Morgunblaðið - 09.08.1988, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1988
3
Heimsókn Þorsteins
Pálssonar til Banda-
ríkjanna hefst í dag
Hittir Reagan forseta á morgun
OPINBER heimsókn Þorsteins
Pálssonar forsætisráðherra til
Bandaríkjanna hefst í dag. Á
morgnn mun Þorsteinn eiga
fund með Ronald Reagan
Bandaríkjaf orseta.
Þorsteinn og kona hans, Ingi-
björg Rafnar, héldu á sunnudag
til New York. Þaðan er farið til
Þórsmörk;
Eldhúsbíll
á hliðina í
Steinholtsá
Selfossi.
ELDHÚSBÍLL frá ferðaskrif-
stofu Guðmundar Jónassonar hf
fór á hliðina í Steinholtsá á leið-
inni í Þórsmörk síðdegis í gær.
Þrennt var í bílnum. Fólkið
meiddist ekki og komst klakk-
laust i land. Mikið vatn var í
ánum í Þórsmörk i gær og var
veginum þangað lokað þegar leið
að kvöldi.
Rútubifreið sem fylgdi eldhús-
bílnum snéri frá þegar honum
hlekktist á í ánni. Fólkið fór að
Hellu þar sem það beið eftir nýjum
tjöldum og búnaði en matföng og
búnaður þess var í eldhúsbílnum.
Undir kvöld voru stór tæki send til
að ná bílnum úr ánni. Rútubifreið
frá Ferðamiðstöð Austurlands snéri
einnig frá Steinholtsá síðdegis í
gær.
Andrews-herflugvallarins, þar
sem verður stutt móttökuathöfn
en síðan fljúga þau hjón ásamt
fylgdarliði til Washington. Síðdeg-
is tekur varautanríkisráðherra
Bandaríkjanna, John C. White-
head, á móti Þorsteini við Was-
hington-minnismerkið.
Fyrir hádegi á morgun funda
þeir Reagan og Þorsteinn í Hvíta
húsinu, en að fundi þeirra loknum
heldur Reagan hádegisverðarboð
til heiðurs Þorsteini.
Heimsókn forsætisráðherra lýk-
ur á föstudag. í fylgdarliði forsæt-
isráðherrahjónanna eru Guðmund-
ur Benediktsson ráðuneytisstjóri í
forsætisráðuneytinu, Jónína Mich-
aelsdóttir aðstoðarmaður ráð-
herra, Geir H. Haarde alþingis-
maður, Helgi Ágústsson skrif-
stofustjóri í utanríkisráðuneytinu
og Þorsteinn Ingólfsson skrif-
stofustjóri í varnarmálaskrifstofu
utanríkisráðuneytisins.
Einn af færeysku loðnubátunum siglir drekkhlaðinn heim í gær Morgunbiaðið/Kristján Þ. Jónsson.
Færeyskir loðnubátar á heimleið
TF-SÝN, flugvél Landhelgis-
gæslunnar, fór í eftirlitsflug
um miðin við landið í gærdag.
Út af Norðurlandi kom áhöfn-
in auga á sex færeyska loðnu-
báta drekkhlaðna á heimleið.
Svo virðist sem góður afli sé
nú á loðnumiðunum norður af
landinu. Einnig reyndust tveir
færeyskir loðnubátar á veiðum
um 80 mflur NV af Straumsnesi
rétt við miðlínuna.
Af öðrum fískiskipum sem
TF-SÝN varð vör við má nefna
að 28 skip voru að veiðum í svo-
kölluðu reglugerðarhólfí á
Strandagrunni og virtust vera í
mokafla.
Kjarasamningar flugmanna:
TVö atríði brjóta í bága
við bráðabirgðalögin
- segir Indriði H. Þorláksson formaður Samninganefndar ríkisins
Árnar í Þórsmörk voru í gærdag
ekki færar nema stórum tveggja
drifa rútubifreiðum. Litlir bílar
lögðu ekki í ámar enda slíkt glæfra-
spil við þessar aðstæður. I einni
ánni flaut stór tveggja drifa rútubif-
reið upp að aftan og þversum en
komst klakklaust yfir. Mikil rigning
var í gær á þessum slóðum, 17 stiga
hiti og rok.
-Sig. JÓns.
FULLTRÚAR launadeildar fjármálaráðuneytisins, flugmanna Land-
helgisgæslunnar og Félags íslenskra atvinnuflugmanna funda i dag
um ágreining, sem kominn er upp vegna kjarasamnings FÍA við
Flugleiðir, en flugmenn Landhelgisgæslunnar hafa ferigið laun
greidd samkvæmt þeim samningi. Launadeildin telur tvö atriði í
samningnum bijóta í bága við bráðabirgðalög ríkisstjórnarinnar um
efnahagsráðstafanir frá því i vor.
Indriði H. Þorláksson, formaður væru annars vegar 25 þúsund króna
samninganefndar ríkisins, sagði að eingreiðsla til flugmanna og hins
þau atriði sem samræmdust ekki vegar vemleg hækkun á svonefndu
ákvæðum bráðabirgðalaganna „Jeppesens-gjaldi". Að hans mati
væri um launauppbót að ræða. Hún
hefði verið 5-7 þúsund, en sam-
kvæmt samningnum hækkaði hún
í 11-14 þúsund krónur. Deilt hefði
verið á það að öryggismálum væri
stefrit í hættu vegna þessarar
launadeilu. Hin hliðin væri sú að
öryggismál væm notuð til fram-
dráttar mjög sérstæðum launakröf-
um.
Indriði benti á að samkvæmt
Eignir lífeyrissjóðanna:
2-4% ávöxtun nægir að
mati tryggingarfræðinga
- segir Hinrik Greipsson, fulltrúi í stjórn Eftirlaunasjóðs Utvegsbankans
greinargerð ríkislögmanns hefðu
samningamir í álverinu í
Straumsvík gengið lengra en bráða-
bráðabirgðalögin heimiluðu. Engin
viðurlög væm í lögunum og því
væri erfítt að taka á brotum, en
ríkið sem slíkt gæti ekki litið fram-
hjá þeim lögum sem í gildi væm.
Bogi Agnarsson, flugmaður hjá
Landhelgisgæslunni, sagði að deil-
an snerist um túlkun á kjarasamn-
ingi FÍA og Flugleiða. Þessi samn-
ingur hefði verið borinn undir
Vinnuveitendasambandið og ekki
talinn bijóta í bága við bráðabirgða-
lögin. Auk þess væm dagpeningar
flugmanna gæslunnar skattlagðir
en ekki flugmanna Flugleiða. Þessi
deila hefði valdið því að yfírflug-
stjóri gæslunnar væri kominn í
ársfrí og því aðeins tveir flugstjórar
eftir. Það tæki tíma að þjálfa upp
fleiri menn. Flugmenn Landhelgis-
gæslunnar mættu ekki fara í verk-
fall, en það væri deilt á þá fyrir
að vinna samkvæmt kjarasamning-
um og taka lögboðin frí sín.
ÞÓ nú sé hávaxtatímabil hef ég ekki séð ástæðu til þess að eltast
við það þar sem tryggingafræðingar hafa talið 2-4% ávöxtun á eign-
um lífeyrisssjóðanna nægja fyrir skuldbindingum þeirra," sagði Hin-
rik Greipsson, fulltrúi starfsmanna í eftirlaunasjóði Útvegsbankans,
en í Morgunblaðinu fyrir helgi er skýrt frá því að nokkuð sé mismun-
andi hvaða vexti lífeyrissjóðirnir taka af verðtryggðum lánum, þó
flestir þeirra taki meðalvexti bankanna, sem hafa verið 9,5% á þessu
ári. Lífeyrissjóðir Landsbanka og Seðlabanka, Úvegsbanka, Búnaðar-
banka og Verkfræðingafélagsins hafa tekið 3,5% vexti, en Eftirlauna-
sjóður Búnaðarbankans hækkaði vexti sína í 5% 1. júlí síðastliðinn.
„Mér finnst það eins og að hengja
bakara fyrir smið að hækka vexti
hjá þeim sem hafa fengið verð-
tryggð lán vegna hinna sem fengu
óverðtryggð lán úr sjóðunum • og
fengu lánin niðurgreidd að segja.
Þeir sem fengu lán fyrir 10-15 árum
eru komnir nær eftirlaunaaldrinum
og ég hef því ekki séð knýjandi
ástæðu til þess að hækka vextina,"
sagði Hinrik aðspurður um þá rök-
semd að sjóðimir væru að bæta sér
upp það tap sem varð þegar lífeyris-
fé var óverðtryggt til þess að koma
þurfí til minni skerðingar lífeyris.
Hann sagði að eftirlaunasjóður
Útvegsbankans hefði fylgt ríkis-
bönkunum í ákvörðunum um vexti,
en undanfarið hefði ríkt óvanalegt
ástand í sjóðnum, þar sem ekki
hefði verið skipað í stjóm hans eft-
ir stofnun Útvegsbankans hf.
Sigtryggur Jónsson hjá eftir-
launasjóði Landsbanka og Seðla-
banka sagði að ýmsar ástæður
væm fyrir því að sjóðurinn hefði
ekki tekið hærri vexti en 3,5%.
Hins vegar væm þessir vextir nú
til endurskoðunar. Ekki væri enn
ljóst hver niðurstaða þeirrar endur-
skoðunar yrði, en sér þætti ekki
ólíklegt að vextimir ættu eftir að
breytast innan tíðar. Aðspurður um
hvort lífeyrissjóðurinn þyrfti ekki
háa vexti til þess að skerðing lífeyr-
is yrði minni en ella vegna áranna
áður en verðtrygging gekk í gildi,
sagði hann að ekki hefði reynt á
það ennþá. Hann benti á að sjóðs-
stjómir væm ekki bundnar af því
að taka hámarksvexti. Hugsanlega
væri hægt að líta á þetta sem kjara-
atriði og önnur verðbréfakaup gætu
vegið upp á móti þessum lágu vöxt-
um til sjóðfélaga. Það hefði þótt
eðlilegra að fara þá leið, en vera
með vexti á lánum til sjóðfélaga í
hámarki.
Kjartan Páll Einarsson hjá eftir-
launasjóði Búnaðarbankans sagði
að vextir sjóðsins á lánum til sjóð-
félaga hefðu verið hækkaðir 1. júlí
í 5% og sú ákvörðun yrði endurskoð-
uð aftur eftir 5-6 mánuði. Það færi
eftir hvað gerðist í vaxtamálum á
næstu mánuðum, hvort þeir vextir
giltu áfram eða yrðu hækkaðir frek-
ar. Hann sagði að þessir sjóðir
hefðu staðið mjög vel miðað við
marga aðra í gegnum árin og félag-
ar þeirra nytu ákveðinna hlunninda,
þar sem lánin hefðu ekki fylgt öðr-
um lánum. Sjóðir ríkisbankanna
hefðu haft með sér samvinnu hvað
varðaði útlánareglur og vexti þang-
að til nú að sjóður Búnaðarbankans
hefði ekki talið sig geta beðið leng-
ur með að hækka vextina eitthvað.
15 mánaða
fangelsi fyr-
ir nauðgun
M AÐUR um þrítugt hefur í Saka-
dómi Reykjavíkur verið dæmdur
í 15 mánaða fangelsi fyrir að
hafa hinn 23. apríl síðastliðinn
elt unga konu inn á heimili henn-
ar, ráðist þar á hana og nauðgað
henni.
Hann var einnig dæmdur til að
greiða konunni 200 þúsund krónur
í skaðabætur auk alls sakarkostn-
aðar. Maðurinn undi dómnum, sem
Pétur Guðgeirsson sakadómari
kvað upp, og hefur þegar hafið af-
plánun refsingarinnar.