Morgunblaðið - 09.08.1988, Page 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1988
Shultz ómeiddur
eftir sprengju-
tilræði í Bólivíu
La Paz, Reuter.
SPRENGJA sprakk nálægt bíla-
lest George Shultz, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, og fylgd-
arliðs hans i Bólivíu í gær. Eng-
inn slasaðist, en þrír bílar
skemmdust, þar á meðal bill eig-
inkonu Shultz.
Sprengjan sprakk aðeins örfáum
sekúndum eftir að bifreið Shultz
hafði ekið framhjá henni, en þetta
gerðist á leiðinni frá flugvellinum
til höfuðborgar Bólivíu, La Paz.
Nokkrar bifreiðar voru á leið fram-
hjá sprengjunni þegar hún sprakk
og þijár skemmdust. Rúða brotnaði
í bifreið eiginkonu Shultz, sem er
oftast í sérstökum bíl á ferðum
þeirra. Hún slasaðist ekki.
Þetta var fyrsta sprengjuárásin
á George Shultz og sú fyrsta á
háttsettan bandarískan embættis-
mann síðan skotið var á Reagan
forseta í mars árið 1981.
Talsmaður bandaríska utanríkis-
ráðuneytisins, Charles Redman,
sagði að sprengjan gæti hafa verið
dínamít-sprengja, sem líklega hefði
verið sprengd með íjarstýringu.
Fyrirhugað er að Shultz ræði við
háttsetta bólivíska embættismenn,
þar á meðal Victor Paz Estenssoro
forseta, og verður baráttan gegn
alþjóðlegu eiturlyfjasmygli helst til
umræðu.
Botswana:
Sprenging í
forsetaþotu
Gaborone, Botswana. Reuter.
QUETT Masire, forseti Afrík-
uríkisins Botswana, slasaðist
lítillega aðfaranótt mánudags er
sprenging varð í þotu hans sem
var á leið til Angólu.
Sprengingin svipti hreyfli af
hægri væng þotunnar og slasaðist
Masire og annar maður af brotum
sem þeyttust inn í farþegarýmið
gegnum þotubúkinn.
I skýrslu Botswanastjórnar var
ekkert sagt um orsakir sprenging-
arinnar en sagt að þotan hefði ver-
ið á flugleið sem angólsk yfírvöld
gáfu henni upp.
GARÐASTAL
Lausn á steypuskemmdum
= HEÐINN =
STÓRÁSI 2, GARÐABÆ, SÍMI 52000
VOKVA-
ViMDUR
Dragnótavindur
Togvindur
Grandaravindur
Veitum alhliða þjónustu:
1. Hönnun vökvakerfi
2. Setjum upp vökvakerfi
3. Seljum allan búnað í
vökvakerfi
4. Gerum við og endurbætum
vökvakerfi
Tæknimenn okkar veita
allar nánari upplýsingar.
iJWDVEUWHF
SMIEUUJEGI66, PÓSTHÓIF20, 202 KÚfWOGI, S. 9176600
Reuter
Stúdentar og Búddamunkar sjást hér ganga í fylkingu inn í Shwedagon-pagóðuna í Rangoon i siðustu
viku er miklar mótmælaaðgerðir fóru fram í borginni gegn stjórnvöldum. Var m.a. krafist afsagnar
Sein Lwins sem nýlega tók við völdum af Ne Win hershöfðingja. Myndina tók erlendur ferðamaður.
Burma:
Þúsundir manna mót-
mæla í Rangoon-borg
Krafist umbóta í efnahags- og stjórnmálum
Rangoon. Reuter.
HERMENN, sem gættu rikisstjórnarbygginga í miðborg Rangoon,
höfuðborg Burma, gerðu enga tilraun til að ráðast á tugþúsundir
mótmælenda er báru borða með vígorðum um göturnar, þrátt fyrir
herlög er banna slíkt, og hrópuðu slagorð gegn stjórn landsins.
Mótmælt var pólitískum ofsóknum og versnandi lífskjörum. í hópi
mótmælenda var fjöldi stúdenta, menntaskólanema og Búddamunka
en að sögn stjórnarerindreka tókst stúdentum ekki að hrinda af
stað allsheijarverkfalli í landinu eins og talið er að þeir hafi stefnt að.
Ferðamenn , sem komið hafa til Gífurlegar verðhækkanir, eink-
Bangkok í Thailandi frá Rangoon, um á hrísgijónum, dráp og aðrar
segja að á götum borgarinnar séu
vopnaðir hermenn, sumir með vél-
byssur, í brynvörðum bflum og
sandpokavígjum er reist hafa verið
meðfram götunum. Umferð ann-
arra en hermanna var bönnuð um
sumar götumar. Margir af mótmæ-
lendunum höfðu sett upp húfur eða
grímur til að komast hjá því að
leynilögregla gæti þekkt þá aftur
en ofbeldi leynilögreglunnar er eitt
af því sem valdið hefur mótmælun-
um.
ofbeldisaðgerðir gegn fólki sem stóð
að mótmælum í mars og júní og
meintar pyntingar andófsfólks eru
meðal þess sem valdið hefur mestri
gremju almennings í landinu. Lítið
hefur borið á mótmælum í landinu
þar til á þessu ári en það hefur
verið undir einræðisstjóm sósíali-
staflokks í meira en aldarfjórðung.
Fyrir skömmu var skipt um leiðtoga
og tók þá við völdum Sein Lwin
af Ne Win hershöfðingja, sem ríkt
hafði í 26 ár. Sein Lwin er talinn
mjög illa þokkaður hjá almenningi
vegna ofsókna gegn andófsmönn-
um sem hann hefur borið ábyrgð
á. Efnahagur Burma er í kaldakoli
þrátt fyrir mikil náttúmauðæfi.
Bretland:
Fjölgnn í
konungs-
fjölskyldu
London. Reuter.
SARA Ferguson, hertogaynja
af Jórvík, eiginkona Andrews
Bretaprins, eignaðist i gær
stúlku, sem er fyrsta barn
þeirra hjóna. I tilkynningu frá
bresku konungsfjölskyldunni
sagði að móðir og barn væru
við bestu heilsu.
Andrew Bretaprins var við-
staddur fæðinguna en bamið var
í heiminn borið á Portland-
sjúkrahúsinu í London. Stúlkan
reyndist vera rúmar 12 merkur
að sögn talsmanns konungsfjöl-
skyldunnar, sem lét þess getið
að nafn hennar hefði enn ekki
verið ákveðið. Sagði hann mikla
gleði ríkja í röðum hinna konung-
bomu vegna fæðingarinnar.
Þetta er fyrsta bam þeirra
Andrews og Söm. Á hinn bóginn
er þetta fimmta bamabam Elísa-
betar Bretadrottningar og mun
litla stúlkan í framtíðinni bera
sæmdarheitið prinsessa af
Jórvík.
Vesturbakkinn:
Óánægja með
stefnu Husseins
Forystuhlutverk PLO dregið í efa
Jerúsalem, frá Patrick Bishop, fréttaritara
AHMED Al-Jarmi er reiður mað-
ur, eins og við er að búast af
manni, sem er í þann veginn að
glata lífsviðurværi sínu. „Mér
voru greiddir 120 jórdanskir
dínarar (um 16.000 ísl. kr.) á
mánuði og ég reiddi mig á þá
peninga,“ segir hann. „Nú er
ætlast til þess að ég lifi á einu
kílói af rajöli frá Sameinuðu þjóð-
unum og það er ekki einu sinni
hreint.“ Al-Jarmi er einn 3.500
opinberra starfsmanna Jórdaníu,
sem settir hafa verið á eftirlaun
vegna þeirrar ákvörðunar Hus-
seins Jórdaniukonungs að slita
öllum tengslum við herná-
mssvæði ísraela á vesturbakka
Jórdanár.
Þegar ísraelar ráku flóttann eftir
Sexdagastríðið árið 1967 og herná-
mu Vesturbakkann bauð Hussein
konungur opinbemm starfsmönn-
um Jórdaníu á Vesturbakkanum að
þiggja laun áfram svo fremi sem
þeir ynnu ekki fyrir sigurvegarana.
Þessi góðgerðastarfsemi hefur þó
ekki aflað Hussein þess fylgis, sem
hann hafði vænst.
Gamlingjamir í steikjandi hitan-
um á aðaltorginu í Jalazone-flótta-
Daily Telejfraph.
mannabúðunum skammt frá Ra-
mallah vom einróma í afstöðu sinni:
„[Hussein] nýtur einskis stuðnings
hér,“ segir einn hinna gömlu þula.
„Frá því við fómm frá heimilum
okkar [í ísrael] árið 1948 hefur
honum mistekist að fínna nokkra
lausn á vanda okkar."
Þrátt fyrir fjárstuðning Husseins
við Vesturbakkann vita Palestínu-
arabar fullvel, að þeir peningar
koma frá öðmm arabaríkjum og
kunna honum því litlar þakkir fyr-
ir. Af því veit Hussein og hefur það
vafalítið haft áhrif á þá ákvörðun
hans að þvo hendur sínar af Vestur-
bakkanum og fela Frelsissamtökum
Palestínu (PLO) ábyrgðina. Um leið
hætti hann nær öllum fjárútlátum
til Vesturbakkans.
Hussein útilokar þann möguleika
að Jórdanía komi við sögu í friðar-
viðræðum í framtíðinni sem fulltrúi
Palestínu. ísraelskir stjómmála-
menn em þó efins um þessar stað-
hæfingar Husseins og segja að um
leið og upp komist að PLO hafi f
raun engin völd á Vesturbakkanum
neyðist Hussein til þess að taka við
fyrra hlutverki sínu.
Á Vesturbakkanum efast menn