Morgunblaðið - 10.06.1988, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 1988
Hávær minnihlutahópur þykist
tala fyrir munn Reykvíkinga
eftirBessí
Jóhannsdóttur
Undanfamar vikur hefur vart
verið hægt að opna dagblöð svo
ekki hafí mátt sjá greinar um fyrir-
hugaða ráðhúsbyggingu í
Reykjavík sem birtar hafa verið að
tilhlutan samtakanna „Tjörnin lif-
ir“. Reynt hefur verið að spilla fyr-
ir málinu á ýmsan hátt og hafa
klögumál af ýmsum toga gengið
m.a. til félagsmálaráðherra, sem
sýnt hefur mikið ístöðuleysi.
Opinberar byggingar
oft umdeildar
Þeir sem eitthvað þekkja til fram-
kvæmda við opinberar byggingar á
íslandi á þessari öld vita að oft
hefur staðið um þær styr sem eink-
um hefur snúist um útlit og staðar-
val. Má þar minna á byggingu Þjóð-
leikhúss og Hallgrímskirkju, bygg-
inga sem fáir vildu vera án í dag,
en vildu gjaman að Þjóðleikhúsið
hefði meira rými þannig að húsið
nyti sín betur. Bygging ráðhúss í
Reykjavík er í hugum borgarbúa
sjálfsögð framkvæmd. Það þykir
ekki til sóma fýrir einstaklinga sem
hafa til þess getu að búa ævilangt
i leiguhúsnæði. Sama gildir um
Reykjavíkurborg, sem orðin er
meira enn tvö hundruð ára gömul.
Bygging ráðhúss hefur jafnan
strandað á deilum m.a. um staðar-
val. Nú eru aðstæður þannig í
Reykjavík að borgin heftir mikið
stækkað í austur, sem þýðir að upp
hafa risið nýir þjónustukjamar, sem
gjaman keppa við gamla miðbæinn
eins og við köllum hann.
Gamli miðbærinn samein-
ingarkjarni borgarinnar
Það er mikilvægt fyrir borgina
að viðhalda gamla miðbænum, sem
helsta sameiningarkjarna borg-
arbúa. I honum endurspeglast saga
borgarinnar og tengsl fortíðar og
nútíðar. Öfgamenn hafa jafnan ver-
ið til um skipulag miðbæjarins.
Annars vegar þeir sem vilja rífa
„bölvaða húskofana" og svo hinir
sem vilja vemda öll hús án tillits
til gildis þeirra fyrir framtíðina. Við
Reykvíkingar erum svo lánsamir
að eiga afburðamann fyrir borgar-
stjóra. Davíð Oddssyni hefur lánast
að stjóma borginni svo vel að það
vekur aðdáun allra landsmanna.
Hann hefur staðið fyrir uppbygg-
ingu borgarinnar á öllum sviðum
og til þess er tekið hve fyrirtæki
borgarinnar eru betur og hag-
kvæmar rekin en áður. Það er fróð-
legt að finna hve vel hefur verið
eftir þessu tekið úti á landsbyggð-
inni og ekki er laust við öfundartón
í garð okkar Reykvíkinga. Það er
því ekki að undra þó andstæðingar
borgarstjóra og meirihluta sjálf-
stæðismanna hafí gripið fagnandi
hendi þá andstöðu er bygging ráð-
húss við Tjömina mætti hjá ýmsum.
Óþolandi vinnubrögð öfga-
hópa
Nú er hins vegar nóg komið, öfg-
ar og hávaði þessa hóps eru farin
að vekja menn til umhugsunar um
hvort þetta sé sá hópur sem hann
þóttist vera í upphafí. Við sem eig-
um sterkar taugar til gamla mið-
bæjarins og ekki síst Tjamarinnar
getum haft okkar skoðanir á því
hvemig framtíðarskipulag hans á
að vera, en við viljum ekki þessar
aðferðir. Greinarhöfundur er fædd
og alin upp við Tjörnina og fyrir
mér er hún yndislegur blettur í til-
verunni. Böm í Reykjavík hafa sum-
ar sem vetur átt ógleymanlegar
ánægjustundir við og á Tjöminni.
Þeir vom fáir frostdagarnir sem við
systumar renndum okkur ekki á
skautum á Tjöminni. Við vorum svo
lánsamar að búa svo skammt frá
að við gátum labbað út á Tjöm á
skautum. Á vorin heilluðu sílaveiðar
og oft flaut þá inn í stígvélin í hita
leiksins.
Ankin umferð skapar að-
hald við borgarbúa
Þegar farið var að ræða um
byggingu ráðhúss vil ég ekki leyna
því að ég hefði persónulega valið
annan stað. Eftir miklar vangavelt-
ur og göngur um miðbæinn varð í
huga mér gamla höfnin fyrir val-
inu. Þar sem nú er varðskipa-
bryggja. Glæsileg bygging hefði vel
fengið notið sín þar. Vissulega kom
sá staður til greina, en Tjömin varð
fyrir valinu. Ég get vel fallist á að
byggingunni var valinn sá staður
við Tjömina þar sem hún fær best
notið sín. Bent hefur verið á að
byggingin muni ógna dýralífí Tjam-
arinnar. Slíkt fær ekki staðist í
mínum huga og ég held að aukin
umferð skapi um leið aukið aðhald
við borgarbúa um að gæta að lífríki
Tjamarinnar, og er nú unnið að
fegrun tjamarbakkans. Það eru
ekki mörg ár síðan brú yfír Elliða-
ámar átti að eyðileggja lífríki Ell-
iðaárdalsins og drepa allan lax í
ánni, en í stað þess hefur Elliðaár-
Bessí Jóhannsdóttir
„Við skulum vona að
háaldraðri vinkonu
minni verði að ósk sinni
að lifa það að sjá risið
ráðhús við Tjörnina.
Hún minntist þess að
vera alin upp í torfbæ
og hafa horft á alls
kyns hrófatildur byggð
af miklum vanefnum í
hjarta borgarinnar og
fagnaði því af alhug að
fá fallegt ráðhús við
Tjörnina.“
ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ
... am
/
Okkur er ánægja að tilkynna opnun nýrrar og
glæsilegrar þjónustumiðstöðvar, HLÍÐARENDA, við
Austurveg á Hvolsvelli.
í björtum og rúmgóðum húsakynnum HLÍÐARENDA,
er fyrsta flokks aðstaða fyrir ferðamenn og þjónustan er
af margvíslegu tagi, jafnt fyrir fólk og farartæki:
• Veitingasala
• Kaffitería
• Ferðamannaverslun
• Bílaleiga
• Bensínafgreiðsla
• Afgreiðsla Austurleiðar
Komið við á notalegum áningarstað næst þegar leið ykkar
liggur um Suðurland. HLÍDARENDI er í alfaraleið og við
bjóðum ykkur velkomin.
jmmss
am
ESSO OLÍUFÉLAGIÐ HF HÓTEL HVOLSVÖLLUR • KAUPFÉLAG RANGÆINGA • AUSTURLEIÐ HF BÍLALEIGA HVOLSVALLAR
dalurinn verið opnaður borgarbúum
og laxinn skilar sér að vanda. Bent
hefur verið á mikinn kostnað við
byggingu ráðhússins og að það
muni stuðla að aukinni þenslu í
borginni.
Auðvitað kostar mikið að eignast
þak yfir höfuðið en hafa skal í huga
að borgarsjóður stendur vel og
hvenær á að byggja ef ekki í góð-
æri. Um þensluna má segja að teikn
em á lofti um samdrátt í byggingar-
iðnaði þannig að auknar líkur eru
á hagkvæmni við bygginguna. Bíla-
stæðavandinn er það sem nýjast er
dregið fram. Frá því ég man eftr
mér hefur þetta verið vandamál
miðbæjarins. Aldrei hafa þó verið
önnur eins áform og nú um að leysa
þennan vanda. Vil ég benda á að
bílastæðum hefur nú þegar fjölgað
mikið í miðbænum. Við sem sækjum
þangað vinnu okkar finnum þetta
glöggt. Má benda á að bílastæðið
við Höfnina hefur aldrei verið fullt
þegar ég hef komið þangað. Nú á
tímum aukins skilnings á heilsu-
vemd þykir ekki tiltökumál þó menn
gangi nokkra metra frá bíl sínum
til vinnu.
Uppbyggingoi fylgir tima-
bundið ónæði
Ibúar við Tjamargötu kvarta
skiljanlega yfír aukinni umferð og
um leið auknum hávaða. Byggingu
nýs húss fylgir ónæði, það vita allir
sem búið hafa í nýjum hverfum þar
sem uppbygging á sér stað. Við
íbúar í Hvassaleiti fómm ekki var-
hluta af því þegar verið var að
byggja upp í Nýja miðbænum. En
aílt tekur enda og fagna ber því
ef byggingartími er stuttur eins og
verða mun með ráðhúsið. Nú er það
einu sinni svo að þeir sem búa við
vinsælar götur verða oft fyrir meira
ónæði af hávaða. Benda má á, að
umferð við ráðhúsið verður mest á
þeim tíma sem flestir em sjálfír úti
að vinna. Friður og ró ætti að vera
á kvöldin og um helgar.
Minnisvarði um snilli
þeirra er að stóðu
Mikið hefur verið rætt um útlit
byggingarinnar og stærð. Útlit
húsa er alltaf smekksatriði. Hús
sem ég byggi og mér þykir hið feg-
ursta getur farið mikið í taugamar
á öðmm. Við höfum öll okkar ímynd
af því hvemig við viljum hafa ráð-
hús. Seðlabankahúsið þótti mörgum
ljótt, þar á meðal undirritaðri, sem
nú viðurkennir að húsið er afar
sterk og falleg bygging sem hæfír
vel þeim stað sem hún prýðir. Ég
hef orðið vör við sama sjónarmið
hjá fjölmörgum. Arkitektar em af
ólíkum skóla og milli þeirra er mik-
ill ágreiningur um útlit og hönnun
bygginga. Það kemur því ekki á
óvart að það skuli vera arkitektar
sem láta mikið í sér heyra um vænt-
anlega ráðhúsbyggingu. Ekki má
og gleyma því að það er mikið mál
hver hreppir það hnoss að fá að
teikna svo merka byggingu sem
væntanlega á eftir að standa sem
\
SUNDABORG 1 S. 68 85 88 - 68 85 89
Talaðu við
ofefeur um
ofna