Morgunblaðið - 10.06.1988, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 10.06.1988, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 1988 21 minnisvarði um snilli þeirra er að stóðu. Persónulegar of sóknir og skítkast Ráðhúsmálið hefur verið notað í persónulegri herferð gegn Davíð Oddssyni, enda hefur eins og áður sagði andstæðingum hans gengið illa að finna mál gegn honum. Davíð er maður sem rís upp úr þeirri flatn- eskju sem andstæðingar hans eru marki brenndir. Hann er skeleggur leiðtogi sem þorir að taka ákvarðan- ir og fylgja þeim eftir. Staðreyndin er sú að þann eiginleika mættu fleiri stjómmálamenn hafa. Hik og fát einkennir allt of marga, og á það sinn þátt í að grafa undan trausti almennings á stjómmála- mönnum almennt. Reynt hefur ver- ið að líkja vinnubrögðum borgar- stjóra við fasisma og einræðistil- hneigingu og sýnir það best lágkúm þeirra er slíkan málflutning hafa á lofti. Reykvíkingum er enn minnis- stæð sú sundrung og vitleysa sem var f gangi við stjóm Reykjavíkur á tímabili vinstrimeirihlutans. Við Reykvíkingar getum verið ósam- mála um ákveðnar framkvæmdir en við eigum að forðast að láta slíkan ágreining verða til að ryðja braut fyrir sundurlausa hjörð háv- aðasams minnihlutahóps, sem þyk- ist tala fyrir munn okkar hinna. Hóps sem notar hvert tækifæri til að skapa óánægju og upplausn. Við skulum vona að háaldraðri vinkonu minni verði að ósk sinni að lifa það að sjá risið ráðhús við Tjömina. Hún minntist þess að vera alin upp í torfbæ og hafa horft á alls kyns hrófatildur byggð af miklum van- efnum í hjarta borgarinnar og fagn- aði því af alhug að fá fallegt ráð- hús við Tjörnina. Almenningur þarí að láta í sér heyra þannig að í fjöl- miðlum birtist ekki eingöngu skoð- anir þeirra er augljóslega em haldn- ir ofstæki gegn skynsamlegurr málum. Höfundur er kennari ogfram- kvæmdastjóri í Reykjavík. Myndlistar- sýning í Glerárkirkju Myndlistarsýning verður opn- uð í Glerárkirkju á Akureyri laugardaginn 11. júní kl. 16.00. Um er að ræða samsýningu 5 ungra myndlistarmanna, þeirra Grétu Serensen, íris Elfu FViðriks- dóttur, Ragnars Stefánssonar, Ragnheiðar Þórsdóttur og Sólveig- ar Baldursdóttur. Öll hafa þau útskrifast úr mynd- listamámi á sl. 5 ámm, frá ís- landi, Hollandi, Danmörku og tvö frá Bandaríkjunum. Þau sýna skúlptúrverk, teikning- ar, málverk, textílverk og verk unn- in í leður. Sýningin í Glerárkirkju verður opin frá 11.—19. júní en flyst þá yfir í Safnahúsið á Sauðárkróki dagana 2.—10. júlí. Sýningamar eru opnar á báðum stöðunum virka daga frá kl. 16—21 og um helgar frá kl. 14 til 22 og em allir velkomn- ir. (Fréttatilkynning) Cterkurog k./ hagkvæmur auglýsingamiðill! í PfrripMiMaftifo Húsavík: Helmingnr gam- als húss fluttur Morgunblaðið/Silli Frá flutningi hússins frá Garðarsbraut 18 suður á Kaldbaksmela. Húsavik. HLUTI AF gömlu verslunarhúsi Örum & Wulffs á Húsavík sem byggt var eftir stórbruna 1902 var um sfðustu helgi flutt frá Garðarsbraut 18 suður á Kald- baksmela, sunnan Haukamýrar- dals, þar sem það skal notað sem geymsluhús. Eftir stórbmnann í nóvember 1902, þegar 8 hús dönsku verslun- arinnar Orum & Wulffs brannu til kaldra kola á 4 klukkustundum, vom reist ný hús og var verslunar- og pakkhúsið þeirra stærst eða 37 metra langt. Húsinu var þrískipt, í miðju húsinu var verslun og skrif- stofa, í austurenda saltað Iqot að hausti og ullarmóttaka, en í vestur- enda, sem nú er fluttur, var kom- vömgeymsla á neðri hæð en timbur- geymsla og fleira á loftinu, meðal annars vom efnisbirgðir Rafveitu Húsavíkur og sala þeirrar vöm til bæjarbúa þar. Ymsar breytingar hafa orðið á afnotum og innréttingum upphaf- lega hússins. Um 1945 var því skipt í tvo hluta og annar hlutinn, austur- endinn (verslunarhúsnæðið) var fluttur að götu, því á þeim tíma töldu sumir að það drægi úr við- skiptum hvað það var langt frá aðalbrautinni. En í dag væri það talinn kostur, því þá hefðu verið góð bílastæði fyrir framan verslun- ina. Um leið og þessi hluti hússins var fluttur vom settir kvistir á hann og gerð íbúð á efri hæð, sem nú er notuð fyrir skrifstofur. Naustir hf. sáu um flutning húss- ins og gekk hann vel, en eigendur þess em nú Fiskiðjusamlag Húsavíkur. - Fréttaritari ÚTILÍF Glæsibæ, sími 82922 BOLTA- S.Waage, Kringlunni MAÐURINN AxelÓ. Vestmannaeyjum laugavegur 27 -101 Reykjavík 5ími 15599
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.