Morgunblaðið - 06.07.1988, Page 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 1988
fólk í
fréttum
HOLLYWOOD
Frægð og fegurð
Hvernig fara frægar leikkonur
eins og Linda Evans, Farrah
Fawcett og Elisabet Taylor að því
að halda sér jafn unglegum og fal-
legum ár eftir ár? Þetta er leyndar-
mál sem margir vildu vita og nú
hafa stjömumar tjáð sig um málið?
Linda Evans segir: „Eftir því sem
konur eldast meira, ættu þær að
nota minna af andlitsfarða því að
þá virðast þær yfirleitt vera ung-
legri. Mikil andlitsmálning sem
verður að klessu í andlitinu á
manni, gerir hrukkurnar aðeins
meira áberandi.
Einnig er gott að stunda inn-
hverfa íhugun a.m.k. einu sinni á
dag. Það dregur úr spennu og slétt-
ir um leið úr þreytuhrukkum."
Farrah Fawcett segir: „Hörund
mitt er þurrt svo að ég ber krem á
það bæði kvölds og morgna. Þegar
ég þvæ mér í framan nota ég mjúk-
an bursta til að ná burt dauðum
COSPER
COSPER
©PIB
Gerðu eitthvað til að hræða mig, svo ég losni við hiks-
tann.
húðfrumum og ég fer aldrei út í
sólskin án þess að nota sólaráburð.
Andlitsfarða nota ég alls ekki nema
þegar ég er í vinnunni.
Eg tannbursta mig tvisvar á dag
og nota einnig tannþráð í bæði
skiptin."
Elisabet Taylor segir: „Mínar
aðferðir eru einfaldar. Eg þvæ mér
í framan með sápu og vatni og
nota góðan húðáburð á hendumar,
andlitið og allan líkamann. Ég forð-
ast þó að nota sterka sápu við and-
litsþvott.
Julie Andrews segir: „Sem betur
fer erfði ég enskan litarhátt móður
minnar. Ég kem í veg fyrir bólur
og önnur óhreinindi með því að þvo
mér rækilega í framan á hveijum
degi og svo er gott að drekka mik-
ið af tæru vatni.
Jaclyn Smith segir: „Ég ber and-
litskrem á mig á hveijum morgni
og fer síðan í steypibað og ber
meira krem á mig á meðan ég stend
undir sturtunni og læt vatnið fossa
í andlitið á mér. Eftir baðið þvæ
ég mér í framan með andlitsvatni.
Þegar þessu er lokið, líður mér sérs-
taklega vel og húðin er mjúk og
hrein.
Ég fer oft í hárgreiðslu og hárið
þurrkast upp við það. Til að halda
hárinu fallegu nota ég hárnæringu
eftir hvern einasta þvott. Síðan set
ég djúpnæringu í hárið einu sinni
í viku og nota aldrei sömu tegund
af hámæringu og ég hef notað
daginn áður.“
Þetta eru aðferðir sem þessar
frægu og fallegu konur nota og
líklega em þetta allt holl og góð ráð.
ENGLAND
Tilhugalíf
Hvað á ég nú að segja? gæti Jói górilla verið að hugsa. Hann er í þann veginn að rétta Biddy vinkonu
sinni blómvönd en er dálítið vandræðalegur. Jói er nú orðinn 24 ára svo að það em síðustu forvöð
fyrir hann að festa ráð sitt. Biddy vinkona hans er 14 ára og Jóa finnst hún rosalega sæt. Jói og Biddy em
bæði górilluapar og búa í Twycross-dýragarðinum í Englandi.