Morgunblaðið - 11.05.1988, Page 61

Morgunblaðið - 11.05.1988, Page 61
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 1988 61 fr um okkar á framfæri, þannig að þeir og félögin fái góðar tekjur. Við erum með ekkert skipulag á þessum málum. Við ættum að fá góðan umboðsmann, sem er viður- kenndur af UEFA, til að sjá um hlutina fyrir okkur. Sá maður væri með „statistik" yfir íslenska leik- menn, sem hafa leikið erlendis. Því að það er ótrúlegt en satt, við höf- um komið fram með marga knatt- spymumenn sem hafa gert góða hluti erlendis. Umborðsmaðurinn myndi sjá um alla þá leikmenn sem færu út. Hann fær upplýsingar um leikmenn og kemur þeim á framfæri. Nú er fyrirkomulagtið þannig, að hinir og þessir umborðsmenn hafa samband við leikmenn hér heima og óskar eftir að þeir komi út til að láta sjá sig og æfa. Leikmennim- ir, sem fara út, fara yfirleitt út ein- ir og búa á hótelum. Leikmennimir verða yfir sig spenntir og geta varla sofið. Þeir em jafnvel sjálfir að beijast í því að selja sjálfan sig og ákveða á staðnum hvað þeir eiga að kosta og hvað þeir fá í sinn vasa fyrir að undirrita samning. í þessum hlutum eiga leikmennimir ekki að þurfa að standa. Það á að vera virtur maður, sem sér um alla þessa hluti. Viðurkenndur umboðs- maður. Hann yrði síðan í sambandi við nefnd á íslandi, sem í væm einn • eða tveir lögfræðingar. Umbos- ðmaðurinn og nefndarmenn myndu síðan sjá alfarið um samninga fyrir leikmennina. Þannig gætu öll fé- lagaskipti til útlanda gengið í gegn- um eina ákveðna miðstöð á íslandi. Þannig væri hægt að skrifa inn í alla samninga, að Knattspymusam- band ísland hefði rétt á að fá leik- mennina í ákveðinn fjölda af land- sleikjum á ári. Ef félögin standa síðan ekki við gerða samninga, þá er hægt að gera eins og Svíar, að krefja félögin um peningagreiðslur vegna samningsbrots. Aö selja vönir í rótt umhverfl „Með þessu væmm við að selja vömr í rétt umhverfi. Það fer eng- inn að selja lopapeysur til Spánar í júlí. Það á að selja vömna til réttra aðila á réttum tíma. Það á að koma í veg fyrir að 19-20 ára leikmenn fari einir með flug- miða í hendinni, til útlanda. Hinir . og þessir umborðsmenn vilja ólmir koma leikmönnunum á frámfæri, en þjálfarar liðanna sem þeir fara til hafa kannski engann áhuga á leikmönnunum. Segja sem svo, að það kosti ekkert að fá leikmennina á æfingu. Ég hef séð hundmði stráka, sem hafa verið plataðir. Það hefur verið hlegið af þeim á æfíng- um og leikmenn félaganna hafa farið illa með hina ungu leikmenn. Gefið erfíðar sendingar á þá á æf- ingum, sent knöttinn trekk í trekk í gegnum klofið á þeim. Það er eðlilegt að leikmennimir geri þetta. Þeir hugsa svo, hvað á ég að gera fyrir þennan leikmann. Hann er kominn hingað til að keppa við mig um stöðu í liðinu. Þessir strákar em svo negldir niður tvisvar eða þrisv- ar, þannig að allt sjálfstraust þeirra fer út í veður og vind. Þeir vita þá ekki hvað er að gerast - og hringsnúast um sjálfa sig. Það er ekkert gefið eftir í atvinnuknatt- spymumennskunni. Þurfum aö hugsa um fram- tföina Svona lagað gengur ekki. Það verð- ur að koma okkar efnilegustu leik- mönnum á réttan markað. Það verður að undirbúa okkar leikmenn betur áður en þeir fara út. Það á að gefa ungum og efnilegum strák- um tækifæri til að fara út og æfa með unglingaliðum, þannig að þeir kynnast betur nýju umhverfi og ættu þá betur með að átta sig á hlutunum þegar þeir fara út í alvör- una. Leikmennimir verða helst að kunna undirstöðu í tungumáli þess lands sem þeir fara til. Þannig þarf að byggja þetta upp og skipuleggja, þannig að sömu mistökin endurtaki sig ekki aftur og aftur,“ sagði Atli Eðvaldsson. FRJÁLSAR Iris Grönféld keppir á Grand Prix-mótunum 40 Fyrst íslenskra frjálsíþróttakvenna ÁRANGUR írisar Grönfeldt, spjótkastara úr UMSB, er hún setti íslandsmet sitt í Noregi um helgina, hefði dugað í 48. sœti á heimsafrekaskránni bæði árið 1986 og 1987. Með afreki sínu hefur Iris öðlast rétt til keppni á Grand Prix- mótum Alþjóðafrjálsíþrótta- sambandsins (IAAF), fyrst íslenzkra frjálsfþróttakvenna. Íris kastaði 61,04 metra og bætti íslandsmetið um tæpa tvo metra. Hefði sá árangur verið sá fimmti bezti á Norðurlöndum í fyrra og hitteðfyrra, aðeins ein norsk, tvær finnskar, og ein sænsk kona köstuðu lengra. íris hefði hins vegar orðið í 28. sæti á listanum ef aðeins er reiknað með þremur köstumm frá hveiju landi, en fleiri keppendur má hver þjóð ekki senda á Ólympíuleiki. Á 50 manna listanum voru 8 stúlkur frá Kína, sjö frá Sovétríkjunum, fimm frá Austur-Þýzkalandi og Kúbu, fjórar frá Vestur-Þýzkal- andi, þijár frá Ungveijalandi og Bretlandi, tvær fínnskar og 12 ríki áttu eina konu hvert. Alls áttu 20 ríki keppanda í hópi 50 beztu spjót- kastaranna og má segja að íris hafi nú komið Islandi í þann úrvals- hóp, en 182 ríki eru í IAAF og er ekkert íþróttasamband í heiminum stærra. Heimsmet var sett í spjótkasti kvenna bæði í í fyrra (Petra Felke, Austur-Þýzkalandi - 78,90) og hitteðfyrra (Fatima Whitbread, Bretlandi - 77,44). Breiddin er hins vegar ekki mikil, því 67,86 dugðu í 10. sæti á heimsafrekaskránni í fyrra, 65,18 í 20. sæti og 63,72 í 30. sæti, þ.e. 15 metrar skildu 1. og 30. stúlku að. í 40. sæti dugðu 62,16 og 60,90 í 50. sæti. Afrek írisar er 4,54 metrum lengra en ólympíulágmark IAAF en 46 sentimetrum styttra en lag- mark Ólympíunefndar íslands. Dæmi er um að lágmark Ó.í. sé lakara en lágmark IAAF. Spjótkast kvenna er ein örfárra undantekn- inga frá því. íris Grönfeld tryggði sér rétt til að keppa á Grand Prix-mótunum með ís- landsmeti sínu í spjótkasti. KNATTSPYRNA / EVRÓPUBIKARINN „Leggjum áherslu á sóknarleikinn frá fyrstu mínútu“ - segir Hulshoff, þjálfari Ajax, um leikinn gegn Mechelen AJAX frá Hollandi og Mechelen frá Belgíu leika til úrslita í Evr- ópukeppni bikarhafa í dag kl. 18.30. Leikurinn fer fram í Strassborg í Frakklandi og verður sýndur í beinni útsend- ingu í íslenska sjónvarpinu. Barry Hulshoff, sem tók við þálfarastöðunni hjá Ajax af John Cruyff, sagði að liðið myndi leika sóknarbolta. „Við munum leggja áherslu á sóknarleikinn frá fyrstu mínútu. Ég veit að Mechelen er'með sterkt vamarlið og byggir á hættulegum skyndisóknum. Eg hræðist ekki leik þeirra og við munum reyna að spila okkar bolta og ef það tekst þá er sigurinn okk- ar,“ sagði Hulshoff. Rob Wltschge, hinn léttleikandi sóknarleikmaður Ajax. Þjálfari Mechelen, Aad de Mos, er ekki ókunnur herbúðum Ajax. Hann var þjálfari Ajax 1981 til 1985. Hann segir að sigurlíkur Mechelen velti á frammistöðu ísraelska lands- liðsmannsins, Eli Ohana. „Ajax er ekki sama stórveldið í knattspymunni og áður,“ sagði Aad de Mos. „Ajax hefur misst marga góða leikmenn frá því í fyrra. Eg hef trú á því að þetta verði góður leikur fyrir okkur og ég treysti á Ohana. Hann gæti orðið hinn nýji Ruud Gullit og er lykilmaður í okk- ar liði.“ Búist er við að Mechelen verði að- eins með Hollendinginn, Piet den Boer, í fremstu víglínu og Ohana, sem leikur á miðjunni, komi honum Erwln Kooman, er einn af lykil- mönnum Mechelen. til hjáipar í skyndisóknum, en það hefur gefist vel í vetur. Ajax sem vann Evrópubikarinn í Aþenu í fyrra verður nú án Sonny Silooy, Frank Rijkaard og Marco van Basten, en þeir hafa allir yfir- gefið félagið. Liðið er mjög ungt að undanskildum aldursforsetanum Amold Muhren sem verður 37 ára í næsta mánuði. Liðin í dag verða þannig skipuð: Ajax: Stanley Menzo, Danny Blind, Peter Larsson, Aron Winter, FVank Verlaat, Jan Wouters, John Bosman, Amold Miihren, John van’t Schip, Rob Witschge og Hennie Meijer. Mechelen: Michel Preud’honne, Marc Em- mers, Leo Clijstem, Graeme Rutjes, Geert Deferm, Koen Sanders, Erwin Koeman, Wim Hofkens, Pascal de Wilde, EIi Ohana og Piet den Boer. ÍÞRfallR FOLK ■ JORGE Burruchaga, lands- liðsmaður Argentínu, sem skoraði sigurmarkið, 3:2, gegn V-Þjóðveij- um í HM í Mexikó, verður frá keppni næstu þijá til sex mánuði. Burruchaga, sem leikur með Nantes í Frakklandi, verður skor- inn upp fyrir meiðslum á hægri hné um næstu helgi. Hann meiddist eft- ir samstuð við Jean-Luc Ettori, markvörð Mónakó um sl. helgi. Þess má geta að Burruchaga var skorinn upp fyrir meiðslum á vinstra hné í fyrra. ■ EINDHOVEN hefur ákveðið að láta danska landsliðsmanninn Frank Arnesen fara eftir þetta keppnistímabil. Hann fær að fara frá félaginu án þess að Eindhoven óski eftir peningagreiðslu fyrir hann. Arnesen, sem er 31 árs, hefur verið orðaður við Xamax Neuchatel í Sviss. MDANSKI landsliðsmaðurinn Jan Mölby, sem leikur með Liverpool, herfur misst ökupróf sitt í hálft ár, vegna ölvunar við akstur. ■ ALAX Fergusoa, fram- kvæmdastjóri Manchester United, hefur ekki gefið þeim Brian McClair og Gordon Strachan leyfi til að leika með skoska landsliðinu í keppni við England og Kólumbiu í næstu viku. Astæðan fyrir því er að United leikur vináttuleik gegn AC Mílanó sama kvöld og Skotar leika gegn Kólumbíu. Margir leik- menn United eru meiddir, eins og þeir Viv Anderson og Norman Whitesied. Strachan, sem var val- inn í landsliðið eftir að hafa verið átta mánuði út í kuldanum, sagði að hann hafi verk að vinna fyrir United, en vonaðist til að fá aftur tækifæri til að leika með Skotlandi. ■ LEIKMENN Bröndby fá hver 90 þús. ísl. kr., ef þeir ná að vinna dönsku bikarkeppninna. Bröndby mætir AGF í úrslitaleik keppninn- ar. Þetta er metupphæð sem danskt félagslið borgar leikmönnum sínum í bónus fyrir að vinna danska bikar- inn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.