Morgunblaðið - 06.07.1988, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 1988
41
Amalíal Knutsen skipstjóri á Norrönu og Jónas Hallgrímsson fram-
kvæmdastjóri Austfars.
illið fyrir ferðamenn og aðra þannig
að það er hægt að segja að hér sé
margt og margvísleg þjónusta við
ferðamenn sem hefur verið að þróast
undanfarin ár. Og það er merkilegt
við þessa þróun að það eru í öllum
tilfellum einstaklingar og félagasam-
tök sem að þessari ferðamannaþjón-
ustu standa, ríki og bæjarfélag eru
ekki í neinum beinum rekstri tengd-
um henni. Fréttaritari Morgunblaðs-
ins hafði samband við nokkra þess-
ara aðila og spurðist fyrir um gang
mála varðandi sumarvertíðina í til-
efni af því að Norröna er bytjuð að
sigla þetta sumarið og Seyðfirðingar
miða ferðamannatímabilið við fyrstu
og síðustu ferð hennar til bæjarins.
Þóra Guðmundsdóttir eigandi og for-
stöðumaður farfuglaheimilins varð
fyrst fyrir svörum og sagði: „Það er
mjög mikið um bókanir hjá mér, tölu-
vert meira en á sama tíma og í fyrra
og það er meira um hópa sem dvelja
í lengri tíma. Til dæmis voru hjá
mér danskir skólakrakkar í skóla-
ferðalagi sem voru hér í viku og ferð-
uðust um Austurland en höfðu aðalb-
ækistöð hér. Og ég á von á fleiri
hópum í sumar sem dvelja lengur
en þessa einu feijunótt.“ Jónas
Hallgrímsson framkvæmdastjóri
Austfars hf. sagði að það væri um
7% meiri bókun farþega með Norr-
önu til og frá Seyðisfirði en á sama
tíma í fyrra og það væri fullbókað
yfir miðsumarið alveg fram í miðjan
ágúst. Aðspurður um hvernig rekstur
þessarar miklu ferðamannaþjónustu
og uppbyggingar mannvirkja gengi
hjá Austfari hf. sagði Jónas: „Það
kemur engin aðstoð frá ríki eða
Ferðamálaráði, þetta er allt á fok-
dýrum lánum. Á sama tíma er ríkið
að ausa peningum í Flugstöðina í
Keflavík beint af fjárlögum. Seyðis-
fjörður er líka staður þar sem ferða-
menn koma að landinu og því andlit
þjóðarinnar eins og Keflavík. Ferða-
málasjóður er hluthafi í hótelum út
á landi og það er einkennilegt að
meðan er verið að byggja upp að-
stöðu fyrir móttöku ferðamanna hér
á Seyðisfirði þá kemur siíkt ekki til
greina hér á Seyðisfirði af hálfu
sjóðsins," sagði Jónas. Sigrún Olafs-
dóttir og Valur Freyr Jonsson eig-
endur Hótels Snæfells sögðu að það
væri mikið um bókanir í sumar, svo
mikið að þau gætu ekki annað öllum
fyrirspurnum nú í júní, en þau væru
að bæta við gistirými hótelsins og
væri stefnt að því að taka það í notk-
un fljótlega, þá gætu þau tekið með
góðu móti við stórum hópum í gist-
ingu og mat. Þau sögðust vera bjart-
sýn á sumarið, það legðist bara vel
í þau, þótt þau væru nýlega búin að
festa kaup á þessu hóteli og hefðu
ekki verið áður á Seyðisfirði yfir
sumarmánuðina. Valur sagðist telja
að Seyðisfjörður ætti mikla framtíð
fyrir sér sem vaxandi ferðamanna-
staður. „Þetta er gamall og gróinn
bær og hefur ákveðinn sjarma yfir
sér,“ sagði Vaiur.
- Garðar Rúnar
Vegaframkvæmdir í Reykjanesumdæmi 1988:
Götulýsing við Vesturlands-
veg og lokið við Þingvallaveg
Vegaframkvæmdir í Reykjanesumdæmi árið 1988 hafa nú verið
ákveðnar. Meðal framkvæmda er götulýsing við Vesturlandsveg frá
Grafarholti að Lágafelli. Lokið verður við klæðingu á Þingvallavegi
og til rannsókna í Hvalfirði, vegna Vesturlandsvegar undir fjörðinn,
er veitt einni milljón króna. Hér á eftir birtist skrá yfir þær nýfram-
kvæmdir sem ráðist verður í á árinu og er staðsetning hvers verk-
hluta er sýnd á kortinu.
Vesturlandsvegur. Lýsing frá
Grafarholti að Lágafelli, 4,5 km, 8,0
millj. Gerð tveggja hringtorga og
undirgangs í Mosfellsbæ. Verkið
verður boðið út í júní, 11,0 millj.
Vesturlandsvegur. Til rannsókna
á Hvalfirði, 1,0 millj.
Vesturlandsvegur. Styrking og
lagning klæðningar á 3,4 km kafla
frá Laxá að Breiðumýri. Verktaki
er Fossverk og verður verkinu lokið
í júlí, 16,5 millj.
Vesturlandsvegur. Nýbygging á
4,2 km kafla frá Fossaá að Eyri.
Verkið verður boðið út í júlí og verk-
takinn lánar til 1989. Verki verður
lokið 1989.
Bessastaðavegur. Vegur heim að
Bessastöðum lýstur og plan við set-
rið steinlagt. Verkið verður boðið út
í júlí, 4,0 millj.
Álftanesvegur. Lokið er við að
tengja hringveg um Álftanes sem
malarveg, 6,0 millj.
Hafravatnsvegur. Breyting á
veginum við Teig og styrking á sam-
tals 1,0 km kafla. Verktaki er Loft-
orka og verður verki lokið í júlí, 8,5
millj.
Þingvallavegur. Lokið verður við
að leggja slitlag á Þingvallaveg, eða
á 3,1 km kafla, 22,5 millj.
Hafnarfjarðarvegur. I haust
verður boðin út eystri akbraut frá
Kópavogi suður fyrir Arnarneshæð,
þ.e.a.s. undirgöng við Fífuhvamms-
veg, brú á Kópavogslæk, umferðar-
brú á Arnarneshæð ásamt nýjum
vegi á fyrrnefndan kafla. Verkið
verður boðið út í haust og áætlað
er að Ijúka því 1990. í ár verða ramp-
ar breikkaðir, 14,0 millj.
Reykjanesbraut. 1 km kafli á
milli Hvammabrautar og Þúfubarðs
verður lýstur, 3,0 millj.
Reykjanesbraut. Gatnamót við
Lækjargötu verða stefnugreind og
umferðarljós verða sett upp. Verkið
verður boðið út í júní, 5,7 millj.
Reykjanesbraut. Klæðing verður
lögð á axlir á u.þ.b. 6 km vegark-
afla, 3,5 millj.
Reykjanesbraut. Lýstur verður
upp 1 km langur kafli á milli Hafna-
vegar og Grænáss, 2,0 millj.
Reykjanesbraut. Lagður verður
nýr vegur, 2 km langur, á milli Flug-
stöðvarvegar og Víknavegar á Mið-
nesheiði. Verkið verður boðið út í
haust, 1,0 millj.
Meðalfellsvegur. Byggðar verða
brýr á Bugðu og Svínafellsá. Lagður
verður vegur að brúnum. Vegarlagn-
ingin verður boðin út í haust, 12,0
millj.
Bláfjallavegur. Lögð verður
klæðing á 3,5 km langan kafla frá
Krýsuvík að Undirhlíðum. Verkið
verður boðið út fyrstu viku í júní.
Viðhaldsverk.
Uxahryggjavegur. 1,3 km langur
kafli að Bolabás verður styrktur og
lagður klæðingu. Verkið verður boð-
ið út fyrstu viku í júní. Viðhaldsverk.
REYKJANES
VEGAÁÆTL UN, 1988
AKVEGIR þeir sem hér eru sýndir eru einungis
númeraðirvegir, hringvegurinn, tveggja og þriggja
töiu vegirsvo og fjallvegir með F-númerum.
Fossá-Eyri
4,2 km
Sandgcrói
Flugstöðvarvegur
-Viknavegur
1,0 m.kr.
Samband ungra
f ramsóknarmanna:
Skorað á ríkis-
sljórnina að
segja af sér
Á miðsjórnarfundi SUF,
Sambands ungra framsóknar-
manna, sem haldinn var á föstu-
dag, var samþykkt ályktun þar
sem skorað er á ríkisstjórnina að
segja af sér.
í ályktun SUF segir að ungir fram-
sóknarmenn hafi misst trúna á ríkis-
stjórnina enda hafi efnahagsstjórn
Þorsteins Pálssonar forsætisráðherra
verið fálmkennd og ómarkviss. Höf-
uðástæða fyrir þátttöku Framsókn-
arflokksins í stjórnarsamstarfinu
hafi verið trú á að markmið ríkis-
stjórnarinnar næðust, þ.e. hjaðnandi
verðbólga, traustur rekstrargrund-
völlur atvinnuveganna um land allt
og jöfnuður í viðskiptum við útlönd.
Hins vegar hafí komið í ljós að grund-
vallar munur er á viðhorfum stjórnar-
flokkanna til nauðsynlegra aðgerða,
segir í ályktuninni.
Sjálfstæðisflokkurinn heldur hlífi-
skildi yfír fjármagnseigendum og
verðbréfabröskurum, segir í ályktun
SUF, auk þess sem skattsvikarar
leiki enn lausum hala þrátt fyrir
hástemmdar yfírlýsingar Jóns Bald-
vins Hannibalssonar um að nú skuli
á þeim tekið.
Með áframhaldandi óstjórn í efna-
hagsmálum muni vofa yfir gjaldþrot
margra fyrirtækja, atvinnuleysi og
meiri misskipting í tekjum og eignum
en áður hefur þekkst hér á landi.
Framsóknarflokkurinn getur því ekki
tekið þátt í ríkisstjórnarsamstarfi
sem leiðir til slíkrar þjóðfélagsþróun-
ar, enda í engu samræmi við þau
markmið sem ríkisstjórnin setti sér
í upphafí, segir í ályktun Sambands
ungra framsóknarmanna.
Kæliskápar fyrir minni
heimili frá
Blomberq
Meira en 20 gerðir
Verð við allra hæfi
Einar Farestveit&Co.hf.
■OMOANTUM M, SlMANi (•«) 1MM OO UHM - NAO MlLAtTiMW
Leiö 4 stoppar við dymar
GARÐASTAL
Áratuga ending - margir litir
= HEÐINN =
STÓRÁSI 2, GARÐABÆ, SÍMI 52000
ummartilboðs
L JÓSMYND ABÚÐIN
IAUGAVEGI 118
VIO HIEMM
S 27744