Morgunblaðið - 19.05.1988, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 1988
51
Kaupfélag Árnesinga:
Áf engisvarnaráð:
Áhyggj-
ur vegna
uppsagna
ÁFENGISVARNARÁÐ sam-
þykkti á fundi sfnum þann 11.
maí s.l. að lýsa yfir áhyggjum
sinum vegna þess að tveir reyndir
menn, sem unnið hafa að fræðslu
um skaðsemi vímuefna, hafa sagt
störfum sínum lausum vegna af-
stöðu ráðherra og alþingismanna
til sölu áfengs öls hér á landi.
í samþykkt fundarins segir m.a.:
„Ljóst er að fræðsla um vímuefni
kemur að litlu gagni enda víða er-
lendis nú lögð meiri áhersla á annað
forvamarstarf.
Áfengisvamaráð skilur vel og er
sammála rökum þeirra sem hyggjast
hverfa frá störfum en vekur athygli
á að ef til vill hefur aldrei verið
meiri þörf mannvals við forvamar-
störf en nú. Því væntir Áfengisvam-
aráð þess að þeir ágætu menn, sem
nú em líkur á að hverfí frá störfum
sjái sér fært að beita kröftum sínum
áfram í þágu forvama og binndindis-
uppeldis."
(Úr fréttatilkynningfu)
Brotist inn um
bjartan dag
BROTIST var inn í kjallaraíbúð
við Barmahlíð á mánudagsmorg-
un og þaðan stolið sjónvarpi,
hljómtækjum og fleiru.
Innbrotið var framið á meðan
íbúi brá sér frá í tvo tíma, frá kl.
9.30-11.30. Þjófurinn braut rúðu í
útihurð, teygði sig í lásinn og opn-
aði. Hann hefur gefíð sér góðan
tíma til að stela og tók meðal ann-
ars sjónvarp, myndlykil og dýra
hljómtækjasamstæðu. Þá rótaði
hann í skúffum og skápum. Rann-
sóknarlögregla ríksins vinnur nú
að lausn málsins.
Ur27,7 milljóna hagn-
aði í 13,5 milljóna tap
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Vöruhús Kaupfélags Árnesinga á Selfossi.
Selfossi.
AFKOMA Kaupfélags Árnesinga
versnaði á síðastliðnu ári og halli
varð á rekstrinum að upphæð
13.5 milljónir. Árið áður varð
27,7 milljóna króna hagnaður.
Heildarvelta nam 1.228,2 miiyón-
um og jókst um 22,8% frá 1986.
Heiidarvörusala var 945 miljjón-
ir króna. Þetta kom fram á aðal-
fundi kaupfélagsins sem haldinn
var fyrr í maímánuði.
Orsakir hallans voru að fjár-
magnskostnaður jókst um 40 millj-
ónir milli ára og launakostnaður
um 43,3%. Önnur rekstrargjöld fyr-
ir utan vexti, opinber gjöld og af-
skriftir hækkuðu um 21,1%. Heild-
arvelta félagsins jókst um 22,8%
frá 1986.
Mest vörusala var í Vöruhúsi KÁ
þar sem salan var 572,6 milljónir
og 104,1 milljón í verslun KÁ í
Þorlákshöfn. Afskriftir námu 28
milljónum. Fjárfest var fyrir 38,2
milljónir og voru aðal íjárfesting-
amar kaup á eignum Búnaðarsam-
bands Suðurlands í Laugardælum
og nýsmíði verslunarhúss í Þorláks-
höfn. Heildarlaunagreiðslur námu
179.5 milljónum.
Á aðalfundinum var samþykkt
að mæla með því við stjóm félags-
ins að gerð verði tilraun til að leigja
út einhver af útibúum félagsins sem
rekin hafa verið með halla. Því var
einnig beint til stjómar að hún leit-
aði allra leiða til að snúa halla-
rekstri til betri vegar með hagræð-
ingu í rekstri og sölu eigna. Með
þeirri samþykkt náðist full eining
um að selja sem fyrst eldra verslun-
arhús kaupfélagsins.
Á aðalfundinum kom ekki fram
mikill áhugi fyrir sameiningu kaup-
félaga á Suðurlandi.
— Sig. Jóns.
SAMVUmjBANKtm
i
■í
, s< v;0jý* *■
• ■
Til mots við draum
með 20-50% afsiætti
★ pelsar
★ hattar og húfur
★ kvenfatnaður úr leðri og rúskinni; kápur,
buxur, pils, dragtir og kjólar
★ herrafatnaður úr leðri; stakir jakkar og buxur
★ kvenkápur úr ieðri
blnslakl tækifæri!
50% afsláttur á öllum pelsuni í litluni númerum.
50% útborgun og afgangurinn á 6 mánuðum,
vaxtalaust.
Þegar draumurinn er minkapels
getur hann orðið að veruleika núna.
VORTILBOÐ 88 frá 16/5 - 23/5.
Opið frá kl. 13 til 18.
PELSINN
Kirkjuhvoli