Morgunblaðið - 06.07.1988, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 1988
37
Polisario beijast enn í eyðimörk-
inni og hvorugur lætur af sínu.
Marokkómenn hafa reynt að rétt-
læta sig með því að veija miklum
peningum í uppbyggingu helstu
bæja og borga í Vestur-Sahara.
Þeir sem hafa farið um svæðið
og komið meðal annars til E1
Ayoun segjast hafa veitt því at-
hygli að bæimir líkist í ýmsu þorp-
•um á hernámssvæði Israela á
Vesturbakkanum. Eins og áður
var vikið að er ekki vitað, hversu
margir Sahrawar búa á þessu
svæði, en þeir eru nokkur hundmð
þúsund. Síðustu ár hafa Marokkó-
menn flutt þangað í auknum
mæli. Embættismenn Marokkó á
þessum stöðum segja að þeir hafi
unnið hug og hjörtu þeirra Sa-
hrawa sem urðu um kyrrt. Hins
vegar era þeir ekki jafn fjálgir
að tjá sig um ásakanir um mann-
réttindabrot á Sahrövum á hemá-
sé búið að leggja svo mikið í
stríðið, að ógemingur sé fyrir
stjómvöld að hopa nú eða setjast
að samningaborði. Hassan viti
einnig, að uppgjöf kynni að kosta
hann völdin.
Stríðið hefur líka valdið djúp-
stæðri sundrangu milli Afríku-
þjóðanna. Þessi djúpstæði ágrein-
ingur hafi líka veikt heildarmynd
Afríku út á við og gert öll sam-
skipti flóknari. Benda má á, að
eftir langvinnar deilur lýstu Ein-
ingarsamtök Afríkuríkja yfir
stuðningi við Sahrawa og veittu
því inngöngu í samtökin. Marok-
kómenn sögðu sig samstundis úr
þeim. Á hinn bóginn hefur Araba-
bandalagið og Flóaríkin alltaf
staðið með Marokkó.
í þau tólf ár sem stríðið hefur
geisað — með nokkram hvfldum
þó — hafa ótal tilraunir verið gerð-
ar til að leiða málið til lykta. Ein-
Útsýni inn í einskis manns land.
mssvæðunum. Amnesty-samtökin
hafa hvað eftir annað sent frá sér
skýrslur, þar sem segir að fjöldi
manns hafí horfið sporlaust og
aðrir verið pyndaðir vegna stjórn-
málaskoðana. Marokkómenn láta
ásakanir af þessu tagi sem vind
um eyra þjóta.
Yfirvöld í Marokkó hafa reist
mikinn og voldugan múr, úr sandi
og klettum um miðbik Vestur-
Sahara. Við múrinn hefur alls
konar rafeindabúnaði verið komið
fyrir til að geta betur fylgst með
mannaferðum og haldið uppi
öflugri gæslu. Bandaríkjamenn,
Frakkar og ýmis Flóaríki hafa
veitt Marokkómönnum fjárhags-
og hemaðaraðstoð í stríðinu við
Polisario. Aftur á móti studdu
Líbíumenn Polisario með því að
senda þeim vopn fyrstu stríðsárin
en hættu því eftir að hafa samið
frið við Marokkó fyrir fjórum
áram. Meginstuðningurinn við
Polisario kemur frá Alsír og því
er eðlilegt að Sahrawar séu nú
nokkuð uggandi um framtíð sína
eftir að stjómmálasambandi var
komið á að nýju milli Alsírs og
Marokkó.
Polisario-menn vita að Marok-
kómegin múrsins era 150 þúsund
marokkanskir hermenn gráir fyrir
járnum. Þeir vita að óhugsandi
er að frelsishreyfingin vinni stríðið
með vopnum. En þeir benda á,
að Marokkómenn geti ekki sigrað
heldur. Fyrir því séu tvær meginá-
stæður. I fyrsta lagi hafi fólk víðs
vegar um heiminn sannfærst um
að Polisario hafi rétt til landsins.
Bent er einnig á að 71 ríki viður-
kenni Lýðveldi Sahrawa og erfitt
sé að leiða það hjá sér. En það
sem vegi þó þyngra á metunum
sé, að stríðið hefur orðið til þess
að efnahagur Marokkó er nánast
í kaldakoli og gert að verkum að
Hassan Marokkókonungur verði
háðari efnahagsaðstoð frá erlend-
um ríkjum en eðlilegt sé fyrir full-
valda ríki. Afleiðingar þessa geti
orðið hinar alvarlegustu. Marokkó
ingarsamtök Afríkuríkja sam-
þykktu ályktun árið 1981 þar sem
það krafðist beinna samningavið-
ræðna deiluaðila og komið yrði á
tafarlausu vopnahléi og þjóðarat-
kvæðagreiðsla yrði látin fara
fram. Sameinuðu þjóðirnar hafa
reynt að beita sér. En það hefur
endan árangur borið. Marokkó,
Alsír og Polisario samþykktu fyrir
sitt leyti árið 1981 að þjóðarat-
kvæðagreiðsla skuli fara fram.
En síðan hefur ekki verið hægt
að ná samkomulagi um, hveijir
hafi rétt til að greiða atkvæði í
slíkri þjóðaratkvæðagreiðslu, né
heldur hefur náðst samstaða um,
hveijir ættu að hafa eftirlit með
henni.
Marokkómenn standa og fast á
því að þeir ræði ekki milliliðalaust
við fulltrúa Polisario, og þær við-
ræður sem hafa farið fram undir
handleiðslu Sameinuðu þjóðanna
hafa nær alltaf allt siglt í strand
vegna ósveigjanleika Marokkó-
manna, að sögn sérfræðinga.
Raunar má segja að yfírlýsing
Hassans konungs um málið fyrir
nokkram áram lýsi vel afstöðu
hans: „Það myndi aldrei hvarfla
að okkur að láta okkar elskuðu
Sahara í hendur harðsoðinna
málaliðabófa."
Sahrawar halda baráttunni
áfram og þeir segja að einhvem
tíma hljóti að koma að því að þjóð-
ir heims taki af skarið og neyði
Marokkómenn til að veita þeim
sjálfstæði og skili aftur þeim hluta
sem þeir hersitja nú. En það er
ekki nokkur skapaður hlutur sem
bendir til að sú tíð sé í nánd. Og
meðan stríðið er ekki nógu smart
til að vekja þá athygli fjölmiðla
sem gæti skipt sköpum, á hluti
Sahrawa-þjóðarinnar ekkert land,
dijúgur hluti býr við hernám og
stríðið hefur verið daglegt líf þús-
unda í tólf ár. Og flestum öðram
er eiginlega nokk sama.
Snúið og sneitt:
Jóhanna Kristjónsdóttir
EINFALT MÁL
eftirHannes
Jónsson
Prófessor Sigurður Líndal reynir
enn í Mbl. 24. júní að túlka höfunda-
lögin útgefendum í hag og þrengja
rétt höfunda til að ráðstafa verkum
sínum til birtingar. í þessu tossa-
þrasi sínu ásakar hann mig um
skilningsleysi á einföldum stað-
reyndum varðandi frumreglur laga
og dóserar síðan dijúglega um höf-
undalögin eins og hann einn viti.
Að vísu ber að fagna því, að laga-
prófessorinn sýnir nokkra framför
við umfjöllun um málið nú miðað
við grein hans frá 8. júní. Nú era
horfin úr textanum hin upphaflegu
svikabrigsl þeirra Skírnismanna og
ásökun Sigurðar um að ég hafi
brotið höfundalög með birtingu
tveggja mislangra greina í Skírni,
sem kom út um mánaðamótin
apríl/maí og Mbl. 11 maí.
Hins vegar heldur lagaprófessor-
inn enn fast í þá ranghugmynd sína,
að þessar tvær mismunandi og mis-
löngu greinar um sama efni séu
sami hluturinn, sem hafi verið
tvíseldur, þótt kaup, sala og
greiðsla hafí ekki átt sér stað. Síðan
Hannes Jónsson
dóserar hann nokkuð um það, að
utgáfusamningur verði til, þótt
óformlegur sé, þegar höfundur
sendi tímariti grein, sem það birti.
Því hafí ég ekki haft rétt til þess
að taka saman styttri „digest“-
grein til birtingar í Mbl. 11. maí.
Það hefur áður komið fram í
þessari umræðu (Mbl. 27.5.), að
ritstjóra Skímis var fyrir birtingu
Skírnisgreinarinnar hunnugt um,
að ég ætlaði að birta aðra styttri
grein um sama mál í öðru riti. Einn-
ig vissi hannt að ég vinn að bók,
sem m.a. fjallar um sama efni svo
ég hef ekki samþykkt neinar út-
gáfutakmarkanir. Áð setja einhliða
og eftir á birtingarskilyrði í ósam-
ræmi við þessa vitneskju er ekki
bara ósmekklegt heldur bæði frekja
og rangindi, sem hvorki er hægt
að réttlæta með almennun réttar-
reglum né heldur ákvæðum höf-
undalaga.
Ef slík skilyrði hefðu verið sett
við móttöku handrits þá hefði ég
ekki veitt Skírni heimild til að birta
ritgerðina. „Svo einfalt er málið“
svo ég noti orðalag lagaprófessors-
ins og láti þar með útrætt um þetta
ósmekklega og tilefnislausa upp-
hlaup þeirra Skímismanna.
Höfundur er sendiherra.
Úrval l.fiokks notaöra bíla í okkar eigu. Allir skoöaöir og yfirfarnir.
Sýnishorn úr söluskrá:
MAZDA 323 1.3
Árg. ’85. Brúnn. Ek. 39 þ/km.
MAZDA 323 1.3
Arg. '82. Grœnn. Ek. 60 þ/km.
MAZDA 323 1.3
Árg. '83. Vínrauður. Ek. 54 þ/km.
MAZDA 020 LTD
Arg. *84. Hvítur. Ek. 63 þ/km.
MAZDA 020 2.0 OLX
Arg. '86. Hvítur. Ek. 48 þ/km.
MAZDA 020 2.0 LX
Árg. '84. Brúnsans. Ek. 48 þ/km.
MAZDA 020 HARDTOP
Arg. '83. Laxablelkur. Ek. 67 þ/km.
VOLVO 300
Árg. '86. Grár. Ek. 41 þ/km.
MAZDA 323 1,3 LX
Arg. '87. Blósans. Ek. 18 þ/km.
FORD FIE8TA
Arg. '84. Blágrár. Ek. 57 þ/km.
SAAB OOO
Arg. '83. Grér. Ek. 74 þ/km.
LANCIA PRI8MA
Arg. '86. Grór. Ek. 34 þ/km.
LAIMCIA THBMA
Arg. '87. Blár. Ek. 14 þ/km.
TOYOTA COROLLA
Arg. 88. Hvítur. Nýr. óekinn.
Munið okkar
hagstæðu
verö og
greiöslukjör!
MMC COLT TURBO
Arg. '84. Grér. Ek. 47 þ/km.
FORD ESCORT
Arg. '86. Beige. Ek. 27 þ/km.
FIAT UNO 46
Arg. '85. Brunn. Ek. 25 þ/km.
LADA 1200
Arg. '87. Rauður. Ek. 14 þ/km.
8UBARU E-10 4X4
Arg. '87. Blér. Ek. 57 þ/km.
NI88AN PULSAR
Arg. '86. Hvítur. Ek. 32 þ/km.
MAZDA 020
Arg. '84. Hvftur. Ek. 72 þ/km.
MAZDA 323 1.3
Árg. '82. Brúnsans. Ek. 91 þ/km.
MAZDA 323 1.8
Árg. '84. Vínrauöur. Ek. 67 þ/km.
MAZDA 323 1.3
Arg. '83. Gullsans. Ek. 71 þ/km.
HONDA ACCORD
Arg. '82. Brúnsans. Ek. 101 þ/km.
MAZDA 323
Arg. '81. Grœnsans. Ek. 76 þ/km.
BMW 7201
Arg. '85. grér. Ek. 70 þ/km.
LANCIA 8KUTLA
Arg. '86. Brúnn. Ek. 34 þ/km.
MAZDA 323 1.3
Arg. '84. Blár. Ek. 53 þ/km.
MAZDA 323 1.8 OLX STATION
Arg. '87. Hvítur. Ek. 8 þ/km.
MAZDA 323 TURBO
Árg. '87. Hvítur. Ek. 12 þ/km.
Fjöldi annarra bíla
á staðnum.
Opið laugardaga
frá kl. 1—5
BÍLABORG H.F.
FOSSHÁLS11 ,SÍMI 68 12 99
Ferdatryggingar