Morgunblaðið - 03.05.1988, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 1988
27
Sauðárkrókur:
Sæluvika yfirstaðin
Sauðárkróki.
SÆLUVIKU Skagfirðinga lauk
með stórdansleik í félagsheimil-
inu Bifröst fyrir nokkru, þar sem
hljómsveit Geirmundar lék fyrir
dansi. Mikill fjöldi var á dans-
ieiknum og Græni salurinn op-
inn, en þar hittast menn til þess
að taka lagið, og ekki var sungið
minna né verr nú en venjulega.
Sæluvika hófst með svonefndum
Forsæludansleik föstudaginn 8.
apríl með hljómsveit Geirmundar
Valtýssonar, en eins og stundum
áður var Geirmundur áberandi og
gerði sitt til þess að halda uppi
góðu fjöri á þessari gleðiviku Skag-
firðinga.
En ýmislegt fleira var til afþrey-
ingar á sæluviku en dansleikimir.
A laugardag, 9. apríl, var opnuð í
Safnahúsinu sýning á ljósmyndum
og teikningum Daniels Bruun frá
ferðum hans um ísland. Kl. 16.00
þann dag hélt Ásgeir Bjömsson
lektor erindi í Safnahúsinu, um
Bruun og ferðir hans og rannsókn-
ir á íslandi. Fjölmargir komu og
hlustuðu á skemmtilegt erindi Ás-
geirs, en að því loknu gengu gestir
um og skoðuðu myndasýninguna
undir leiðsögn þeirra Ásgeirs og
Örlygs Hálfdánarsonar bókaútgef-
anda, sem skýrðu það sem fyrir
augu bar.
Kirkjukvöld í
Sauðárkrókskirkju
Eins og á undanfömum Sæluvik-
um voru kirkjukvöld í Sauðárkróks-
kirkju á mánudags- og þriðjudags-
kvöld. Þar söng kór kirkjunnar
undir stjóm Rögnvaldar Valbergs-
sonar og einnig léku á þverflautu
og píanó þær Katharine L. Seedell
og Sólveig L. Einarsdóttir. Ræðu-
maður á mánudagskvöldi var sr.
Bemharður Guðmundsson en á
þriðjudagskvöldi sr. Dalla Þórðar-
dóttir. Að venju var aðsókn ágæt
bæði kvöldin.
Tvö leikrit í gangi
Leikfélag Sauðárkróks fékk til
liðs við sig leikstjórann Sigurgeir
Schewing frá Vestmannaeyjum,
sem setti upp söngleikinn Okkar
maður eftir Jónas Ámason. Sigur-
geir er Skagfirðingum að góðu
kunnur, og hefur áður leikstýrt
verkum hjá Leikfélagi Sauðárkróks.
Ungmennafélagið Tindastóll sýndi
revíuna Hvað heldurðu, stílfærða
skopstælingu á vinsælasta sjón-
varpsefni hérlendis þessa dagana,
með hagyrðingum og öllu tilheyr-
andi. Höfundur og leikstjóri var
Hilmir Jóhannesson. Bæði þessi
leikrit eru vel til þess fallin að kitla
hláturtaugamar og hafa fengið
ágæta aðsókn, oftast sýnd fyrir
fullu húsi.
Söngnr á vinnustöðum
Ágæt tilbreyting var það á föstu-
daginn að karlakórinn Heimir, sem
þessa dagana býr sig sem ákafleg-
Morgunblaðið/Bjöm Bjömsson
Gestir skoða sýningu á verkum Daniels Bruun, „íslenskt þjóðlíf í
þúsund ár“, undir leiðsögn Ásgeirs Björnssonar og Örlygs Hálf-
dánarsonar.
ast til ísraelsfarar, heimsótti
sjúkrahús og vinnustaði og söng
nokkur lög á hveijum stað. Á Hót-
el Mælifelli kom fram á laugardags-
kvöldið Halla Margrét og söng fyr-
ir matargesti en hljómsveitin Mið-
aldamenn lék fyrir dansi. í Sælkera-
húsinu voru svo á sama tíma Gaut-
amir frá Siglufírði en nú er nokkuð
síðan þessi vinsæla hljómsveit var
endurvakin eftir nokkurra ára hlé
og er vissulega ánægjulegt að heyra
í Gautunum aftur.
Þá var í Bifröst bama- og ungl-
ingadagur þar sem þijár eldhressar
bílskúrshljómsveitir skemmtu yngri
kynslóðinni frá kl. 19.00 og fram
yfír miðnætti.
Þrátt fyrir heldur leiðinlegt veður
allt í kringum okkur sæluvikudag-
ana kom ófærð innanhéraðs ekki í
veg fyrir að menn gætu slett úr
klaufunum á Sæluvikunni og sól
skein í heiði á alauða jörð á Sauðár-
króki á sunnudagsmorgni þegar
síðustu gestir sem vitað var um,
af lokadansleik, gengu til náða.
- BB
Morgunblaðið/Bjöm Bjömsson
Ásgeir Björnsson lektor flytur
fyrirlestur um Daniel Bruun.
Gardsláttuvélin
stLaa ewnssí m
Rafeindakveikja tryggir örugga gangsetningu
Hún slær út fyrir kanta og upp aö vegg.
Fyrirferðarlítil, létt og meðfærileg.
3.5 HP sjálfsmurð tvígengisvél.
Auðveldar hæðarstillingar.
Þú slærð betur með
PDRf
SIMI: 681500 - ARMULA 11
SjáKstæðar
hillur
eða heilor
samsftæður
Níðsterkarog
hentugar stálhillur.
Auðveld
uppsetning.
Margarog
stillanlegar stærðir.
Hentar nánast
allsstaðar.
Ávallt fyrirliggjandi.
Leitiö upplýslnga
UMBOÐS OG HEILDVERSLUN
BiLDSHÖFDA 16 SIMI 6724 44
Morgunblaðið/Bjöm Sveinsson
Nemendur Tónskóla Fljótsdalshéraðs sem komu fram á tónleikum
á Héraðsvöku.
Menningarvika á Héraði
kirkju og Leikfélag Fljótsdalshéraðs
var með skemmtidagskrá í tilefni
sumarkomu sem byggð var upp á
verkum Jónasar Árnasonar. Ágóða
af skemmtun leikfélagsins var varið
til styrktar fiölskyldunni í Vinaminni
í Borgarfirði eystra en hún missti
heimili sitt í eldsvoða á föstudaginn
langa. Fleiri félagasamtök hér aust-
anlands notuðu sumardaginn fyrsta
til að afla fjár fyrir þessa fjölskyldu.
Skógræktarfélag Austurlands
hélt einnig upp á 50 ára afmæli sitt
á þessari Héraðsvöku með hátíð-
arfimdi þar sem flutt voru ávörp og
boðið upp á myndasýningu ásamt
fjölbreyttu skemmtiefni. - Björn
Egilsstödum.
FYRIR skömmu var haldin Hér-
aðsvaka á Héraði en það er árleg
menningarvika á vegum Menn-
ingarsamtaka Héraðsbúa. Að
þessu sinni hófst Héraðsvakan
með skemmtidagskrá þar sem
nemendur framhaldsskólanna
þriggja á Héraði völdu og fluttu
blandað skemmtiefni. Einnig
munu nemendur Tónskóla Fljóts-
dalshéraðs og meðlimir leikfé-
lagsins leggja fram sinn skerf við
að skemmta Héraðsbúum þessa
viku.
Á þessari Héraðsvöku voru nem-
endur Tónskóla Fljótsdalshéraðs
með tvenna tónleika í Egilsstaða-
Pyrmo
snyrtivorur
Hreinsiefni Gluggakítti Lökk
Vestur-þýsk gæöavara á góðu verði
Þekk/ng Reynsla Þjónusta
fec
FALKIN N
SUOURLANDSBRAUT 8. SIMI 84670
4