Morgunblaðið - 10.06.1988, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 10.06.1988, Qupperneq 1
88 SIÐUR B 130. tbl. 76. árg.___________________________________FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 1988_________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins Staðsetning nýs flugvallar við Osló: Sljórnin klofin í afstöðu sinni HERSKAR FRIÐARSINNI Reuter Að minnsta kosti 15 þúsund suður-kóreskir stúdent- ar söfnuðust í gær saman fyrir framan Yonsei- háskólann í Seoul. Stúdentamir köstuðu gijóti og bensínsprengjum að óeirðalögreglumönnum, sem ríkisstjórnin hefur kvatt út til að hindra stúdentana í að halda fund með norður-kóreskum stúdentum í landamærabænum Panmunjom. Segjast stúdentarn- ir vilja stuðla að friðsamlegri sameiningu Norður- og Suður-Kóreu með fundahöldunum og hafa hvergi sinnt tilmælum ríkisstjómarinnar um að láta henni eftir að fást við þessi viðkvæmu mál. Á myndinni sést ungur maður kasta bensínsprengju að lögreglu- monnum. Tveggja áratuga deilumál útkljáð Ósló, frá Rune Timberlid, fréttaritara Morgunblaðsins. NORSKA þingið samþykkti á miðvikudag að nýr flugvöllur verði staðsettur í Hurum 30 km suðvestur af Ósló. Nýi flugvöllurinn tek- ur við af Fomebu-flugvelli, sem lagður var á fjórða áratug aldarinn- ar og hefur lengi verið talinn ófullnægjandi. Það tók norska stjórn- málamenn 20 ár að komast að niðurstöðu um staðsetningu nýja flug- vallarins. í lok sjötta áratugarins var ljóst að leggja yrði nýjan aðal- flugvöll við Ósló, en deilur um staðsetningu hans hafa staðið síðan. Stjóm Verkamannaflokksins beið hnekki vegna flugvallarmáls- ins. Samstaða hafði náðst innan ríkisstjómarinnar um að styðja til- lögu þess efnis að nýr aðalflugvöll- ur yrði staðsettur í Gardermoen sem er 30-40 km norðan við Ósló. Fjórt- án þingmenn Verkamannaflokksins rufu samstöðuna og greiddu at- kvæði með því að flugvöllurinn yrði staðsettur í Hurum. Vegna þess hversu löng og ströng baráttan um Sovésk stjórnvöld heimila Krímtörturum að snúa heim Moskvu, The Daily Telegraph. KRÍMTARTARAR, sem fluttir voru nauðugir frá heimalandi sínu á Krímskaga árið 1944, hafa fengið Ieyfi til að flytja aftur til sinna fyrri heimkynna. Sovésk yfirvöld munu fylgjast náið með flutningum tartaranna og kröfum þeirra um að stofna sjálfstætt lýðveldi var hafnað. Tartarar hafa allt frá því lýðveldi þeirra var afnumið af Stalin árið 1944 barist fyrir því að fá uppreisn æru. Flestir telja að um 200.000 tartarar hafi verið fluttir til Asíu og Síberíu. Tartarar voru sakaðir um að hafa aðstoðað innrásarlið Þjóð- verja í síðari heimsstyijöldinni. Sov- ésk stjórnvöld hreinsuðu þá af þeim ásökunum árið 1967. Gromyko og nefndarmenn hans hefur með niðurstöðum sínum tekist að sigla milli skers og báru. Nefndin varð að koma til móts við kröfur tartara til að lægja róstumar, sem linnti að nokkru eftir að nefndin hafði verið sett á laggimar. Hefur það verið gert með því að heimila þeim að flytja aftur til Krím. Einnig hefur þurft að varast að styggja Hvít-rússa og Úkraínumenn sem búa á skaganum. Til þess að það megi takast verða stjómvöld að hafa eftir- lit með fólksflutningunurn. staðsetningu flugvallarins hefur verið em litlar líkur taldar á að Gro Harlem Brundtland forsætisráð- herra eða samgönguráðherrann, Kjell Borgen, muni segja af sér þrátt fyrir að stjórnarflokkarnir hafi beðið lægri hlut í atkvæða- greiðslunni í þinginu. Flugumferð til og frá Ósló fer nú um tvo flugvelli, Fornebu og Gardermoen. Fomebu, sem er mið- svæðis í Ósló, hefur þjónað sem innanlandsflugvöllur og flugvöllur fyrir minni flugvélar til og frá Evr- ópu. Fornebu annar ekki allri flug- umferð til Óslóar og flugbrautir eru svo stuttar að Jumbo-þotur hafa þurft að lenda á flugvellinum í Gardermoen. Nýi flugvöllurinn í Humm mun verða tilbúinn árið 2005. Ef ekki er hægt að leggja völlinn fyrir al- mannafé em einkaaðilar reiðubúnir að fjármagna hluta framkvæmd- anna. Því er fullvist að áætlanir munu standast. Leggja á tvær lang- ar flugbrautir við flugvöllinn, sem á að geta þjónað 16,5 milljónum farþega á ári hverju. Kostnaðará- ætlun hljóðar upp á 8,7 milljarða norskra króna (um það bil 60 millj- arðar ísl. kr.). Harri Holkeri forsætisráðherra: Frjáls fiskverslun Fiiinum ekki í hag Helsinki, frá Lars Lundsten, fréttaritara Morgunblaðsins. FINNAR hafa skilning á kröfum íslendinga um fijálsa fiskversl- un. En það er Finnum ekki í hag að fiskverslun verði með öllu gefin fijáls. Harri Holkeri forsætisráðherra Finnlands veitti íslenskum blaðamönnum viðtal í gær eftir að hafa átt viðræður við Þorstein Pálsson forsætisráðherra og ræddi hann þá meðal annars spuminguna um fijálsa fiskverslun í Evrópu. í samtalinu sagði Holkeri að þjóðanna. Finnar hafa undanfarið Finnar vissu að fiskveiðar og físk- sala væri eitt af helstu hagsmuna- málum íslendinga í samskiptum við Evrópu. Fyrir Finna hefði fisk- verslun meira en efnahagslega þýðingu. í skeijagarðinum lifa um 2000 manns á fiskveiðum en heild- arafli er ekki nema um 150.000 tonn á ári. Finnar eru tuttugu sinn- um fleiri en íslendingar þannig að fyrir afkomu finnska þjóðarbúsins hefur fískverslun lítið gildi. Hol- keri benti hins vegar á að fískveið- ar væru undirstaða byggðar í skeijagarðinum. Þess vegna yrðu Finnar að styðja þennan atvinnu- veg. Holkeri var spurður hvort Finnar vildu styðja ísland til þess að ná sæti í öryggisráði Sameinuðu barist fyrir að komast í ráðið. For- sætisráðherrann sagði að það hefði tíðkast að eitt Norðurlandanna sæti í öryggisráðinu annað hvort kjörtímabil. Sátu Danir í ráðinu fyrir tveimur árum. Nú væri röðin komin að Finnlandi þar sem Norð- urlöndin skiptu með sér verkum eftir stafrófsröð. Vandinn væri að í þau tvö sæti sem vestræn iðnríki ættu í ráðinu væru þrír frambjóð- endur. Auk Finna vilja Grikkir og Kanadamenn komast í ráðið. Um sameiningu Vestur-Evrópu og samskipti við Evrópubandalagið sagði Holkeri að honum þætti eðli- legt að öll EFTA-ríkin og þar með ísland yrðu áfram innan EFTA þangað til EFTA og EB hefðu lok- ið viðræðum sínum. Að sögn Hol- AP Mauno Koivisto, forseti Finnlands, ræddi við Þorstein Pálsson, forsætisráðherra, í Forsetahöllinni í Helsinki í gær og var mynd- in tekin við það tækifæri. keri hafa talsmenn EB í Brussel látið í ljós þá skoðun að fyrst beri að ná samkomulagi milli EB og EFTA í heild, en síðan sé hægt að ræða samskipti einstakra ríkja innan EFTA og EB. Að lokum var spurt um álit Holkeris á perestrojku Gorbatsjovs í Sovétríkjunum. Holkeri undir- strikaði að sambúð Finna og Sovét- manna væri svo góð að hún yrði varla betri vegna nýrrar stefnu Kremlveija. Á hinn bóginn gæti umbótastefna Gorbatsjovs haft slæmar afleiðingar fyrir Finna. Hingað til hefðu þeir átt fremur auðvelt með að versla við Rússa, þar sem finnskar vörur hefðu þótt góðar og náin samskipti ríkjanna hefði greitt fyrir viðskiptum. Nú yrðu Finnar hinsvegar að keppa við aðrar Vesturlandaþjóðir á mörkuðum í Sovétríkjunum. Sjá frétt um Finnlandsför for- sætisráðherra á siðu 4 og er- indi hans í Paasikivi-samtök- unum á miðopnu. Tartarar hafa árum saman þrýst á stjómvöld um leyfi til að fá að snúa aftur til Krímskaga. Eftir að þeir efndu til fjölmennra mótmæla á Rauðatorginu í Moskvu á síðasta ári var sett á laggirnar nefnd undir forsæti Andrejs Gromykos forseta Sovétríkjanna. Nefndin tilkynnti í gær að takmörkunum á réttindum Krímtartara hefði verið aflétt. „Yfirvöld hafa aflétt öllum höml- um á réttindum Krímtartara og munu tryggja þeim full réttindi á við aðra sovéska borgara bæði hvað varðar rétt til að velja aðsetur, nám og atvinnu," hafði Tass-fréttastofan eftir talsmanni nefndarinnar. „Með tilliti til aðstæðna var ákveðið að ekki þætti ástæða til þess að lýsa yfír sjálfstæði Krím,“ segir einnig í ályktun nefndarinnar. Tass-frétta- stofan sakaði tartara um að hafa reynt að hindra afgreiðslu málsins með óréttmætri kröfu um sjálfstæði Krímskaga. Fólksflutningarnir til Krím verða undir ströngu eftirliti og verður reynt að haga þeim í samræmi við framboð á atvinnu og húsnæði. Reynt verður að koma í veg fyrir árekstra milli tartaranna sem flytj- ast heim á ný og Hvít-rússa og Úkraínumanna sem eru meirihluti þeirra 2,5 milljóna manna sem nú búa á skaganum. Á síðasta ári var um 2.500 törturum heimilað að setj- ast að á Krímskaga. Þeir hafa allir fengið atvinnu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.