Morgunblaðið - 03.05.1988, Side 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 1988
Skeifukeppni Bændaskólans á Hvanneyri:
Efnilegir tamninga-
menn þreyta próf
Það er grátlegt þegar hesturinn veikist daginn fyrir keppnina
og ÖU vinna og væntingar vetrarins verða að engu á sjálfan
skeifudaginn en það var hlutskipti HöUu Eyglóar Sveinsdóttur
sem hlaut viðurkenningu Eiðfaxa fyrir bestu hirðingu.
Hestar
Valdimar Kristinsson
Að loknum skeifudeginum á
Hvanneyri sem haldinn var sl.
laugardag voru flestir sem tíl
þekktu aammála um að keppnin
nú hafi verið eins sú besta seinni
árin. GreinUegt var að margir
efnUegir tamningamenn gistu
Hvanneyri í vetur en nokkur
munur hefur verið á því frá ári
tU árs hversu efnUegir tamn-
ingamennimir eru.
Alls tóku átján þátt i skeifu-
keppninni að þessu sinni og svo til
ailir með mjög ffambærilegar sýn-
ingar. Segja má að þetta hafi verið
dagur Þingeyinga því tveir piltar
þaðan voru í efstu sætunum. Sigur-
vegari með 80,5 stig varð Böðvar
Baldursson frá Ysta-Hvammi í
Aðaldal en hann keppti á hesti
sínum Prins en sá er undan Áa 993
frá Nýjabæ og Drottningu 6065 frá
Torfastöðum. Böðvar var með þeim
síðustu í dóm og voru brekkudóm-
aramir búnir að sjá út marga vænt-
anlega skeifuhafa þegar kom að
honum. Sýningin hjá Böðvari tókst
mjög vel auk þess sem hestur hans
er mjög glæsilegur og að henni
lokinni velktust menn ekki í vafa
um það hver hlyti hnossið að þessu
sinni. í öðru sæti með 75 stig varð
Kristinn Rúnar Tryggvason en
hann var með hestinn Gneista frá
Hrafnkelsstöðum undan Feyki 962
frá Hafsteinsstöðum og Snör frá
Hrafnkelsstöðum. Kristinn hlaut
ásetuverðlaun Félags tamninga-
manna. Jöfn í þriðja sæti með 69
stig urðu svo Guðrún Lára Pálma-
dóttir sem keppti á Glæsi frá Odds-
stöðum undan Neista og Vordísi
frá sama stað og Gísli Þórðarson
sem keppti á Hnokka frá Kóngs-
bakka sem er undan Hnokka 916
frá Steðja og Söndru 6843.
Eiðfaxabikarinn hlaut Halla
Eygló Sveinsdóttir en hún varð
fyrir því óláni að hestur hennar
veiktist tveimur dögum fyrir
keppnina og gat hún því ekki tekið
þátt í skeifukeppninni. Var það því
kærkomin sárabót fyrir hana að
hreppa verðlaunin fyrir besta hirð-
ingu.
Að venju gaf hestamannafélagið
á staðnum, Grani, út mikið blað
sem er í senn skrá yfír keppendur
í skeifukeppninni og gseðinga-
keppninni sem einnig var haldin
sama daginn og svo ársrit félagsins
þar sem Qallað er um félagana og
starfíð í gamni og alvöru. Hér áður
var þess getið að margir efnilegir
hestamenn hefðu gist Hvanneyri í
vetur en það hafa greinilega verið
annarskonar efnismenn þar líka þvi
ef marka má þann kveðskap sem
kemur fram í skeifublaðinu má
ætla að kveðskaparlistin hafí verið
mikið stunduð í vetur. Er við hæfí
að glugga örlítið í þessar háfleygu
bókmenntir sem hvanneyrskir
hestamenn gefa út.
Á einum stað í blaðinu er birtur
langur bragur eftir Þorstein Bergs-
son sem kallast Bykkjubragur og
birtist hér hluti af þessum brag en
hann er svohljóðandi:
Frá Hvanneyri árdegis æða af stað
óglæstir kónar sem lykta eins og tað.
Erindi þeirra er efalaust það
sínum aflóga bykkjum að klappa
Já, hér úti á túnum er sitthvað að sjá
menn síga til hliðanna og hleypa á ská.
Önnur hver manneskja marin og blá
já, margt er til gamans að líta.
FuU ástæða er til að birta eina mynd úr hesthúsinu á Hvanneyri
en þar hafa verið gerðar mildar endurbætur og eru hljóðnaðar
þær óánægjuraddir sem alltaf heyrðust meðal nemenda á hveiju
ári.
Þeir hanga í faxi og húka í keng
og hökta ýmist fetið eða þeysa í spreng.
Hent hefur þá margan dugandi dreng
að detta af baki og vankast.
Hópreið hestamannafélagsins Grana með þá Jón Finn Hansson og Ingimar Sveinsson í broddi fylk-
ingar.
Kristinn Rúnar Tryggvason hlaut ásetuverðlaun FT og önnur
verðlaun í skeifukeppninni á Gneista frá Hrafnkelsstöðum.
Það fór vel á með þeim félögum Prins og Böðvari í skeifukeppn-
inni enda sigruðu þeir með glæsibrag.
Og stúlkumar dekra við biklg'anna bein
þó bjóði þeim lífið margan göfúgan svein.
Astandið þetta er ósvinna hrein
og aumlega farið með tímann.
Nei, hrossum að stijúka um lendar og lær
er lélegur starfi, mér eiður sær.
Það finnast af tegundum reiðmennskur
tvær
ég tel að hin henti mér betur.
Af ýmsu góðmeti fleiru mætti
taka en þetta skal látið nægja.
Varðandi aðstöðu til hestahalds á
Hvanneyri er ánægjulegt að geta
þess að hún hefur farið stórbatn-
andi sfðustu árin. í fyrra var tekinn
í notkun 300 metra hringvöllur þar
sem keppnin var haldin nú og hest-
húsið illræmda er orðið vel við
unandi. Hefur jötunum verið breytt
og sett upp ný ljós auk þess sem
flómum hafði áður verið breytt og
steypt stétt aftan við hrossin. Ekki
er manni grunlaust um að einn
maður eigi heiðurinn af þessum
framförum öðrum fremur og er þá
átt við eldhugann Ingimar Sveins-
son sem hefur séð um kennslu í
hrossarækt og aðstoðað krakkana
á ýmsan hátt við tamningamar og
hestahaldið.
Að sfðustu er rétt að geta úrslita
í gæðingakeppninni en þar var
keppt eftir reglum LH.
I A-flokki sigraði Lokkadís frá
Nýjabæ, eigandi og knapi Ólöf
Guðbrandsdóttir, önnur varð
Komma frá Egilsstöðum, eigandi
og knapi Ingimar Sveinsson, með
7,88, og í þriðja sæti Rektor sem
Jón Finnur Hansson sat með 7,76.
Embla frá Skarði keppti sem gest-
ur og hlaut í einkunn 7,95. Eig-
andi hennar er Karí Berg en knapi
var Sigurður Halldórsson.
í B-flokki sigraði Úi frá Nýjabæ
með 8,03, en eigandi hans er Ólöf
Guðbrandsdóttir og knapi Karen
Frech. í öðm sæti með 7,93 varð
Smáhildur frá Nýjabæ, eigandi
Ólöf Guðbrandsdóttir, knapi Guð-
brandur Reynisson, og í þriðja
sæti með 7,86 varð Gulltoppur frá
Leysingjastöðum, eigandi og knapi
Bjöm Haukur Einarsson. Hæstu
einkunn í B-flokki, 8,20, hlaut
Rammi frá Skarði, eigandi og knapi
Monika Kimpler, en þau kepptu
sem gestir.
Teymingarnar hjá Hvanneyringunum voru sérlega góðar og hér
er það Guðrún Lára Pálmadóttir sem teymir Glæsi frá Oddsstöð-
um en hún hafnaði við annan mann I þriðja sæti.