Morgunblaðið - 10.06.1988, Side 59
íitftít ÍMÚI. Oí áTJOAOtrí8Ö^-,iðli3AJHMUí}ílOíá
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 1988
59
KNATTSPYRNA / 1. DEILD (SL - DEILDIN)
•rrncc
■\i urr
Pétur Pétursson svífur inn í vítateig KA eftir að hafa komist einn í gegnum vöm KA. Boltinn varð þó eftir í höndum Hauks Bragasonar.
KR-ingar í efsta sæti
- sigruðu KA í slökum leik, 2:0, á KR-vellinum við Frostaskjól ígærkvöldi
KR skaust í efsta sæti 1. deild-
ar með sigri á KA f gær í mjög
slökum leik. Leikurinn var lítið
fyrir augað, en segja má að
sigurinn hafi verið sanngjarn.
Völlurinn var blautur og háll og
bitnaði það nokkuð á leik lið-
anna. Slæmar sendingar og langar
settu svip sinn á leikinn, en þó örl-
gmi aði á spili hjá liðun-
LogiB. um, einkum í
Eiðsson framlínu KR-inga.
skrifar Ágúst Már Jónsson
átti fyrsta færi
leiksins, en skaut yfir mark KA.
Bjami Jónsson fékk svo besta færi
KA á 26. mínútu. Hann komst einn
í gegn, en skaut í þverslána.
Fyrra mark KR kom á 34. mínútu
og var eitt það undarlegasta sem
sést hefur í sumar. Willum Þór
Þórsson skallaði að marki KA frá
vítateig, ósköp sakleysislega, og
virtist ekki vera nein hætta á ferð.
Haukur Bragason, markvörður KA,
misreiknaði boltann og missti hann
yfir sig í þverslána og inn. Afskap-
lega klaufalegt mark.
Pétur Pétursson fékk svo gott færi
undir lok fyrri hálfleiks, hljóp af
KR:KA
2 : 0
íslandsmótið — 1. deild, KR-völlur,
fimmtudaginn 9. júní 1988.
Mörk KR: Willum Þór Þórsson (34.),
Gunnar Oddsson (48.)
Gult spjald: Willum Þór Þórsson (78.)
Áhorfendur: 1100.
Dómarí: Guðmundur Stefánsson
Maríasson 7.
Línuverðir: Baldur Scheving og Þor-
geir Pálsson.
Lið KR: Stefán Amarson, Rúnar Krist-
insson, Gylfi Dalmann Aðalsteinsson,
Þorsteinn Guðjónsson, Willum Þór Þórs-
son, Jósteinn Einarsson, Ágúst Már
Jónsson, Bjöm Rafnsson, Pétur Péturs-
son, Gunnar Oddsson, Þorsteinn Hall-
dórsson.
Lið KA: Haukur Bragason, öm Viðar
Amarson (Ágúst Sigurðsson vm. 81.
mín.), Gauti Laxdal, Jón R. Kristjáns-
son, Erlingur Kristjánsson, Þorvaldur
örlygsson, Bjami Jónsson, Valgeir
Barðason, Stefán Ólafsson (FYiðfínnur
Hermannsson vm. 55. mín), Anthony
Karl Gregory, Amar Freyr Jónsson.
STANGARSTOKK
Bubka bætti
heimsmet sitt:
stökk 6,05 m
SOVÉTMAÐURINN Sergei
Bubka bætti eigið heimsmet
í hástökki í gær er hann stökk
6,05 metra á móti í Bratislava
í Tékkóslóvakíu. Gamla metið
var 6,03 metrar, en það setti
Bubka í júnf í fyrra.
Bubka reyndi fyrst við 6,90
metra í gærkvöldi og fór
auðveldlega yfir. Næst var sláin
færð í 6,05 metra og Bubka sveif
yfír án vandræða við gífurlegan
fögnuð ijölmargra áhorfenda.
Þetta var fyrsta mót Bubka í sum-
ar, en upphaflega átti ekki að
keppa í stangarstökki á þessu
móti. En veðrið var gott, hlýtt og
logn — ákjósanlegt veður til
stangarstökks — Bubka mætti þvi
og bætti eigið met næsta auðveld-
iega.
sér vamarmenn KA, en Haukur
bjargaði með góðu úthlaupi.
Síðari hálfleikurinn var jafnvel slak-
ari en sá fyrri, en byijaði þó með
marki. KR-ingar fengu aukaspyrnu
við vitateig og Gunnar Oddsson
skoraði með laglegu skoti, efst í
hægra homið.
Eftir markið gerðist fátt markvert
og boltinn langtímum saman á miðj-
unni. KA fékk þó gott færi til að
minnka muninn á 81. mínútu.
Anthony Karl Gregory átti mjög
góða sendingu á Valgeir Barðason,
en slakt skot hans fór framhjá.
KR-ingar áttu svo síðasta orðið.
Pétur Pétursson sendi boltann á
Bjöm Rafnsosn sem var í dauða-
l.deild (SL-deild)
VÖLSUNGUR- VALUR...............1:3
ÞÓR- ÍA...................... 1:1
IBK- FRAM......................1:1
VlKINGUR- LEIFTUR..............2:1
KR - KA .......................2:0
færi, en Haukur varði mjög vel.
KR-ingar eru nú í efsta sæti deildar-
innar, með betri markatölu en
Fram. KR-ingar hafa skorað flest
mörk deildarinnar, enda framlínan
tvímælalaust stolt liðsins. Vörnin
er hinsvegar ekki nógu sterk, en
vart hægt að segja að mikið hafi
reynt á hana í þessum leik. Pétur
Pétursson átti góðan leik og Rúnar
Kristinsson átti góða spretti.
KA-liðið byrjaði mjög vel í deild-
inni, en þessi leikur var slakur. Lið-
ið fékk ágæt færi, en vart hægt
að segja að jafntefli hefði verið
sanngjöm úrslit. Þorvaldur Örlygs-
son og Erlingur Kristjánsson vom
bestu menn liðsins.
P®
Pétur Pétursson KR, Þorvald-
ur Örlygsson KA.
HEIMALEIKIR ÚTILEIKIR SAMTALS
Leiklr u J T Mörk U J T Mörk Mörk Stig
KR 4 2 1 0 7:2 1 0 0 3:1 10:3 10
FRAM 4 2 0 0 4:0 1 1 0 2:1 6:1 10
ÍA 4 1 0 0 1:0 1 2 0 3:2 4:2 8
KA 3 1 0 0 2:1 1 0 1 1:2 3:3 6
VALUR 4 0 0 0 0:0 1 1 2 3:3 3:3 4
/BK 4 1 1 1 5:5 0 0 1 1:2 6:7 4
VÍKINGUR 4 1 0 1 2:2 0 1 1 2:5 4:7 4
LEIFTUR 4 0 3 0 1:1 0 0 1 1:2 2:3 3
ÞÓR 3 0 1 1 1:2 0 1 0 1:1 2:3 2
VÖLSUNGUR 4 0 0 2 2:5 0 0 2 1:6 3:11 0
1.DEILD KVENNA
Markalaust
Islandsmeistarar ÍA léku gegn
bikarmeisturum Vals í gærkvöldi
á Akranesi í 1. deild kvenna í knatt-
spymu. Leikurinn var leiðinlegur á
að horfa og lítið um skemmtilegt
spil. Ekkert mark var skorað í leikn-
um.
Fyrsta og reyndar eina færið kom
snemma í leiknum. Þá komst Vals-
arinn Rryndís Valsdóttir í gegnum
vörn ÍA, en Vala Úlfljótsdóttir
markmaður varði vel. Fátt mark-
vert gerðist eftir þetta og liðin
skildu því jöfn í tilþrifalitlum leik.
. Morgunblaöið/Júllus Sigurjónsson
Ormarr Örlygsson.
FOLK
■ ORMARR Örlygsson, einn
besti maður 1. deildarliðs Fram í
knattspymu, er á leið norður til
Akureyrar á ný. Hann flyst búferl-
um norður í bjnjun ágúst. Ormarr
mun æfa með sínum gömlu félögum
í KA það sem eftir lifir keppnistíma-
bilsins, en leika áfram með Fram
út vertíðina. Hann klæðist síðan
búningi KA á ný næsta keppn-
istímabili.
■ TOTTENHAM keypti í gær
framherjann Paul Stewart frá
Manchester City á 1,5 milljónir
sterlingspunda. Það er mesta upp-
hæð sem Tottenham hefur eytt í
kaup á leikmanni.
I PIERRE Littbarski leikur að
öllum líkindum með vestur-þýska
landsliðinu í kvöld gegn ítölum í
opnunarleik Evrópukeppni landsliða
í kvöld. Hann kemur væntanlega
inn í liðið fyrir Olaf Thon, sem
hefur ekki leikið vel að undanfömu,
eða Wolfgang Rolff, sem er að
S"na sig eftir flenslu.
ÞRÍR leikmanna enska lands-
liðsins í knattspymu meiddust í
æfingaleik gegn v-þýsku áKuga-
mannaliði í útjaðri Stuttgart í gær-
kvöldi; þeir Mark Wright, Gary
Lineker og Trevor Steven. Þeir
ensku unnu 4:0 en sigurinn gæti
wiynst dýrkeyptur þar sem fyrsti
leikur þeirra í úrslitakeppni EM er
á sunnudaginn. Meiðsli Wright
voru talin alvarlegust i gær, en
ömggt er talið að a.m.k. hinir tveir
geti leikið. Mörkin í gær gerðu
Chris Waddle (2), Steve McMa-
hon og Mark Hately. *