Morgunblaðið - 09.08.1988, Page 15
15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1988
fram á, að kennarar í lagadeild séu
undanþegnir slíkum verkefnum í
þágu ríkis, einstaklinga og alls al-
mennings? Ef svo er, hef ég þá
hugmynd fram að færa við stúd-
enta, að þeir hjálpi okkur kennur-
um að losna undan nokkru af auka-
störfunum, sem gjarna fylgja ger-
nýtingu starfskrafta í litlu sam-
félagi. Talið þið við alþingismenn
og fáið aflétt lagaskyldu okkar til
að gegna dómarastörfum í Hæsta-
rétti, talið við stjómvöld og biðjið
þau að hlífa okkur a.m.k. við hluta
þeirra verkefna, sem upp á okkur
er troðið, og talið við íjölmiðla og
biðjið þá að hætta að kvabba á
okkur um lögfræðilegt álit á alls
konar vandamálum í þjóðfélaginu.
Ef þið gerið allt þetta fyrir okkur
og fáið einhveiju framgengt vinnst
vafalífið meiri tími til ritstarfa og
annarra háskólastarfa.
Kennsluhættir og
framlag stúdenta
Hreinskilnislega skal játað, að
fyrirlestraformið er aðalkennslu-
formið í lagadeild eins og fleiri
deildum. Reyndar skammast ég
mín ekkert fyrir að þurfa að gera
slíka játningu. Jafnvel erlendir sér-
fræðingar, sem ég er viss um, að
sumir laganemar trúa betur en
okkur, hafa sýnt fram á, að fyrir-
lestraformið sé heppilegasta
kennsluformið í lögfræði, ekki síst
ef því fylgir önnur stuðnings-
kennsla (æfíngar, umræðutímar).
Laganemum þykir súrt í brotið að
fá ekki að vera virkari í kennslu
og leggja fram skapandi vinnu.
Þetta voru mjög gleðileg tíðindi.
Það vill nefnilega svo til, að í laga-
deild eru ýmis önnur kennsluform
notuð en fyrirlestrar. Sjálfur hef
ég frá upphafí reynt að hafa um-
ræðutíma með laganemum, með
lítilli aðsókn stúdenta fýrstu árin.
Ég reyndi jafnvel að hafa seminör
öðru hvetju með sérfræðingum ut-
an úr bæ. En hvað skyldi hafa
gerst? Við gerðum önnur kennslu-
form (æfingar, ritgerðir o.fl.) að
skyldu, en stúdentar börðust gegn
þeirri tilhögun, svo að allt slíkt var
aftur gefið fijálst (nema raunhæf
verkefni). Skal nú lýst dæmigerðu
samtali kennara og nemenda í
umræðutíma:
Kennari: „Mig langar að fá um-
ræðu í hópnum um rök með og
móti því að dæma drykkjusjúka
brotamenn í hælisvist. Má ég biðja
A að byija.“
A: „Eg er því miður ólesinn."
B: „Ég treysti mér ekki til að
svara þessu.“
C: „Ég hafði ekki tíma til að
undirbúa mig.“
D: „Ég vil ekki svara þessu.“
E: „Jú, er það ekki óhepþilegt?"
Kennari: „Ykkur er alveg óhætt
að nefna einhver ákveðin sjónarmið
eða rök. Til þess ætti ekki að þurfa
mikinn lestur. Þá fáum við kannski
einhvetjar umræður í gang. Má ég
biðja um sjálfboðaliða?" Löng þögn,
og umræðutíminn heldur áfram
sem eintal kennarans.
Ég hlakka til næsta vetrar, ef
stefnubreyting skyldi nú hafa orðið
hjá laganemum og þeir ætla að
fara að leggja fram skapandi vinnu.
Þá ættu að geta orðið fjörugir
umræðutímar óg ég er til í að bjóða
upp á svo sem 2—3 semínör að
auki á haustmisseri. Og ekki efa
ég, að starfssystkin mín í deildinni
séu líka til í slaginn.
Lagadeild er engin
góðgerðastof nun
Stúdentum þykir lagadeild hörð
og ósveigjanleg. Rétt er það, laga-
deild er engin góðgerðastofnun.
Við verðum þá að minnast þess,
að deildin er hvorki til fyrir stúd-
enta né kennara, heldur fyrir
íslensku þjóðina. Þrátt fyrir marga
slæma bresti okkar kennara höfum
við þó öll til að bera skyldurækni
gagnvart samfélaginu og teljum
ekki forsvaranlegt að senda á al-
menning aðra lögfræðinga en þá,
sem við treystum til að annast hin
erfíðu störf að viðkvæmustu deilu-
málum manna á milli.
Ef sú festa og öryggi, sem laga-
deild býður upp á, er gamaldags,
þá er gott að vera gamaldags. Mér
er það til efs, að aðrar deildir Há-
skólans leggi meiri áherslu á jafn-
ræði stúdenta og réttaröryggi, t.d.
með því að hafa stjómskipaða próf-
dómara við öll próf. Réttaröryggi
og festa eru algild verðmæti, jafn-
gild að fomu og nýju.
Hver vill breytingar
á námstilhögun?
Af orðum sumra stúdentanna
má marka, að hinir ómannúðlegu
kennarar deildarinnar hafí staðið
gegn umbótum og breytingum á
námstilhögun. Það skrýtna er, að
flestar breytingar á reglugerðar-
hluta lagadeildar hafa verið gerðar
að frumkvæði kennara og undir-
búnar af þeim — þrátt fyrir út-
breitt áhugaleysi og jafnvel
hræðslu nemenda við breytingar.
Frá þessu var undantekning á
síðasta ári, er fram komu rökstudd-
ar óskir um breytingar á námstil-
högun á 1. ári. Námsnefnd, skipuð
2 kennurum og 2 stúdentum,
gekkst strax fyrir skoðanakönnun
meðal nemenda, framkvæmdri með
réttum og viðurkenndum aðferð-
um. Síðan voru strax gerðar ráð-
stafanir til reglugerðarbreytingar
nákvæmlega eftir óskum nemenda
sjálfra.
Hvemig væri nú, ef nemendur
tækju sér smáfrí frá allri aukavinn-
unni eða öðru daglegu amstri og
reyndu af alvöru að móta einhveij-
ar sameiginlegar rökstuddar hug-
myndir? Þá mætti kannski reyna
aftur, hvemig við tökum hugmynd-
um þeirra, áður en þeir láta reka
okkur (sbr. tímaritsviðtal við laga-
nema).
Vantraustskenning
Brynhildar
Ég get ekki látið hjá líða að
nefna einn stúdent á nafn, Bryn-
hildi Flóvenz, þar sem viðtalið við
hana kom mér mest á óvart. Við
þennan nemenda tel ég mig hafa
haft gott samband og vona, að svo
verði áfram. Brynhildur segir, að
nemendur beri almennt ekki
traust til kennaranna, þótt eitt-
hvað sé það misjafnt eftir kennur-
um. Mér er spum, hvort slík al-
menn staðhæfíng telst samboðin
vísindalega þenkjandi manneskju.
Hvað þýðir „almennt"? Hefur verið
gerð skoðanakönnun meðal nem-
enda, hefur Brynhildur sjálf spurt
svo marga nemendur, að hún geti
gefíð slíka yfirlýsingu fyrir nem-
endur almennt? Og hvemig var þá
spurt? Eða byggist þetta einungis
á sögusögnum eða næmu innsæi
hennar sjálfrar? Þá er mér einnig
spum, hvort nemendur vantreysti
ákveðnum þáttum í fari okkar, svo
sem heiðarleika (t.d. við einkunna-
gjöf), fræðilegri hæfni, dómgreind
okkar almennt eða jafnvel öllum
þessum þáttum og fleiri til. Það
er von, að spurt sé, því að það mun
vera í fyrsta skipti í sögu Háskól-
ans, að jafnalmenn og afdráttar-
laus vantraustsyfirlýsing kemur
Meitillinn hf:
fram á kennaralið heillar deildar.
Þá vaknar líka sú spurning, hvort
nokkrir þeir menn fyndust, sem
hlutaðeigandi nemandi og aðrir
sama sinnis myndu treysta nægi-
lega vel til að sinna þörfum sínum.
Fjarvistakenningin
Almenningur má gjama vita, að
starfsbræður mínir, sem sitja reglu-
lega við vinnu í Lögbergi, húsi laga-
deildar, nokkrir við ritstörf einnig
yfír sumarmánuðina, em eðlilega
nokkuð sárir yfír fullyrðingum um,
að kennarar séu ekki við eða að
stúdentar þori ekki að tala við þá.
Og þótt ég sitji sem stendur mikið
í Mjólkurstöðinni gömlu við Lauga-
veg hafa dymar þar einnig verið
opnar fyrir stúdentum og síma-
númer öllum tiltækt á skrifstofu
lagadeilar og skiptiborði Háskól-
ans.
Höfundur er prófessor í lögfræði
ogforseti lagadeildar Háskóla fs-
lands.
Gerum það sem við
getum til að halda
fyrirtækinu gangandi
Selfossi.
„VIÐ gerum allt sem í okkar valdi
stendur til þess að halda fyrirtæk-
inu gangandi,“ sagði Guðmundur
Sigurðsson skrifstofustjóri Meit-
ilsins hf. Hann vildi taka þetta
fram til að forðast misskilning
vegna þess sem haft var eftir
honum í Morgunblaðinu laugar-
daginn 6. ágúst um erfiðleika
Meitilsins hf. í Þorlákshöfn.
Haft var eftir Guðmundi að það
væri meira en full alvara að stöðva
fyrirtækið. Einnig að flármagns-
kostnaðurinn hefði stefnt í rúmar
hundrað milljónir.
Guðmundur vildi leggja áherslu á
að fjármagnskostnaðurinn myndi að
óbreyttu nálgast 200 milljónir hjá
fyrirtækinu. Að auki sagði hann:
„Uppsagnimar eru neyðaráðgerð.
Með þeim viljum við fírra okkur
vandræðum ef þessi rekstur þarf að
stöðvast sem allir vona auðvitað að
ekki verði."
— Sig. Jóns.
w
ELDHUSUNDRIÐ
FRAAEG
Margra tœkja maki
á makalausu verði!
KM21 frá ersarmkallað eldhúsundur, enda er
fjölhæfnin undraverð.
Bara aðnefna það, KM 21 gerirþað: Hrærir,
þeytir, hnoðar, rífur, hakkar, blandar, hristir,
brytjar, sker...
Eldhúsundrið frá AEG ermargra tækja maki en á
makalausu verðiaðeinskr. 6.963,-
Vestur-þýsk gæði á þessu verðT^engin spurning.
AEG
AFKÖST
ENDING
GÆÐI
AEG heimilistœki
því þú hleypir ekki hverju sem er í húsverkin!
BRÆÐURNIR
ORMSSON HF
Lágmúla 9, sími: 38820