafnfírð-
ingar halda ekki upp á 1, maí með
þeim hætti. í samtali við Fjarðar-
póstinn segir Grétar Þorleifsson,
formaður Fulltrúaaráðs verkalýðs-
félaganna í Hafnarfirði, að ástæða
þessa sé dræm þáttaka sfðustu árin
og hafí tekið steininn úr á samkomu
verkalýðsfélaganna í Bæjarbíói f
fyrra. Hins vegar verður séretök
1. maí - dagskrá í Hafnarfjarðarút-
varpinu.
1. maí:
Kröfuganga verkalýðs-
félaganna og útífundur
i
j