Morgunblaðið - 01.05.1988, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLABIÐ, SUNNUDAGUR 1. MAÍ 1988
Morgunblaðið/Þorkell.
N
Grár fyrir járnum í herjeppa í Víetnam.
Rætt við atvinnuhermanninn
Grím Magnússon:
E S J A
F.R IYinr ILJIAMA
Sagt hefur verið um íslendinga,
að þeir séu ævintýragjarnir og
það sé varla hægt að grafa upp
það krummaskuð á jarðkúlunni
að þar sé ekki íslendingur fyrir,
nýfarinn eða rétt ókominn. 0 g
landinn lendir í ýmsu, alls kyns
uppákomum sem hann óraði
ekki fyrir. Jafn vel mannvígum
í einhverri mestu orrustu sem
farið hefur fram, Tet-áhlaupinu
í Víetnam. Við erum núna að
tala um ákveðinn íslending.
Hann heitir Grímur
Magnússon, 58 ára gamall og
búsettur í Oklahoma. Hann
hefur verið í bandaríska
hemum síðan að hann var 18
ára gamall og var sendur um
heim allann. Hann komst til
talsverðra metorða í hemum
og svo kom að því að öll ögunin
og þjálfunin þurfti að skila sér.
Hann var sendur til Víetnam
og lenti þar í þeim verstu
hremmingum sem hægt er að
hugsa sér. En kúlumar hæfðu
hann ekki, þær strukust bara
við fötin hans og hann lifði
hildarleikinn af.
Hannvar„heima“ fyrir
skömmu, en stoppaði stutt.
Nógu lengi samt til þess að það
náðist í skottið á honum og
reyndist hann fús að ræða við
Morgunblaðið. Hann var fyrst
spurður hvemig það bar til að
hann gekk í bandaríska herinn.
Grímur segir:
TEXTI:
"UÐMUNDUR GUÐJÓNSSON.
Á „kontómum" i hrísgrjónabeltinu. /
Eg var latur í skóla,
komst ekki í gegn
um gagnfræða-
skóla og var far-
inn að vinna á
eyrinni. Ég var
haldinn ævintýra-
þrá, en hvað var
til ráða? Satt að segja sá ég ekkert
betra úrræði en að fara út og ganga
í herinn, það var eina leiðin sem
mér virtist fær til þess að komast
burt af landinu. Ekki svo að skilja
að ég hafi eitthvert antipat á Is-
landi, þvert á móti, en eins og stað-
an var, sá ég ekkert framundan
fyrir mig hér á landi.“
En hvemig tóku foreldrar og vin-
ir þessu?
„Foreldrar mínir urðu að skrifa
upp á pappfra til þess að þetta yrði
löglegt og mamma vildi fyrst ekki
skrifa undir, tók það ekki í mál, en
pabbi var á því að ég ætti að ráða
þessu svo fremi sem ég væri alveg
hreint viss um að ég vildi stíga
þetta skref. Svo gat ég talað
mömmu inn á þetta. Hvað aðra
varðar, þá var herinn farinn héðan
þegar þetta var og því fátt um til-
finningar manna til hans, en áhrifin
frekar af hinu góða heldur en ekki
meðan hann var, þannig að þetta
var ekki meiri vitleysa en hvað
annað. Nú, ég aldist upp á stríðsár-
unum og ekki laust við að herinn
væri sveipaður nokkrum ævintýra-
ljóma.
-Út fór ég því og erfítt var það,
ég kunni lítið í ensku. Út fór ég
7.júní 1948 og í herinn gekk ég
7.september sama ár. Ég ætlaði í
fótgönguliðið (army) og var teinn
inn í 9. fótgönguliðssveit banda-
ríska hersins. Allt fram í desember
var ég svo ásamt félögum mínum
í þeim stífustu æfingabúðum sem
ég gat ímyndað mér. Svo var farið
að senda okkur út um allar jarðir
og fyrst endaði ég í Guam og þar
var ég í 14 mánuði. Það helsta sem
ég man eftir frá þeirri dvöl var, að
á meðan við vorum þar, skriðu 8
Japanir út úr frumskóginu og gáf-
ust upp. Þeir voru svo afskekktir í
skóginum að þeir héldu að stríðið
væri enn í fullum gangi og höfðu
gefist upp eftir endalaus heilabrot
um afleiðingar þess. Þeir áttu á
flestu von en að geta gengið fijáls-
ir burt frá herbækistöðinni.
Svo lá leiðin aftur til Banda-
ríkjana og ég var orðinn undirfor-
ingi, en í desember 1950 var ég
sendur með hermönnum úr 2. fót-
gönguliðssveitinni til Japans, var
þar á Hokiroeyju til ársins 1953,
að ég hélt aftur til USA og var
settur í loftvamarliðið í Pennsil-
vaníu. 1954 var ég orðinn fyrsti lið-
þjálfi og var skipaður yfir 200
manna herflokk sem var sendur til
Thule á Grænlandi. Ég man eftir
því, að þar hitti ég áhöfn af íslenskri
flugvél og var myndaður í bak og
fyrir. Ein af þeim myndum birtist
svo seinna í Vísi. Mitt í öllu þessu
flakki gafst þó tími til að kynnast
Lou eiginkonu minni og ganga í
gegn um tilhugalífið.
En svona hélt þetta áfram, ég
var í Wurzburg í Vestur Þýskalandi
í 2 ár, síðan í Vicenza á Ítalíu í 2
ár. Ég var orðinn birgðasérfræðing-
ur. Ég var svokallaður Master Se-
argent E8, sem er næst æðsti lið-
þjálfinn, og var sém slíkur gerður
að „chief warrant officer". Ég var
sá fyrsti sinnar tegundar í hemum
með E8 gráðu, venjulega eru CWO
af hærri tign. Árið 1966 settist ég
svo í liðsforingjaskóla í Fort Sill
Oklahoma, en svo fór að draga til
tíðinda. í september 1967 var ég
sendur til Víetnam og sameinaðist
ég þar minni gömlu 9.fótgönguliðs-
sveit."
-Víetnam var heldur betur
lífsreynsla og minningin er áleitin.
Þegar ég sá t.d. kvikmyndina Plato-
on, var ég t. d. lengi að jafna mig
á eftir. Samt má segja, að öll þessi
ár í hemum hafi verið þjálfun fyrir
hemað og þama reyndi á hversu
vel maður hafði laert lexíur sínar.
Svo um munaði. Ég hafði bæki-
stöðvar m.a. í Dong Tham og Bearc-
at sem við kölluðum. Þetta var í
hrísgijónabeltinu fyrir sunnan Sa-
igon og hlutverk okkar var að halda
tengslunum við höfuðborgina opn-
um. Ég réði t.d. yfir 54 bátum með
flugvélarmótumm og birgðastöð.
Átti m. a. að sjá um brýmar á svæð-
inu, gera við þær ef Víetcong næði
að skadda þær o.s.frv. Víetcong
gripu eiginlega til allra ráða til að
gera okkur skráveifu. T.d. sprengdu
þeir eina brú með þeim hætti, að
tveir unglingar úr þeirra röðum
vöfðu sig sprengiefni frá toppi til
táar og létu sig reka niður ána til
brúarinnar í skjóli myrkurs. Þeir
hengdu sig svo á brúarstólpana og