Morgunblaðið - 19.05.1988, Side 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 1988
AKUREYRI
Blaðberar Morgunblaðsins á Norðnrlandi samankomnir á Akureyri. Morgunbiaðið/Rúnar Þðr Bjðmsson
120 blaðberar á Norðurlandi
á Morgunblaðshátíð á Akureyri
UM ÞAÐ bil 120 blaðberar Morg-
unblaðsins á Norðurlandi, allt frá
Skagaströnd austur til Vopna-
fjarðar, ásamt sextán norðlensk-
um umboðsmönnum mættu á hátið
á Hótel KEA sem Morgunblaðið
hélt þeim síðastliðinn sunnudag.
Glens og glaumur ríkti á meðal
viðstaddra þennan dag og gafst
krökkunum gott færi á að kynn-
ast hvert öðru. Þetta er önnur
hátíðin af sex sem Morgunblaðið
heldur blaðberum sinum i tilefni
af 75 ára afmæli blaðsins á árinu,
þann 2. nóvember nk. Fyrsta sam-
koman fór fram i Vestmannaeyj-
um og eftir eru afmælisskemmt-
anir blaðsins i Stykkishólmi, á
ísafirði, Selfossi og Egilsstöðum.
Tekið var á móti gestunum í and-
dyri hótelsins um hádegi á sunnudag
og þeim afhentar peysur merktar
Morgunblaðinu. Að því búnu var sest
að snæðingi. Hanna Björk Þrastar-
dóttir í útbreiðsludeild, Lilja Leifs-
dóttir innheimtustjóri og Jóhanna
Víborg verkstjóri dreifingadeildar
sáu um alla skipulagningu í sam-
starfi við starfsmenn Akureyrar-
deildar blaðsins, þeirra Rúnars Ant-
^ onssonar, Ásbjargar Hjálmarsdóttur,
Jódísar Jósefsdóttur sem starfa við
afgreiðslu og dreifingu blaðsins, Jó-
hönnu Ingvarsdóttur blaðamanns og
Rúnars Þórs Bjömssonar Ijósmynd-
ara.
Eftir borðhald og myndatöku var
sýnt myndband, sem gert hefur ver-
ið um starfsemí Morgunblaðsins.
Fjallað er um ábyrgð og skyldur
starfsmannanna, allt frá því er frétt
verður til og þar til hún kemst í
póstkassa viðkomandi lesenda, og
rejmir þar ekki síst á blaðberana því
Aníta Stefánsdóttir 15 ára og Júlíus bróðir hennar, 13 ára, frá Hrísey.
Sigrún Bárðardóttir og Anna Skúladóttir frá Ólafsfirði.
án þeirra væri til lítils að gefa út
blað. Næst á dagskránni var hinn
síhressi Ómar Ragnarsson, sem fór
á kostum að vanda, og undirleikari
hans, Haukur Heiðar Ingólfsson.
Ómar skemmti gestum með söng og
látum — eins og honum er einum
lagið. Ga, ga, mu, mu, mjá, mjá,
voff, voff og bra bra lagið var tekið
ásamt öðrum góðum lögum og eftir
hálftíma hlátrasköll stjómaði Ómar
spumingakeppninni: „Hvað held-
urðu?“ Sigurvegarar fengu vasadiskó
í verðlaun og snældur.
Fimm árnm eldri
en Mogginn
Eins og áður kom fram komu
krakkamir víða að og sumir langt
að, flestir hópanna komu i rútum og
þurftu því ýmsir að vakna snemma
til að komast á áfangastað. Vopnfirð-
ingamir vöknuðu til dæmis klukkan
5 um morguninn enda þurftu þeir
að leggja af stað tímanlega kl. 6 til
að ná hátíðinni á Akureyri. Blaða-
maður ræddi við nokkra blaðbera í
veislunni. Elstur þeirra er Jóhannes
Jóhannesson á Akureyri sem nýlega
hefur hafið störf fyrir blaðið. Hann
verður áttræður á árinu, þann 29.
nóvember nk., og er því fímm ámm
eldri en Morgunblaðið. „Ég fór að
bera út blaðið 19. desember 1986
og kom það til af einhveijum mis-
skilningi. Ég var áskrifandi að blað-
inu og misskildi einn reikninginn sem
ég fékk í hendumar og fór því á
Akureyrarskrifstofuna til þess að
vita vissu mína í þessu efni. Þá vant-
aði einmitt blaðbera í ákveðið hverfi
og sló ég til. Ég ber út 82 blöð á
degi hveijum og finnst mér þetta
Jóhannes Jóhannesson, elsti
blaðberinn á Akureyri, en hann
er fimm árum eldri en Morgun-
blaðið.
Sigríður Dagný Þrastardóttir, 12
ára blaðberi í innbænum á Akur-
eyri.
góð hressingarganga fyrir mig.
Stundum hitti ég kunningjana á leið-
inni og rabba lítillega við þá.“ Jó-
hannes vann á sínum yngri ámm hjá
Vegagerðinni. Hann varð að hætta
þar eftir nokkur ár vegna slyss, sem
hann lenti í, og starfaði næstu ellefu
ár við sútun. Þá fór hann í Slippstöð-
ina, þar sem hann var í þijú ár.
Nýbyijaðar á Ólafsfirði
Þær stöllur Sigrún Bárðardóttir
og Anna Skúladóttir, sem báðar em
12 ára Ólafsfirðingar, sögðust vera
rétt byijaðar að bera út Morgun-
blaðið. Hinsvegar væm þær nokkuð
vanar starfinu þar sem þær hefðu
áður borið út önnur dagblöð. „Við
tökum saman 33 blöð og skiptum
bunkanum á milli okkar. Þetta hefur
gengið áfallalaust fyrir sig, en fyrst
þegar við vomm að byija kom það
fyrir að við mgluðumst á húsum."
Sigrún sagðist ætla til Bolungarvíkur
í sumar til systur sinnar og fengi
hún líklega starf í bæjarvinnunni
þar. Anna reiknaði hinsvegar með
því að vera heima í sumar, líklega í
bæjarvinnunni í Ólafsfirði.
Fékk alltaf nammi
Sigríður Dagný Þrastardóttir, 12
ára Akureyringur, ber út blöð til íbúa
í innbænum svokallaða. „Ég hef bo-
rið út í eitt og hálft ár, en í sumar
ætla ég í sveit nálægt Sauðárkróki
og svo ætla_ ég að ferðast eitthvað
um landið. Á meðan fæ ég vinkonu
mína til að taka við blaðburðinum."
Sigríður sagði að blaðburðurinn
gengi yfírleitt mjög vel og fólk væri
mjög almennilegt. Hún ber út um
leið og skóla lýkur í hádeginu og
stundum segir hún að pabbi sinn
hjálpi sér. „Einu sinni átti til dæmis
kona heima í innbænum sem gaf
mér alltaf nammi þegar ég kom og
rukkaði hana. Hún er flutt eitthvert
annað núna svo að annar blaðberi
hlýtur að njóta góðs af því í dag.“
Amma hjálpar stundum
Aníta Stefánsdóttir, 15 ára
Hríseyingur, hefur verið umboðs-
maður fyrir Morgunblaðið í Hrísey
síðustu þijú árin. Bróðir hennar, Jú-
líus, 13 ára, ætlar að taka við starf-
inu í haust þar sem Aníta fer í skóla
á Laugum í Suður-Þingeyjarsýslu.
„Bróðir minn hefur séð um blað-
burðinn í Hrísey og ég sé um reikn-
ingana. Amma hjálpar stundum upp
á ef ég fer í frí eða er lengi í skólan-
um, en hún er umboðsmaður fyrir
annað dagblað." Aníta sagðist ætla
að vinna í ffystihúsinu í sumar og
Júlíus ætlar að starfa í unglingavinn-
unni og í saltfiskvinnu í Hrísey.
Alls eru um eitt þúsund blaðberar
Morgunblaðsins á landinu, þar af um
600 á höfuðborgarsvæðinu. Þeim var
boðið til skemmtunar á Hótel Sögu
fyrir tveimur árum. Því fá þeir 400
blaðberar, sem eru á landsbyggð-
inni, veislu nú á afmælisárinu. Þá
fá allir blaðberamir sérstaka Morg-
unblaðsklukku í afmælisgjöf og verð-
ur hún send þeim á afmælisdegi
þeirra á árinu.
Snorri Bjarnason umboðsmaður á Blönduósi, Matthías Jóhannsson umboðsmaður og
fréttarítari á Siglufirði og Ólafur Bernódusson umboðsmaður á Skagaströnd.
Umboðsmenn Morgunblaðsins á Norðurlandi.