Morgunblaðið - 11.05.1988, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 11.05.1988, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 1988 Útgerðarfélag Akureyringa: Hagnaður ársins 1987 rúm 131 milljón Greiðir starfsfólki 12,5 millj. kr. launauppbót Hagnaður af rekstri Útgerðarfélags Akureyringa á árinu 1987 nam 131.497.691 krónum eftir áætlaða skatta og er þá jafnframt búið að færa til gjalda launauppbót upp á 12,5 milljón króna sem stjórn félagsins ákvað að greiða starfsfólki sínu vegna góðrar af- komu. Þetta er í þriðja sinn sem fyrirtækið greiðir slíka launaupp- bót. Þessi hagnaður er hátt í tvöfaldur hagnaður ársins 1986, en þá nam hagnaður af rekstri ÚA 75.677.823 krónum. Hagnaður af togurum félagsins nam á síðasta ári rúmum 12,6 milljónum, af frystihúsinu rúmum 102,3 milljónum, af saltfiskverkun rúmum 16,5 milljónum og af skreiðarverkun rúmum 28,3 milljónum króna. Miklar breytingar urðu á skipa- góður afli og fleira mætti nefna. stól fyrirtækisins. Togarinn Dag- stjaman KE 3 var keyptur af Stjömunni hf. Skipið er 743 brúttó- tonn að stærð smíðað í Bretlandi árið 1969. Það fór tvær veiðiferðir á vegum félagsins á árinu 1987 undir nafninu Sólbakur. „Ég tel að Sólbakur hafi komið betur út en talið var í fyrstu og mun hann reyn- ast félaginu vel þar til nýr Sólbakur verður að veruleika sem verður væntanlega ekki innan mjög langs tíma. Það bíður komandi stjómar að marka þau skref. Tímamót urðu f lok nóvember 1987 í útgerðarsögu félagsins er lokið var við umfangs- miklar endurbætur og breytingar á Sléttbak. Segja má að Sléttbakur sé sem nýr, stærsti og glæsilegasti frystitogari landsmanna. Breyting- amar voru unnar í Slippstöðinni á Akureyri og má segja að allt hand- bragð beri vott um vandvirkni-og vel unnið verk enda má segja að frá því að Sléttbakur fór til veiða um mánaðamót nóvember/desemb- er sl. hafi allt gengið að óskum og veiðar gengið vel. Megi Sléttbakur hér eftir sem hingað til vera happa- fley,“ sagði Sverrir Leósson stjóm- arformaður ÚA meðal annars á aðalfundinum. í máli stjómarformanns kom fram að helstu framkvæmdir á ár- inu hefðu verið þær að unnið var að breytingum í frystihúsinu, aðal- lega við frystigeymslur þess. Verið er að endumýja ísframleiðslu og ísgeymslu félagsins sem staðsett er í norðurhluta hússins og gert er ráð fyrir að ljúka því verki í sum- ar. Þá eru hafnar byggingafram- kvæmdir á verkstæðis- og vörulag- ershúsi á suðurmótum lóðar fyrir- tækisins. Lokið er við jarðvegs- skipti og sökkla. Ætlunin er að flytja þangað sem mest af þeirri starfsemi sem nú er í skemmunum á norðurkanti lóðarinnar. Þær verða þá trúlega notaðar undir skreiðar- geymslu. Byggingin er um 2.150 fermetrar að stærð. Keyptar voru ýmsar vélar og tæki, aðallega til hagræðis í frystihúsi félagsins, svo sem tvær bolfískflökunarvélar, tvær hausunarvélar, karfaflökunarvél, mamingsvél og fleira. Rekstur togara félagsins var við- unandi á árinu. Svalbakur aflaði 4.982 tonn, Kaldbakur 4.779 tonn, Harðbakur 4.965 tonn, Hrímbakur 3.060 tonn, Sléttbakur 380 tonn og Sólbakur 80 tonn. Alls öfluðu togaramir 18.252 tonn í 112 veiði- ferðum. Af þessum afla var keyptur kvóti er nam 153 þorskígildistonn- um. Aflinn að undanskildum 316 tonnum fór í vinnslu hjá félaginu, 316 tonnin fóru að mestu til neyslu á Akureyri. Heildarlaunagreiðslur á árinu námu 398.470.194 krónum og var meðaltals starfsmannafjöldi um 450. „Það verður að segja að árið 1987 var hagstætt fyrir sjávar- útveginn hér á landi almennt, ástæður helstar viðunandi verð fyr- ir fískafurðir, olíuverð hagstætt, Sagan segir okkur að sveiflur verða alltaf í sjávarútvegi. Nú er niður- sveifla, hækkandi tilkostnaður inn- anlands og lækkandi verð fyrir af- urðir okkar. Afkoma ÚA var mjög góð árið 1987. Sterkur hlekkur í afkomu félagsins á hveijum tíma er lán félagsins hvað starfsfólk áhrærir. Það hefur verið gegnum tíðina traustur og dugmikill starfskraftur. Því vill stjóm félagsins að starfs- fólkið njóti þess er rekstur félagsins gengur vel, eins og á liðnu ári. Því hefur stjómin samþykkt að greiða starfsmönnum 12,5 millj. kr. launa- uppbót." Sverrir sagðist vera bjart- sýnn á framtíð ÚA þó að á móti blési nú um stund. Félagið stæði mjög traustum fótum. Stjómarformaður sagði að Gísli Konráðsson hefði starfað hjá ÚA sem framkvæmdastjóri nú í 30 ár og hefði verið bæði dugmikill og farsæll í starfí. Á stjómarfundi 29. mars sl. var lesið bréf frá Gísla Konráðssyni sem er svohljóðandi: „Starfssamningur minn við félagið kveður svo á að ég mætti hætta störfum með fullum eftirlaunum þegar ég næði 65 ára aldri en hins- vegar væri mér skylt að hætta er ég yrði sjötugur. Þegar að því kom, varð það að samkomulagi að ég gegndi framkvæmdastjórastarfí eitthvað lengur ef mér entist líf og heilsa og eru nú iiðnir' rúmir 17 mánuðir frá því að ég varð sjötug- ur. Ég er stjóminni þakklátur fyrir þessa framlengingu. Nú er ósk mín sú að starfa áfram þetta ár og þar til uppgjöri er lokið fyrir reiknings- árið 1988, sem þýðir í raun fram yfír aðalfund 1989.“ Stjómin sam- þykkti þetta og þakkaði Gísla fyrir að láta vita með svo góðum fyrir- vara því erfítt yrði að ráða í stöðu hans svo vel færi, eftir svo frábær störf sem hann hefur skilað félag- inu. Morgunblaðið/Jóhanna Ingvarsdóttir Sverrir Leósson stjórnarformaður Útgerðarfélags Akureyringa flyt- ur skýrslu stjórnar á aðalfundi félagsins í fyrrakvöld. Ný stjóm ÚA var kjörin á aðal- fundinum. Tveir stjómarmenn gáfu ekki aftur kost á sér, þeir Kristján P. Guðmundsson og Erlingur Sig- urðarson. í þeirra stað koma þeir Halldór Jónsson og Sigurður Jó- hannesson og áfram í stjóm verða þau Sverrir Leósson, Pétur Bjama- son og Þóra Hjaltadóttir. Dalvík: Undirbúnar framkvæmd- ir við stafræna símstöð Dalvík. ÖNGÞVEITI hefur ríkt í síma- þjónustu á Dalvík og annar sjálf- virka símstöðin ekki þvi álagi sem orðið er á svæði hennar. Lítið er til af símanúmerum og þurfa nýir viðskiptavinir að bíða eftir síma þar til í sumar en þá eru fyrir- hugaðar lagfæríngar í símamálun- um. Ekki er lengur hægt að bæta við þá stöð sem nú er án þess að stækka símstöðvarhúsið og hefur því veríð ákveðið að skipta stöð- inni út fyrir nýrrí og fullkomnari. í sumar verða hafnar framkvæmd- ir við uppsetningu stafrænnar símstöðvar en hún tekur minna pláss en gamla stöðin og hefur jafnframt mun meiri afkastagetu. Verður hún sett upp í stöðvarhúsi Pósts og síma á Dalvík og er áætlað að það verk taki um eitt ár. Viðskiptamenn verða þó ekki símalausir þann tíma því á meðan á framkvæmdinni stendur verður sett niður færanleg símstöð. Um er að ræða stafræna símstöð sem komið hefur verið fyrir í gámi og hægt er að setja þar niður sem breyt- ingar eða lagfæringar á símstöðvum eiga sér stað. „Flakkarinn", en svo hefur stöðin gjarnan verið nefnd, kemur hingað frá Egilsstöðum en að undanfomu hefur verið unnið að því hjá símanum á Dalvík að búa svo um hnútana að hægt verði að tengja símakerfíð inn á hann. Á álagstímum hefur oft reynst erfítt að ná langlínusambandi frá Dalvfk. Með lagningu ljósleiðara milli Akureyrar og Reykjavíkur standa vonir til að breytingar verði á. Hugs- anlegt er að Dalvík og Ólafsfjörður komist í ljósleiðarasamband þar sem unnið er að athugun á því að leggja strenginn yfir Heljardalsheiði frá Sauðárkróki til Akureyrar. Yrði af þessu mikil bót fyrir símnotendur á þessu svæði auk þess sem auknir möguleikar myndu skapast á öðrum sviðum svo sem tölvusamskiptum og fjölmiðlun. Heljardalsheiði liggur yfír Trölla- skaga milli Kolbeinsdals og Svarfað- ardals og var í eina tíð alfaraleið á milli Skagafjarðar og Eyjafjarðar er menn fóru milli byggða ýmist fót- gangandi ellegar á hestum. Þegar sæsíminn kom til Seyðisfjarðar árið 1906 var lína lögð þaðan til Morgunblaðið/Trausti Áð víð Stóruvörðu efst á Heljar- dalsheiði. Reykjavíkur um Norðurland. Frá Akureyri var línan lögð út Eyjafjörð fram Svarfaðardal og yfír Heljardals- heiði til Sauðárkróks. Enn má sjá merki þessarar gömlu línu þar sem símastaurar standa enn og má full- yrða að vel hafí verið vandað til verksins þar sem veður geta oft orð- ið vond á heiðinni. Loftlína þessi var notuð allt til ársins 1938 en þá var lagður jarðsími yfír heiðina því oft bilaði loftlínan vegna snjóa og ísing- ar sem sleit hana niður. Kirkjukór Lögmannshlíðarsóknar Vortónleikar í Gler- árkirkju á fimmtudag Morgunblaðið/Jóhanna Ingvarsdóttir Slökkviliðsmenn í Slökkviliði Akureyrar ráða niðurlögum elds, er upp kom í geymsluskúr í hótelporti við Hafnarstræti. Eldur í geymsluskúr UPPI varð fótur og fit i fundar- sölum Hótels KEA laust eftir kl. 14.00 í gærdag, en þá urðu full- trúar á ráðstefnu Sölusambands íslenskra fiskframleiðenda varír við reyk í kringum sig. Ekki hafði þó eldur komið upp á hótel- inu enda hafði eldvarnarkerfi ekki farið í gang. í Ijós kom að kviknað hafði í geymsluskúr, sem er áfastur Hótel KEA, en er í eigu Hótels Stefaníu. Reykurinn hafði farið inh í loft- ræstikerfí KEA sem er nærri skúrn- um og barst reykur inn um fundar- salina og inn í gestamóttöku KEA. Að sögn Hauks Tryggvasonar veit- ingastjóra á KEA er ekki vitað um neinar skemmdir á hótelinu. Slökkviliði Akureyrar tókst farsæl- lega að ráða niðurlögum eldsins, en allt sem inni í skúmum var er ónýtt. Talið er að um íkveikju hafí verið að ræða. KIRKJUKÓR Lögmannshlíðar- sóknar heldur vortónleika sína í Glerárkirkju á fimmtudag, upp- stigningardag. Efnisskrá tón- leikanna er fjölbreytt, sungin verða innlend verk og erlend, andleg jafnt sem veraldleg. Kirkjukórinn hefur á undanföm- um árum haldið tónleika af ýmsu tagi auk þess að syngja við guðs- þjónustur og aðrar athafnir í sókn- inni. Ýmist hefur viðfangsefnið ver- ið eitthvert af stærri verkum kirkju- legra tónbókmennta eða blönduð dagskrá eins og nú. Að þessu sinni er á efnisskránni Psallite deo nostro, kórfúga eftir Johann Se- bastian Bach, auk smærri verka, en þar má nefna negrasálma og lög eftir Björgvin Guðmundsson og Áskel Jónsson. Einsöngvari með kómum er Eiríkur Stefánsson. Söngstjóri Kirkjukórs Lög- mannshlíðarsóknar nú er Jóhann Baldvinsson en hann tók við því starfi af Áskeli Jónssyni á síðast- liðnu hausti. Jóhann hefur stundað framhaldsnám í tónlist í Þýskalandi undanfarin ár og þetta er í fyrsta sinn sem hann stýrir kómum á tón- leikum. Tónleikar Kirkjukórs Lögmanns- hlíðarsóknar í Glerárkirkju á upp- stigningardag hefjast klukkan 17.00.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.