Morgunblaðið - 06.07.1988, Qupperneq 5
Dagvist barna
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JUU 1988
5
Flugkerfi
í Borgar-
leikhúsið
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
að ganga til samninga við breska
fyrirtækið Rae Stage and Studio
Ltd., um flugkerfi fyrir Borgar-
leikhúsið. Tilboð Rae Stage
hljóðaði uppá rúmar 42 milljónir,
en að sögn Magnúsar Sædal Sva-
varssonar, byggingarstjóra, á
eftir að ræða ýmis tæknileg at-
riði og útfærslur, svo endanlegur
kostnaður við flugkerfið er ekki
ljós.
Magnús sagði flugkerfið vera
einn mikilvægasta þátt leikhússins.
í 25 metra háum turni, þar sem
sviðið væri staðsett, væri komið
fyrir fjölda ráa sem á væru fest ljós-
kerfi, hluti sviðsmynda og búnaður
til að láta ýmsa hluti svífa niður á
sviðið. „Það má segja að flugkerfið
sé það sem skapar líf á sviðinu,
annað en það sem leikararnir
skapa,“ sagði Magnús.
Tilboð í sviðsljós og hljóðkerfi
verða opnuð 19. júlí, en að sögn
Magnúsar eru þau ásamt flugkerf-
inu stærstu kostnaðarliðir við bygg-
ingu Borgarleikhússins. Aætlað er
að opna leikhúsið fullbúið haustið
1989.
Rekstrarstyrkur til
heimila í einka-
rekstri verður 40%
STJÓRN Dagvistar barna hefur
samþykkt að breyta reglum um
rekstrarstyrki til dagvistarheim-
ila í einkarekstri til samræmis við
niðurgreiðslur tii dagvistarstofn-
ana í eigu borgarinnar. Að sögn
Önnu K. Jónsdóttur, formanns
stjórnar Dagvistar barna, gera
nýju reglurnar ráð fyrir að borgin
greiði 50% af kostnaði við 4ra tíma
vistun eða 40% af 5 tíma vistun,
en það er sama upphæðin, hvort
sem um er að ræða leikskóla eða
dagheimili.
„Reglur um styrki til einkadag-
heimila eru mjög úreltar og hafa
verið í ósamræmi við þá þjónustu sem
við veitum hjá borginni," sagði Anna.
„Borgin greiðir 50% af kostnaði fyr-
ir hvert barn í 9 tíma vistun á dag-
vistarheimili en 34% af kostnaði fyr-
ir hvert bam á leikskóla. Nýju regl-
umar gera hinsvegar ráð fyrir að
rekstrarstyrkur verði ein ákveðin
upphæð með hveiju barni í samræmi
við niðurgreiðslur borgarinnar á
sambærilegri þjónustu til þeirra, sem
ekki eru í forgangshóp. Þess vegna
þykir okkur rétt að miða við niður-
greiðlsur til leikskólanna."
Anna sagði að í gömlu reglunum
frá árinu 1973 væri einnig gert upp
á milli rekstraraðila. Þannig að for-
eldrafélög og húsfélög eiga rétt á
fullum styrk en starfsmannafélög og
fyrirtæki sem reka dagvistarheimili
eiga rétt á hálfum styrk. „Þessu vilj-
um við breyta þannig að allir rekstra-
raðilar njóti sama réttar, svo fremi
sem þeir hafi fengið leyfi mennta-
málaráðuneytisins til rekstursins,“
sagði Anna.
I borginni er eitt dagheimili rekið
af einkaaðilum, eitt sem er bæði
dagheimili og leikskóli og einn leik-
skóli. Á þessum heimilum er 31 barn
á dagheimili og 86 á leikskóla. Rétt
er að taka fram að einstæðir for-
eldra, með börn á heimili sem rekið
er af einkaaðilum, fá greitt með sínu
bami til samræmis við niðurgreiðslur
á dajgvistarheimilum borgarinnar.
„Eg er að vona að með nýju regl-
unum opnist frekari möguleikar í
uppbyggingu í dagvistun, sem ekki
er endilega bundið við leikskóla eða
dagheimili. Jafnframt að þær ýti
undir að nýir aðilar fái áhuga á að
reka sín dagvistarheimili og má þá
nefna fóstrur og starfsmannafélög
en fyrst og fremst erum við að breyta
reglunum svo þær verði sanngjarn-
ar,“ sagði Anna.
Skýlaust yf ir
íslandi
Þessi mynd Veðurstofu Islands
var tekin af landinu laust eftir
klukkan 14 á mánudag úr veð-
urtungli í 800-900 kílómetra
hæð. Ovenju heiðskýrt var þeg-
ar myndin var tekin vegna
hæðarhryggjar yfir landinu.
Skýin sem sjást vestan við
landið á myndinni færðust yfir
það í gær þótt ekki fylgdi þeim
regn.