Morgunblaðið - 19.05.1988, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. MAÍ1988
T jnnnlitlar samninga-
viðræður frá 1982
CCCP
London, Reuter.
SAMNINGUR um brottflutning
sovéska innrásarliðsins frá Afg-
anistan var undirritaður í Genf
þann 14. apríl en samningavið-
ræður fyrir tilstilli Sameinuðu
þjóðanna höfðu þá staðið yfir
linnulítið frá árinu 1982. Fulltrú-
ar kommúnistastjórnarinnar í
Kabúl, Pakistana og risaveld-
anna beggja undirrituðu sam-
komulagið en i því er m.a. gert
ráð fyrir að fimm milljónir afg-
anskra flóttamanna geti snúið
aftur til sins heima. Sovétmenn
réðust inn í landið í desember
1979 en samkvæmt vestrænum
tölum, sem almennt eru viður-
kenndar, hafa 115.000 sovéskir
hermenn haldið til í landinu frá
árinu 1984.
Endir var bundinn á tveggja alda
konungdæmi í Afganistan árið
1973 er Zahir Shah konungi var
steypt af stóli. Leiðtogi byltingar-
manna var frændi hans Mohammad
Daoud. Marxistar komu Daoud hins
vegar frá völdum árið 1978 og var
hann myrtur í byltingunni. Árið
eftir varð Barbrak Karmal forseti
landsins og í desember það sama
ár réðust um 80.000 sovéskir her-
menn inn í landið. Ráðamenn í
Kreml hafa hins vegar ævinlega
haldið því fram að beiðni um hem-
aðaraðstoð hafi borist frá stjóm-
völdum í Kabúl. Allt frá þessu hef-
ur sovéska innrásarliðið og afg-
anski stjómarherinn átt í bardögum
við frelsissveitir afganskra skæm-
liða, sem njóta stuðnings Banda-
ríkjamanna og Pakistana.
Innrásin fordæmd
Árið 1980 samþykkti mikill
meirihluti ríkja á Állsheijarþingi
Sameinuðu þjóðanna ályktun þar
sem skorað var á Sovétmenn að
hafa sig á brott úr Iandinu. Fjöldi
sambærilegra áskorana hefur síðan
verið samþykktur á vettvangi Sam-
einuðu þjóðanna. Sama ár vom
herlög innleidd í Kabúl eftir að 300
manns höfðu týnt lífi í sprengjutil-
ræði.
Tveimur ámm síðar hófust við-
ræður um frið í Afganistan er Di-
ego Cordovez, sérlegur sendimaður
Sameinuðu þjóðanna hélt til Afgan-
istan og Pakistan til viðræðna við
ráðamenn en Pakistanar hafa stutt
frelsissveitir skæmliða auk þess
afganskir flóttamenn hafa leitað
skjóls handan landamæranna.
í júli árið 1984 skýrðu fulltrúar
Sovétstjóminnar Perez de Cuellar,
framkvæmdastjóra Sameinuðu
þjóðanna, frá því að þeir styddu
viðleitni samtakanna til að koma á
friði í landinu. Hins vegar ítrekuðu
þeir fyrri kröfur um að binda yrði
enda á alla „erlenda hemaðaríhlut-
un í landinu". Ári síðar átti Zia-ul-
Haq, forseti Pakistans, viðræður við
Míkhafl Gorbatsjov, sem þá hafði
tekið við embætti aðalritara í Sov-
étríkjunum, og kvaðst Sovétleið-
toginn við það tækifæri vera hlynnt-
ur því að leitað yrði „pólitískra
lausna" á vanda afgönsku þjóðar-
innar. Þessa afstöðu ítrekaði Edu-
ard Shevardnadze, utanríkisráð-
herra Sovétríkjanna, er hann ræddi
við Diego Cordovez ári síðar.
Risaveldin taka þátt
í febrúar á þessu ári tilkynntu
stjómvöld í Sovétríkjunum og Afg-
anistan að brottflutningur herliðs-
ins gæti hafíst 15. maí ef yfirvöld
í Pakistan og Afganistan hefðu náð
samkomulagi um framkvæmd hans
tveimur mánuðum áður. í yfírlýs-
ingunni sagði að herliðið yrði þá
kallað heim á tíu mánuðum. í mars-
mánuði hófst tólfta og síðasta lota
Genfar-viðræðnanna og tóku þá
sendinefndir frá Bandaríkjunum og
Sovétríkjunum þátt í viðræðunum.
Wakil, utanríkisráðherra Afganist-
ans, gerði þá heyrinkunnugt að
stjóm sín gæti fallist á að heraflinn
yrði fluttur heim á níu mánuðum
þar af helmingurinn á fyrstu þrem-
ur mánuðunum. í aprílmánuði til-
kynntu síðan Gorbatsjov og Naji-
bullah að öllum hindmnum hefði
verið rutt úr vegi og hið sama gerði
Zia-ul-Haq, forseti Pakistan. Ut-
anríkisráðherrar risaveldanna, þeir
Eduard Shevardnadze og George
Shultz höfðu átt viðræður í Was-
hington skömmu áður um Afganist-
an og náðist þar samkomulag um
að styðja myndun bráðabirgða-
stjómar í landinu. Ríkin greindi
hins vegar á um framkvæmd og
ufmang hemaðaraðstoðar við hinar
stríðandi fylkingar í landinu. Loks
var samið um að hún skyldi vera
jöfn og gagnkvæm þannig að dragi
annað stórveldið úr stuðningi sínum
skuli hitt gera slíkt hið sama. Sam-
komulagið var síðan undirritað 14.
apríl og hófst brottflutningurinn
samkvæmt áætlun á sunnudag.
Reuter
Þann 15. maí hófst brottflutningnr sovéska hersins frá Afganistan.
Hér sjást fyrstu bryndrekarnir koma til landamærabæjarins Termez
í Uzbekistan.
Brottflutningur sovéska hersins frá Afganistan:
Fyrstu bryndrek-
arnir komnir heim
Termez, Reuter.
LÚÐRABLÁSTUR og homaþyt-
ur beið fyrstu sveitar sovéskra
hermanna, sem snýr heim frá
Afganistan, er hún kom í gær-
morgun til bæjarins Termez á
landamærum Sovétríkjanna og
Afganistans. Hermönnunum,
sem vora heldur þreytulegir að
sögn Helenu Womack, fréttarit-
ara Reuters, var fagnað sem
hetjum af þúsundum manna sov-
étmegin á bökkum árinnar
Amudaija.
Mannfjöldinn hafði beðið frá því
árla um morguninn eftir fyrstu
bryndrekasveitinni sem ferðast
hafði 740 km á þremur dögum, frá
Jalalabad í Austur-Afganistan til
Kabúl og þaðan norður til bæjarins
Termez á landamærum sovétlýð-
veldisins Úzbekistans og Afganist-
ans. „Verið velkomnir alþjóða-
hyggjuhermenn góðir,“ stóð á borð-
um sem veifað var er hermennimir,
1200 talsins, óku farkostum sínum
eftir Vinskaparbrúnni yfir fljótið
Amudaija. Fremstur fór Nikolai
Novikov, 21 árs gamall, jökuþór
brynvarins flutningabfls. Á eftir
honum komu 229 farartæki sömu
Afganistan: 10 ára styrjöld
Bandaríkin, Sovótríkin, Pakistan and Afganistan hafa genaið frá samningum, sem leiða munu til brottfarar
innrásarliö Sovétríkjanna úr Afganistan. Hér gefur aölíta helstu atburöi pessa áratugslanga ófriöar:
■ Mannfall Afgana: Meira en 1,2 milljónir (október 1987
■ Mannfall Rauöa hersins: Taliö vera á bilinu 12 - 30.000 manns
■ Afganskir flóttamenn.’i október sl. voru 2,9 milljónir I Pakistan, 2,3 milljónir í íran.
Aprd 1978:Kommúnistaflokkurinn gerir stjórnarbyltingu.
Feb. 1979: Bandaríska sendiherranum Adolph
Dubs rænt oa hann myrtur.
Des. 1979: Sovótmenn ráöast inn (
1978
1979
Afganistan og koma leppstjórn til valda.
rFeb. 1980:75.000 sovóskir hermenn komnir til
| Afganistan, ■ ,
ii;
Jan. 1984: Skæruliöar ná Kandahar Sept. 1986: Skæruliöar fá fyrstu
á sitt vald um stundarsakir. loftvarnaflugskeytin.
Apríl 1984: Sovótmenn Feb. 1988: Gorbatsjov
hefja stórfelldar loftárásir. stingur upp á brottflutningi
Ágúst 1984: Pakistanar
kvarta undan loft- og
stórskotaliösárásum.
1980
1981
1982
1983
11984r
1985
Rauöa hersins.
1986
1987
Aprfl, 1988 Samningar
um brotttör Sovótmanna
undirritaöir í Genf.
HEIMILD; Aasociated Press
KRGN ! Morounblaöiö/ AM
Fundur leiðtoga risaveldanna í Moskvu:
Lögð fram tillaga um niður-
skurð heraflans í A-Evrópu?
gerðar. Efnt var til samkomu á
aðaltorgi Termezbæjar þar sem
hermönnunum var boðið upp á alls
kyns kræsingar.
í sjónvarpsfréttum í Sovétríkjun-
um var sagt á þriðjudag að lestin
hefði orðið fyrir skothríð skæruliða
á leiðinni frá Kabúl en ekkert mann-
tjón hefði orðið.
Fregnir frá Islamabad herma að
skæruliðar séu smám saman að ná
hemaðarlega mikilvægum stöðum
suður af Kabúl á sitt vald. Sovéska
innrásarliðið fær þó að fara í friði
að mestu leyti. „Við viljum að Sov-
étmennimir hypji sig sem skjótast.
En ætli þeir að skilja eftir dauða
og eyðingu í kjölfarinu þá munum
við hefna þess,“ sagði talsmaður
Jamiat-i-islami, einnar helstu
skæruliðahreyfingarinnar.
Svo virðist sem hermenn stjóm-
arinnar taki yfirleitt við bækistöðv-
um sovéska hersins eftir að hann
heldur norður á bóginn. Skærulið-
um hefur síðan víða tekist að ná
þessum bækistöðvum á sitt vald.
Stjómarherinn hefur þá stefnu að
láta smærri herstöðvar eiga sig en
reyna að halda í hinar stærri eftir
að Sovétmenn eru famir. Þetta
gefur skæruliðum hins vegar kost
á því að hreiðra um sig á minni
stöðunum og sækja þaðan á stærri
bæi og borgir.
Washington, Reuter.
ÓNEFNDIR bandarískir embætt-
ismenn sögðu í gær að Míkhaíl
S. Gorbatsjov Sovétleiðtogi kynni
að leggja fram tillögu á leið-
togafundinum í Moskvu um
næstu mánaðamót þar sem gert
væri ráð fyrir brottflutningi um
100.000 sovéskra hermanna frá
Austur-Evrópu. Embættismenn-
irair lögðu áherslu á að engin
slík tillaga hefði formlega verið
kynnt í viðræðum þeirra við hina
sovésku starfsbræður sína. Þeir
bættu við að tillaga í þessa veru
kæmi til með að hafa „gríðarleg"
áhrif í Vestur-Evrópu færi svo
að Sovétleiðtoginn legði hana
fram í viðræðum sínum við Ron-
ald Reagan Bandaríkjaforseta.
Upplýsingar þessar komu fram á
ráðstefnu sem haldin var í gær í
Washington þar sem rætt var um
stöðu afvopnunarmála. Embættis-
mönnunum bar þó ekki saman um
hvort líklegt mætti telja að Gorb-
atsjov legði tillögu þessa fram á
Moskvu-fundinum. Einn viðmæl-
enda Æeute/s-fréttastofunnar sagð-
ist telja það harla ólíklegt. Ráða-
menn innan Rauða hersins myndu
leggjast gegn einhliða fækkun her-
liðsins í Austur-Evrópu og samn-
ingamenn Sovétstjómarinnar teldu
það vafalítið hæpna ráðstöfun að
leggja slíkt fram þar sem fyrir-
hugaðar væru nýjar viðræður um
stöðugleika á sviði hins hefðbundna
herafla í Evrópu.
Embættismönnunum bar saman
um að Bandaríkjamenn myndu
svara þessari tillögu á þann veg að
Atlantshafsbandalagið sem heild
þyrfti að taka þátt í samningavið-
ræðum sem þessum. Þá myndu full-
trúar Bandaríkjastjómar vafalítið
halda því fram að slík tillaga væri
í raun marklaus væri ekki gert ráð
fyrir ströngu eftirliti. Sögðu heim-
ildarmennimir ljóst að Sovétmenn
mættu auðveldlega við niðurskurð-
inum þar eð þeir nytu mikilla yfir-
burða á sviði hins hefðbundna her-
afla í Evrópu. Hins vegar kynni til-
laga sem þessi að hafa mikil áhrif
á stjómmálaástandið í Vestur-
Evrópu, samband Bandaríkja-
manna og bandamanna þeirra í álf-
unni og áætlanir Atlantshafsbanda-
lagsins um endumýjun vopnabún-
aðar í Vestur-Evrópu.
Fullvíst þykir að leiðtogamir
muni ekki undirrita samkomulag
um helmingsfækkun langdrægra
kjamorkuvopna á Moskvu-fundin-
um eins og upphaflega hafði verið
stefnt að. Á hinn bóginn er talið
hugsanlegt að ýmsir smærri samn-
ingar, sem varða tvíhliða samskipti
ríkjanna, verði ræddir og ef til vill
undirritaðir. Hefur sáttmáli um
sameiginlegt eftirlit með kjamorku-
tilraunum einkum verið nefndur í
þessu samhengi. Einn heimildar-
manna Reuters-fréttastofunnar
sagði í gær að svo kynni að fara
leiðtogamir gerðu með sér sátt-
mála, sem kæmi til með að skuld-
binda bæði risaveldin til að skýra
með ákveðnum fyrirvara frá eld-
flaugaskotum í tilraunaskyni þó svo
þau væm algjörlega takmörkuð
ýmist við sovéskt eða bandarískt
yfirráðasvæði. Yrði slíkur sáttmála
vafalaust til þess að skapa aukið
traust í samskiptum risaveldanna.
Fram að þessu hafa sovéskir ráða-
menn jafnan haldið því fram að
Bandaríkjamenn varði ekkert um
tilraunir með eldflaugar svo fram-
arlega sem flugleið þeirra sé innan
sovéskrar lofthelgi. Utanríkisráð-
herrar stórveldanna þeir Eduard
Shevardnadze og George Shultz
ræddu hugmynd þessa á fundi í
Genf í sfðustu viku og voru við-
brögð sovésku embættismanna
sögð hafa verið Jákvæð".
Noregnr:
Metolíufram-
leiðsla í apríl
Ósló. Reuter.
OLÍUVINNSLA Norðmanna á
Norðursjávarsvæðinu varð meiri
í aprílmánuði síðastliðnum en
nokkru sinni fyrr.
Nam vinnslan í apríl 1,2 milljón-
um tunna á dag, samkvæmt könn-
un, sem Reu£er-fréttastofan gerði
hjá olíuvinnslufyrirtækjum. I mars-
mánuði síðastliðnum nam vinnslan
1,18 milljónum tunna á dag, sem
var metframleiðsla til þess tíma.
En sérfræðingar segja, að ekki
verði farið fram úr því marki, sem
norsk stjómvöld hafa sett sér um
7% niðurskurð áætlaðrar fram-
leiðsluaukningar.
Norðmenn hafa staðið við niður-
skurðaráætlanir sínar frá því í
febrúar 1987, en með niðurskurðin-
um var ætlunin að styðja OPEC-
ríkin í þeirri viðleitni sinni að auka
stöðugleika í heimsmarkaðsverði á
olíu.