Morgunblaðið - 10.06.1988, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 1988
17
nótnum. Líka í klassískum verkum,
sem allir virðast þekkja. Láta slíka
kunnáttu ekki villa um fyrir sér, taka
ekkert sem gefið, þegar verk eins og
til dæmis 5. sinfónía Tsjækofskís er
annars vegar. I samtímaverkum er
nákvæmur lestur sérlega mikilvægur.
í flutningi vinnur sú fimmta alltaf,
en það er hægt að drepa samtíma-
verk í flutningi, því þeir sem hlusta
taka útgáfu hljómsveitarinnar af
verkinu sem þá einu réttu. Það þarf
líka að eyða meiri tíma í æfingar
samtímaverka, því þar er oft að finna
tungumál, sem hljómsveitin hefur
ekki á valdi sínu og þarf að læra.
Sumar hljómsveitir taka líka illa á
móti samtímatónlist. Segja sem svo
að hvað vilji stjómandinn meira, allar
nótur séu á sínum stað... En það er
bara ekki nóg. Þá kemur að sköpun-
argáfu stjómandans og hæfileika
hans til að leiða hljómsveitina með
sér, ekki bara um aðalgötumar, held-
ur líka að fá hana inn á ótroðnar
slóðir. Tímaskortur og peningar veg-
ur harkalega að tónlistarflutningi alls
staðar í heiminum. Þetta tvennt fer
illa með vinnutímann, gerir fólk
þreytt og ósveigjanlegt."
Hljómsveitir með sín
sérstöku einkenni
Hljómsveitir eru væntanlega mis-
jafnar eins og mennimir eru margir
og kannski eitthvað eftir þjóðemum,
eða hvað?
„Ég vil sem minnst gera úr þjóð-
emismun, víða er svo skammt í fyrir-
ffamgefnar hugmyndir, en slíkur
munur er vissulega fyrir hendi. Og
hljómsveitir eru misjafnar, það liggur
í augum uppi, þá á ég við ólík ein-
kenni, ekki gæði. Þegar hljómsveitir
eru valdar í upptökur einstakra verka
þá eru þær einmitt gjaman valdar
eftir einkennum, hvað þær spila best.
Það er til dæmis oft erfitt að spila
Tsjækofskí með þýskum hljómsveit-
um. ítalskar eru yfirleitt betri í hon-
um. Ég stjómaði Scala hljómsveitinni
í fimmtu hans og hún var eldsnögg
að ná tökum á honum. Það væri hins
vegar örugglega erfitt að fá þá til
að spila sannfærandi Bruckner. Ligg-
ur illa fyrir ítölunum, þeim henta illa
langir frasar hans, langir bogar.
Ahrif einstakra hljómsveitarstjóra
á einstakar hljómsveitir fara þverr-
andi. Hljómsveitarstjórinn sem ein-
valdur þekkist varla lengur, gæti einu
sinni varla átt við í Sovétríkjunum
lengur. En þegar þessi gerð hljóm-
sveitarstjóra þekktist stjómuðu aðal-
stjómendur hljómsveita kannski um
80% tónleika hljómsveitarinnar, svo
ekki var að undra að hljómsveitimar
bæm stimpil meistara sinna. Nú ferð-
ast allir stjómendur."
Tónlistarlíf í Póllandi
Víkjum a tónlistarlífínu í Póllandi.
Hvemig er umhorfs á tónlistarsviðinu
þar?
„Það er fullt af tónlistarskólum þar
og margar hljómsveitir. Kannski of
margar. Þeir sem koma úr tónlistar-
skólunum virðast oft eins og eilítið
rangmenntaðir. Það er ekki nóg
áhersla lögð á þjálfun í hljómsveitar-
leik og hröð vinnubrögð, þjálfun í
nótnalestri og annað slíkt. Nemendur
spila oft mjög tilfmningaþrungið, en
tæknilegir vankantar tæpast nóg-
samlega ígrundaðir. Þannig verða
nemendur auðveldlega fangnir í
tæknigöllum, sem er ekki hægt að
leiðrétta.
Tónlistarlíf er heldur ekki nógu
æsilegt. Það er dýrt að halda því
u'ppi og kannski á mörkum að það
séu til næg efni. Vegna bágborins
efnahags almennings er lítill markað-
ur fyrir hljómplötur, svo þar er litla
bót að fá. Það er vissulega nóg a
gerast í tónlistarlífinu, en ekki laust
við að það beri merki nokkurrar af-
dalamennsku.
Úti á landi er útvarpið eini tengi-
liðurinn við tónlist. I samanburði við
Þýskaland og jafnvel Frakkland er
ástandið ekki nógu gott. í þessum
löndum er líka nóg af góðum sölum,
þúsund manna sölum eða svo. í Pól-
landi höfum við ekki einu sinni nóg
af tónlistarsölum. Tekjur tónlistar-
manna eru undir meðaltali, svo þeir
verða að kenna með, eða sinna ann-
arri vinnu. Sem stendur ganga svo
miklar breytingar yfir okkur, að við
vitum varla hvað þarf til að lifa. Það
verður kannski ljósara í byijun næsta
árs.“
Texti: Sigrún Davíðsdóttir
Hundrað og* tólf konur á
Landsþingi ITC á Akureyri
Nýkjörin stjórn Landssamtaka ITC á íslandi. Frá hægri: forseti Ing-
er Steinsson, 1. varaforseti Halla Gísladóttir, 2. varaforseti Erna
Sörensen, ritari Sæunn Andrésdóttir og gjaldkeri Sjöfn Ólafsdóttir.
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi fréttatilkynning:
3. Landsþing ITC á íslandi var
haldið á Akureyri dagana 27.-29.
maí sl. 112 konur víðsvegar að af
landinu sátu þingið, og þóttu þær
setja glæsibrag á veislusali KEA,
en þar fór þinghaldið fram. Heiðurs-
gestur Landsþingsins var Hilda Fir-
er frá Jóhannesarborg í S-Afríku,
en hún er varaforsti V-svæðis ITC,
sem íslensku deildirnar tilheyra.
Margir góðir gestir sátu þingið.
Haraldur Bessason, rektor Há-
skóla íslands á Akureyri, flutti er-
indi um íslenskt mál og málnotkun.
Nefndi hann erindi sitt „Að þola
meinin best, fáein orð um vestur-
íslensku".
Guðrún Hallgrímsdóttir, ritari
samnorræns verkefnis sem kallast
„Brjótum múrana, flutti fræðsluer-
Kennaraháskóli íslands hefur
sent frá sér kynningarbækling
um list- og verkgreinar. I honum
eru kynntar þær greinar list- og
verkgreinaskorar sem undirbúa
kennaraefni undir sérhæfingu í
þessum greinum.
Á næsta skólaári er stefnt að
indi um námskeiðahald fyrir konur
sem stofna fyrirtæki.
útgáfu á bæklingi um bókasafn
Kennaraháskólans og á öðrum um
framhaldsnámsbrautir við skólann.
Vakin er athygli á því að unnt
er að fá bæklinga frá Kennarahá-
skólanum í fleiri eintökum, sé þess
óskað.
(Fréttatilkynning)
Kolbrún Svavars og Ernudóttir
og Sólveig Hlöðversdóttir, sjúkra-
þjálfarar, fluttu fræðslu um líkams-
beitingu.
Á föstudagskvöldið var Valgerð-
ur Sverrisdóttir, alþingismaður,
heiðursgestur og flutti hún ávarp.
Sérstakt kvöldverðarboð sátu heið-
urshjónin sr. Birgir Snæbjömsson
og frú Sumarrós Garðarsdóttir.
Farið var í skoðunarferð um bæinn
undir fararstjórn sr. Pálma Matt-
híassonar og Stefáns Vilhjálmsson-
ar, mjólkurfræðings.
Bæjarstjómin hafði boð fyrir
þinggesti í ráðhúsinu. í hádegis-
verðarboði á sunnudeginum flutti
Sigfús Jónsson, bæjarstjóri, ávarp.
Mikill samhugur og eining ríkti
meðal þinggesta. Kosin var stjóm
fyrir næsta starfsár og mun Inger
Steinsson taka við embætti af nú-
verandi forseta landssamtakanna,
Kristjönu Millu Thorsteinsson.
Heiðursgestur þingsins, frú Hilda
Firer, sá um innsetningu stjómar á
mjög svo skemmtilegan hátt.
ITC-deildirnar Mjöll og Rún á
Akureyri áttu mestan heiður af
undirbúningi og framkvæmd
Landsþingsins og voru þingfulltrúar
mjög ánægðir með allan viðurgjöm-
ing, og sammála um að þetta glæsi-
lega þinghald treysti starfsemi ITC
á Islandi.
REYKJAVlK
Veitingasalurinn
Lundur
Ódýrir réttir
Borðapantanir í síma
689000
__________4
Kennaraháskóli íslands:
Kynning-arbæklingxir
um list- og verkgreinar
Ingvar
Helgason Hf.
Sýningarsalurinn,
Rauðagerði
Sími: 91 -33560
Fyrir fnUorðna,
bðm Og ómiririan farangnr?
Nissan Prairie er lausn-
in fyrir fjölskylduna,
því lipurðin og rýmið
eru meiri en ykkur
grunar.
• Sérstaklega lipur.
• Kraftmikil 2000 cc vél.
• Hæð milli gólfs og lofts
1,4 m.
• 5 gíra beinskiptur.
• 14 tommu felgur.
• 3ja ára ábyrgð.