Morgunblaðið - 10.06.1988, Síða 40

Morgunblaðið - 10.06.1988, Síða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 1988 Stjörnu- Umsjón: Gunnlaugur Guðmundsson „Kæri stjömuspekingur. Mig langar mikið að vita um þroskamöguleika mína, kosti og veikleika. Einnig er ég óviss um hvaða starf henti mér best. Ég er fæddur í Reykjavík hinn 5.11.1962 kl. 7.40 að morgni. Þinn einlæg- ur.“ Svar: Þú hefur Sól, Merkúr, Venus og Risandi í Sporðdreka. Sólin er í samstöðu við Neptúnus. Tungl er í Vatnsbera, Mars í Ljóni og Úranus og Plútó á Miðhimni í Meyjarmerkinu. Skapstór Þú ert greinilega skapstór, ráðríkur og fastur fyrir. Þú ert mikill tilfínningamaður (Sporðdreki) en gætir átt í erfíðleikum með að viður- kenna tilfinningar þínar, ekki síst vegna þess að þú vilt að hugur og skynsemi stjómi til- fínningunum (Tungl í Vatns- bera). Viöurkenna tilfinningar Fyrsta skrefið til betra lífs er því það að leyfa þér að hafa iilfinningar. Varast að láta Vatnsberaþáttinn skammast sín fyrir tilfinningar þínar og mikið skap. Ef þú gerir þér grein fyrir því að það er í raun enginn sem bannar þér að láta frá þer tilfinningar annar en þú sjálfur, getur þú öðlast frelsi til að tjá þær. Taktu völdin Þú ert frekur og ráðríkur og ekki ólíklegt að þú skammist þín einnig fyrir stjómsemi þína og reynir því að halda aftur af þér. Sporðdreki og Ljón saman gefa til kynna það að vera dulur og um leið það að vilja vera áberandi. Þetta togast á en þarf að sætta. Erfitt aö breyta til Þar sem þú ert mjög fastur fyrir er hætt við að þú eigir erfitt með að breyta til. Við því er ekki annað að gera en að láta þig hafa það, með tímanum venst þú nýjum að- stæðum. Ef þú á hinn bóginn reynir að vinna á móti breyt- ingum og ætlar að halda í fortíðina er hætt við að þú staðnir. Það ættir þú að var- ast. Öskra í íþróttum Þar sem þú ert skapmikil! en um leið viðkvæmur og lætur umhverfíð koma þér úr jafn- vægi, er æskilegt að þú finnir útrás fyrir orku þfna. Ég tel t.d. æskilegt að þú leggir reglulega stund á einhveijar íþróttir, til að fá útrás fyrir þá ólgu sem blundar innra með þér. Líkamsrækt, sund og annað álfka væri ömgglega gott fyrir þig. Listir og andlegt mál Sól 1 samstöðu við Neptúnus bendir til listrænna og and- legra hæfileika. Einn mikil- hæfur tónlistarmaður er fædd- ur sama dag og ár og þú. Samí maður hefur mikinn áhuga á andlegum málefnum. Þó þú fetir kannski ekki sömu braut býrð þú eigi að síður yfir svipuðum hæfileikum og gætir því ræktað andlega og listræna hæfileika með góðum árangri. SálfrceÖi ogfiölmiölun Varðandi starf er ekki gott að segja hvað á best við. Sporðdreki-Vatnsberi bendir til hæfileika á sálrænum og félagslegum sviðum, þ.e. sál- fræðingur/félagsfræðingur. Merkúr í samstöðu við Rísandi merki og Tungl í 3. húsi gæti bent til hæfileika tengda fjöl- miðlun. Það ásamt Neptúnusi gæti vfsað á listræna hæfileika ( sambandi við það að skrifa - eða teikna. GARPUR JAFM'S£L t>ÓTT(J&*1SKjPlE> 5É AÐ BRENNA getur. GULLOÓR. EKK! STAÐlSTMr&TTU þinverja GRETTIR T^MlilKill O ^ ICMMI 1 AJlVIIVl 1 Uu JtlMIMI UÓSKA FERDINAND ijiiiini)[inT?nmn»w»ii);irn.’)i)iiii;;njiii.iiiíinn.)i)iii)ii;iin[iiiiniiiiii)i.;.)iJjj»iiiiiiiiji..>niiiin:.?;i;i;i:;;winf.r;n ■■■■■—■ 11 . . 1 1 . i..- —. i ^ ' SMAFOLK 1 CAn't believe IT' Ég trúi þessu ekki! SOMEBOPV DEFACEP MV REPORT CARPJ Einhver hefur krotað út einkunnaspjaldið mitt! Sjáðu þetta ... SOME TEACHER PUT A D-MINUS ON IT! I ___ Ji Einhver kennarí setti fall- einkunn á það! BRIDS Umsjón: Guðm. Páll Arnarson „Hvemig í ósköpunum var hægt að klúðra þessu spili?" Sveitarfélagamir voru fullir vandlætingar, sem vonlegt var, þvf það blasir ekki beinlfnis við að sagnhafi eigi skothelda af- sökun fyrir að tapa fjórum spöð- um. En sjáum til: Suður gefur; allir á hættu. Vestur ♦ G4 ♦ 109732 ♦ 93 ♦ KD93 Norður ♦ 1063 ♦ D84 ♦ ÁK752 ♦ G10 Austur ♦ D95 ♦ 6 ♦ G1064 ♦ Á7642 Suður ♦ ÁK872 VÁKG5 ♦ D8 ♦ 85 Vestur Norður Austur Suður — — — 1 spaði Pass 1 grand Pass 2 hjörtu Pass 3 spaðar Pass 4 spaðar Pass Pass Pass Útspil: laufkóngur. Örlögin hafa greinilega út- hlutað AV tveimur slögum á lauf og einum á tromp. Austri tókst hins vegar að knýja fram einn til viðbótar með mjög frum- legri blekkingu. Vestur átti fyrsta slaginn á laufkóng og spilaði meira laufí yfir á ás makkers. Austur skipti síðan yfir í einspilið í hjarta. Sagnhafi tók slaginn heima og hugðist nú taka tvo efstu í trompi og leggja upp. En þegar trompdrottningin kom í spaðaás- inn var ástæða til að endurskoða þá áætlun. Ef vestur ætti G9 §órða í trompinu mátti ekki drepa tíuna í blindum með því að taka næst á kónginn. Sagn- hafi ákvað að vemda sig gagn- vart þessari legu og spilaði því næst smáum spaða að tíunni. Vestur fékk óvæntan slag á trompgosann og gaf austri svo stungu f hjartað. Einn niður! Umsjón Margeir Pétursson Á alþjóðlega mótinu í Haninge í Svíþjóð í maí kom þessi staða upp í viðureign stórmeistaranna Ulfs Anderssons, Svfþjóð, og Levs Polugajevskys, Sovétríkjunum, sem hafði svart og átti leik. Svíinn hafði átt léttunnið endatafl, en lék hrottalega illa af sér með síðasta leik sínum, 42. e4 — e5?? 41. — Bxe5! (Hvítur tapar um- frampeðinu fyrir ekki neitt, því 43. Kxe6 er auðvitað svarað með 43. — He6+. Samið var jafntefli eftir:) 43. Rd4 - Bxd4, 44. Hxd4 - He6, 45. Hd2 - He3, 46. Kc4+ - Kc7, 47. Kb5 - b3! Jafntefli. Þetta reyndist Andersson dýr- keypt. Polugajevsky sigraði á mótinu með 8 vinninga, en And- ersson varð annar með 7 v.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.