Morgunblaðið - 06.07.1988, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 06.07.1988, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 1988 9 Stjörnukort. Persónukort: Hver er ég? Hvaða hæfileika hef ég? Hvað veikleika? Get ég skilið mig betur? Framtíðarkort: Hvaða sjó sigli ég þetta árið? Hvar er meðbyr, mótbyr, blindsker og öruggar siglingaleiðir? Samskiptakort: Ég elska maka minn, en getum við skilið hvort annað betur? Sjálfsþekking erforsenda framfara. Hríngdu og pantaðu kort STJ0RNUSREKI iSTÖIMN 10377 LAUGAVEGI 66 SlMI 103771 Gunnlaugur Guðmundsson Verslun KAYS pöntunarlistans Hólshrauni 2, Hafnarfirði (gegnt Fjarðarkaupum) Sumartilboð á nýjum stunnr£sítn&ði Peysur/bolir firákr. 390.- *ao.. J. **kr. Dötnu-, herra- og bamafatnaður Sœlgæti - Snyrti vörur ORION VIDEOTÖKUVÉLAR nGsco LRUGRI/EGUR HF Laugavegi 10, simi 27788 ÚTGEFANDI: ÚTGAFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31. PÖSTHÓLF 58. AKUREYRI, SlMI: 24222 ASKRIFT KR. 660 A MANUÐI LAUSASÓLUVERÐ 60 KR. GRUNNVERÐ DALKSENTIMETRA 465 KR. Tveir þjóðflokkar Bilið á milli landsbyggðarinnar og höfuðborgar- svæðisins eykst um nokkra þumlunga með hverj- um deginum sem líður og ef fram heldur sem horfir verður komin óbrúanleg gjá milli þessara svæða innan fárra ára. Umrætt bil er tilkomið vegna mis- munandi skoðana, mismunandi veruleikatengsla og lífsviðhorfs fólks sem býr á höfuðborgarsvæð- inu annars vegar og á landsbyggðinni hins vegar. Nú er svo komið að margir sjá rautt þegar minnst er á Reykjavík, höfuðborg islands, borg sem lands- menn alhr ættu að vera stoltir af. Sömuleiðis fyllast Reykvíkingar annarlegum kenndum þegar minnst er á landsbyggðina og sumir geta ekki leynt fyrir- litningu sinni. „Sendið þessa djöfulsins sveitamenn heim," var tilvitnun í Timanum um daginn, höfð eftir áhorf- anda á leik Fram og Völsungs í Reykjavik. Þessi opinskáa lýsing á knattspymumönnum frá Húsa- vik er að mörgu leyti táknræn fyrir það áht sem höfuðborgarbúar hafa á íbúum landsbyggðarinn- ar. Þetta eru sveitamenn, óalandi og óferjandi, Tveir þjóðftokkar? Skoðanamunur milli fólks í þéttbýli og dreif- býli hefur alltaf verið til staðar. Margir hafa þó áhyggjur af því, að hann sé meiri og djúp- stæðari nú en áður. Akureyrarblaðið Dagur fjallar um þessi mismunandi viðhorf í forystu- grein fyrir nokkrum dögum. Fróðlegt er fyrir íbúa þéttbýlisins á suðvesturhorninu að kynn- ast þeim sjónarmiðum, sem þar koma fram. í Staksteinum í dag er vitnað til þessarar forystugreinar. Óbrúanleg gjá Dagur á Akureyri seg- ir í forystugrein um byggðamál sl. föstudag: „Bilið á milli landsbyggð- arinnar og höfuðborgar- svæðisins eykst um nokkra þumlunga með hveijum deginum sem líður og ef fram heldur sem horfir verður komin óbrúanleg gjá milli þess- ara svæða innan fárra ára. Umrætt bil er til- komið vegna mismun- andi skoðana, mismun- andi veruleikatengsla og lifsviðhorfs fólks, sem býr á höfiiðborgarsvæð- inu annars vegar og á landsbyggðinni hins veg- ar. Nú er svo komið, að margir sjá rautt, þegar minnzt er á Reykjavík, höfuðborg íslands, borg, sem landsmenn ættu allir að vera stoltir af. Sömu- leiðis fyllast Reykvíking- ar annarlegum kennd- um, þegar minnzt er á landsbyggðina og sumir geta ekki leynt fyrirlitn- ingu sinni. „Sendið þessa djöfulsins sveitamenn heim,“ var tílvitnim í Timanum um daginn, höfð eftir áhorfanda á leik Fram og Völsungs í Reykjavík. Þessi op- inskáa lýsing á knatt- spyrnumönnum frá Húsavík er að mörgu leyti táknræn fyrir það álit, sem höfuðborgarbú- ar hafa á íbúum lands- byggðarinnar. Þetta eru sveitamenn óalandi og ófeijandi, subbulegir, frekir, vitlausir og dýrir í rekstri." Blint hatur Síðan segir Dagur: „Já, höfuðborgarbúum finnst dýrt að halda uppi samgöngum við íbúa landsbyggðarinnar. Jarðgöng í Ólafsfjarð- armúla eða bætt vega- kerfi á Vestfjörðum te\ja þeir sóun á fjármunum. Helzt að þeir samþykki lagningu einstefnuakst- ursgötu frá Reykjavík, þannig að ibúar í „hinum dreifðu byggðum lands- ins“ eigi auðveldara með að komast til borgarinn- ar en geti ekki farið það- an aftur. Fólk á að streyma til Reykjavikur, afhenda verzlunar- og þjónustugeiranum fjár- muni sina og helzt að setjast þar að. A tyllidögum tala menn um að útflutnings- verðmætin skapist á landsbyggðinni og af þeirri ástæðu, svo ekki sé talað um aðrar, sé nauðsynlegt að efla byggð og koma i veg fyrir fólksfækkun á landsbyggðinni. Þetta höfum við margoft heyrt en þeir, sem skapa þessi verðmæti, bíða enn eftir þvi að þau sldli sér til baka að einhveiju leyti, þannig að fólk geti hald- ið áfram að framleiða þær útflutningsafurðir, sem mestum tekjum skila í þjóðarbúið. Þegar svo er komið að blint hatur ríkir á milli íbúa á höfuðborgarsvæð- inu og ibúa á landsbyggð- inni hlýtur það að vera brýnt að efla samstöðu meðal þeirra síðar- nefndu. Þessi samstaða kemur glögglega fram i knattspyrnunni hjá áhangendum norðanlið- anna fjögurra í SL-deild- inni, sem fylkja liði til að betja á Reykjavikurveld- unum, sem koma í heim- sókn. Orðahnippingar á knattspymuvöllum eru lýsandi dæmi um þá stað- reynd, að á íslandi búa tvær þjóðir, höfuðborg- arbúar og landsbyggðar- fólk eða bara sveita- menn. Tveir þjóðflokkar með gerólikar skoðanir, gerólíkir að upplagi og búa við gerólíkar aðstæð- ur. Verður einhvem tima hægt að sætta þessar stríðandi fylkingar?" Einþjóðí stóru landi Þessi forystugrein úr Degi er athyglisverð fyr- ir þá sök, að hún lýsir áreiðanlega vel tilfimi- ingum mikils fjölda fólks á landsbyggðinni gagn- vart höfuðborgarbúum. Og hvort sem fólki þykir þessi afstaða sanngjöm eða ekki er hún vem- leiki, sem horfast verður i augu við. Auðvitað em íslendingar ekki tvær þjóðir, heldur ein þjóð, sem býr í svo stóm Iandi, að við eigum fuUt i fangi með að standa undir þeirri búsetu. Menn skyldu þó aldrei gleyma þvi, að mikUl fjöldi þess fólks, sem býr á höfuðborgarsvæðinu á rætur annars staðar á landinu, hefur annað hvort búið þar sjálft eða forverar þess, feður og mæður, afar og ömmur. Allir þekkja þá sterku tilfinningu, sem getur skapast á miUi átthag- anna og fólks, sem býr víðs fjarri þeim. Þess vegna sækir hópur fólks á Homstrandir t.d. á hveiju ári til æskustöðv- anna og til æskustöðva i öðrum landshlutum. Veruleikinn er flóknari en Dagur viU vera láta en það breytir ekki þvi, að hér er mikið verk að vinna fyrir þjóðina alla að eyða þeim misskiln- ingi, sem hefur verið að þróast milli fólks i þétt- býli og á landsbyggðinni. Akureyrarblaðið Dagur hefur einnig skyldum að gegna í þeim efnum. Viltu )rúar, mars, apríl, tí, júlí, ágúst, sep r, október, nóvem sember, janúar, ft a.rs, apríl, maí, júi í, ágúst, septemb( ... bíl, íbúð, þvottavél eðafara í heimsreisu? Söfnunarreikningur VIB gerir þér þetta kleift á þægilegan hátt. VIB sér um að senda þér gíróseðla eftir sam- komulagi og annast síðan ávöxtun íjárins. Þú tekur féð svo út þegar tak- markinu er náð. Njóttu vel. VIB VERÐBRÉFAMARKAÐUR IÐNAÐARBANKANS HF Ármúla 7, 108 Reykjavík. Simi68 15 30

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.