Morgunblaðið - 19.05.1988, Side 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 1988
Stærð Verð
155 SR 13 Kr. 2.600.-
165 SR 13 Kr. 2.900.-
175 SR 14 Kr. 3.800.-
175/70 SR 13 Kr. 3.900.-
185/70 SR 14 Kr. 4.200.-
STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR FRÁ OFANGREINDUM VERÐUM ER 7%
en að auki getum við boðið mjög hagstæð greiðslukjör:
VILDARKJÖR VISA eða EUROKREDIT: Lág eða engin útborgun
— og jafnar mánaðarlegar greiðslur allt upp í 8 mánuði!
Sendum gegn póstkröfu um land allt.
Vegna tollalækkunar um áramótin og hagstæðra magninnkaupa
getum við nú boöið hina þekktu BRIDGESTONE sumarhjólbaröa á
ÓTRÚLEGU VERÐI.
Nefnd semur nytt
húsnæðisfrumvarp
Félagsmálaráðherra hefur
skipað nefnd tíl að ganga frá
tillögnm að skipan hins almenna
húsnæðislánakerfis í framhaldi
af álitsgerð vinnuhóps um þetta
efni dags. 23. mars sl.
Hlutverk nefndarinnar er að
semja lagafrumvarp um breytta
skipan hins almenna húsnæðislána-
kerfis með hliðsjón af þeirri leið sem
vinnuhópurinn mælir með í álits-
gerð sinni og koma með þær tillög-
ur aðrar um þetta efni, sem nefnd-
in telur réttar og nauðsynlegar.
í nefndinni eiga sæti fulltrúar
stjómar og stjómarandstöðu ásamt
aðilum vinnumarkaðarins. Formað-
ur nefndarinnar er Kjartan Jó-
hannsson alþingismaður. Aðrir
nefndarmenn eru Ásmundur Stef-
ánsson, forseti ASÍ, Gunnar J. Frið-
riksson, formaður VSÍ, Júlíus Sól-
nes, alþingismaður, Kristín Ást-
geirsdóttir, sagnfræðingur, María
Ingvadóttir, viðskiptafræðingur,
Steingrímur J. Sigfússon, alþingis-
maður, og Þráinn Valdimarsson,
framkvæmdastjóri.
Til að starfa með nefndinni era
tilnefndir Bolli Þór Bollason, hag-
fræðingur, Ingi Valur Jóhannsson,
deildarstjóri, og Yngvi Öm Kristins-
son. hagfræðingur.
Á það er lögð áhersla að nefndin
ljúki störfum það tímanlega að
hægt verði að leggja fram laga-
frumvarp um endurskipulagningu
almenna húsnæðislánakerfisins í
byijun næsta þings, segir í frétt frá
félagsmáiaráðuneytinu.
Nýr skemmtiferða-
batur til heimahafnar
Stykkishólmi.
FJÖLDI manns fagnaði komu
skemmtiferðabátsins Hafrúnar
þegar hann kom til hafnar í
Stykkishólmi 3. maí. Lúðrasveit
Stykkishólms undir stjóm Daða
Þórs var til staðar og lék við bíla-
vogina hressileg lög á meðan beð-
ið var eftir að báturinn sigldi inn
í höfnina.
Bílaröðin um alla hafnargötuna
og fánar í hún um allan bæinn. Þetta
var líka einstæður atburður, því
svona farartæki hefur ekki fyrr sést
rása um Breiðaflörð.
Pétur Ágústsson skipstjóri kom
með bátinn frá Noregi. Með honum
vora þeir Óskar Eyþórsson, skip-
stjóri, en hann mun verða með bát-
inn að mestu leyti í sumar enda
kunnur og reyndur hér á Breiðafirði
og Snorri Ágústsson var einnig með
I förinni.
Fréttaritari hitti Pétur Ágústsson
að máli stuttu eftir komuna hingað
í Hólminn og sagði hann að báturinn
hefði reynst mjög vel og traustur
og farið fram úr björtustu vonum.
„Við voram 3 daga,“ sagði Pétur,
„á ferðinni suður með Noregsströnd-
um, fóram rólega og keyrðum ein-
ungis á daginn. Þá voram við þrjá
daga á leiðinni til íslands. Við kom-
um líka við á Hjaltlandi og í Færeyj-
um og stoppuðum þar lítilsháttar.
Þá komum við á Homafjörð og tók-
um þar eldsneyti, en til Reykjavíkur
komum við svo í gær (2. maí). Við
voram heppnir með veður og hraði
bátsins var eins og upp var gefið
þegar við festum kaup á honum.
Allur búnaður er fyrsta flokks og
farþegasalurinn mjög rúmgóður
þegar til farþegafjölda er tekið. Ég
á von á því að þessi bátur eigi eftir
að veita mörgum ógleymanlega för
um Breiðafjörðinn, enda til þess
kominn. Fyrir utan að stunda áætl-
unarferðir er hugmyndin að hópar
geti tekið bátinn á Ieigu og ráðið
þá hvaða staðir verða skoðaðir, en
allt verður þetta samningsatriði,"
sagði Pétur. _ Ámi
Tugmilljóna útgjöld eru
vegna taps á Alafossi vestra
Aætlanir í september bentu til að reksturinn stæði í jámum
Hótel Höfn:
Sigurðar Sólmundarson sýnir
Sigurður Sólmundarson heldur
sina áttundu myndlistarsýningu
á Hótel Höfn, dagana 20.-23.maí
n.k.
Sigurður sýnir að þessu sinni 30
myndir sem allar eru gerðar á þessu
og síðasta ári.
Sýningin verður opin daglega frá
kl. 14-22 nema föstudaga en þá er
opið frá 20-22.
Myndimar era að unnar úr
íslenskum jarðefnum.
Framkvæmdasjóður, sem átti
98% hlutafjár í gamla Álafossi,
þarf að standa skil á tugmilljóna
viðbótarútgjöldum vegna taps
sem varð á rekstri dótturfyrir-
tækis ÁJafoss í Bandaríkjunum á
síðasta ári. Gögn um stöðu fyrir-
tækisins í september síðastliðn-
um bentu til þess að rekstur Ála-
foss í Bandaríkjunum stæði i
járnum. Við þau var stuðst í við-
ræðum um sameiningu Álafoss
og Ullariðnaðardeildar SÍS. Nú
stendur yfir gerð ársreikninga
og er Ijóst að tap á rekstri dóttur-
fyrirtækisins nemur tugum mil\j-
óna króna.
JmUGESTOnE
STÓRFELLD VERÐLÆKKUN
sís og eigendur Álafoss skuld-
bundu sig til skila fyrirtækjunum
með ákveðna eiginfjárstoðu inn í
nýja samstarfið. Það mun því lenda
á Framkvæmdasjóði að standa und-
ir tapinu. Að sögn Þórðar Friðjóns-
sonar formanns stjómar Fram-
kvæmdasjóðs er nú unnið að gerð
ársreikninga Álafoss og taldi hann
ekki tímabært að nefna nákvæmar
tölur um tapið fyrr en reikningam-
ir verða lagðir fram í byijun næsta
mánaðar. Þórður færðist undan að
skýra frá því, að svo stöddu, hveiju
um væri að kenna að sameiningin
hefði byggst á svo ónákvæmum
áætlunum en sagði að stærsti liður-
inn í tapi fyrirtækisins væri að vera-
lega hefði dregið úr sölu á síðasta
fjórðungi ársins.
Morgunblaðið/Árni Helgason
Frá komu skemmtiferðabátsins Hafrúnar til Stykkishólms.
Stykkishólmur:
Stuðlaðu að öryggi þínu og þinna í umferðinni í sumar — nýttu þér
hagstætt verð okkar greiðsluskilmála og kauptu NÝJA úrvals
BRIDGESTONE hjólbarða undir bílinn!! __
DEKKJAMARKAÐURINN
FOSSHÁLSI 13—15
(vestan við nýja Bílaborgarhúsið)
SÍMI 68-12-99
á nýjum sumarhjólbörðum!
Framkvæmdasj óður:
Dæmi um verð: