Morgunblaðið - 10.06.1988, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 1988
49
Grétar Sveinbjörnsson ljósameistari.
NOREGUR
íslenskur ljósameist-
ari í norsku óperunni
Eins og komið hefur fram í
Morgunblaðinu, þá var íslenski
dansflokkurinn á ferð í Osló fyrir
stuttu síðan. Þar dansaði hann bal-
lett eftir Hlíf Svavarsdóttur í norr-
ænni samkeppni danshöfunda, en
eins og kunnugt er fór Hlíf þar
með sigur af hólmi.
í óperuhúsinu var vel tekið á móti
dansflokknum, en öll aðstaða var
þar hin besta, og móttökur starfs-
fólks alúðlegar. Einn starfsmaður
hússins tók þó sérlega hlýlega á
móti löndum okkar. Sá var ljósa-
meistari hússins, og virtist hann
strax undravel með á nótunum í
samskiptum við hópinn, og það var
ekki að undra, því hann reyndist
vera íslenskur.
Maðurinn heitir Grétar Sveinbjörns-
son, og er annar tveggja ljósameist-
ara norsku óperunnar. Það lá beint
við að fregna af því hvemig Grét-
ari hefði skilað í stöðu ljósameistara
við óperuna.
„Ég var hérna í siglingum í eitt ár,
það var árið 1969, og ætlaði að
láta það gott heita. En svo kom ég
héma aftur ári seinna í ljómandi
fallegu sumarveðri, og gat þá vel
hugsað mér að vera hér áfram og
það varð úr...“ segir Grétar. „Fyrst
vann ég sem bíistjóri hjá áfengis-
versluninni hér, auk annarra starfa.
Færeyskur kunningi minn vann
héma hjá óperunni, og í hálft ár
vann ég með honum, en þá gat
hann útvegað mér fast starf hérna.
Þetta var árið 1974, og hér hef ég
starfað síðan. Ég byijaði sem ljósa-
maður, varð síðan verkstjóri, og nú
starfa ég sem ljósameistari."
„Við erum tveir sem erum ljósa-
meistarar, og skiptum með okkur
verkum. í vetur hef ég aðallega
verið með ballettsýningarnar, en
hinn aftur á móti með óperurnar.
Annars er engin föst regla á því
hvemig verkaskiptingunni er hátt-
að, við einfaldlega skiptum með
okkur verkum í byijun hvers starfs-
árs. Hingað koma ljósahönnuðir,
sem hanna og ákveða hvernig lýs-
ingu skuli háttað í hverri sýningu.
Sú vinna er unnin á meðan verkið
er undirbúið og æft. Ég aðstoða
ljósahönnuðina, og sé svo um lýs-
inguna þegar sýningar heíjast. Auk
þess vinn ég hérna sem ljósahönn-
uður sjálfur."
Norska óperan þykir hafa eflst mjög
undir stjóm Björns E. Simensens
óperustjóra og samstarfsmanna
hans. í nýjasta hefti þýska óperu-
tímaritsins Opernwelt er birt lofleg
gagnrýni um sýningar hússins, auk
viðtals við Simensen, manninn sem
kom Osló á óperukortið. Það er því
ýmislegt sem bendir til þess að
Ijósameistarar norsku óperunnar,
sem og aðrir starfsmenn hússins,
eigi eftir að fást við mörg spenn-
andi og bitastæð verkefni á næst-
unni.
20 ára aldi.-tstiikir.ark. Snyrtilegyr klæönaBur. Miöaverö 700,-
Opiö í kvöld frá kl. 22-03
► kilja má fyrr en skellur í ,
tönnunum, nema að bera
þurfi í bakkafullan lækinn
Ragnhildur Gísladóttir
Llftu þír upp fir raunvcrutetkaoum
-KOf.'DU 1 TUNGLIÐ
"ÖimLAUJ'i' J'i‘UsJ"
Blg Foot 8ír um TÓNLIST TUNGLSINS
m.a. -Hard Core
-Hlp Hop Ivaf
-Nýbylgjupopp o.fl.
í<i j c:iíí t:i r i ti u
Opla öii kvöid
Hvort sem þú ætlar aö veita vatni um lengri eöa skemmri veg
er varla til auðveldari og ódýrari leiö
en gegnum rörin frá Reykjalundi.
Rörin frá Reykjalundi eru viöurkennd fyrir gæöi
og auövelda meöferö.
Flestarstærðirvatnsröra, kapalröra, frárennslisröra
og hitaþolinna röra eru jafnan til á lager og
með tiltölulega stuttum fyrirvara er hægt að afgreiða sverari rör.
Sérstök áhersla er lögö á mikla og góöa þjónustu.
Rörin frá Reykjalundi
- rör sem duga.
REYKIALUNDUR
Söludeild • Sími 666200