Morgunblaðið - 11.05.1988, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 1988
/ DAG kl. 12.00:
Heimild: Veðursiola Islands
(Byggl á veðurspá kl. 16.16 í gaer)
, Morgunblaöið/Ami Sæberg
Frá undirritun samningsins, f.v.: Halldór J. Kristjánsson, Halidór Jónatansson, dr. Jóhannes Nordal,
Friðrik Sophusson, Páll Flygenring og Valur Valsson.
lögfræðingur iðnaðarráðuneytsins,
Ami Grétar Finnsson hrl, Dr. Jó- Vocfmannnmnnr*
hannes Nordal seðlabankastjóri og V CSUUdlllUiejiJdl •
[ seðlabankastjóri og
Páll Pétursson alþingismaður.
Vinnuveitendur
undirrita samning
VINNUVEITENDUR í Vest-
mannaeyjum skrifuðu undir sam-
eiginlegan kjarasamning við
verkalýðsfélögin í Vestmanna-
eyjum hjá rikissáttasemjara í
fyrrinótt. Fulltrúar verkalýðs-
félaganna skrifuðu ekki undir
samninginn, en héldu með hann
til Vestmannaeyja í gær, þar sem
kynna á hann fyrir fólki i félög-
unum og bera hann upp á sam-
eiginlegum fundi þeirra.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins felur samningurinn í sér
9,6% hækkun í byijun, þar sem
hann felur í sér tilfærslu á 3,25%
áfangahækkuninni, sem koma átti
í júní og hluta 2,5% áfangahækkan-
innar, sem koma á í septernber,
samkvæmt samningi VMSÍ. Þá
kemur það sem eftir er af áfanga-
hækkuninni í september eða 1,5%
í júlí. Að öðru leyti er samningurinn
að mestu samhljóða samningunum,
sem gerðir voru á Akureyri fyrir
um mánuði síðan.
Yfirvinnubann Verkalýðsfélags
Vestmannaeyja hefur verið í gildi
frá því 12. apríl eða í tæpan mánuð.
VEÐURHORFUR í DAG, 11. maí 1988
YFIRLIT í gær: Um 200 km vestur af Reykjanesi er 988 mb lægð
á hreyfingu austur en yfir V-Grænlandi er vaxandi 1027 mb hæð.
SPÁ: Norðaustangola eða kaldi suðvestan-, vestan- og norðan-
lands, en suðaustan um austanvert landið. Slydduél ó Vestfjörðum
en kólnar austanlands.
Isfisksölur erlendis:
Metvika í Bretlandi
HÁTT í 3.000 tonn af íslenskum
fiski úr gámum og skipum verða
seld erlendis í þessari viku. í
Bretlandi verða seld um 1.400
tonn úr gámum og tæp 700 tonn
úr skipum, samtals um 2.100
tonn, sem er met, en um 1.700
tonn af isfiski voru seld þar i
síðustu viku, að sögn Vilhjálms
Vilhjálmssonar hjá Landssam-
bandi íslenskra útvegsmanna. í
Vestur-Þýskalandi verða seld
rúm 500 tonn af isfiski i þessari
viku og í Frakklandi um 250
tonn, að sögn Vilhjálms.
Oddgeir ÞH seldi 72 tonn í Hull
í Bretlandi í gær fyrir 4,4 milljónir
króna eða 60,03 króna meðalverð.
Oddgeir seldi 52 tonn af þorski fyr-
ir 56,63 króna meðalverð og 17
tonn af ýsu fyrir 71,51 krónu með-
alverð. Gullberg VE seldi 90 tonn
í Grimsby í Bretlandi í gær fyrir
5,4 milljónir króna eða 59,25 króna
meðalverð. Gullberg seldi 65 tonn
af þorski fyrir 57,45 króna meðal-
verð og 18 tonn af ýsu fyrir 72,37
króna meðalverð.
Sölustofnun lagmetis:
Verömæti útflutn-
ings jókst um 38%
Á AÐALFUNDI Sölustofnunar
lagmetis, sem haldinn var 6. maí
sl., kom m.a. fram að árið 1987
voru flutt út 3.365,2 tonn af lag-
meti fyrir 910,5 milljónir króna
en það er um 5,2% meira magn
en flutt var út árið 1986 og verð-
mæti útflutningsins var um 38%
meira árið 1987 en 1986. Sautján
lagmetistegundir voru fluttar út
í fyrra, þar af rækja fyrir 431
milljón króna og kavíar fyrir tæp-
ar 200 milljónir króna. Lagmeti
er 11% af heildarútflutningi iðn-
aðarvara að áli og kísijjárni með-
töldu.
Betur gekk að selja rækju í fyrra
en árið áður en ekki var selt jafn
mikið af henni og árið 1985. Kavíar-
sala var hins vegar erfið því hráefnis-
verð kavíars var hátt og framboð á
vörunni meira en áður því framleið-
endum fjölgaði bæði hérlendis og
erlendis. Heldur meira var selt af
síldarafurðum en áður og voru þær
aðallega seldar til Sovétríkjanna og
Bandaríkjanna en hafinn var útflutn-
ingur á nýjum síldarafurðum til Vest-
ur-Þýskalands.
Fjórar verksmiðjur sjóða niður lif-
ur og í fyrra var flutt út rúmlega
tvöfalt meira af henni en árið áður.
Eftirspum eftir lifur er langt umfram
það sem framboð á hráefni leyfir og
það er brýnt að finna ráð til að fá
meiri lifur til niðursuðu. Nægilegt
magn af lifur kemur upp úr sjó en
hún er aðeins hirt að litlu leyti og
þar fer mikið af góðri manneldisvöru
til spillis, segir í frétt frá SL.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á FIMMTUDAG: Noröaustanátt, víða slydda eða rigning
norðan- og austanlands en bjartviðri um suövestanvert landið.
H'iti 3—4 gráður.
HORFUR Á FÖSTUDAG: Austanátt, víða allhvöss um suðaustan-
vert landið. Rigning suöaustan- og austanlands, en úrkomulítið
annars staðar. Hiti 4—6 gráður.
TAKN:
•Q • Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
x Norðan, 4 vindstig:
* Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
r r r
r r r r Rigning
r / r
* r *
r * / * Slydda
r * /
* * *
* * * * Snjókoma
10 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
SJ Skúrir
*
V El
= Þoka
— Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
—|- Skafrenningur
Þrumuveður
w VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hlti veður Akureyri 7 skýjað Reykjavík B rigning
Bergen 13 alskýjafi
Helsinki 1B léttskýjafi
ian Mayen 1 skýjafi
Kaupmannah. 12 hálfskýjafi
Narssarssuaq 0 helðskírt
Nuuk +3 snjókoma
Osló 13 skýjað
Stokkhólmur 12 lóttskýjað
Þórshöfn ð skýjafi
Algarve 20 léttskýjað
Amsterdam 13 þokumóða
Aþena vantar
Barcelona 18 rigning
Chicago 13 rigning
Feneyjar 23 heifiskfrt
Frankfurt 20 skýjað
Glasgow 16 skýjað
Hamborg 16 léttskýjað
Las Palmas 20 skýjafi
London 16 léttskýjað
Los Angeles 14 heiðskfrt
Lúxemborg 17 skýjað
Madrfd 17 skýjað
Malaga 19 skýjað
Mallorca 21 skýjað
Montreal 13 skýjað
New York 12 skýjað
Parfs . 13 þokumóða
Róm 21 þokumóða
San Diego 16 haiðskfrt
Winnipeg vantar
Iðnaðarráðuneyti og Landsvirkjun:
Opnuð söluskrif-
stofa rafmagns
Markaðsskrifstofa iðnaðar-
ráðuneytisins og Landsvirkjun-
ar var stofnuð formlega í gær
og er hlutverk skrifstofunnar
að afla markaðar fyrir raforku
til stóriðju eða útflutnings.
Friðrik Sophusson iðnaðarráð-
herra, Páll Flygering ráðuneytis-
stjóri, Jóhannes Nordal stjómar-
formaður Landsvirkjunar og Hall-
dór Jónatansson forstjóri Lands-
virkjunar undirrituðu stofnskjal
markaðsskrifstofunnar í gær.
Skrifstofunni er ætlað að safna
upplýsingum um allt sem varðar
markaðsmöguleika á orku, fyrir
utan almennan iðnað Landsvirkj-
unar, og að fylgjast með þróun
iðngreina, sem koma til greina sem
stómotendur innlendrar orku í
framtíðinni. Þá á skrifstofan að
gera frumhagkvæmniathuganir á
nýjum orkufrekum iðngreinum og
láta f té alla nauðsynlega aðstoð
VEÐUR
við samningagerð ríkisins og
Landsvirkjunar um sölu á orku til
stóriðjufyrirtækja eða beina orku-
sölu til útlanda.
Markaðsskrifstofan á jafnframt
að veita starfshópi um stækkun
álvers faglega aðstoð og yfirtaka
áframhaldandi athuganir á kísil-
málmverksmiðju á Reyðarfirði og
verður sérstakt hlutafélag, sem
annast hefur þá athugun, lagt nið-
ur. Iðnaðarráðherra hefur falið
skrifstofunni að fylgjast náið með
þróun kísiimálmmarkaða.
Skrifstofan verður rekin sem
sjálfstæð skrifstofa í jafnri eign
stofnfélaga og verður sérstakur
framkvæmdastjóri ráðinn til að
veita henni forstöðu. Stjóm skrif-
stofunnar er skipuð eftirtöldum
sex mönnum, þremur frá hvorum
aðila: Geir H. Haarde alþingismað-
ur sem er formaður stjómar, Geir
A. Gunnlaugsson framkvæmda-
stjóri, Halldór J. Kristjánsson yfir-