Morgunblaðið - 01.05.1988, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. MAÍ 1988
9
4. sunnud. eftir páska
Jóh. 16. 5.-15.
HUGVEKJA
eftir séra GUÐMUND ÓLA ÓLAFSSON
Hann er kominn
á hryggðarstundu
Ég mun leiða blinda menn um
veg, er þeir ekki rata, færa þá
um stigu, sem þeir ekki þekkja.
Ég vil gjöra myrkrið fram undan
þeim að ljósi og hólótt landið
að jafnsléttu. (Jes. 42, 16.)
„Hann er kominn, sem ég
ætlaði að finna.“
Var það síra Jóhann, sem
svaraði svo meðhjálpara sínum?
Svo var sagt. 0g síra Jóhann
Þorkelsson er löngu sannhelgur
maður í íslenzkum sögum og
hafið yfir allan efa, að hann sé
það í himninum. Því fer sagan
honum vel.
Þeir voru einir komnir til
kirkju einhvern sunnudags-
morgun, presturinn og dyggur
meðhjálpari hans. Og þar sem
þeir bjástruðu í skrúðhúsinu, gat
meðhjálparinn ekki orða
bundizt: „Það verður líklega
ekki messufært í dag. Hér er
enginn kominn.“
„Hann er kominn, sem ég
ætlaði að fínna," svaraði prestur
og messaði síðan.
Aldraður maður bjóst að
heiman til hinztu farar sinnar í
þessum heimi. Fátæklega og
næsta létta skjóðu hafði hann
meðferðis. Þegar hann hafði
kvatt þennan heim, varð skjóðan
eftir. Í henni var ekkert fémætt,
sem vænta mátti. En dálítill
snepill var þar, sem benti til
þessara orða Jesú: „Hvar sem
tveir eða þrír eru saman komnir
í mínu nafni, þar er ég á meðal
þeirra."
Þar var veganestið í léttum
mal.
íslenzkur prestur, sem starfar
erlendis, skrifaði vini og starfs-
bróður heima á íslandi á hryggð-
arstundu. Það var um þetta leyti
árs:
„Þessi tími kirkjuársins er
stundum nefndur „Brosið gegn-
um tárin". Það mun vera vegna
þess, að fagnaðarboðskapur
þessa tíma er úr Skilnaðarræð-
unni eða fjallar á einhvern hátt
um dauðann og kveðjustundir,
en þó fyrst og fremst um endur-
fundi: „Innan skamms," segir
Frelsarinn, og „það mun verða
ein hjörð og einn hirðir." Því er
tími tára og tími brossins gegn-
um tárin. Ef ég man rétt, var
faðir þinn kvaddur á fund Frels-
ara síns á degi hins góða hirðis.
— Og nú er hjörðin tvístruð, og
nú er tími tára, og nú er tími
boðskaparins um hirðinn, sem
mun safna saman horfnum hát-
íðargestum. Því brosi ég gegn-
um tárin.“
„Sorgin gleymir engum,“ eða
svo er sagt. Hitt er einnig víst
og satt, ef nokkuð er satt í þess-
ari veröld, að Drottinn gleymir
ekki sorg þinni né hryggðar-
stundum. Það má heita kynlegt,
að allt það, sem um hann er
skráð og eftir honum haft í ritum
lærisveina hans er kallað fagn-
aðarboðskapur. Ekkert annað
erindi, sem farið hefur um jörðu
meðal manna, hefur hlotið svo
eindregna yfírskrift og játning
af mennskum vörum. Þó sést
þess hvergi getið, að hann hafí
svo mikið sem brosað. En hann
táraðist og hann grét. Og hann,
sem skynjaði og bar alla jarðar-
sorg og þjáning, stóð einhvem
dag í hlíðum Olíufjallsins og
horfði yfír borgina fögru: „Jerú-
salem, Jerúsalem."
Það er satt, að sorg getur
komizt í tízku, eins og fleira, og
hvarvetna eru til sölu lausnir á
hvers manns vanda, einnig sorg-
inni. En viljir þú finna Frelsara
þinn og Hjálpara þann og Hugg-
ara, sem hann ræðir um í guð-
spjöllum þessa dagana, þá eru
einungis til reiðu bamsleg 'og
einföld svör, þau svör, sem notuð
hafa verið við fræðslu ferming-
arbarna og annarra fákunnandi,
kynslóð eftir kynslóð:
Leitaðu til orða hans. Hann
hét því að vera í þeim orðum,
koma til þeirra, sem varðveittu
þau. Og þau em betur varðveitt
og vottfest en nokkrar aðrar
heimildir, sem þekkjast.
Minnstu þess einnig, að það
var hann, sem bauð til skímar
og til kvöldmáltíðar. Og hann
hét því einnig, að koma til hverr-
ar skímar og vera við hveija
kvöldmáltíð, hann, sem heitir
Immanúel, Guð með oss.
Og gleymdu því ekki, að hann
hét að vera meðal lærisveina
sinna. Leitaðu vina hans, en
ekki óvina, ef þig skortir hugg-
unarorð. Gleymdu ekki orðum
eins og þessum: „Sjá, ég er með
yður alla daga, allt til enda ver-
aldarinnar." 0g „verið í mér, þá
verð ég einnig í yður.“
Og enn má það sízt gleymast,
að Frelsarinn hét því að vera
meðal smælingjanna, verða í
þeim fátæku, sjúku, þeim, sem
sitja í fangelsum, í myrkri og
skugga dauðans.
Textamir em sem djúpir álar
þessa dagana, raunar eins og
reginhöf tilsýndar. Þeir em eins
konar eftirmáli páskanna og
formáli hvítasunnunnar. Raunar
em þeir ófærir með öllu nema í
fylgd hans, sem leiðir „blinda
menn um veg, er þeir rata ekki“.
LIFAMDIPENINGAMARKAÐUR
í KRINGLUNNI
MÁL f YRIRTAKIS^
mrðbréfaimrkadm
glbg þekking
Brynhildur Sverrisdóttir
Margrét Hinriksdóttir
Sigrún Ólafsdóttir
Stefán Jóhannsson
Hjá Fjárfestingarfélaginu í Kringlunní
erlifandi peningamarkaður
og persónuleg þjónusta.
, , Opið tnánudaga til föstudaga kl. 10 — 18
FjARFESTINCARFElAGIÐ og hmgardaga kl. 10 - 14
Kringlunni 123 Reykjavík Sími 689700
Símsvari ALLAN SÓLARHRINGINN í síma 28506. Upplýsingar um daglegt gengi Kjarabréfa, Markbréfa, Fjölþjóðabréfa og Tekjubréfa
Gengi: 22. apríl 1988: Kjarabréf 2,775 - Tekjubréf 1,371 - Markbréf 1,445 - Fjölþjóðabréf 1,268