Morgunblaðið - 19.05.1988, Qupperneq 79
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 1988
79
fa&mt
FOLX
■ ENSKA blaðinu Match-
Weekly barst fyrir skömmu
lesendabréf frá stuðningsmanni
Norwich City. Hann vildi óska
Sigurði Jónssyni til hamingju með
markið sem hann skoraði fyrir
Sheffield Wednesday í vetur,
gegn Norwich. „Það var mikill
heiður að fá að sjá þetta mark.
Þetta hlýtur að vera eitt af bestu
mörkum tímabilsins." Bréfritari
segist aðeins muna eftir einu marki
sem líktist þessu, en það var mark
sem Justin Fashanu skoraði gegn
Liverpool fyrir nokkrum árum.
■ SHEFFIELD Wednesday
hefur gefíð Gary Owen frjálsa sölu.
Owen lék síðast á Grikklandi.
Howard Wiikinson hefur áhuga á
Graham Rix sem hefur fengið
fijálsa sölu frá Arsenal. Rix er
þrítugur og hefur einnig rætt við
Chelsea og Q.P.R. Hann er frá
Yorkshire og Sheffield því í næsta
nágrenni.
■ ORÐRÓMUR var á kreiki um
að Jim Gregory, hinn nýi stjómar-
formaður Portsmouth og fyrrum
eigandi Q.P.R., vildi fá Gerry
Francis sem framkvæmdastjóra.
Hann hefur staðið sig vel hjá Bri-
stol Rovers. Af þessu verður þó
ekki, því Francis skrifaði undir
samning til eins árs til viðbótar hjá
Bristol Rovers í gær.
■ JOHNNY Metgod, hollenski
leikmaðurinn sem kom til Totten-
ham fyrir tæp 250.000 pund, er
kominn á sölulista hjá Terry Vena-
bles. Þá hefur John Chiedozie,
Nígeríumaðurinn fótfrái, fengið
öjálsa sölu, en hann var keyptur
fyrir 350.000 pund árið 1984. Hann
hefur aðeins leikið 53 deildarleiki
og verið meiddur í baki síðastliðin
tvö ár.
■ SKOSKA knattspymusam-
bandið hefur gert stærsta samning
í sögu sambandsins. Andvirði samn-
ingsins er 2,5 milljónir punda fyrir
búninga á öll landslið Skota, en
samningurinn gildir til fímm ára.
KNATTSPYRNA
Gríska félagið Panionios vili
fá Guðmund Torfason til sín
Guðmundurfórtil V-Þýskalands í gærtil að kanna tilboð frá félaginu
GRÍSKA féiagíð Panionios frá
Aþenu vill fá Guðmund Torfa-
son, landsiiðsmiðherja í
knattspyrnu, til liðs við sig.
Félagið hefur haft augastað á
Guðmundí um tíma og fór
Guðmundur til V-Þýskalands
í gær, til að kanna hvað Pani-
onios, sem er eitt af topplið-
unum í Grikklandi, hafi upp á
að bjóða.
Þetta mái er á frumstigi, þann-
ig að ég lítið sagt um það
að svo stöddu. Ég hef áhuga að
vera nokkur ár til viðbótar í at-
vinnuknattspymunni og mun
kanna vel þau tilboð sem ég kem
með til að fa. Ég ætla ekki að
ana að neinu,“ sagði Guðmundur
í viðtali við Morgunblaðið.
Guðmundur sagði að ef hann
fengi ekki gott tilboð á næstunni,
gæti farið svo að hann kæmi heim
tjl að leika með Fram í sumar.
Ég hef sent inn félagaskipti til
KSÍ, með þeim fyrirvara að Wint-
erslag samþykki þau félagaskiptL
Winterslag hefixr yfirtráð yfír mér
og getur seit mig hvert sem félag-
ið vUI, svo framarlega að ég sam-
þykki þá söhi,“ sagði Guðmundur.
„Ef ég fæ gott tilboð, þá mun ég
taka því. Þá kæmi ég ekki heim
til að leika með Frarn," sagði
Guðmundur, sem sagðist ætla að'
hugsa sinn gang vel áður en hann
tæki ákvörðun hvað hann gerði.
Guðmundur Torfason sést hér sækja að marki A-Þjóðveija í landsleik
á Laugardalsvellinum.
KNATTSPYRNA / 2. DEILD
Oskabyijun
ÍR-inga setti
SeHyssinga
út af leginu
Tvö mörk ÍR-inga íbyrjun leiks-
ins setti Selfyssinga algjörlega
út af laginu og náðu þeir sér
aldrei á strik eftir þaö og uröu
aö sætta sig viö tap, 1:3.
Selfossliðið kom ákveðið inn á
gerfigrasvöllinn í Laugardal
og greinilegt að þeir ætluðu sér
stóra hluti í leiknum. Þeir áttu
■■■ nokkur góð skot á
Andrés mark ÍR en Þor-
Pétursson steinn Magnússon
skrifar markvörður sá við
þeim öllum.
Það kom því eins og köld vatnsgusa
framan í Selfyssinga og fjölmarga
aðdáendur þeirra, sem fylgdu liðinu
til Reykjavíkur í gær, að það var
ÍR sem náði forystunni. Bragi
Bjömsson braust af harðfylgni upp
kantinn og sendi hann fyrir markið
og þar náði baráttujaxlinn Hallur
Eiríksson að þruma knettinum í
mark Selfyssinga.
Hallur var síðan aftur á ferðinni
fjórum mínútum síðar er vöm Sel-
fossliðsins náði ekki að hreinsa eft-
ir skot ÍR. Hann náði þá knettinum
en var hrint og Guðmundur Marías-
son dómari dæmdi því réttilega víta-
spymu. Karl Þorgeirsson skoraði
síðan ömgglega úr vítaspymunni
2:0 fyrir IR.
Það sem eftir lifði hálfleiksins skeði
fátt markvert og varðist ÍR liðið
vel. Selfoss var meira með boltann
en allan brodd vantaði í sóknarleik-
inn.
Seinni hálfleikur byijaði svipað og
sá fyrri; Selfoss sótti en ÍR náði
skyndisókn og skoraði. Dæmd var
aukaspyma á Selfoss liðið út við
hliðarlínuna og Knútur Bjamason
lyfti boltanum skemmtilega inn í
vítateiginn. Þar var Halldór Hall-
dórsson réttur maður á réttum stað
og skallaði knöttinn fallega í netið.
Morgunblaðið/Sverrir
Oft skall hurö nærrl hælum við mark ÍR-inga, Hér sést Guðmundur
Magnússon sækja að marki þeirra, en knötturinn fór rétt fram hjá.
Við þetta var allur vindur úr Sel-
fyssingum og ÍR lagði áherslu á
að halda fengnum hlut. Selfoss var
meira með boltann, en þegar ÍR-
ingar náðu skyndisóknum var oft
mikið óðagot á vamarmönnum Sel-
fyssinga. Undir lok leiksins fór bolt-
inn í hönd eins vamarmanna ÍR og
Guðmundur Magnússon náði að
lagfæra stöðuna í 3:1.
Bestu menn IR voru vamarmenn-
imir Guðjón Ragnarsson og Einar
Ólafsson. Þorsteinn Magnússon var
ömggur I markinu ög einnig áttu
þeir Hallur Eiríksson og Bragi
Bjömsson ágætan leik.
Selfóssliðið náði sér engan veginn
á strik í þessum leik og greinilegt
að gerfígrasið. háði þeim. Heimir
Bergsson var einna skástur en ann-
ars er þetta örugglega leikur sem
þeir vilja gleyma sem fyrst. ■«
Maður leiksins: Guðjón Ragnars-
son, ÍR
íkvöid
Knattspyma
1. deild:
Keflavflcurv. ÍBK-KR...kl. 20.00
2. deild:
Kópavogsv. UBK-FH.........20.00
4. deild:
Þorlákshafnarv. Ægir-Skotf. R. .20.00
Gervigrasv. Ármann-Hvatberar .20.00
KNATTSPYRNA / BELGélA
„Amór er ekki til sölu“
- segirVerschnern framkvæmdastjóri Anderlecht. „Óvíst hvort
ég verð áfram hjá Anderlecht," segir Arnór Guðjohnsen
SAMNINGUR Amórs Guö-
johnsen við belgíska fólagið
Anderlecht rennur út í vor.
Nokkur félög hafa sýnt honum
áhuga, en Arnór hefur ekki
ákveðið hvort hann veröur
áfram hjá félaginu. Michel
Verschnern, framkvæmda-
stjóri Anderlecht, hefur hins-
vegar sagt aö Arnór sé ekki til
sölu, hann sé liöinu of mikil-
vægur.
Amór á nú í viðræðum við And-
erlecht. Félagið hefur boðið
honum langtíma samning, en'Amór
segist aðeins vilja semja til 1-2 ára.
„Ég tel jafna möguleika á að ég
fari frá félaginu og að ég verði
áfram,“ sagði Amór í samtali við
Morgynblaðið. „Ég er með ágætan
samning og hef ekki mikinn áhuga
á að fara til nágrannalandanna. Þó
væri kannski spennandi að leika í
Vestur-Þýskalandi.
Það hafa nokkur félög haft sam-
band við mig, en það er allt á byij-
unarstigi og ég hef ekki ákveðið
neitt ennþá. Nu er það úrslitaleikur
bikarkeppninnar sem skiptir höfuð-
máii og ég mun einbeita mér að
honum.“
Goethaels líklega ófram
Sá sem hefur stjómað liði And-
erlecht er Raymond Goethaels og
hann mun að öllum líkindum verða
endurráðinn. Hann er ekki titlaður
þjálfari, enda má hann ekki sjá um
þjálfun, eftir að hafa verið viðriðinn
mútuhneyksli. Hann er því kallaður
„tækniiegur ráðunautur,“ en velur
þó liðið og stjómar því I leikjum.
Hann var ráðinn í stað George Lee-
kens, sem var rekinn í vetur.
■I
Arnór QuAJohnsen.