Morgunblaðið - 09.08.1988, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1988
■ ■■ ■ ....................................
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Borpallur hefur verið staðsettur fyrir utan höfnina í Sandgerði í sumar en frá honum hefur verið unnið við að sprengja úr innsigl-
ingunni.
Sandgerði:
Sprengt úr innsiglingunni
Keflavík.
Dýpkunarframkvæmdir
hafa staðið yfir við innsigling-
una til Sandgerðis í sumar.
Við verkið er notaður borpall-
ur og er unnið við að sprengja
úr innsiglingarennunni frá
pallinum.
Stefán Jón Bjamason sveitar-
stjóri sagði í samtali við Morgun-
blaðið að unnið yrði fyrir 27,5
milljónir króna í sumar og væri
það um 10% af heildarverkinu.
Framkvæmdir hefðu gengið
ágætlega og yrði þessum hluta
væntanlega lokið um miðjan
ágúst.
Ýmsar framkvæmdir hafa ver-
ið í gangi í Sandgerði í sumar
og sagði Stefán Jón Rjamason
þær helstu vera viðbyggingu við
skólann, malbikun gatna og
klæðning á íþróttahúsið — og
væri kostnaður við þessar fram-
kvæmdir áætlaður um 10 millj-
ónir króna. Auk þess ætti að
koma fyrir dælubúnaði hjá
vatnsveitunni í haust og væri
markmiðið að freista þess að ná
upp hærri vatnsþrýstingi, en lág-
ur vatnsþrýstingur á kaldavatn-
skerfinu hefði verið vandamál í
Sandgerði. - BB
Forsvarsmenn banka um samkomulagið um sölu spariskírteina:
Leiðir væntanlega til um
0,5% lækkunar raunvaxta
SAMKOMULAG fjármálaráðherra við banka, sparisjóði og verð-
bréfafyrirtæki um sölu á spariskírteinum ríkissjóðs mun væntan-
lega leiða til um hálfs prósentustigs Iækkunar raunvaxta ef eng-
inn stór aðili skerst úr leik að mati þeirra bankamanna sem Morg-
unblaðið ræddi við. Eins og fram hefur komið ætla peningastofnan-
irnar að ábyrgjast sölu á spariskírteinum fyrir um 3 milljarða
króna og á það að standa undir mestallri innlendri lánsfjárþörf
ríkissjóðs.
Landakotsspítali:
Veigamiklar
breytingar
* ••
- segir Olafur Orn Arn-
arson yf irlæknir um
orðalagsbreytingarnar
Fjármálaráðherra og heil-
brigðisráðherra hafa gert orða-
lagsbreytingar á samkomulagi
sínu um aðgerðir til lausnar
rekstrarvanda Landakotsspítala.
Sú breyting er helst, að sögn
Guðmundar Bjarnasonar heil-
brigðisráðherra, að eftirlits-
stjórnin, sem hafa átti umsjón
með framkvæmd tillagna ráð-
herranna, hefur fengið nýtt heiti
og kallast nú samstarfsnefnd.
Fulltrúaráð Landakotsspítala
fundaði um þessar breytingar í
gær og að sögn Ólafs Arnar
Arnarsonar, yfirlæknis spítalans,
var almennt tekið jákvætt í þær.
Segjast Landakotsmenn nú bjart-
sýnir á samkomulag í deilunni
um rekstur spítalans, en endan-
legt svar við tillögum ráðherr-
anna munu þeir gefa á miðviku-
dag að loknum öðrum fulltrúa-
ráðsfundi.
Breytingar hafa einnig verið
gerðar á öðrum liðum samkomu-
lagsins, en heilbrigðisráðherra segir
þær minniháttar. Þar mun meðal
annars vera um að ræða breytingu
á lið um greiðslur til ráðgefandi
sérfræðingar. Hvorki heilbrigðis-
ráðherra né Landakotsmenn vildu
tjá sig nánar um þessar breytingar
að svo stöddu.
„Það er auðvitað allur annar og
jákvæðari andi í því að tala um
samstarfsnefnd undir forystu heil-
brigðisráðuneytis en einhveija eftir-
litsstjóm,“ sagði Ólafur Öm. „Við
teljum þetta veigamiklar breytingar
og góðar líkur á samkomulagi."
„Landakotsmenn lögðu áherslu á
að kalla þetta ekki eftirlitsstjóm
og töldu það brot á stofnsamningi
spítalans að setja nýja stjóm yfír
hann,“ sagði Guðmundur Bjamason
heilbrigðisráðherra. „Við köllum
þetta þess vegna samstarfsnefnd,
enda hef ég alltaf lagt þann skiln-
ing í rnálið."
Skákmótið í Gausdal:
Margeir
í 3. sæti
Margeir Pétursson er nú í þriðja
sæti á skálunótinu í Gausdal,
hefur hlotið 6 vinninga eftir átta
umferðir. Níunda og síðasta
umferðina á mótinu verður tefld
í dag. Tómas Björnsson og Þröst-
ur Arnason hafa 4,5 vinninga en
Jón Garðar Viðarsson er með 4
vinninga.
Efstir á mótinu eftir átta um-
ferðir eru þeir Jansa frá Tékkósló-
vakíu og Mainka frá V-Þýskalandi
með 6,5 vinninga hvor.
Allt starfsfólk Kaupfélags Skaft-
fellinga verður, með samþykki þess,
ráðið til Kaupfélags Ámesinga án
uppsagnar. Kaupfélag Ámesinga
kaupir allar vörubirgðir Kaupfélags
Ólafur Öm Ingólfsson, fram-
kvæmdastjóri fjármálasviðs
Landsbankans, sagði að aðilar
samkomulagsins vonuðust til að
það gæti orðið til að lækka vexti
um að minnsta kosti hálft pró-
sentustig. „Menn byggja þessar
vonir meðal annars á því að þeir
telja að hluti af skýringunni á því
hversu háir vextir em sé hve
markaðurinn er ófullkominn,“
sagði Ólafur Öm. „Það ætti því
að vera reynandi að athuga hvort
Skaftfellinga og tekur á leigu fast-
eignir ásamt tilheyrandi tækjum og
áhöldum varðandi verslunarrekstur
eða aðra starfsemi.
Þessar aðgerðir kaupfélaganna
markaðurinn þolir ekki einhveija
lækkun vaxta ef skilvirkara sölu-
kerfí er komið upp.“
Ólafur taldi að til að þessar
aðgerðir bæm árangur væri brýnt
að enginn stór aðili skærist úr leik
og byði áfram háa vexti af banka-
bréfum. „Það kæmi þó aftur í
bakið á þeim sem það gerðu,"
sagði Ólafur Öm, „því að þeir
myndu þar af leiðandi selja minna
af spariskírteinum og þyrftu að
em áfangi að því marki að á Suður-
landi verði starfandi eitt sterkt
kaupfélag til þess að fást við versl-
unarþjónustu, að því er fram kemur
í fréttatilkynningu frá kaupfélögun-
um. í því sambandi vísa kaupfélags-
menn til góðrar reynslu og hag-
kvæmni Mjólkurbús Flóamanna og
Sláturfélags Suðurlands af stóm
félagssvæði.
— Sig.Jóns.
kaupa þau sjálfir. Það verður hver
banki að meta það fyrir sig hvað
hann gerir.“
Tryggvi Pálsson bankastjóri
Verslunarbankans sagðist telja að
hægt yrði að lækka vexti á banka-
bréfum og spariskírteinum vegna
þess að óeðilega lítill munur væri-
orðinn á vöxtum traustustu bréfa
á markaðinum og annarra bréfa.
„Bankabréf hafa undanfarið selst
með um 10 til 11 prósent raun-
vöxtum," sagði Tryggvi, „og vext-
ir á spariskírteinum verið litlu
lægri. Bréf fjármognunarleigufýr-
irtækja, skuldabréf einstakra fyr-
irtækja og bréf verðbréfasjóða
hafa borið hærri vexti, en þó hefur
mjög lítill munur verið á ávöxtun
þeirra annars vegar og bankabréfa
og spariskírteina hins vegar."
Seðlabankinn lækkaði ávöxtun-
arkröfu sína við sölu spariskírteina
á Verðbréfaþingi íslands sl. föstu-
dag úr 9,3% í 8,5% ogtaldi Tryggvi
að þessi tala gæti enn lækkað á
næstunni. Hann sagði að ávöxtun
bankabréfa hefði þegar lækkað en
taldi óvíst að ávöxtun bréfa verð-
bréfasjóðanna eða á sjálfstæðum
skuldabréfum myndi lækka eins
mikið.
Sigurður B. Stefánsson fram-
kvæmdastjóri Verðbréfamarkaðar
Iðnaðarbankans taldi á sama hátt
og Ólafur Örn að hluti af skýring-
unni á því hve háir raunvextir
væm á íslandi væri hve markaður-
inn fyrir verðbréf væri ófullkom-
inn. Hann taldi að þegar vextir
af spariskírteinum lækkuðu úr
8,5% í 7 til 8% eins og gert er ráð
fýrir í samkomulaginu myndu aðr-
ir vextir breytast í samræmi við
það og raunvextjr lækka. „Við
þetta myndast ný viðmiðun í kerf-
inu, hálfu prósenti lægri en sú sem
gilti áður,“ sagði Sigurður. Sigurð-
ur sagði að íjármögnunarleigufyr-
irtækið Glitnir hefði þegar ákveðið
að lækka ávöxtun á sínum bréfum
um hálft prósent. „Samningurinn
er í raun árás þessara aðila á of
- háa vexti markaðarins eins og
þeir hafa verið til þessa,“ sagði
Sigurður, „og tilraun til að færa
markaðinn í.betra horf.“
Launhækka
á Keflavík-
urflugvelli
KAUPSKRÁRNEFND hefur úr-
skurðað að verslunar- og skrif-
stofufólk, sem starfar hjá Varn-
arliðinu á Keflavíkurflugvelli
skuli hækka um 13,7% í launum
frá og með 1. janúar síðastliðnum
að telja. Auk þess kemur áfanga-
hækkun sem samdist um i kjara-
samningum verslunarmanna 5.
mai á laun og fastlaunauppbót.
Kaupskrárnefnd er skipuð full-
trúum Alþýðusambands íslands og
Vinnuveitendasambands íslands,
ásamt oddamanni frá ríkisvaldinu.
Starfsmenn Vamarliðsins hafa ekki
samningsrétt og hefur nefndin með
höndum ákvarðanir um launakjör
og að þau séu sambærileg við það
sem gerist á almennum vinnumark-
aði. Launahækkunin er til komin
vegna launaskriðs á meðal verslun-
ar- og skrifstofufólks á síðastliðnu
ári.
KAyfirtekur rekstur Kaup-
félags V- Skaftfellinga
Stefnt að því að á Suðurlandi verði eitt kaupfélag í verslunarrekstri
Selfossi.
KAUPFÉLAG Ámesinga hefur tekið nær allan rekstur Kaupfélags
Skaftfellinga á leigu frá og með 7. ágúst. Þetta er gert til þess að
auðvelda fjárhagslega endurskipulagningu Kaupfélags Skaftfellinga
áður en endanleg sameining getur farið fram. Viðræður hafa átt
sér stað milli kaupfélaganna á Suðurlandi, að Vestmannaeyjum
meðtöldum, um nánara samstarf eða sameiningu.