Morgunblaðið - 03.05.1988, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 03.05.1988, Qupperneq 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 1988 Verkfallsverðir varaa fólki leiðina að afgreiðsluborði Flugleiða. Þegar ljóst var, að farþegar kæmust ekki suður, var ekki um annað að ræða en sækja farangurinn út að vél og snúa við. Morgunblaðið/Rúnar Þór Jóna Steinbergsdóttir stöðvar stúlku, sem œtlaði sér suður. þega meðan ósamið er - segir Páll H. Jónsson formaður kjörstjórnar Verkfallsverðir á Akureyri hafa komið í veg fyrir það síðustu tvo daga að farþegar kæmust í flug frá Akureyri til Reylgavík- ur. Vélar hafa þó komið með farþega frá Reykjavík norður, en þar sem ekki hefur verið samið við afgreiðslufólk Flugleiða á Akureyri, heldur eingöngu í Reylgavík, líta verkfallsverðir hér fyrir norðan svo á að afgreiðslufólk Flugleiða á Akureyrarflug- velli sé ennþá í verkfalli. Fyrsta vél Flugleiða lenti á Akureyrarflugvelli á sunnudags- morgun eftir að VR-menn sam- þykktu miðlunartillögu sáttasemj- ara. Sú vél fór hinsvegar fram hjá verkfallsvörðum, að sögn Páls H. Jónssonar formanns kjörstjómar á Akureyri, en þegar önnur vél Flug- leiða kom laust fyrir klukkan 20.00 á sunnudagskvöld höfðu um það bil 40 verkfallsverðir raðað HÁTT í 40 atvinnurekendur hafa nú samið við Félag verslunar- og skrifstofufólks á Akureyri um 42.000 króna lágmarkslaun eða á þeim nótum sem félagið fer fram á. Eingöngu er um að ræða smærri fyrirtæki og af þessum fjölda eru 13 atvinnurekendur innan Kaupmannafélags Akur- eyrar. „Við erum alls ekkert sáttir við .að atvinnurekendur séu að semja hér sjálfstætt. Hinsvegar teljum við þetta ekki hættulegt þar sem um ræðir aðeins 13 félaga okkar af 74. Þessir sérsamningar skipta afskap- lega litlu máli í heildarsamninga- gerðinni. Þetta eru um 7% af laun- þegum félagsins héma sem eru rúmlega 1.000 talsins og held ég að það sé spuming um hvort þessir samningar verði ekki bara dæmdir ógildir," sagði Birkir Skarphéðins- sér upp fyrir framan afgreiðslu- borð Flugleiða á Akureyri og komu þeir í veg fyrir að farþegar kæ- must um borð. Undanþága var veitt fyrir eina konu, sem var á leið suður til læknis, en hún var eini farþeginn um borð suður. Þrjár vélar lentu svo á Akureyri í gær með farþega að sunnan, en þær fóm allar tómar til baka utan tveggja farþega er þurftu báðir á son formaður Kaupmannafélags Akureyrar í samtali við Morgun- blaðið í gær. Birkir sagðist hafa fengið bréf frá umboðsaðila sínum, VSI, í gær- morgun þar sem segir m.a.: „Þessir samningar eru í beinni andstöðu við lög um stéttarfélög og vinnudeil- ur og marklausir af þeim ástæðum einnig. Með gerð þeirra eru verka- lýðsfélögin að bijóta ákvæði vinnu- löggjafarinnar." Birkir sagði að hugsanlegt væri að þessum sér- samningum yrði skotið til Félags- dóms til úrskurðar og væri Kaup- mannafélag Akureyrar því með- mælt, að því er ályktað var á stjóm- arfundi þess sl. sunnudag. Ein- göngu væri þó um að ræða þá samninga er félög innan Kaup- mannafélagsins hefðu gert. Aðrir atvinnurekendur, þeir sem stæðu fyrir utan Kaupmannafélagið, væru því óviðkomandi. læknishjálp að halda í Reykjavík. „Verkfallsverðir fylgjast grannt með komu Flugleiðavéla. Þeir reyna að halda sinni áætlun, en þeir fá enga farþega frá Akureyri á meðan ekki hefur verið samið hér fyrir norðan. Við höldum okk- ar striki," sagði Páll í samtali við Morgunblaðið í gær. Flugfélag Norðurlands heldur áfram leigu- flugi sínu til og frá Reykjavík frá Akureyri og eru famar fjórar ferð- ir á dag. „Það fara þetta 40 verk- fallsverðir fram á flugvöll þegar von er á vélum og hafa þessar aðgerðir okkar farið fram í mestu friðsemd. Gunnar Oddur Sigurð- son umdæmisstjóri Flugleiða hefur verið afar samvinnuþýður og ekki reynt að beita neinum brögðum né þrýsingi. Við stöndum fyrir afgreiðsluborðinu og fyrir land- ganginum ef fólk hefur keypt fars- eðla sína hjá ferðaskrifstofum hér í bæ og ætlar sér að komast þann- ig um borð. Engar stympingar hafa átt sér stað nema hvað ein stúlka ætlaði sér örugglega að komast með „kaffívélinni" í gær, en það var stoppað af án vand- ræða. Þá slapp einn farþeginn inn í farangursgeymsluna og fór með farangrinum út í vél, en Gunnar Oddur fór um borð og bað hann vinsamlegast að víkja frá borði sem hann og gerði," sagði Páll. Miðlunartillaga sáttasemjara var kolfelld í atkvæðagreiðslu er fram fór á Akureyri föstudag og laugardag. Á kjörskrá voru 1.039 félagar á Akureyri, Dalvík og Ól- afsfirði. 453 greiddu atkvæði, eða 43,6%. Já sögðu 138, nei sögðu 312 og þrír seðlar voru auðir. 68,9% félagsmanna voru því á móti sáttatiilögunni en 30,5% voru henni meðmæitir. Kosningin telst lögmæt þar sem yfír 35% félags- manna tóku þátt í kosningu. „Nú er sáttasemjari með alla formenn- ina hjá sér og við bíðum eftir því hvað út úr því kemur. Jóna Stein- bergsdóttir formaður félagsins hélt suður með vél Flugfélags Norðurlands í gærmorgun og við bíðum bara spenntir. Maður vonar auðvitað að þetta fari nú að leys- ast,“ sagði Páll. Þeir, sem þurftu suður til lækn- inga, fengu að fara. Gunnar Oddur, stöðvarstjóri, aðstoðar konu upp landganginn. Arnór fær leik- hússtjóralykilinn PÉTUR Einarsson, sem stýrt hefur Leikfélagi Akureyrar síðastlið- inn tvö ár, lét af embættinu á sunnudaginn og afhenti nýjum leikhússtjóra, Araóri Benónýssyni, lykil Samkomuhússins. Form- lega tók þá Araór við stjóra LÁ og er ráðinn til þess næstu þijú árin. Aðalfundur Leikfélags Akur- eyrar verður haldinn nk. mánudag og má þá vænta að nýi leikhús- stjórinn komi fram með tillögur um verkefnaval næsta leikárs að undangenginni umfjöllun leik- húsráðs. Theódór Júlíusson núver- andi formaður leikhúsráðs sagðist ekki gefa kost á sér á ný sem formaður ráðsins þar sem hann teldi að formennskan væri betur komin í höndum aðila er ekki væri starfandi innan leikhússins. „Ég tel mig hafa fundið góðan kandidat sem eftirmann minn og er sú manneskja ekki starfandi við hlið leikaranna." Ekki vildi hann nafngreina hana, en sagðist sannarlega vonast tii að næði kjöri á aðaifundinum sem formaður leikhúsráðs. Þá má búast við að fjallað verði um mannaráðningar fyrir næsta leikár, en borist hafa hátt í fimmt- án umsóknir frá leikurum, sem allir eru búsettir á höfuðborgar- svæðinu. Theódór sagði að ekki hefði verið tekin afstaða um hvort einhveijir leikarann yrðu fastr- áðnir eða hvort ráðið yrði aðeins í hlutverk fyrir eitt og eitt verk fyrir sig sem gæti jafnvel komið betur út fyrir leikhúsið. Viljum fá úrskurð um lögmæti sérsamninga - segir Birkir Skarphéðinsson form- aður Kaupmannaf élags Akureyrar
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.