Morgunblaðið - 06.07.1988, Side 18

Morgunblaðið - 06.07.1988, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 1988 „Að klippa götin af“ Hugleiðingar um vex eftirAma Gunnarsson Þegar ég var strákur í sveit aust- ur á Rangárvöllum var oft haft á orði, þegar handtök manna þóttu klaufaleg, að meira ynni vit en strit. Þegar fáránleikinn birtist mestur í vinnubrögðum var stund- um vitnað í karl einn, sem ekki þótti stíga í vitið og vildi gera við götin á sokkunum sínum með því að klippa þau af. Þegar íslensk stjómvöld ákváðu fyrir nokkrum árum, að auka frelsi á peningamarkaði, m.a. með því að gefa vexti frjálsa, var tekið heljar- stökk út í niðamyrkur. Þetta var gert í framhaldi af lögum um verð- tryggingu fjárskuldbindinga, sem var bæði tímabær og þörf ákvörðun. En þegar stokkið var í átt til hins frjálsa markaðskerfís, þar sem framboð og eftirspum á að ráða verðmæti fjármuna, gleymdist ýmislegt og rangar ákvarðanir vom teknar. Hagfróðir menn fylgdu formúlum frá háþróuðum iðnaðar- samfélögum, þar sem mun meira jafnvægi ríkir í efnahagslífi en í okkar veiðimannasamfélagi, þar sem tekjur okkar sveiflast gífurlega frá ári til árs. Það gleymdist m.a., að á Islandi er nánast allt vísitölubundið, nema launin. Misgengi launa og láns- kjaravísitölu olli skelfilegum raun- um og varð að harmleik hjá hundr- uðum fjölskyldna í landinu. — Það gleymdist einnig, að setja nýjum verðbréfamarkaði lög og starfsregl- ur. — Það gleymdist að setja lög um kaupleigur og það gleymdist, að endurskoða reiknireglur lán- skjaravísitölu. — Það gleymdist i og lánskjaravisitölu einnig, úr því að menn ákváðu að fara veg markaðshyggjunnar, að stíga skrefið til fulls. Upphaf ógæfunnar Ástæður hins íslenska fjármála- slyss, sem nú blasir við hveijum manni, má rekja til þess, að vísitala launa var tekin úr sambandi. Ymsir kunna að segja, að það hafi verið nauðsynlegt vegna verðbólguhvetj- andi áhrifa launavísitölunnar. En ef stjómmálamenn hefðu verið sjálfum sér samkvæmir hefðu þeir átt að draga úr áhrifum lánskjara- vísitölunnar eftir að vextir voru gefnir frjálsir. Fáar, ef nokkur þjóð í heimi, búa við það misrétti, að mega þola fulla verðtryggingu á íjárskuldbindingar og hávaxta- stefnu. Vextir á íslandi eru þeir hæstu, sem þekkjast á byggðu bóli, nema ef vera skyldi í einhveiju gjaldþrota „bananalýðveldi". Kapphlaup eftír sparifé Hagspakir menn fluttu þau rök fyrir fijálsum vöxtum og háum vöxtum, að þeir myndu draga úr eftirspum eftir íjármagni og þar með úr verðbólgu. Lítið bólar á þessum áhrifum, a.m.k. verður þeirra ekki vart í bönkum, á verð- bréfamarkaði eða eftir að ríkið aug- lýsti skuldbreytingafé til hagræð- ingar í rekstri útflutningsfyrir- tækja. Fyrirtæki í landinu hafa sótt um lán að fjárhæð rösklega 7 millj- arðar króna. Eftir að vextir voru gefnir fijáls- ir hófst gífurlegt kapphlaup um sparifé landsmanna. Verðbréfa- markaðir buðu fljótlega betur en bankar og ríkissjóður. Síðan fór ríkissjóður af stað og bauð enn betur. Þá komu bankarnir og svona gekk þetta koll af kolli þar til vaxta- hæðin var komin út fyrir öll skyn- samleg mörk, og eru vextir nú hæstir 15—16 prósent umfram verðbólgu á fasteignatryggðum skuldabréfum einstaklinga. Vaxtaþróunin er komin í víta- hring. Til að greiða sparifjáreigend- um háa vexti hafa bankarnir hækk- að útlánsvexti upp úr öllu valdi (nú em um 50 prósent forvextir á víxlum og um 10 prósent vextir á verðtryggðum skuldabréfum). Þetta gerist á sama tíma og láns- kjaravísitalan æðir áfram, en hún hækkaði um rösklega 5 prósent 1. júlí, og bætti 150 þúsund krónum ofan á 3ja milljóna króna skuld húsbyggjandans og 1,5 milljónum króna ofan á 30 milljóna króna skuld fyrirtækisins. Undir þessum fjármagnskostnaði stendur enginn, hvorki einstakling- ur eða fyrirtæki. Oft hefur mér fundist jarðsamband hagspekinga þjóðarinnar lítið, en nú virðist það gjörsamlega hafa rofnað. Þeir, sem hafa lagt í fjárfestingar, skynsam- legar eða óskynsamlegar, eru komnir í óeiginlegt skuldafangelsi, eða standa frammi fyrir gjaldþroti. Og þegar fyrirtækin í undirstöðuat- vinnugreinunum nálgast gjald- þrotastigið styttist í þjóðargjald- þrot. Áhrif hárra vaxta Ég hef lengi verið þeirrar skoð- unar, að háir vextir hljóti að hafa mjög verðbólguhvetjandi áhrif. Þetta hefur komið glögglega í Ijós á undanfömum missemm. Fram- kvæmdagleði verslunar og þjón- ustugreina hefur aukist gífurlega, og til að greiða hann hafa fjármun- ir verið sóttir í verð vöm og þjón- ustu, sem hefur hækkað látlaust. Arni Gunnarsson „Ef núverandi ríkis- stjórn tekur ekki af festu á þessari óheilla- þróun mun hún á næst- unni kalla yfir sig enn meiri reiði og andúð en þegar er fyrir hendi í þjóðfélaginu. Égtel, að óbreytt þróun fjár- magnsmarkaðarins geti orðið banabiti stjórnarinnar. “ Um leið hækkar framfærsluvísitala og þrýstingur á launahækkanir eykst. Sama gildir auðvitað um undirstöðuatvinnugreinar, eins og sjávarútveg og fiskvinnslu. Aukinn fjármagnskostnaður í þeim greinum veldur látlausum og hávæmm kröf- um um hækkað fiskverð og gengis- fellingar. Mín niðurstaða er því einfaldlega sú, að þeir menn, sem halda fram gagnsemi hárra vaxta ofan á ríflega reiknaða lánskjaravísitölu, séu um leið helstu boðberar óútskýranlegr- ar stefnu um háa verðbólgu og togi verðbólgustigið stöðugt uppá við. Lánskjaravísitalan Ég hef ávallt verið hlynntir því, og barðist raunar fyrir verðtrygg- ingu fjárskuldbindinga. Að undan- fömu hefi ég þó hallast æ meira að því, að fjármagn eigi að tryggja með vöxtunum einum. Margir hag- fróðir menn telja, að eðlilegt hefði verið að draga úr eða fella alveg niður lánskjaravísitölu, þegar vextir vom gefnir fijálsir. Við núverandi aðstæður valdi lánskjaravísitalan því, að ríkisvaldið geti aldrei með góðu móti náð tökum á peninga- markaði vegna stífrar mælingar lánskjaravísitölu á verðmæti fjár- magnsins. Þetta kann að vera rétt. En það er öllu lakara, að láns- kjaravísitalan mælir ekki lengur rétt. Inn í útreikningsgrundvöll hennar hefur verið tekinn hús- næðiskostnaður og þar með fjár- magnskostnaður að hluta, sem jafn- gildir því, að lánskjaravísitalan er farin að mæla eigin áhrif; hún er farin að lifa sjálfstæðu lífi, mælir sjálfa sig. Henni má líkja við hita- stilli á ofni, sem hækkar hitastigið í stofunni miðað við mesta hita hveiju sinni. Fjármagnstilfærslan Ein alvarlegasta afleiðing þeirrar peningastefnu, sem fylgt hefur ver- ið að undanförnu, er fjármagnstil- færsla í þjóðfélaginu. Hún hefur verið meiri á allra sfðustu ámm en dæmi em til í samanlagðri íslands- sögunni, nema ef vera skyldi á dög- um einokunarverslunarinnar. — Skipan lekt- orsstöðunnar eftir Benjamín H.J. Eiríksson Dr. Hannes Hólmsteinn Giss- urarson hefir verið skipaður í stöðu lektors í stjómmálafræðum við Háskólann, til að kenna byijendum segja fjölmiðlamir, og það haft eft- ir auglýsingunni um starfið. Það virtist strax sjálfgefíð að dr. Hann- es fengi stöðuna, þar sem hann var eini umsækjandinn sem hafði dokt- orspróf í stjómmálafræði, og það frá einum af frægustu háskólum heims, Oxford. En fjölmiðlamir segja frá öðm. Dómnefnd sem skip- uð hafði verið til þess að fjalla um hæfni umsækjenda, hafði dæmt dr. Hannes óhæfan, en tvo aðra hæfa, hvomgan með doktorspróf í grein- inni. Og meira en það. Á fundi í félagsvísindadeild hafði dr. Hannes ekki fengið eitt einasta atkvæði. Ég hefí engin fmmgögn séð í þessu máli, en fjölmiðlar hafa greint frá ýmsu. Og þótt fátt eitt hafí verið birt, fyrr en nú rétt í þessu greinargerð menntamálaráðuneyt- isins, þykist ég sjá kyndugan mála- tilbúnað. Hann virðist miðast beinlínis við það að kennaraliðið komi „sínum" manni að, hvað svo sem lærdómi og vísindamennsku líður. Hann skal inn. Hvemig? Fyrst: Auglýst er að kenna eigi byijendum. Næst: Dómnefnd. Hún er ein- göngu á vegum Háskólans, sem í reynd þýðir háskólakennaranna. í fjögTirra manna dómnefnd sátu tveir prófessorar í lögfræði. Þeir tóku að sér að dæma í annarri grein, sijómmálafræði. Þriðja: Álit dómnefndar. Þegar þangað er komið máli, þá er aðalat- riðið orðið sérsvið. í auglýsingunni höfðu verið talin upp þijú sérsvið. Sérsvið? Átti ekki að kenna byijend- um? Byijendur með sérsvið? Þegar menn hafa numið undir- stöðuatriði einhverrar fræðigreinar nógu vel þá taka sérsviðin við. Sér- svið eru ekki fyrir byijendur. Hér skín því í refskák háskólakennar- anna, sem troða vilja sínum manni í lektorsstöðuna. Með talinu um sérsvið er augljóslega verið að leita að vígstöðu gegn dr. Hannesi. Talið um sérsvið er því fyrst og fremst orðaþoka fræðimanna sem villa vilja um fyrir almenningi um það sem þeir eru að bralla. Mér fínnst málið allt skammar- legt. Háskólinn hefír orðið sér til skammar og ég skammast mín fyr- ir Háskólann. Hann kemur mér fyr- ir sjónir sem einangrað gróðurhús með mikla innirækt, en sumar plöntumar hafa misst æskuljóm- ann. Kjörorðið virðist vera: Ég treð þér og þínu, þú treður mér og mínu. Stöðuveiting ráðherra hefír sem betur fer komið í veg fyrir að hneykslið við undirbúning hennar yrði Háskóla íslands til meiri minnkunar en þegar er orðið. Dr. Hannes nýtur álits og virð- ingar heimsfrægra manna í grein hans. Nýlega var ákveðið að birta í heild ritverk dr. Hayeks í 24 bind- um og verður dr. Hannes einn af aðstoðarritstjórunum. Kennarar hans gefa honum loflegan vitnis- burð og eindregin meðmæli. Eins og ég sagði þegar í upphafí þá hefði það átt að vera sjálfgefið að dr. Hannes fengi stöðuna. Hann er sá eini sem lokið hefur doktorsprófí Hannes H. Gissurarson „Þegar menn hafa numið undirstöðuatriði einhverrar fræðigrein- ar nógu vel þá taka sér- sviðin við. Sérsvið eru ekki fyrir byrjendur. Hér skín því í refskák háskólakennaranna, sem troða vilja sínum manni í lektorsstöðuna. Með talinu um sérsvið er aug-ljóslega verið að leita að vígstöðu gegn dr. Hannesi.“ í greininni, svo langt hefír enginn hinna náð. Þeir hafa í hæsta lagi tæmar þar sem dr. Hannes hefir hælana. Þessi samanburður á nátt- úrlega ekki við um þann umsækj- andann sem hefír doktorspróf í annarri grein. En það hefir gustað um dr. Hannes. Hann er á öndverð- um meiði við kennara við Háskólann í ýmsum málum, ekki sízt í stjóm- málum og hugmyndafræðilegum efnum. Hann hefir óspart púað á pótemkintjöld kommúnismans sem nú er reynt að styðja við hér á landi með því að mála þau í litum svokall- aðrar félagshyggju, tjalda sem þessa dagana falla sem örast til jarðar í Moskvu. Maður gæti næst- um freistast til að trúa því að dr. Hannes eigi ekki svo fáa lærisveina og aðdáendur í Moskvu eins og nú er komið málum, því að markaðs- hyggjan sem hann boðar á þar orð- ið mjög áhrifamikla talsmenn. Hann hefír bakað sér óvinsældir með því að ýta óþyrmilega við svefngengl- um sem horft hafa stjarfir á þessi tjöld úr íjarska. við Háskólann eru ekki svo fáir sem teygað hafa hinn görótta drykk marxismans ómælt. í útvarpsviðtali sagði Þórólfur Þórlindsson, forseti félagsvísinda- deildar, að dr. Hannes hefði ekki birt eina einustu grein í fagtíma- riti. En ég er þeirrar skoðunar að doktorsritgerð hans jafngildi nokkr- um tímaritsgreinum, en hún hefír komið út á ensku, og sagt hefír verið frá henni í blöðunum. Auk þess hefír hann skrifað fjölda blaða- greina, sem sumar hafa verið mjög fræðilegar um efni og meðferð. Dr. Hannes hefír óvenju skýran mál- flutning, sama um hvaða efni hann fjallar. Fyrir byijendur er það mjög þýðingarmikið að þeir skuli fá svona skýran kennara. Það á að vera aðal sérhvers há- skóla sem hefír einhveija sjálfsvirð- ingu, að hæna til sín þá menn sem líklegastir eru til þess að færa út landamæri þekkingarinnar. Sagan sýnir að sumir þessara manna hafa bakað sér óvinsældir, oft magnaðar óvinsældir, jafnvel verið teknir af lífi. Það hefír því ekki alltaf verið auðvelt að sætta sig við þá, þeirra skoðanir og framferði, né að greiða götu þeirra. En menn lærdóms og vísinda þekkja þennan vanda, eða eiga að gera það, og eiga því að kunna þá iist betur en aðrir að láta ekki persónuleg viðhorf og skoðan- ir, jafnvel hleypidóma, hlaupa með sig í gönur, eins og þeir hafa gert í þessu máli. Háskólar í Evrópu og Ameríku hafa meðtekið þessa erfíðu lexíu á langri og oft litríkri ævi. Ég ætla að nefna eitt lítið dæmi sem ég kynntist í Svíþjóð. Landflótta þýzk- ur gyðingur sigraði keppinautana og fékk prófessorsembætti í bama- sálfræði eða uppeldisfræði. Hann kann ekki stakt orð í sænsku, sögðu gagnrýnendurnir. Á þetta var ekki hlustað. Utlendingurinn var um- sækjendanna fremstur um lærdóm og vísindi. Það eitt skipti máli. Þá má og minna á fólk eins og Thor- stein Veblen, Angelu Davis og Her- bert Marcuse, sem allt hefír fengið inni við ameríska háskóla, þrátt fyrir takmarkaðar vinsældir þess. Yfírburðir dr. Hannesar í mennt- un og hæfni koma ekki nógu greini- lega fram í þessu máli, nema helzt í áliti menntamálaráðuneytisins. Hann ætti ekki að vera að sækja um lektorsstöðu heldur prófessors- stöðu, væri hún tiltæk. Hún væri honum meira samboðin sökum hinnar góðu undirstöðumenntunar, sem er heimspekin. Félagsvísindadeildin ætti að vera yfír það hafín að geta ekki lært af þessu máli og fagnað komu dr. Hannesar. Koma hans opnar nem- endum víðari sjóndeildarhring. Hún verður þeim og Háskóla íslands til góðs. Höfundur hefur stundað nám við háskála í Berlín, Stokkhólmi, Upp- sölum, Moskvu, Minneapólis, Seattle og Cambridge, Mass. (Har- vard). Hann hefir tekið kandidats- prófí slavneskum málum ogbók- menntum og doktorspróf íhag- fræði. Var um tíma formaður í nefnd til endurskoðunar laga um Háskóla íslands, sem meáal ann- ars lagði tii að stofnuð yrðu lekt- orsembætti við háskólann. Þá hef- ur höfundur verið bankastjóri og efnahagsráðunautur ríkisstjórna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.