Morgunblaðið - 10.06.1988, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 10.06.1988, Qupperneq 42
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 1988 4- 42 AF ERLENDUM VETTVANGI eftir LESLIE COUTT Austur-Þýskaland: Tímabært að Honeck- er seljist í helgan stein Sovétmenn hafa áhyggjur af því hver verður eftirmaður hans Fulltrúar Sovétríkjanna S Austur-Berlín hafa gefið sterklega í skyn að Erich Honecker leiðtogi Austur-Þýskalands, sem orðinn er 75 ára gamall, muni láta af störfum innan skamms. Sovéskir ráðamenn hafa þungar áhyggjur af þvi að enginn þeirra 22 manna sem sæti eiga í stjómmálaráði austur-þýska kommún- istafiokksins getur talist umbótasinnaður. Sovétmenn urðu fyrir vonbrigðum þegar skipt var um forystu í Tékkóslóvakiu fyrir skemmstu. Gustav Husak iét af störfum í desember á síðasta ári og við tók Milos Jakes sem er yngri maður en i alla staði jafn íhaldssamur og fyrirrennari hans. Tékkneski kommúnista- flokkurinn hefur, þrátt fyrir íhaldssaman leiðtoga, gert áætlan- ir um breytingar í efnahagslifi. Slikar áætlanir hafa austur- þýskir ekki gert og breytinga er ekki að vænta þó Honecker láti af störfum. Honecker hefur þráast við að taka upp umbótastefnu Mikhafls Gorbatsjovs Sovétleið- toga. í blaðaviðtali fyrir skömmu sagði Honecker:„Enginn getur mótað stefnu sem hentar öllum." Hann hefði ekki getað farið varleg- ar að því að segja að hann hafí ekki f hyggju að taka upp stefnu Kremlveija. Honecker heldur því fram í blaðaviðtalinu að Austur- Þjóveijar hafi þegar komið á nokkrum breytingum og uppbygg- ingu, en hann forðast að nota orð- ið „perestroika". Oánægja Sovétmanna í garð Honeckers hefur aukist jafht og þétt síðan á síðasta ári en þeir hafa stillt sig um að beita helsta bandamann sinn í Varsjárbanda- laginu þrýstingi opinberlega. Embættismenn í Austur-Þýska- landi segja að landið sé framvörður sósíalismans í Evrópu og vara við því að ef breyting verði gerð á stjómkerfínu þar í landi ógni það austurblokkinni og geti leitt til keðjuverkana sem Sovétmenn verði fyrstir til að sjá eftir. Þessi þróun f austantjaldslöndunum hefur sett mark sitt á stjómvöld í Sovétríkjun- um. Honecker hefur verið látinn einn um að mæla fyrir aukinni miðstýringu og þrengri hugmynda- fræðilegri stjómun. Sovéskir sendimenn og fréttarit- arar í Austur-Berlín segja nú að stjóm Honeckers, sem verið hafi einráður í Austur-Þýskalandi sfðustu árin, sé ekki í neinu sam- ræmi við stjómmálalegar og efna- hagslegar aðstæður f landinu. Þús- undir Austur-Þjóðveija hafa sent sovéska sendiráðinu bréf þar sem beðið er um að „glasnost“-stefnan verði kynnt í heimalandi þeirra. Sovéska vfsinda- og menningar- stofnunin getur ekki greint aust- ur-þýskum borgurum frá umbótun- um f Sovétrfkjunum á sama tíma og opinberir Qölmiðlar f Austur- Þýskalandi neita að fjalla um þær. Sovéskir hagfræðingar benda á að efnahagslffí f Austur-Þýskalandi hafi hnignað til muna á síðustu árum. Segja sérfræðingar að brýn þörf sé á breytingum. Viðbrögð austur-þýskra leiðtoga hefur verið að kæfa allar hugmyndir um endur- bætur í fæðingu. Á sama tíma eru Austur-Þjóðveijar að reyna að halda f góðviljann sem vestur-þýsk stjómvöld hafa sýnt á undanföm- um árum. Á síðasta ári fengu 1,2 milljónir Austur-Þjóðveija að heim- sækja Vesturlönd. Enn fleiri Aust- ur-Þjóðveijar munu væntanlega fá leyfi til að heimsækja Vestur- Þýskaland f ár. Eftir þiýsting nágrannanna ámm saman láta austur-þýsk stjómvöld nú undan og hyggjast reyna að koma meira skipulagi á þau handahófskenndu vinnubrögð sem tíðkast hafa við meðferð út- flutningsleyfa fólks sem vill flytja til Vestur-Þýskalands. Reglugerðir hafa verið settar þar sem kveður á um að þeim sem er synjað um flutning til Vestur-Þýskalands nálægt núlli en ekki um 3,6% eins og gefið hafi verið upp í opinberum skýrslum. Nærri 80% iðnfyrirtækja í Austur-Þýskalandi hafi ekki stað- ið við áætlanir á síðasta ári. Aðeins róttækar breytingar geta, að sögn sovéskra embættismanna, komið efnahagslífinu á réttan kjöl. Sovéskir sendimenn benda einn- ig á að aukinn fjöldi austur-þýskra háskólaborgara sem ferðast til Vestur-Þýskalands komi aldrei til baka. „Svo lengi sem þeir afla hærri tekna erlendis mun fólks- flóttinn halda áfram," er haft eftir svartsýnum sovéskum erindreka. Þessi Sovétborgari ásamt fleiri embættismönnum frá Sovétríkjun- um heldur því fram að Austur- Þjóðveijar eigi að koma í veg fyrir flótta frá landinu með því að gera það fysilegra fyrir borgara þess. Honecker er of gamall og fastheld- inn til þess að takast á við slík verkefni, að sögn Sovétmanna. Hann ætti að fara að huga að því Erich Honecker, aðalritari kommúnistaflokksins í Austur-Þýska- landi. Sovéskum stjórnmálamönnum finnst tími til kominn að hann fari að víkja fyrir yngri manni. skuli skýrt frá ástæðum synjunar- innar. í gegnum tíðina hafa slíkar til- slakanir skilað Austur-Þjóðveijum efnahagslegri aðstoð frá Vestur- Þjóðveijum. Að þessu sinni er búist við að greiðviknin felist í flugvél af gerðinni Airbus A-31 sem vest- ur-þýskur banki mun láta austur- þýska flugfélaginu Interflug í té. Vestur-þýska flugfélagið Luft- hansa mun sjá um viðhald á vél- inni. Áætlanir vestur-þýskra stjómvalda um endurbætur á lest- arsamgöngum milli Vestur-Berlín- ar og Vestur-Þýskalands munu á sama hátt koma Austur-Þjóðveij- um til góða. Einkaheimsókn Helmuts Kohls kanslara Vestur-Þýskalands til Austur-Þýskalands fyrr á þessu ári var að hluta til farin til þess að hvetja Vestur-Þjóðveija til að heimsækja nágrannana í austri sem myndi auka gjaldeyrisstreymi til Austur-Þýskalands. í augum Sovétmanna koma þær breytingar sem orðið hafa í Aust- ur-Þýskalandi þeim ekki til góða. Austur-Þjóðveijar sjá Sovétríkjun- um ekki fyrir þeirri hágæða iðn- framleiðslu sem þau þarfnast, segja sovéskir embættismenn. Hagfræð- ingar í Sovétrflgunum segja að hagtölur frá Austur-Þýskalandi séu ekki réttar. Hagvöxtur hafi verið að setjast í helgan stein eftir 16 ára valdatímabil. Honecker sjálfur virðist ákveð- inn í að gegna embætti aðalritara kommúnistaflokksins þar til eftir hátíðarhöldin í tilefni þess að 40 ár eru frá stofnun Austur-Þýska- lands í október á þessu ári. Líklegur eftirmaður Honeckers er Egon Krenz. Hann gegnir emb- ætti öryggismálaráðherra auk þess að fara með ungliða- og íþrótta- mál. Krenz hefur ekki, þrátt fyrir að hann sé 23 árum yngri en Honecker, sýnt nein merki þess að vera fijálslyndari eða hlynntari umbótastefnu Gorbatsjovs en Honecker. Hinir tveir sem gætu hugsanlega tekið við embætti flokksritara, Giinter Schabowski flokksformaður í Austur-Berlín og Wemer Felfe landbúnaðarsérfræð- ingur stjómmálaráðsins, hafa ekki sýnt nein merki fijálslyndis. Það setur Gorbatsjov í klfpu að lítil von er til þess að umbótasinni setjist í valdastól í Austur-Þýska- landi. Hann getur kennt fyrirrenn- urum sfnum um vandann, því þeir sáu til þess að aðeins íhaldssamir fengu inngöngu í stjómmálaráð austur-þýska kommúnistaflokks- ins. Höfundur er blaðamaður hjá Financial Times. Minning: Lovísa Dagmar Haraldsdóttir Fædd 2. maí 1922 Dáin l.júní 1988 Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu hug þinn. Og þú munt sjá að þú grætur vegna þess sem var gleði þín. (K.Gibran) Þó að við vitum öll að það að deyja er tilgangur lífsins, eigum við flest erfítt með að sætta okkur við þá staðreynd. Það er sárt þegar ■ kveðjustundin rennur upp. Það er það líka nú er ég minnist mágkonu minnar, Lovísu Dagmar Haralds- dóttur. Ég hef þekkt hana allt frá bamæsku og margs er að minnast. Lúlla, eins og við vinir hennar kölluð- um hana, var ættuð frá Skeggjastöð- um í Garði. Lúlla var í mörgu svo sérstök. Hún tók oft sterkt til orða og var áköf þegar henni fannst hall- að á einhvem, sérstaklega þegar í hlut átti sá eða sú er halloka hafði farið í lífinu. Það má segja að Lúlla hafi ekki borið það utan á sér hvað inni fyrir bjó. Hún var vinamörg og gleymdi aldrei því sem henni var vel gjört. Einnig var Lúlla bamgóð svo eftir var tekið. Mikil var gleði henn- ar er hún fyrir níu mánuðum, þá orðin fársjúk af þeim sjúkdómi sem nú hefur bugað hana, fékk að halda undir skím alnöfnu sinni, em hún þráði að fá að fylgjast með. Ég trúi að fyrirbænimar hennar Lúllu fylgi ástvinum hennar öllum. í ágúst 1987 andaðist Lóa systir hennar. Þær báru mikla umhyggju hvor fyrir annarri. Þær gengu báðar í gegnum erfiðan sjúkdóm sem því miður enginn mannlegur máttur fékk við ráðið. Trúi ég því að nú hafi þær sameinast á ný, lausar við þjáningar þessa heims. Ég minntist á að Lúlla hafi verið í mörgu sérstök. Það var oft gaman að ræða við hana svo áköf var hún í sínum málflutningi. Þegar rædd voru þjóðmál, var hún oft svo orð- heppin að umræðan endaði oft með léttum hlátri. Lúlla hafði skemmti- lega kímnigáfu sem gaman var að, og gleymdist ekki. Það er sárt að hugsa til þess að Lúlla sé dáin, og við vinir hennar fáum ekki að sjá hana oftar í okkar hópi, svo snar þáttur sem hún var í fjölskyldu minni í yfír fjörutíu ár. Lúlla og Gísli bróðir minn giftu sig árið 1944. Þau eignuðust tvær stúlkur og tvo drengi. Elsta bamið, drengur, fæddist andvana. Hin þijú eru uppkomin og hafa stofnað sín eigin heimili. Bamabömin em orðin sex. Er hennar nú sárt saknað af flölskyldu sinni. Ég er stolt af Gísla bróður mínum fyrir tryggð hans og þann styrk sem hann veitti Lúllu sinni í hennar miklu veikindum. Hann hugsaði um hana af slíkri umhyggju að á betra varð ekki kosið. Veit ég að ástvinir Lúllu em honum af hjarta þakklátir. Lúlla þráði að fá að liggja heima, og það fékk hún þar til fyrir fáum vikum, að hún var flutt fársjúk á Sjúkrahús Keflavíkur. Þar var allt gert sem í mannlegu valdi stóð henni til hjálp- ar. Guð launi þeim öllum. Ég og fjölskylda mín öll kveðjum Lúllu og þökkum henni allar sam- vemstundimar á liðnum ámm. Við sendum fjölskyldu hennar innilegar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning hennar. Marta G. Haraldsdóttir Þann 1. júní lést í Keflavík Lov- ísa Haraldsdóttir eftir löng og erfið veikindi. Ég vil minnast hennar með nokkmm orðum, og þá sérstaklega sólskinsdaganna úr lífi okkar beggja, er ég var bamungur, og hún var ung kona geislandi af lífi og §öri, litfríð og ljóshærð. Þá kem- ur fram í hugann hvað hún var mér álltaf góð og jákvæð, þannig að ég hlakkaði alltaf til að hitta Kveðjuorð: * Jón Olafsson Fæddur S.júlí 1940 Dáinn 24. desember 1987 Nú er um það bil hálft ár síðan faðir minn hvarf. Enn hefur hey hans ekki fundist. Fyrir mér er líkami aðeins verkfæri. Ég vona að sál ferðist áfram á þroskans braut. í minningunni á ég aðeins bjartar minningar um hann. Það sem dró hann að brún dauðans var angist þess er getur ekki tjáð sig. Örvænt- ing þess þjáða. Otal spumingar kviknuðu í bijósti mínu þegar ég skildi hvað skeð hafði, þær ómuðu í tóminu sem hann skildi eftir sig. Mörg svör hafa fæðst. Að geta tjáð sig, að geta gefið annarri manneskju mynd af huga sínum svo langt sem maður fær inn í sig séð, er ef til vill það dýrmæt- asta sem hveijum manni er gefið. Svo margir eru þó án þorsins. Svo erfitt getur það verið að opna sál- arkitruna sína. Engum er hægt að kenna um og sjálfsásakanir eru aðeins til að draga mann ofan í pytt sjálfsaumkunar. í minningunni er mynd af manni sem sagði fátt vegna þess að lykill- inn að sálinni var týndur og þrekið vantaði til að leita hans. í minning- unni sé ég hann sem klett á lífsins úfna hafi. Sem leiðarljós mitt. í minningunni er maður sem hafði hjarta úr gulli og hlýju til að bera. Hann gaf okkur sem eftir sitjum þor til að opnast og styrk til að sameinast. Það er hin djúpa dauðra gröf, - þar dvínar sorg og strið - er sollin lífs fyrir handan höf er höfn svo trygg og blíð. Þú læknar hjartans svöðusár og svæfir auga þreytt, þú þerrar burtu tregatár og trygga hvíld fær veitt. Þú griðarstaður mæðumanns 6, myrka, þögla gröf, þú ert hið eina hæli hans og himins náðargjöf. (Kristján Jónsson) Hvar er í heimi hæli tiyggt og hvild og mæðufró? Hvar bærist aldrei hjarta hryggt? Hvar heilög drottnar ró? Fyrir hönd bróður míns, Jóns Tryggva., og móður okkar, Berg- þóru Ámadóttur, Birgitta Jónsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.