Morgunblaðið - 03.05.1988, Blaðsíða 64
64
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 1988
Fulltrúar verslunarmanna í verkfalli:
. Verkfallsbaráttan heldur
áfram af fullri hörku
Hörð gagnrýni á Vinnumálasambandið
NÆR fimmtíu manns úr samn-
inganefndum hinna 13 félaga
verslunarmanna sem enn eru í
verkfalli héldu fund lyá ríkis-
sáttasemjara í gær þar sem rædd
var sú staða sem nú er komin
upp í samningamálum. Á blaða-
mannafundi að honum loknum
sögðu fulltrúar verslunarmanna
að verkfallsbaráttan myndi
halda áfram af fullri hörku, þó
svo að stærsta félagið, VR, tæki
ekki lengur þátt í viðræðunum.
Fram kom hörð gagnrýni á VSÍ
og Vinnumálasamband sam-
vinnufélaganna vegna fyrir-
hugaðs afgreiðslubanns gegn
vinnuveitendum sem gert hafa
sérsamninga.
Viðræður' við vinnuveitendur
munu halda áfram undir merkjum
Landssambands íslenskra verslun-
armanna, þó að VR og Verslunar-
mannafélag Hvammstanga séu ekki
lengur með í viðræðunum eftir að
félögin samþykktu miðlunartillögu
ríkissáttasemjara. Alls munu vera
um 4-5000 manns í félögunum 13.
Fulltrúar frá VR, þar á meðal
Magnús L. Sveinsson, formaður,
mættu á fund félaganna þrettán
og lýstu þar yfir stuðningi við
áframhaldandi verkfallsbaráttu, að
sögn forsvarsmanna félaganna 13,
og eru samúðaraðgerðir að hálfu
VR til athugunar.
Fulltrúar félaganna ræddu einnig
skipulag verkfallsvörslu og hyggj-
ast m.a. aðstoða Verslunarmanna-
félag Suðumesja við vörslu á
Keflavíkurflugvelli, en áður hafa
menn úr félögunum í Ámessýslu,
Hafnarfírði, Akranesi og Borgar-
nesi komið VS til hjálpar. „Það er
líklega einsdæmi að menn hafi far-
ið á milli kjördæma til að aðstoða
við verkfallsvörslu," sagði Leó Kol-
beinsson, formaður Verslunar-
mannafélags Borgamess.
Fram kom á fundinum að Vinnu-
málasamband samvinnufélaganna
væri helsti viðsemjandi flestra
þeirra félaga sem enn eru í verk-
falli. Sendi fundurinn frá sér frétta-
tilkynningu þar sem segir orðrétt:
„FYrir rösklega 100 árum stofn-
aði launafólk samvinnufélögin til
vemdar vinnuhagsmunum sínum.
Fram eftir áram áttu launþéga-
hreyfíngin og samvinnuhreyfíngin
samleið, óaðskiljanlegar greinar af
sama meiði, sem áttu þá hugsjón
sameiginlega að beijast fyrir bætt-
um kjörum launafólks. Það eru því
merk tíðindi öllu launafólki er sam-
vinnuhreyfíngin skipar sér við hlið
harðsvíraðasta hluta vinnuveit-
endaaðalsins í baráttu gegn sann-
gjömum kröfum verslunarmanna
og annarra launþega og hefur í
hótunum við hin ýmsu samvinnufé-
lög, vogi þau sér að ganga til samn-
inga. Þá vekur athygli að einungis
sex menn í stjóm Vinnumálasam-
bands samvinnufélaganna greiða
atkvæði um miðlunartillögu sátta-
semjara fyrir hreyfíngu sem telur
yfír 40.000 félagsmenn. Hvert er
nú gildi kjörorðanna um „mátt
hinna mörgu, „vinnum sarnan" og
„einn maður, eitt atkvæði“?“
Morgunblaðið/Bjarni
Forsvarsmenn hinna 13 félaga verslunarmanna sem enn eru í verk-
falli kynna stöðu mála i upphafi nýrrar samningalotu eftir samráðs-
fund í húsakynnum ríkissáttasemjara. Frá vinstri eru: Guðrún Stein-
þórsdóttir, Guðvarður Kjartansson, Hansína Stefánsdóttir, Steini
Þorvaldsson og Sverrir Albertsson.
Samþykkt framkvæmdastjórnar VSÍ:
Viðskipta- og afgreiðslubann
á fyrirtæki sem samið hafa
Framkvæmdastjórn Vinnuveit-
endasambands fslands hefur falið
samningaráði samtakanna að
hefja undirbúning að viðskipta-
og afgreiðslubanni fyrirtækja VSÍ
á þau fyrirtæki sem gengið hafa
til samninga við stéttarfélög þau
sem eru i verkfalli. Þetta var
ákveðið á fundi framkvæmda-
stjórnarinnar á sunnudag og fer
samþykktin hér á eftir f heild.
„Framkvæmdastjóm Vinnuveiten-
dasambands íslaiids fjallaði á fundi
sínum f dag um þá svokölluðu samn-
inga, sem ýmis félög verslunarmanna
hafa síðustu daga gert við einstök
smáfyrirtæki í verslun og þjónustu.
Stjómin samþykkti að gera hlut-
aðeigandi stéttarfélögum grein fyrir
því, að þessir gemingar eru mark-
lausir að því er aðildarfyrirtæki VSÍ
varðar, þar sem aðeins VSÍ hefur
heimild til að gera skuldbindandi
kjarasamninga fyrir hönd sinna fé-
lagsmanna, skv. lögum samtakanna.
Þessir „samningar" eru í beinni
andstöðu við lög um stéttarfélög og
vinnudeilur og marklausir af þeim
ástæðum einnig. Með gerð þeirra eru
verkalýðsfélögin að bijóta ákvæði
vinnulöggjafarinnar.
Þess vegna samþykkti fram-
kvæmdastjómin að fela samninga-
ráði að undirbúa vamaraðgerðir til
að veija hagsmuni vinnuveitenda og
knýja fram lyktir á yfírstandandi
vinnudeilum.
Sem upphafsskref slíkra aðgerða
samþykkir framkvæmdastjómin að
fela samningaráði að hefla undirbún-
ing að viðskipta- og afgreiðslubanni
aðildarfyrirtækja VSÍ gagnvart þeim
fyrirtækjum, sem gengið hafa til
samninga við þau stéttarfélög, sem
nú heyja verkfall gagnvart aðildar-
fyrirtækjum VSÍ.
Ákvörðun þessi byggist á 64. gr.
laga VSÍ, en þar segir: „Fram-
kvæmdastjóm getur, þegar vinnu-
stöðvun stendur yfír eða er yfírvof-
andi, bannað meðlimum sambandsins
að hafa viðskipti við tiltekna menn
eða á sérstaklega ákveðnum sviðum,
svo sem að selja tilgreinda vöruteg-
und, og gert aðrar slíkar ráðstafan-
ir, sem hún telur nauðsynlegar vegna
afstöðu meðlima í vinnudeilum. Ef
einhver maður utan sambandsins
vinnur á móti hagsmunum meðlima,
sem eiga f vinnustöðvun, eru aðrir
meðlimir skyldir til þess að hafa
engin viðskipti við hann, meðan á
vinnustöðvuninni stendur. Sam-
bandsstjóm getur samþykkt að sama
skuli einnig gilda eftir að vinnustöðv-
un er lokið, annaðhvort um tiltekinn
tíma eða þar til sambandsstjóm af-
léttir slíku viðskiptabanni.““
Magnús Gíslason, VS :
Fólk er tilbúið
að berjast áfram
Fyrirfram vitað að atkvæða-
greiðslan yrði með þessum hætti
- segir Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri VSÍ
„Sú skoðun sem sett var fram
af VR eftir að úrslit lágu fyrir
um að eðlilegra hefði verið að
hafa vigtaða atkvæðagreiðslu
aðildarfélagana er ekkert verri
skoðun en hver önnur. Hins veg-
ar hefur þetta alltaf verið gert
með þessum hætti og það Iá ljóst
fyrir áður en miðlunartillagan
var lögð fram að þessi háttur
yrði hafður á og það komu ekki
fram nein mótmæli við því,“
sagði Þórarinn V. Þórarinsson,
framkvæmdastjóri Vinnuveiten-
dasambands íslands aðspurður
um gagnrýni á hvernig atkvæða-
greiðslu um miðlunartillögu
ríkissáttasemjara var háttað
meðal vinnuveitenda.
„Það var hins vegar haft við orð
Sumir lofa afgreiðslu
„ÉG er ekki farinn að sjá það
enn, að þetta afgreiðslubann
komi til framkvæmda," sagði
Páll Jóhannsson kaupmaður i
versluninni Esju á Akureyri í
gær. Verslunin Esja er aðili að
Kaupmannasamtökun um og
gæti því lent í afgreiðslubanninu,
ef af því verður.
Páll sagði að fyrir sig hefði ekki
verið um annað að ræða en að
semja, enda greiddi hann hærri laun
en lágmarkslaunin. Hann sagði, að
Esja væri undir venjulegum kring-
umstæðum mestanpart sjoppa. Nú
í verkfallinu væri áherslan hins
vegar frekar á almennar ma-vörur,
ekki síst mjólkurvörur. „Sumir hafa
lofað að afgreiða okkur, en þeir eru
einhveijir sem ekki vilja afgreiða
okkur, þetta hef ég heyrt á þeim,“
sagði Páll. Hann taldi það vera
mikinn ábyrgðarhluta, ef mjólkur-
sala stöðvaðist. „Hana ætti aldrei
að stöðva. Það eru svo mörg böm
og gamalmenni sem þurfa á mjólk-
urvörunni að halda," sagði hann.
Páll sagði sína verslun vera það
litla, að ef til afgreiðslubannsins
kæmi, þá stöðvaðist reksturinn
mjög fljótlæega, það færi þó eftir
því hve margir færu eftir banninu
og einnig hvort hann gæti útvegað
einhveijar vörur að sunnan.
að valdið lægi greinilega ofar hjá
samtökum vinnuveitenda en hjá
verkalýðsfélögunum að þessu leyti
og það er alveg rétt. Framkvæmda-
stjómin hefur endanlegt vald til
þess að samþykkja samninga, sem
stjómir og trúnaðarráð verkalýðs-
félagana hafa ekki. Það háttar því
allt öðru vísi til og mér finnst held-
ur dapurlegt að fara að hanga á
þessu hálmstrái eftir á,“ sagði hann
ennfremur.
Hann sagði að ekki hefðu verið
teknar ákvarðanir um fyrstu skref-
in í sambandi við afgreiðslu- og
viðskiptabann á þau fyrirtæki sem
hafa samið við verslunarmannafé-
lögin sem eru í verkfalli. Þeir vildu
sjá hvemig málin þróuðust, en
þama væri um að ræða vamarað-
gerð.
„Þetta eru engar hefndaraðgerð-
ir, heldur er þetta einfaldlega til
þess að veija stöðu félagsmanna
okkar, sem verða fyrir barðinu á
verkföllunum. Hins vegar vonar
maður að þessum vinnudeilum fari
að slota. Það eru búnar að vera
samfelldar deilur um kaup og kjör
í sex mánuði og út úr því getur
ekki komið mikið meira en vindur,"
sagði Þórarinn.
„Miðlunartillagan var felld ein-
faldlega vegna þess að það var
ekki iim nægjanlega miklar hækk-
anir að ræða fyrir afgreiðslufólk
og þetta gekk nú reyndar nokkuð
til baka fyrir skrifstofufólk,"
sagði Magnús Gislason, formaður
Verslunarmannafélags Suður-
nesja. „Það var ekki komið til
móts við 42.000 króna kröfuna
nema að mjög litlu leyti. Fólk vill
fá laun sem eru jafn há og skatt-
leysismörkin og það er ósköp skilj-
anlegt. Afgreiðslufólk er svo lágt
launað og það er alveg tilbúið að
beijast áfram.
Fólk úti á landi fær fíest laun
samkvæmt berum töxtunum og þess
vegna var tillagan felld þar. Eg þy-
kist sjá að þessi rúmlega 1900 at-
kvæði sem voru á móti tillögunni í
Reykjavík hafi einkum komið frá
afgreiðslufólki, en það hafí þá frekar
verið yfirborgað fólk sem samþykkti
hana. Það er svipað héma, það er
stórmarkaðafólkið í Hagkaupum og
Samkaupum sem fellir tillöguna, en
einnig aðrir, þvi yfirborganir f einka-
geiranum héma eru sáralitlar.
Kannski er enginn tilbúinn í lang-
varandi aðgerðir, en hins vegar er
ég viss um að menn þreyja þorrann
og góuna í þessum efnum ef á þarf
að halda. Það er mikill hugur í mönn-
um og menn segja að launin séu
hvort sem er svo lág að það skiptir
ekki svo miklu máli hvort menn séu
Leiðrétting
NAFN litlu stúlkunnar, sem fékk
undanþágu Verslunarmannafé-
lags Suðumesja til að fara til
Lundúna í hjartaaðgerð, misrit-
aðist í frétt Morgunblaðsins á
laugardaginn.
Stúlkan heitir Heiða Kristín
Víðisdóttir.
Morgunblaðið biðst velvirðingar
á þessum mistökum.
viku eða mánuð í verkfalli. Spuming-
in en hvað fáum við út úr þessu,
hveiju náum við fram.
„Slæm staða“
- segir Pétur Ma-
ack um niðurstöður
atkvæðagreiðsl-
unnar um miðlun-
artillöguna
„Við hljótum náttúrulega að
hlýta þvi sem félagsmenn vilja.
Úr þvi kjörsókn var ekki meira
en þetta er ekkert við þessu að
segja, en það er auðvitað slæm
aðstaða fyrir eitt verkalýðsfélag
að fá fleiri nei en já i atkvæða-
greiðslu um kjarasamninga og
vera samt með samþykkta samn-
inga,“ sagði Pétur Maack skrif-
stofustjóri Verslunarmannafé-
lags Reykjavikur aðspurður um
niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar
um miðlunartillögu ríkissátta-
semjara i VR.
Hann sagði að þar sem atkvæða-
greiðslan hefði verið skilyrt hefði
ekki dugað til þó meirihluti þeirra
sem kusu hefðu fellt miðlunartillög-
una. Það væri athyglisvert að niður-
staðan væri mjög svipuð og hefði
orðið á fundinum í Glæsibæ þegar
2% félaga kusu og nú þegar yfír
30% félaga kusu, þ.e. ef litið væri
framhjá lögunum um miðlunartil-
löguna.
Pétur sagði að félagið áskildi sér
allan rétt í sambandi við að vinnu-
veitendur hefðu einungis þurft að
bera miðlunartillöguna upp í stjóm-
um sinna samtaka en ekki meðal
félaganna. Það væri verið að skoða
þessi mál og ekkert væri útilokað,
þar á meðal sámúðaraðgerðír.