Morgunblaðið - 09.08.1988, Síða 5

Morgunblaðið - 09.08.1988, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1988 5 Barðaströnd: ítalskur ferðamaður hrapaði í fjallshlíð TVÍTUGUR ítalskur ferðamaður fékk alvarlega brjóstholsáverka er hann hrapaði í Fjarðarhlíð, norðarlega á Múlanesi við Kerl- ingarfjörð á Barðaströnd, á sjötta tímanum á laugardag. Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti manninn og flutti hann á Borg- arspítalann. Maðurinn var ásamt þremur löndum s'num á bílferð um Barða- strönd og hafði hópurinn áð við Múlanes, um 110 kílómetra frá Patreksfirði. Félagar piltsins fóru í stutta gönguferð um nágrenni án- ingarstaðarins en pilturinn varð eft- ir við bílinn. Þegar félagamir sneru til baka var pilturinn horfinn en fannst skömmu síðar liggjandi bjargarlaus í Fjarðarhlíð. Hann var með meðvitund en særður á bijóst- Séð upp Fjarðarhlíðina. Efst í gilinu sjást sjúkrabörurnar, sem maður- inn var borinn í. , Morgunblaðið/Kristján Þ. Jónsson Á slysstaðnum í Fjarðarhlíð. Læknir og björgunarmenn flytja manninn á sjúkrabörur. holi og í andnauð. Félagar manns- ins gerðu lögreglu á Pareksfirði aðvart og óskaði hún tafarlaust eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæsl- unnar jafnframt því sem læknir og sjúkrabíll fóru á staðinn frá Pat- reksfirði. Vegna ástands mannsins eru til- drög slyssins óljós. Hann var enn á gjörgæsludeild síðdegis í gær en ekki talinn í lífshættu. 6 Mar eflir á verdi fráþvífyriráðuslu genmsfellingu O C7 o Árgerd 1989 væntanleg í lok september — það er orðið tímabært að skoða litina og láta skrá sig. G/obusn Lágmúla 5, s. 681555 Nú eru síðustu forvöð að fá sérSAAB 1988

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.