Morgunblaðið - 26.05.1988, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 1988
Stýrimannaskólinn í Vestmannaeyjum:
Fjörutíu o g einn
nemandi í vetur
StýrimannaakAlnniim í Vest-
mannaeyjum var slitið 21. maí
sl. 11. stigi voru 16 nemendur og
í n. stigi 10 nemendur. Að auki
luku 5 nemendur síðari hluta
undanþágudeildar, 200 rúmlesta
réttindum, og 10 luku 30 rúm-
lesta réttindum. Alls var þvi 41
nemandi í skólanum í vetur.
í I. stigi varð hæstur óli H.
Gestsson frá Neskaupstað með
ágætis einkunn 9,7, næsthæstur
varð Sigurður I. Ólafsson frá Vest-
mannaeyjum með ágætiseinkunn
9,0 og þriðji hæstur varð Gunnar
Þ. Friðriksson frá Keflavík með I.
einkunn 8,9. f II. stigi varð hæstur
Stefán Guðmundsson frá Húsavík
með ágætiseinkunn 9,2 og næst-
hæstir urðu jaftiir Gylfi Sigurjóns-
son frá Vestmannaeyjum og Sig-
urður R. Kristinsson frá Þórshöfn
með ágætiseinkunn 9,0. Prófdóm-
arar eru Áslaug Tryggvadóttir, Ein-
ar Guðmundsson og Sævaldur
Elíasson.
Stefán Guðmundsson fékk í verð-
laun Verðandaúrið frá s/s Verðandi
og loftvog frá Sigurði Einarssyni
útgerðarmanni, hvort tveggja fyrir
hæstu meðaleinkunn í II. stigi.
Haraldur Sverrisson, Vestmanna-
eyjum, fékk sjónauka frá Útvegs-
bændafélagi Vestmannaeyja fyrir
hæstu einkunn í siglingafræði og
bókaverðlaun frá Rotaryklúbbi
Vestmannaeyja fyrir hæstu ein-
kunn í fslensku.
Óðinn Þór Hallgrfmsson fékk
bókaverðlaun úr sjóði hjónanna
Ástu og Friðfinns á Oddgeirshólum
fyrir bestu ástundun í námi, Gylfi
Siguijónsson fékk bókaverðlaun frá
Sigurgeir Jónssyni kennara fyrir
bestu ritgerðina og Sigurður Ingi
Ólafsson fékk bókaverðlaun frá
sendiráði Dana fyrir hæstu einkunn
í dönsku.
20 ára nemendur gáfu 35 þúsund
krónur í sjóð fyrrverandi kennara,
þeirra Steingríms heitins Amar og
15 ára nemendur gáfu skólanum
málverk Gylfa Ægissonar af
Breiðabliki, fyrrverandi húsnæði
skólans.
Morgunblaðið/ÓI.K.M.
Gunnar Kristinsson við eitt verka
H. stigs stýrimenn frá Stýrimannaskólanum í Vestmannaeyjum.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
SeyðisfjorðurT
„Byrjum að bora“
Ráðstefna um jarðgangagerð
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Stefán Guðmundsson i n. stigi Stýrimannaskólans í Vestmannaeyjum
tekur við viðurkenningu frá Friðrík Ásmundssyni skólastjóra.
Gunnar Krístinsson
sýnir í Gallerí Borg
GUNNAR Kristinsson opnar sýn-
ingu á olíumyndum í Gallerí Borg
í dag, fimmtudag, og frumflytur
við opnunina eigið tónverk. Þetta
er nfnnHa einkasýning Gunnars.
Gunnar Kristinsson er fæddur í
Reykjavík 1955. Hann stundaði
tónlistamám f Vínarborg og Basel
1977 — 1981 og myndlistamám í
málaradeild Kunstgewerbeschule í
Basel 1980 — 1984, undir leiðsögn
F. Fedier.
Sýningin er opin virka daga frá
kl. 10.00 — 18.00 og um helgar frá
kl. 14.00 - 18.00. Henni lýkur
þriðjudaginn 7. júní.
(Úr fréttatilkynningu)
sinna.
RÁÐSTEFNA um jarðgöng verð-
ur haldin á Seyðisfirði laugar-
daginn 28. mai undir yfirskrift-
úmi „Byijum að bora“. Það er
bæjarstjóm Seyðisfjarðar og
Samband austfirskra sveitarfé-
laga sem að henni standa. Þar
sem þetta viðfangsefni er afar
mikilvægt mál fyrir alla Aust-
firðinga, margar ályktanir og
áskoranir til stjóraavalda hafa
veríð gerðar hér á Austurlandi
um það, bæði af sveita- og bæjar-
stjóraum, pólitískum og
ópólitískum félagasamtðkum,
þótti fréttarítara Morgunblaðs-
ins tilhlýðilegt að snúa sér til
Þorvaldar Jóhannssonar bæjar-
stjóra og spyrjast fyrir um þetta
mál.
Fréttaritara fysti að vita hvers
vegna þessi ráðstefna væri haldin
núna, hvert markmið hennar væri,
hvort meiningin væri að byija fljót-
lega að bora og hvort eitthvað nýtt
lægi fyrir um þessa jarðgangna-
gerð, til dæmis kostnaðaráætlun og
framkvæmdaáætlun.
„Þar sem hér er um stórt mál
að ræða, pólitiskt og byggðalega
séð, er nauðsynlegt að umræða fari
fram um það, ekki bara hjá sérfræð-
ingum og vitringum í stofnunum á
höfuðborgarsvæðinu, heldur og
miklu frekar hjá þeim sem málið
brennur hvað heitast á, í þessu til-
felli Austfirðingum," sagði Þorvald-
ur. „Þess vegna er þessi ráðstefna
haldin hér og nú. Hér verður rætt
um jarðgöng og jarðgangnagerð af
alvöru, hver þekking okkar er og
reynsla á þessu sviði. Hvar stöndum
við íslendingar í jarðgangnagerð til
dæmis miðað við frændur okkar
Færeyinga og Norðmenn? Við mun-
um leitast við að svara því hvort
jarðgangnagerð á Austurlandi sé
rauhhæfur valkostur til framfara
fyrir einangruðustu byggðarlögin
samgöngulega, þjónustulega og
byggðalega séð. Hvað vinnst með
jarðgöngum og hvað kosta þau?
Er yfir höfuð eitthvert vit í því að
byija að bora? Þessu munum við
reyna að svara á þessari ráð-
stefnu," sagði Þorvaldur Jóhanns-
son bæjarstjóri á Seyðisfirði. Og
hann sagðist vona að þeir sem láti
sig samgöngumál varða hér á Aust-
uriandi leggi leið sfna á Seyðisfjörð
28. maí nk. Framsögumenn verða
þeir Jónas Hallgrímsson forseti
bæjarstjómar og framkvæmdastjóri
á Seyðisfírði, Bjami Einarsson að-
stoðarforsijóri Byggðastofnunar,
Helgi Hallgrímsson forstjóri tækni-
deildar Vegagerðar ríkisins og
Bjöm Jóhann Bjömsson verk- og
jarðfræðingur, Hafnarfirði.
- Garðar Rúnar
Morgunblaðiö/M&gnús Reynir
Þorvaldur Jóhannsson bæjar-
stjóri á Seyðisfirði byijaður að
bora I fjallsklettana.
22. landsþing Slysavarnafélags íslands:
Yfirgrípsmikil sýning
á bj örg’unarbúnaði
Múrarameistarar
gólfílögn
Sýningargólf Fannafold 184.
GÓLFLAGNIR hf.t*
P.O. BOX1523
121 REYKJAVÍK
(*Einkaumboðsaðili) I
LANDSÞING Slysavarnafélags
íslands verður sett I Súlnasal
Hótal Sögu föstudaginn 27. mai
kl. 15.00 að aflokinni guðsþjón-
ustu í Neskirkju og stendur til
sunnudagsins 29. mai. Verður
þetta eitt fjöhnennasta þing í
sögu félagsins og verður sérstak-
lega minnst 60 ára afmælis þess.
Fulltrúar slysavarnadeilda,
björgunarsveita og unglinga-
deilda alls staðar af landinu
munu sitja þingið og fjalla um
þá málaflokka er snerta félags-
starfið bæði hvað varðar slysa-
varna- og öryggismál og jafn-
framt störf og búnað björgunar-
sveita félagsins. Auk þess mun
fjöldi erlendra samstarfsaðila
koma í heimsókn.
Þá daga, sem þingið stendur yfir,
verður sýning á ýmiskonar björgun-
arbúnaði er sveitir félagsins hafa
til umráða bæði til leitar- og björg-
unarstarfa á sjó og landi. Meðal
þess, sem þama verður til sýnis,
er afþiýstiklefi, neðansjávarslma-
kerfi til að auðvelda froskmönnum
leitarstörf og ný gerð af neðansjáv-
arkvikmyndavél ásamt sónar leitar-
tæki. Er þessari samstæðu komið
fyrir á vélknúinni burðargrind og
mun þetta vera í fyrsta sinn, sem
almenningi gefst tækifæri á að
skoða þessa völundarsmíð. Sýningin
verður við Hótel Sögu á svæðinu
við Suðurgötu og em aílir velkomn-
ir. Félagar úr björgunarsveitum
SVFÍ munu verða á sýningarsvæð-
inu og útskýra fyrir gestum hinn
margvíslega tækjakost. Þá verða
merki félagsins til sölu á svæðinu.
Að þessu sinni mun ijöldi er-
lendra gesta frá níu þjóðum koma
f heimsókn í tilefni aftnælis félags-
ins. Em þetta samstarfsaðilar SVFÍ
er sinna fyrst og fremst slysavama-
og björgunarstörfum á sjó, en SVFÍ
hefur verið aðili að alþjóðasamtök-
um allt frá árinu 1932 og em þing
þess haldin á fjögurra ára fresti.
Meðal gestanna em fulltrúar frá
breska björgunarbátafélaginu, sem
var stofnað árið 1823 og er elst
hinna ftjálsu félagasamtaka er
starfa á þessum vettvangi.
Farið verður í skoðunarferðir
með hina erlendu gesti til að kynna
þeim land og þjóð auk þess sem
farið verður með þá á Suðumes til
að sýna þeim starfsemi félagsins í
þeim landshluta. Þá hefur forseti
Islands, sem er vemdari félagsins,
boðið gestunum að Bessastöðum.
Ritgerða- og teiknisamkeppni um
starf SVFÍ hefur staðið jrfír að
undanfömu meðal bama í öllum
gmnnskólum landsins á vegum
bama- og tómstundablaðsins ABC.
Sýndu bömin henni mikinn áhuga
því tugir ritgerða og hundmð teikn-
inga bámst. Úrslit verða tilkynnt á
þinginu, en dómnefnd skipuðu full-
trúar frá félaginu, ABC og Kenn-
araháskóla íslands.