Morgunblaðið - 10.06.1988, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 1988
27
[slenskir loðnubátar við suðurströndina. Höldum við þorskinum niðri
með of miklum loðnuveiðum?
því lítinn gaum og við verðum að
viðurkenna, að vitum ekki nógu
mikið um áhrif veiðanna á loðnu-
stofninn í samanburði við aðra
umhverfísþætti. Flest bendir þó til,
að á árinu 1985 hafi loðnuát þorsks-
ins farið fram úr veiðunum og með-
al annars vegna þess eru menn nú
komnir á þá skoðun, að við verðum
að búa okkur til margþætt nýting-
arlíkan."
Lagt inn á nýjar brautir
Tjelmeland sagði, að Hafrann-
sóknastofnunin norska hefði unnið
að gerð margþætts nýtingarlíkans
frá árinu 1983 og fengið ýmsa til
liðs við sig.
„Við erum með líkan, sem sam-
anstendur af síld, loðnu, þorski og
íshafsþorski, og erum að þreifa
okkur áfram með spendýr í sjó. Við
höfum haft samvinnu við sovésku
hafrannsóknastofnunina í Mur-
mansk og við háskólana í Ósló og
í Tromsö," sagði Tjelmeland og
lagði áherslu á, að við gerð svona
líkana verði menn að taka tillit til
haffræðilegra þátta og vera í stakk
búnir til að bregðast fljótt við
breyttum skilyrðum í sjónum.
(Heimild: Fiskaren)
Júgóslavíu:
Milovan Djilas
sætir gagnrýni
Beljjrað, Reuter.
MILOVAN Djilas, sem fyrir áratugum var einn valdamesti maður
Júgóslavíu, hefur verið gagnrýndur harðlega í heimalýðveldi sínu,
Montenegro, fyrir ræðu sem hann hélt fyrir skömmu á fundi náms-
manna í Slóveníu, að sögn hins hálfopinbera dagblaðs Politika.
„Það er furðulegt að enginn í Politika eftir Stojovic.
Slóveníu skyldi bregðast ókvæða
við þeirri staðreynd að Djilas not-
aði tækifærið sem honum gafst
til að reka áróður fyrir Vesturl-
önd,“ sagði Drago Stojovic, forseti
félags uppgjafahermanna í Mont-
enegro, á fundi miðstjómar komm-
únistaflokks lýðveldisins. Ungliða-
samtök í Slóveníu, frjálslyndasta
lýðveldi Júgóslavíu, fengu Djilas
til að halda sína fyrstu opinberu
ræðu í landinu síðan Tito hrakti
hann frá völdum fyrir 35 árum.
„Það er furðulegt að sumir skuli
enn styðja glæpamenn," hafði
Fjölmiðlar í Slóveníu hafa sætt
árásum frá hemum og harðlínu-
mönnum í flokknum fyrir að gagn-
rýna Tito, herinn og leiðtoga
flokksins. Sjónvarpið í Belgrað
átaldi sjónvarsstöð Slóveníu harð-
lega fyrir að sjónvarpa ræðu Djilas
fyrir viku. í henni sagði Djilas
m.a. að Júgóslavía hlyti að liðast
í sundur sem sambandslýðveldi ef
lýðræði ykist ekki í landinu. Hann
sagði að kommúnistaflokkurinn
ætti sök á því að ekki þróaðist
lýðræði í landinu eftir stríð.
A-Þýskaland:
Hugmyndum
um sam-
keppni hafnað
Austur-Berlín, Reuter.
OTTO Reinhold, einn af helstu
hugmyndaf ræðingum austur-
þýska kommúnistaflokksins, hef-
ur óbeint gagnrýnt tvö mikilvæg
atriði í efnahagslegri umbóta-
stefnu Míkhaíls Gorbatsjovs Sov-
étleiðtoga, perestrojku. í grein
sem hann hefur ritað í austur-
þýska tfmaritið Einheit segir að
kommúnismi og atvinnuleysi geti
aldrei farið saxnan og að það sé
hættuleg villa að halda að hægt
verði að innleiða samkeppni f
Austantjaldsrflgunum í stað þess
að beita hefðbundnum aðferðum
kommúnismans.
Reinhold, sem er í miðstjóm aust-
ur-þýska kommúnistaflokksins, segir
ennfremur í greininni að efnahags-
stefna austur-þýskra stjómvalda
verði þróuð frekar en ekki verði hvik-
að frá henni í aðalatriðum.
Sovéskir hagfræðingar spá því að
16-18 milljónir Sovétmanna missi
vinnuna á næstu tólf ámm vegna
áætlana um að færa sovésk fyrir-
tæki til nútímahorfs, þótt sovéskir
embættismenn haldi fram að engin
hætta sé á atvinnuleysi. „Sú hug-
mynd að hægt sé að ínnleiða mark-
aðs- og samkeppnishyggju kapítalis-
mans í stað framleiðslukenninga
Karls Marx er vissulega hættuleg
villa," segir í greininni.
Reinhold segir einnig að þegar
austur-evrópskir félagsvísindamenn
hafi rætt umbætur hafi komið upp
sú hugmynd að hægt sé að læra af
reynslu Vesturlandabúa, meðal ann-
ars að takmarkað atvinnuleysi sé
óhjákvæmilegt og skaðlaust. „Óttinn
við atvinnuleysi og sú félagslega
hnignun sem honum fylgir getur
aldrei orðið hreyfiafl kommúnis-
mans,“ ályktar Reinhold.
Fundur er fyrirhugaður hjá mið-
stjóm austur-þýska kommúnista-
flokksins í þessari viku og þrátt fyr-
ir grein Reinholds er haft eftir aust-
ur-þýskum heimildarmönnum að þar
muni koma fram mikil gagnrýni á
efnahag landsins.
Shevardnadze vill bún-
að tíl greiningar kjam-
orkuvopna í skipum
Stingur upp á að hernaðarsérfræðingar SÞ gangi í málið
Sameinuðu þjóðunum, Reuter.
EDÚARD Shevardnadze, ut-
anríkisráðherra Sovétrfkjanna,
lagði til á Allsheijarþingi Sam-
einuðu þjóðanna í gær, að hern-
aðarsérfræðingar SÞ héldu
fundi til þess að freista þess að
finna upp kerfi, sem nota mætti
til þess að greina hvort herskip
í erlendum höfnum beri kjarn-
orkuvopn eða ekki. Sagði She-
vardnadze Sovétríkin vera reiðu-
búin til þess að lýsa þvf yfir hvort
tiltekin herskip þeirra hafi
kjarnorkuvopn innanborðs eður
ei að því tilskildu að hin kjarn-
orkuveldin fylgi fordæmi þeirra.
Þá tilkynnti utanríkisráðherrann
að Sovétrikin myndu hefja upp-
rætingu fyrstu kjamorkuflauga
sinna snemma í júlí og að í hyggju
væri að efna til mikillar skrautsýn-
ingar af því tilefni. Hann tók fram
að hér ræddi reyndar ekki um neina
„Bolshoj-sýningu“ en „mikla frum-
sýningu" eigi að síður.
Bæði Bretar og Bandaríkjamenn
fylgja þeirri stefnu að láta aldrei
uppi hvort einstök skip em búin
kjamorkuvopnum og er það einn
liður fælingarstefnu ríkjanna. Þessi
stefna komst í sviðsljósið á alþjóða-
vettvangi þegar Nýsjálendingar
neituðu bandarískum herskipum
um hafnarleyfi, nema tryggt væri
að þau bæm ekki kjarnorkuvopn.
Nú síðast kom málið til umfjöll-
unar vegna þingsályktunar í Dan-
mörku þar sem kveðið var á um
að gamalt kjamorkuvopnabann
'skyldi frekar áréttað en verið hafði,
en Bretar sögðust þá trauðla geta
staðið við vamarskuldbindingar
sínar við Danmörku ef til styijaldar
kæmi. Bæði ríkin em í Atlantshafs-
bandalaginu.
Stjómarerindrekar við Samein-
uðu þjóðimar kváðust stórlega ef-
ast um að þessi tillaga Shevardnad-
zes myndi nokkm breyta um stefnu
Bandaríkjanna og Breta í þessum
efnum. Hún var ein nokkurra til-
lagna, sem Shevardnadze reifaði í
45 mínútna langri ræðu sinni.
í ræðunni bauð hann fulltrúum
ríkja heims að koma til Sovétríkj-
anna og verða vitni að þeim „heim-
sögulega viðburði" á sviði kjam-
orkuafvopnunar, þegar skamm- og
meðaldrægar flaugar Sovétmanna
verða upprættar í samræmi við
ákvæði Washington-sáttmálans.
Viktor Karpov, aðalsamninga-
maður Sovétmanna í afvopnunar-
málum sagði blaðamönnum að
upprætingin myndi he§ast skömmu
eftir 1. júlí, en sagðist ekki geta
gefið nánari dagsetningu nú.
Reuter
Edúard Shevardnadze í pontu Allsherjarþingsins.
Allsheijarþing Sameinuðu þjóðanna:
Pakistan:
Zia skipar
nýja stjóm
ZIA-UL-HAQ forseti Pakistan
útnefndi í gær 18 ráðherra
sem mynda nýja starfsstjórn
í stað ríkisstjórnarinnar sem
hann leysti frá störfum í lok
maí.
Athygli vakti að átta af gömlu
ráðherrunum eiga sæti í nýju
stjóminni. Það rennir stoðum
undir grunsemdir um að Zia
hafi leyst gömlu stjómina upp
til þess að losna við forsætisráð-
herrann Mohammad Khan
Junejo. Nýju stjómina skipa
tryggir stuðningsmenn Zia.
Gamall vinur Zia og félagi úr
hemum, Sahabzada Yaqub Khan
var skipaður utanríkisráðherra.