Morgunblaðið - 09.08.1988, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1988
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1988
31
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aðstoðarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
Árvakur, Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guðmundsson,
BjörnJóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033.
Áskriftargjald 800 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 70 kr. eintakið.
Island — Grænland
Fáar þjóðir eru eins háðar
milliríkjaverzlun, útflutn-
ingi og innflutningi, eins og
við Islendingar. Við seljum úr
landi hærra hlutfall þjóðar-
framleiðslu okkar en flestar
aðrar þjóðir. Við flytjum síðan
inn dijúgstóran hluta meintra
lífsnauðsynja. Viðskipti okkar
við umheiminn, það er kaup-
máttur útflutningstekna okk-
ar, ræður því meiru um lífskjör
þjóðarinnar en margir gera sér
grein fyrir.
Af þessum sökum er sjálf-
gefið að leggja rækt við gamal-
gróin viðskiptatengsl okkar
vestan hafs og austan. Jafn-
sjálfsagt er að nema ný lönd
fyrir íslenzkar vörur og
íslenzka þjónustu, hugvit og
þekkingu. Það er mikilvægt að
reisa sem flestar stoðir undir
viðskiptahagsmuni okkar. I
þeirri viðleitni höfum við víða
borið niður. Það er þó ekki
fyrr en á síðustu áratugum sem
veruleg rækt hefur verið lögð
við viðskiptatengsl við næstu
granna okkar í austri og vestri,
Færeyinga og Grænlendinga.
Samskiptin við Færeyinga
byggjast þó á gömlum grunni.
Grænlandsviðskipti eru hins-
vegar ný af nál. Þau hafa hins-
vegar vaxið umtalsvert á allra
síðustu misserum.
I viðskiptablaði Morgun-
blaðsins síðastliðinn fimmtu-
dag birtist grein um þátttöku
um 30 íslenzkra söluaðila í
sjávarútvegssýningu í Nuuk
(Godthaab) á Grænlandi. Þar
er og fjallað um vaxandi við-
skipti þessara grannríkja. Þar
kemur fram að vöruútflutning-
ur íslendinga til Grænlands
nam aðeins rúmum 3 milljón-
um króna árð 1983. Síðan hef-
ur hann farið ört vaxandi. Árið
1986 nam hann um 44 milljón-
um króna. „Síðustu tvö árin
hefur útflutningurinn síðan
aukist gífurlega, fyrstu sex
mánuði síðasta árs var hann
jafnmikill og allt árið þar áður
og hefur enn vaxið síðan,“ seg-
ir í greininni.
Það eru einkum íslenzkar
tæknivörur fyrir sjávarútveg
sem seldar eru til Grænlands,
toghlerar og bobbingar, en
einnig umbúðir og burðarpok-
ar. Líkur eru taldar á að selja
megi báta til Grænlands, en
tveir Sóma-bátar vóru afhentir
í lok sjávarútvegssýningarinn-
ar. Aukning viðskipta við
Grænland byggist þó máske
mest á því að fyrirtækið Icecon
hefur tekið að sér að breyta
fiskvinnsluhúsum víðs vegar
um Grænland og búa þau til-
heyrandi vélum og búnaði.
Nema þau viðskipti hundruð-
um milljóna króna. Þá hafa
grænlenzkir togarar leitað
hafna á íslandi um árabil og
sótt hingað margvíslega þjón-
ustu.
Konunglega Grænlands-
verzlunin hefur einkarétt á öll-
um farmflutningum á sjó til
Grænlands. Sama ver-ðskrá
gildir fyrir flutninga frá fslandi
til Grænlands og frá Álaborg
í Danmörku, þótt vegalengd
héðan sé mun skemmri. Ut-
flutningur til Grænlands er og
að stærstum hluta í höndum
Dana, segir í viðskiptablaði
Morgunblaðsins og „styrkir frá
Danmörku til Grænlands kosta
stóran hluta þeirrar uppbygg-
ingar sem á sér stað í landinu
og hefur svo verið frá stríðslok-
um“.
Það er því ekki auðhlaupið
fyrir íslendinga að komast inn
á Grænlandsmarkað. Markaðs-
aðstæður eru og að öðru leyti
frábrugðnar því sem hér ger-
ist. Þannig segir í grein við-
skiptablaðs, að fyrirtæki í
Grænlandi séu fá og „flest
þeirra í eigu heimastjómarinn-
ar, og nær alls ráðandi í út-
gerð, fiskvinnslu og verzlun í
Grænlandi“.
Staðreynd er eftir sem áður
að iðnframleiðsla okkar og
tækniþekking hentar græn-
lenzku atvinnulífi á marga
grein, ekki sízt sjávarútvegi
þeirra. Við getum og efalítið
sitt hvað til þeirra sótt. Hags-
munir fiskveiðiþjóða við Norð-
ur-Atlantshaf fara og saman
um margt. Það er því flest sem
styður það, að við leggjum
meiri rækt við menningarleg
og viðskiptaleg samskipti við
Grænlendinga hér eftir en
hingað til. Þátttaka okkar í
sjávarútvegssýningunni í Nuuk
var viðleitni í þá átt. Hún var
skref að viðskiptalegu land-
námi okkar á Grænlandi. Vart
er þó að búast við, að aðild
okkar að sýningunni skili sér
að ráði í aukinni sölu fyrr en
eftir eitt til tvö misseri, enda
um sölu á fjárfestingarvörum
að ræða og ákvarðanir um
kaup á þeim taka nokkurn
tíma. Þessari sölukynningu
þarf og að fylgja eftir með
skipulegri markaðssókn og
markaðssetningu, bæði vöru
og þjónustu.
„ Auðlindaskatt-
ur“ er rangnefni
iii.
eftir Gylfa Þ.
Gíslason
I.
Væntanlega eru allir nú orðnir
sammála um, að nauðsynlegt hafi
verið að taka upp stjóm á fiskveið-
um á íslandsmiðum í því skyni að
takmarka sókn í fiskistofnana. Það
var gert í ársbyrjun 1984. Hitt er
ekki óeðlilegt, að menn hafi greint
og greini enn á um, hvaða aðferðum
eigi að beita við stjómina. Hags-
munir einstakra byggðarlaga og
eigenda mismunandi fiskiskipa eru
ólíkir. Reglur, sem minnka þann
afla, sem draga má á land, geta
ekki bitnað hlutfallslega jafnt á öll-
um, og væri raunar ekki réttlátt,
að þær gerðu það. Þá þarf að gera
upp á milli hagsmuna. Það er ávallt
erfítt, og getur jafnan sitt sýnst
hverjum um, hvað sé réttlátast.
En sem betur fer virðist mönnum
ekki lengur blandast hugur um, að
heildartakmörkun á veiðunum sé
nauðsynleg. Reynsla hefur og sýnt,
að afköst fískiskipaflotans hafa
aukizt síðan 1984, útgerðarkostn-
aður hefur minnkað og úthald hefur
dregizt saman. Hitt er svo annað
mál, hvort náðst hefur nægilega
góður árangur, hvort enn mætti
auka afköst flotans og lækka út-
gerðarkostnað. Aðalreglan, sem hér
hefur verið beitt við stjóm fiskveið-
anna, hefur verið sú, að úthluta
hveiju fískiskipi rétti til þess að
veiða ákveðið magn, „aflakvóta",
eða til þess að stunda veiðar í
ákveðinn tíma, „sóknarkvóta".
Þessum veiðiréttindum hefur verið
úthlutað ókeypis.
II.
Ýmsir, sem kynnt hafa sér efna-
hagsmál fiskveiða og hagnýtingu
sameiginlegra auðlinda yfirleitt,
hafa á undanfömum árum — í raun
og veru á undanförnum tveim ára-
tugum — bent á, að fiskveiðirétt-
indi séu verðmæt, þegar úthlutun
þeirra er takmörkuð og fleiri vildu
fá að veiða enn óhætt er að leyfa
veiðar, ef vernda á fiskistofnana. í
þijá áratugi eða frá 1930 til 1960
var innflutningur til landsins
lengstum takmarkaður með leyfis-
veitingum. Rökin vom að vísu ekki
hliðstæð þeim, sem með réttu em
færð fyrir nauðsyn leyfa til fisk-
veiða. Innflutningsleyfi vom talin
nauðsynleg til þess að spara gjald-
eyri, sem ekki var nóg af vegna
rangrar gengisskráningar. En allir
virtust þá gera sér grein fyrir því,
að innflutningsleyfin vom verðmæt.
Innflytjendur vildu flytja meira inn
en hægt var að leyfa þeim. Þeir,
sem fengu innflutningsleyfi, gerðu
sér grein fyrir því, að þeir höfðu
sérréttindi. Þeir, sem fengu ekki
innflutningsleyfi, reyndust í mörg-
um tilvikum reiðubúnir til þess að
kaupa leyfí og greiða hátt verð fyr-
ir. Hugmyndir komu fram um, að
ríkið skyldi selja leyfin á uppboði,
enda vom dæmi um slíkt annars
staðar. Það var þó ekki gert, eflaust
m.a. vegna ótta við áhrif slíks á
verðlag innanlands. En öllum var
ljóst, að innflytjendum var í raun
og vem mismunað. Öllum var ljóst,
að þeir, sem fengu leyfi, högnuð-
ust. Hitt var mönnum ekki eins
ljóst, að kerfið olli óhagkvæmni í
innflutningsverzluninni. Það
tryggði engan veginn, að þeir flyttu
inn, sem gætu keypt ódýrast og
hefðu lægstan dreifingarkostnað. A
ámnum eftir 1960 var innflutnings-
leyfakerfíð gert óþarft með réttri
skráningu gengisins og öðmm ráð-
stöfunum til styrktar gengisskrán-
ingunni og jafnvægi í þjóðarbú-
skapnum.
Það var hægt að afnema inn-
flutningsleyfakerfið með því að
koma í veg fyrir gjaldeyrisskortinn,
sem það var réttlætt með. En það
er ekki hægt að komast hjá fisk-
veiðileyfum, því að takmörkuð
stærð fiskistofnanna, skorturinn á
fiski í sjónum miðað við veiðigetu
flotans, er staðreynd, sem ekki er
hægt að ráða við, a.m.k. ekki þegar
Iitið er til afmarkaðs tíma. Á ókeyp-
is veiðileyfakerfi er hins vegar sami
annmarki og var á ókeypis innflutn-
ingsleyfakerfi, að engin trygging
er fyrir því, að afkastamestu skipin
sæki þann afla, sem óhætt er að
veiða, og að hann sé sóttur með sem
lægstum kostnaði. Og sú staðreynd
á auðvitað jafnt við um fiskveiði-
leyfin og innflutningsleyfin, að þau
em verðmæt. Reynsla hefur líka
sýnt, að þau ganga kaupum og
sölum. I fylgiskjali með frumvarp-
inu að þeim lögum um fiskveiði-
stjóm, sem síðasta Alþingi sam-
þykkti, kemur fram, að söluverð-
mæti aflakvóta á ámnum 1984—
1986 er talið hafa numið um 6 til
9 milljörðum króna á því verðlagi,
sem gilti, þegar lögin vora sett.
Þessar upplýsingar í stjórnarfmm-
varpinu taka auðvitað af öll tvímæli
um, að veiðileyfín em verðmæt. í
raun og vem var engin þörf á því
að benda á svo augljósa staðreynd.
En upplýsingarnar sýna, að hér er
um mikið verðmæti að ræða.
IV.
Hvað gerist í raun og vem, þeg-
ar eigandi skips fær ókeypis veiði-
leyfi, en selur það síðan eiganda
annars skips? Hann fær greiðslu
fyrir leyfí, veiðirétt, sem hann hefur
fengið ókeypis. Sá, sem kaupir leyf-
ið, gerir það af því, að hann telur
viðbótaraflann, sem hann fær, vera
verðmætari en nemur veiðikostnað-
inum að viðbættu kaupverði leyfis-
ins. Gera má ráð fyrir því, að fyrir
þjóðarbúið í heild sé það hag-
kvæmara að sá, sem keypti leyfið,
veiði samkvæmt því, en að hinn,
sem seldi það, hefði gert það. Út-
gerðarkostnaðurinn verður eflaust
minni. En eftir stendur, að aðili
hefur fengið greitt fé fyrir leyfi eða
rétt, sem hann fékk ókeypis. Getur
það talizt réttlátt?
V.
Af þessum einföldu staðreyndum
er auðvitað ekki hægt að draga
aðra ályktun en þá, að rangt sé að
afhenda veiðileyfi ókeypis. Fyrst
þau em verðmæt, eiga þeir, sem
fá þau, að greiða fyrir þau. Fiskur-
inn í sjónum er ekki og verður ekki
eign þess, sem fær ókeypis rétt til
þess að veiða hann. í nýju lögunum
er þvert á móti tekið fram, að fiski-
stofnamir séu sameign þjóðarinnar.
Þeir aðilar, sem ríkisvaldið veitir
takmarkað leyfi til þess að veiða
af fískistofnunum, em að hagnýta
sameign, sem öll þjóðin á. Því
skyldu þeir ekki greiða fyrir þennan
nýtingarrétt, eins og þeir greiða
eigendum olíulinda fyrir olíuna, sem
þeir nota, eins og fiskvinnslustöðin
greiðir fyrir hráefni sitt, bóndinn
fyrir jarðarafnotin, húsbyggjandi
fyrir timbur og sement, kaupmaður
fyrir keypta vöm?
Hér er hins vegar komið að at-
riði, sem víðs ijarri er að samstaða
sé um. Hagfræðingar og fjölmargir
aðrir, sem látið hafa þessi mál til
sín taka, em þeirrar skoðunar, að
þeir, sem hagnýta þá sameign, sem
fískistofnarnir em, eigi að greiða
eigandanum, þjóðarheildinni, fyrir
það með einhveijum hætti. Þeir,
sem nú hagnýta þessa sameign, em
því af skiljanlegum ástæðum mjög
andvígir. Og stjórnmálamenn virð-
ast til þessa yfirleitt ekki reiðubún-
ir til þess að ganga gegn þessum
hagsmunum. Þess ber þó að geta,
að í áhrifamiklum flölmiðlum hefur
gætt mjög vaxandi skilnings á því
nauðsynjamáli, sem hér er um að
ræða, ekki aðeins vegna þess, að
núgildandi skipan feli í sér þjóð-
félagslegt ranglæti, heldur einnig
vegna hins, að greiðsla slíks af-
gjalds muni leiða til aukinna af-
kasta í sjávarútveginum og lægri
útgerðarkostnaðar.
Slíkt gjald fyrir afnot af fiski-
stofnunum hefur verið nefnt „auð-
lindaskattur". Enginn skattur er
vinsæll hjá þeim, sem á að greiða
hann. Út af fyrir sig er ekki undar-
legt, að þeir, sem stunda sjávarút-
veg, andmæli því að á þá sé lagður
skattur, sem öðmm er ekki ætlað
að greiða. En hér er komið að merg
málsins. Orðið „auðlindaskattur" er
rangnefni í þessu sambandi. Hér
er alls ekki um „skatt“ að ræða i
sama skilningi og þegar rætt er
t.d. um „eignaskatt", sem öllum er
ætlað að greiða. Eignaskatturinn
er gjald, sem lagt er á eignir, sem
fara umfram visst mark, allar nán-
ar skilgreindar eignir. Gjaldið fyrir
afnot af fiskistofnunum er afgjald
fyrir hagnýtingu verðmætrar sam-
eignar, algerlega hliðstætt því
gjaldi, sem allir, er hagnýta eignir
annarra, verða að greiða fyrir þau
afnot. Er það skattur á bónda, að
hann verður að greiða afgjald fyrir
jörðina, sem hann býr á? Er það
skattur á húsbyggjanda, að hann
verður að greiða eiganda skógar
gjald fyrir timbrið, sem hann notar
Á síðasta Alþingi var heimild
landbúnaðarráðherra til að veita
undanþágu til slátmnar í slátur-
húsum, sem ekki hafa hlotið lög-
gildingu en talin nauðsyn á að slátr-
un fari fram í, framlengd um tvö
ár eða til 1. júní 1990. Við af-
greiðslu málsins lagði landbúnaðar-
nefnd á það áherslu, að þegar í
stað yrði hafist handa um endur-
skipulagningu og endurbætur á
sláturhúsum landsins, og að loknu
þessu tveggja ára tímabili yrðu öll
sláturhús landsins komin með lög-
gildingu.
Samkvæmt upplýsingum frá
landbúnaðarráðuneytinu þykir ljóst
að þau sláturhús sem hafa notið
undanþágu verða að leggja út í
vemlegar framkvæmdir og kostnað
ef þau eiga að hljóta löggildingu.
Þar sem vafasamt þykir að þetta
skili sér til baka hljóti sláturleyfis-
hafar undanþágusláturhúsa að fara
varlega í frekari framkvæmdir á
húsum sínum, og era þá meðtaldar
endurbætur og lagfæringar sem
dýralæknar telja nauðsynlegar til
Gylfi Þ. Gíslason
úr skóginum hans? Er það skattur
á frystihúsin, að þau verða að
greiða fyrir fiskinn, sem þau frysta?
Er það skattur á neytanda, að hann
verður að endurgreiða bakaranum
mjölið, sem fór í brauðið? Eru for-
eldrar að leggja skatt á ungling,
som byijar að vinna utan heimilis,
ef þau láta hann greiða eitthvað til
heimilisins, þótt þau hafi ekki gert
það áður?
Mér býður í gmn, að nafngiftin
„auðlindaskattur" eigi dijúgan þátt
í því, hversu torvelt hefur reynzt
að afla því skilnings, að ekki er
aðeins sanngjarnt, heldur einnig
hagkvæmt að láta þá, sem hagnýta
fiskimiðin, greiða fyrir það. Sann-
girnissjónarmiðið er auðskilið. Það
á ekki að afhenda neinum ókeypis
rétt, sem hann getur selt. Hitt er
flóknara, að slíkt sé hagvæmt. En
skýringin er sú, að sé greitt gjald
fyrir hagnýtingu fiskistofnanna,
eykur það líkur á því, að þeir hag-
nýti þá, sem treysta sér til þess að
greiða gjaldið vegna hagkvæms
rekstrar, en hinir, sem búa yfir
minni afkastagetu eða hafa hærri
kostnað, stundi veiðarnar ekki.
að undanþága fáist til slátmnar í
haust og ítrekaðar hafa verið í bréfí
ráðuneytisins til þeirra. Með tilliti
til þessa og um leið að stuðla að
hagkvæmari rekstri sláturhúsa hef-
ur verið ákveðið að gefa viðkom-
andi sláturleyfíshöfum, sem slá-
tmðu í eigin húsi samkvæmt undan-
þágu árið 1987, kost á framlagi til
úreldingar viðkomandi sláturhúss.
Tekjur til úreldingar sláturhús-
anna er hluti af verðmiðlunargjaldi,
sem tekið er af innvegnu kinda- og
nautgripakjöti í sláturhúsum lands-
ins á hveiju verðlagsári, og skal
það innheimt frá 1. september
1988. Hækkun verðmiðlunargjalds-
ins miðast við þörf til greiðslu bóta.
Framleiðsluráð landbúnaðarins
annast innheimtu, bókhald og
vörslu verðmiðlunargjaldsins eins
og annarra verðmiðlunargjalda, og
sér um greiðslur til sláturleyfishafa
eftir ákvörðun nefndar að fengnu
samþykki landbúnaðarráðherra, en
í nefndinni eiga sæti einn fulltrúi
tilnefndur af Framleiðsluráði land-
búnaðarins, einn fulltrúi tilnefndur
VI.
í umræðum um þessi mál undan-
farið hefur það oft heyrzt, að frá-
leitt sé að gera fiskiskipaflotanum
að greiða gjald fyrir hagnýtingu
miðanna, því að hann hafi engan
rekstrarafgang, sé jafnvel rekinn
með tapi. En slíkt gjald gæti sjávar-
útvegurinn greitt með ýmsu móti,
eins og oftsinnis hefur verið gerð
grein fyrir. Það er þó athyglisvert,
að krafan um lækkun á gengi krón-
unnar kemur ekki frá útgerðinni,
heldur fiskvinnslunni. Gæti þetta
ekki einmitt átt rót sína að rekja
til þess, að auðvitað er um aðstöðu-
mun veiða og vinnslu að ræða.
Vinnslan þarf að sjálfsögðu að
greiða fyrir sitt hráefni. En veiðarn-
ar greiða ekkert fyrir rétt til hag-
nýtingar á fiskistofnunum, sem öll-
um, sem málið hugsa, hlýtur að
vera ljóst, að er verðmætur.
Það má vel vera, að veiðamar
séu, eins og nú háttar, ekki færar
um að greiða fyrir þann rétt, sem
þær fá nú ókeypis hjá samfélaginu.
En sé svo, ber það aðeins vitni um,
að gengið sé of lágt skráð. Gengið
er því aðeins rétt skráð, að hag-
kvæmar veiðar geti greitt fyrir þau
verðmæti, sem þær hagnýta. Sam-
félagið gæti hagnýtt tekjurnar af
gjaldinu í baráttunni við verðbólg-
una, meðan við hana er að etja.
Meðan fiskveiðarnar fá verðmætan
afnotarétt af auðlindum þjóðar-
heildarinnar afhentan ókeypis, er
hallað á fiskvinnsluna og iðnaðinn
og samfélagið svipt réttmætum
tekjum af eign sinni.
Nú em uppi hugmyndir og kröfur
um breytingu á gengi krónunnar.
Það væm alvarleg mistök, ef tekn-
ar væm ákvarðanir um nýtt gengi
krónunnar, án þess að koma skyn-
samlegri skipan á stjórn fiskveið-
anna.
af stjórn Landsambands sláturleyf-
ishafa og formaður nefndarinnar,
sem landbúnaðarraðherra skipar án
tilnefningar.
Bókfært verð fasteigna og sér-
hæfðs búnaðar til slátmnar 31.
desember 1987 verður einnig notað
sem viðmiðunargmndvöllur fyrir
úreldingu sláturhúsa á ámnum
1989 og 1990, framreiknað og af-
skrifað samkvæmt venjulegum bók-
haldsreglum.
Miðað er við að greiðslur bóta
skiptist niður á 3 ár, og mun út-
borgun til þeirra sláturleyfishafa
sem leggja niður slátmn í haust
nema að lágmarki 35% af heildarbó-
taupphæðinni, og skal hún greiðast
fyrir 31. desember 1988, en eftir-
stöðvamar skulu vera verðtryggðar
fra'þeim tíma að telja.
Greiðslur skulu ekki ná til þeirra
sláturleyfishafa, þar sem rekstur
stöðvast vegna gjaldþrots, eða
þeirra sláturleyfishafa sem ekki
hafa innt af hendi greiðslur til fram-
leiðenda fyrr en þeirri lagaskyldu
hefur verið fullnægt. Þá greiðist
ekki fyrir fasteignir sem að öðm
jöfnu em notaðar til annarra hluta
en slátmnar.
Tilboð þetta stendur til 20. ágúst
1988, og þurfa þeir sem ætla að
notfæra sér það að tilkynna land-
búnaðarráðuneytinu það fyrir þann
tíma.
Höfundur er prófessor.
Landbúnaðarráðuneytið:
Sláturleyfishöfum gef-
inn kostur á framlögum
til úreldingar sláturhúsa
ÁKVEÐIÐ hefur verið að gefa þeim sláturleyfishöfum, sem slátruðu
í eigin húsi árið 1987 samkvæmt undanþágu landbúnaðarráðuneytis-
ins, kost á framlagi til úreldingar viðkomandi sláturhúss samkvæmt
sérstökum reglum, sem unnar hafa verið af ráðuneytinu, fulltrúum
Landsambands sláturleyfishafa og fulltrúa Stéttarsambands bænda.
Samkvæmt þessu skal hver sláturleyfishafi eiga kost á greiðslum sem
nema bókfærðu verði fasteigna og sérhæfðs búnaðar til slátrunar
þann 31. desember 1987. Auk þess skal sláturleyfishafi fá greiddar
bætur sem svarar tíu krónum fyrir hvert kíló kinda- og nautgripa-
kjöts, sem að meðaltali var vegið inn í viðkomandi sláturhús síðastlið-
in 5 ár.
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir HREFNUINGÓLFSDÓTTUR
Míkhaíl Gorbatsjov vill hraða framkvæmd perestrojku:
Sjálfstæði einstaklingsins
forsenda efnahag'sumbóta
MÍKHAÍL Gorbatsjov, Sovétleiðtogi, hefur vakið alþjóðaathygli
fyrir tillögur sínar til úrbóta í efnahags- og stjórnmálalífi lands
síns. Fyrr í sumar voru samþykktar á flokksráðstefnu kommúni-
staflokksins mjög víðtækar ráðagerðir um að auka lýðræði og
bæta efnahag landsins. En frá þeim tíma sem Gorbatsjov tók við
sem leiðtogi Sovétmanna í mars 1985, hafa margar áætlanir hans
verið þynntar út eða þær hafa strandað í svifaseinu sovésku skri-
fræði. Því lagði hann fram áætlun, á fundi sovésku miðstjórnar-
innar nýlega, þar sem hann tímasetti þær helstu breytingar sem
samþykktar voru á flokksráðstefnunni. Hann lagði áherslu á það
á miðstjórnarfundinum að brýnt væri að hrinda þessum breyting-
um í framkvæmd.
Að áliti Gorbatsjovs er nú
runninn upp tími athafna og
framkvæmda sem löngu em orðn-
ar tímabærar. Áætlanir hans em
margþættar og stefnt er að um-
bótum á sem flestum sviðum.
Hann áformar að afhenda bænd-
um jarðir sem þeir myndu rækta
sjálfír, í þeirri von að slíkt verði
til þess að auka framleiðni og
bæta úr fæðuskorti í Sovétríkjun-
um. Hann segir að lausn á fæðu-
og húsnæðisskorti þoli enga bið
og að bæta verði læknisþjónustu.
Einnig lagði Sovétleiðtoginn fram
drög að því hvemig draga mætti
úr spennu á milli ólíkra þjóðar-
brota.
Miklar breytingar í
landbúnaði
Gorbatsjov telur að með því að
fá bændum og fjölskyldum þeirra
jarðir sem þau geta ræktað sem
sínar eigin og að umbuna þeim í
samræmi við árangur, megi fá
meiri uppskem og bæta þannig
úr fæðuskorti og þar með lífskjör
fólks. Með þessari nýju stefnu er
að hluta til horfið frá samyrkjubú-
skapnum sem Jósef Stalín þröngv-
aði upp á Sovétmenn fyrir 60
ámm. Ástæða þessarar stefnu-
breytingar er að gamla kerfið
hefur ekki reynst vel. Uppskeran
er léleg og íjárfestingar hafa ekki
borið arð.
Tillögur Sovétleiðtogans njóta
stuðnings miðstjómar kommúni-
staflokksins. Þegar hann kynnti
þær fyrir miðstjórnarmeðlimum
lagði hann áherslu á að brýnt
væri að koma þessum breytingum
í framkvæmd. Hann dró upp mynd
af framtíðarskipulagi í Sovétríkj-
unum þar sem væri gnægð matar
og neysluvara, þar sem fmm-
kvæði einstaklinganna fengi að
njóta sín, skrifræðið væri horfið
og flokksmaskínan væri ekki eins
þung í vöfum.
Umbætur í landbúnaði em lyk-
ilþáttur í umfangsmiklum tillög-
um Míkhaíls Gorbatsjovs sem
snerta bæði stjómmála- og efna-
hagslífið. Landbúnaður í Sov-
étríkjunum gengur yfirleitt ekki
eftir áætlun en tilraunir með að
leigja bændum land hafa gefið
góða raun. Þar sem það var gert
breyttist afstaða fólks til vinnu
sinnar og það afkastaði meim.
Nú vill Gorbatsjov leigja bændum
ríkisjarðir til langs tíma, t.d. í 20,
30 eða 50 ár. Hann virðist gera
sér ljóst að bændur leggja ekki á
sig að vinna við að bæta landið
nema þeir fái að njóta afraksturs-
ins. Hann segir að á þennan hátt
ráði bóndinn raunvemlega yfir
landinu sínu. Hann öðlist sjálf-
stæði sem framleiðandi. Á leigu-
jörð „geta menn nýtt skipulags-
hæfíleika sína til fulls og ræktað
landið á þann hátt sem þeim þyk-
ir best henta,“ sagði Gorbatsjov
á fundi miðstjómarinnar.
í anda sósíalismans
Gorbatsjov tók skýrt fram að
þessi stefna væri í samræmi við
sósíalíska kenningu. „Við þurfum
ekki að vera feimnir við að láta
framleiðsluöflin í hendur bænd-
anna sjálfra. Það er ekkert andsó-
síalískt við það,“ sagði hann.
„Þetta er raunvemlegur sósíalismi
því þarna er manneskjan höfð í
fyrirrúmi."
Sovétleiðtoginn leggur einnig
til atlögu við skrifræðið, stofnanir
og biðraðir sem em nöturlegt
merki um bágborið efnahags-
ástand. Gorbatsjov segir að það
sé til skammar að ekki hafi verið
gert neitt til að koma í veg fyrir
þær. Kona nokkur sem vinnur í
verksmiðju sagði við hann að hún
þreyttist meira á því að bíða í tvo
til þijá tíma í biðröðum á hvetjum
degi, heldur en hún gerði í vinn-
unni.
Gorbatsjov leggur einnig til
gaumgæfilega athugun á iðnaði,
stjómun, flármögnun og endur-
skoðun. Þau fyrirtæki sem haldið
er uppi með ríkisstyrkjum vill
hann endurskipuleggja eða leigja
samvinnuhópum starfsmanna eða
jafnvel leggja þau niður.
Yfir hundrað þjóðarbrot em í
Sovétríkjunum og spenna þeirra
á milli brýst út í ýmsum myndum.
Míkhaíl Gorbatsjov kennir skeyt-
ingarleysi embættismanna ' um
ýmis þau vandamál sem hafa
sprottið upp í því sambandi. Á
miðstjórnarfundinum í síðustu
viku lagði hann fram tillögur um
hvernig draga mætti úr ýfingum
á milli þjóðarbrotanna. í þeim má
sjá stuðning við þá hugmynd að
lýðveldin fimmtán fái meiri efna-
hagslega sjálfstjórn. Þeirri hug-
mynd hefur verið haldið á lofti
af þjóðernissinnum í Eystrasalts-
lýðveldunum, Eistlandi, Lettlandi
og Litháen. Gorbatsjov hvatti til
að innan sovétlýðveldanna yrðu
viðkomandi tungumálum gert jafn
hátt undir höfði og rússneskunni
sem hingað til hefur verið aðal-
málið. En hann sagði að of sterk
þjóðerniskennd væri vatn á myllu
andstæðinga umbótastefnunnar
sem kennd er við perestrojku og
sagði að „hópum spilltra manna"
hefði á nokkmm stöðum tekist
að „breyta eðlilegu þjóðarstolti í
eyðileggjandi þjóðarrembing."
Framkvæmd tillagnanna
hraðað
Miðstjórnin samþykkti þijár
ályktanir á fyrrnefndum fundi
sínum. Ein þeirra fjallaði um end-
urskipulagningu á flokknum, önn-
ur um kosningar og sú þriðja varð-
aði framkvæmd þeirrar stefnu
sem var mörkuð á flokksráðstefn-
unni fyrr í sumar.
Tillögur Gorbatsjovs em allar
í formi pólitískra og efnahags-
legra endurbóta sem hann hyggst
framkvæma með ótrúlegum
hraða. Minnugur fyrri tillagna
sem ekki hafa verið framkvæmdar
lagði hann fram áætlun fyrir mið-
stjórnarmeðlimina, þar sem helstu
breytingar vom tímasettar. Opin-
berar umræður um umbótatillög-
ur Gorbatsjovs, eiga að fara fram
í október. I seinni hluta nóvember
kemur Æðsta ráðið saman til að
samþykkja breytingar á stjórnar-
skránni og nýja kosningalöggjöf.
Nýtt þing, sem kemur í stað
Æðsta ráðsins, verður kosið í
mars en það á að koma saman í
apríl. Á fyrsta fundi þess verður
svo kosinn nýr og valdameiri for-
seti, Míkhaíl Gorbatsjov.
Heimildir: Daily Telegraph,
International Herald Tribune,
New York Times og Reuter.
Reuter
Míkhaíl Gorbatsjov á tali við bændur á samyrkjubúi í nágrenni
Moskvu.