Morgunblaðið - 09.08.1988, Side 36
Fjórðungsþing Norðlendinga:
Lífið á landsbyggðinni og
landsbyggðin í fréttum
Fjórðungssamband Norðlendinga heldur sitt 30. fjórðungsþing að
Húnavöllum 2. og 3. september nk. Þingið er árlegur aðalfundur
sambandsins, sem eru samtök sveitar- og sýslufélaga í Norður-
landi. Þingið hefst í Húnavallaskóla föstudaginn 2. sept. kl. 13.00.
Að lokinni þingsetningu flytja formaður og framkvæmdastjóri
skýrslur sínar.
Jóhanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra mun flytja ræðu um
verkefni í sveitarstjómarmálum og
ný viðhorf í félagsmálaráðuneytinu,
meðal annars um jafnréttismál og
endurskoðun húsnæðislánakerfis-
ins. Aðalmál þingsins að þessu sinni
eru lífið á landsbyggðinni og lands-
byggðin í fréttum. Sigfús Jónsson
bæjarstjóri á Akureyri fjallar um
kosti landsbyggðar með tilliti til
nútíðar og framtíðarsýnar. Mar-
teinn Friðriksson framkvæmda-
stjóri fjallar um þýðingu lands-
byggðar m.a, fyrir undirstöður
efnahagskerfísins og um framlag
landsbyggðar til þjóðarbúsins.
Kristinn G. Jóhannsson skólastjóri
ræðir um menninguna á lands-
byggðinni og hlut hennar í þjóð-
menningu og þátt í menningar-
sköpun.
Um síðara aðalmál þingsins, sem
fjallað verður um á síðari degi
þingsins, „Landsbyggðin í fréttum"
flýtur Markús Öm Antonsson út-
varpsstjóri ávarp um Ríkisútvarpið,
stöðu þess og hlutverk. Jónas
Kristjánsson ritstjóri DV fjallar um
fjölmiðla og hlutverk þeirra og
Bragi V. Bergmann ritstjóri á Degi
fjallar um fjölmiðlun á Norður-
landi. Af hálfu heimamanna verða
þeir Magnús Ólafsson blaðamaður
Feykis í Húnaþingi og Jóhannes
Sigurjónsson ritstjóri Víkurblaðsins
á Húsavík í forsvari.
Fyrir þessu þingi liggja níu til-
lögur fjórðungsstjómar. Stjórnin
leggur til að horfið verði frá núver-
andi lánskjaravísitölu. Lán Bygg-
ingasjóðs ríkisins verði tryggð eftir
markaðsvísitölu fasteigna sem
reiknist eftir svæðum í landinu. Það
verði hlutverk Byggingasjóðs að
jafna muninn í stað þess að greiða
niður vexti af lánum eins og nú
tíðkast.
í tillögum þessum er lögð áhersla
á að tekjustofnakerfíð verði aðhæft
staðgreiðslukerfinu og að endur-
skoðað verði hlutverk Jöfnunar-
sjóðs sveitarfélaga þannig að hann
tryggi eðlilegt jafnvægi á milli
sveitarfélaga m.a. vegna verkefna-
tilfærslu milli ríkis og sveitarfé-
laga. Lagt er til að útsvarsprósenta
verði aðhæfð staðgreiðslukerfínu.
í stað aðstöðugjalda verði atvinnu-
reksturinn skattlagður miðað við
tekjur og sami hundraðshluti verði
fyrir allan atvinnurekstur í sama
sveitarfélagi. Fundinn verði nýr
grundvöllur til álagningar fast-
eignaskatts, sem byggist á meðal-
mati hvers fasteignamatsflokks í
landinu. Hlutverki Jöfnunarsjóðs
verði skipt í tvennt. Landsútsvörin
verði aukin svo að þau standi und-
ir jöfnunarhlutverki sjóðsins, um
að jafna aðstöðu sveitarfélaga.
Framlag ríkisins verði einskonar
útsvar sem miðist við launagreiðsl-
ur ríkiskerfisins, og verði úthlutað
sem íbúaframlagi til sveitarfélaga
að frádregnum sameiginlegum
gjaldaliðum Jöfnunarsjóðs sveitar-
félaga.
Með tilliti til þeirrar úttektar,
sem sambandið hefur gert á áhrif-
um tillagna verkaskiptanefndar á
fjárhag norðlenskra sveitarfélaga,
er lögð áhersla á að tillögur um
verkaskiptingu komi ekki til loka-
ákvörðunar Alþingis fyrr en hlið-
stæð úttekt hafi verið gerð varð-
andi öll sveitarfélög í landinu. í til-
lögu nefndarinnar er gert ráð fyrir
framlagi úr Jöfnunarsjóði sveitar-
félaga er miðast við íbúafjölda
sveitarfélags. Fjórðungsstjórn
leggur til að þetta framlag verði
fellt niður, þar sem þau muni auka
á misrétti á milli sveitarfélaga.
Hinsvegar er fallist á framlag úr
Jöfnunarsjóði sveitarfélaga vegna
grunnskólakostnaðar. Ef farið er
að tillögum verkaskiptanefndar
hagnast ríkið á tilfærslunni um 44
millj. kr. á verðlagi 1985. Gerð er
tillaga um að heilsugæslan færist
yfír á ríkið, sem mundi stórlega
bæta hlut þéttbýlissveitarfélaga,
án þess að skerða hlut dreifbýlis-
sveitarfélaga. Þrátt fyrir þetta mun
verkefnatilfærslan kosta sveitarfé-
lögin meira með grunnskólafram-
lagi úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga,
en kemur í hlut ríkisins endanlega
þótt farið sé að tillögu Fjórðungs-
sambandsins. Tillaga er um að
fræðsluskrifstofur færist yfír á
sveitarfélögin, sem liður í því að
færa grunnskólastigið frá ríki til
sveitarfélaga.
Fjórðungsstjóm leggur til að lög
Fjórðungssambandsins og starfs-
hættir þess verði endurskoðaðir og
niðurstöður lagðar fyrir næsta
fjórðungsþing 1989 m.a. með tilliti
til þess hvaða skipan sveitarstjóm-
arsamtaka á Norðurlandi sé hag-
kvæmust til frambúðar.
í tillögum fjórðungsstjómar um
aðskilnað dómsvalds og umboðs-
valds er lögð áhersla á að umboðs-
þjónusta ríkis verði í hveijum bæ
og á eldri sýslusvæðum ef þar ekki
er kaupstaður.
Með ti.lliti til þess að ekki liggur
fyrir umsögn Lagastofnunar HI um
hvemig staðið skuli að úrsögn
Siglufjarðarkaupstaðar úr Fjórð-
ungssambandi Norðlendinga er
lagt til að fjórðungsstjórn sé falið
að afgreiða málið þegar umsögnin
liggur fyrir þar sem ekki em
ákvæði um þessi efni í lögum sam-
bandsins.
Lagt er til að stofnaðar verði
gjaldheimtur bæði á Norðurlandi
vestra og eystra með aðild ríkisins
þar sem þorri norðlenskra sveitar-
félaga er fylgjandi stofnun tveggja
gjaldheimta á Norðurlandi. Jafn-
framt verði sett almenn lög um
gjaldheimtur, sem byggist á þeirri
svæðisskiptingu sem er að mótast
á Norðurlandi.
Að lokum er því beint til stjórnar
Sambands íslenskra sveitarfélaga
að haldnir verði kynningarfundir
úti í kjördæmum landsins til að
kynna sveitarstjórnarmálefni. Þá
er bent á að flýta þarf fjármálaráð-
stefnu á haustinu vegna fjárhags-
áætlanagerðar 'sveitarfélaga.
Krakkamót KEA:
KA sigrar í fjórða sinn
A-lið KA sigraði fjórða árið í
röð í krakkamóti KEA sem fram
fór á KA-svæðinu síðastliðinn
laugardag. Ellefu knattspyrnu-
lið af Norðurlandi tóku þátt í
mótinu og var hart barist, að
sögn Gunnars Kárasonar, móts-
stjóra og formanns unglingar-
áðs knattspyrnudeildar KA.
B-lið KA lenti í öðru sæti og
Leiftur frá Ólafsfírði í því þriðja.
Kaupfélag Eyfírðinga veitti verð-
laun í keppninni, farandbikar og
verðlaunapeninga. Liðin, sem þátt
tóku í mótinu, voru: A, B og C-lið
KA, A og B-lið Þórs, A og B-lið
Knattspymufélags Siglufjarðar, A
og B-lið Ungmennafélags Svarf-
dæla og B-lið Ungmennasambands
Eyjafjarðar sem í eru böm úr Ár-
roðanum og Framtíðinni.
A-lið KA lék úrslitaleikinn við
B-lið KA og lauk þeim leik með
sigri A-liðsins, 4-0. Þá lék Leiftur
frá Ólafsfírði við Þór um þriðja
sætið og lauk þeim leik með sigri
Leifturs, 3-0. Mót þetta er árlegur
viðburður á Akureyri og er ætlað
bömum tíu ára og yngri.
Sigurlið KA í krakkamóti KEA. Þjálfari er Arnar Freyr Jónsson
og fyrirliði er Ingibjörg Harpa Ólafsdóttir.
Imömmuleik ílnnbænum
Þessar glaðbeittu ungu „dagmömmur" voru á röltinu i Innbænum
á Akureyri fyrir skömmu er ljósmyndari Morgunblaðsins rakst
á þær. Þær heita frá vinstri talið, Vala, Andrea og Hildur, og
eru allar í vist í sumar, eins og reyndar svo margir aðrír á þeirra
aldri. Ungu piltarnir þrír, sem allir eru á öðru árinu, voru sam-
taka þegar ljósmyndarinn mundaði myndavélina og litu allir við
á réttu augnabliki. Þeir heita taldir frá hægri, Baldvin Dagur,
Arnar Össur og Kristján. Vinkonurnar þijár búa allar á Brek-
kunni þó þær passi í Innbænum og eru því oft á tíðum saman
með kerrurnar í bænum þegar veður gefst.
Kvikmyndahátíð á Akureyri
Kvikmyndahátíð verður haldin á Akureyri dagana 22.-29. október
nk. Vikan hefur hlotið yfirskriftina „Myndvika á Akureyri 1988“.
Sýndar verða kvikmyndir eftir Eðvarð Sigurgeirsson og úrval leik-
inna íslenskra mynda, sem sýna þróun íslenskrar kvikmyndagerðar.
Þeim þætti myndvikunnar lýkur með frumsýningu á Akureyri á
nýrri íslenskri kvikmynd.
Á fundi bæjarstjórnar Akureyrar
í október á síðasta ári var sam-
þykkt tillaga menningarmálanefnd-
ar um að unnið skuli að því í sam-
ráði við fleiri aðila að haldin skyldi
kvikmyndahátíð í tilefni af 80 ára
afmæli Eðvarðs Sigurgeirssonar
ljósmyndara. I framhaldi af sam-
þykktinni var síðan boðað til fundar
með fulltrúum frá myndklúbbum
framhaldsskólanna, Eyfirska sjón:
varpsfélaginu og Borgarbíói. I
þennan vinnuhóp, til undirbúnings
kvikmyndahátíðarinnar, völdust
síðan Þórey Eyþórsdóttir, varafor-
maður menningarmálanefndar,
Birkir Sveinsson, myndklúbbnum
Filmunni í Verkmenntaskólanum,
Guðmundur Örn Sverrisson úr
Kvikma, sem er kvikmyndaklúbbur
Menntaskólans á Akureyri, Sigurð-
ur Arnfínnsson, framkvæmdastjóri
Borgarbíós, og Ingólfur Ármanns-
son, menningarfulltrúi. Vinnuhóp-
urinn hefur síðan unnið að undir-
búningi kvikmyndahátíðarinnar og
liggja nú fyrir helstu ákvarðanir
uni fyrirkomulag hátíðarinnar.
Kvikmyndasamkeppnin stendur
nú yfir og þurfa væntanlegir þátt-
takendur að skila inn myndum í
síðasta lagi í lok ágústmánaðar.
Bæklingur með nánari upplýsingum
um keppnina liggur meðal annars
frammi á skrifstofum Akureyrar-
bæjar. Þeir, sem hug hafa á þátt-
töku, geta fengið aðstöðu til úr-
vinnslu myndbanda í allt að fímm
klukkustundir án endurgjalds, en
menningarfulltrúi bæjarins veitir
nánari upplýsingar um það. Fyrstu
verðlaun í samkeppninni eru 50.000
krónur og að auki verða veittar fjór-
ar viðurkenningar, hver að upphæð
10.000 krónur. Öllum áhugamönn-
um er heimil þátttaka. Efnið á að
vera tekið upp á árinu 1988 og
má ekki hafa verið sýnt opinberlega
áður. Efnið á að vera á 8 mm kvik-
myndafilmu eða V2 tommu mynd-
bandi. Æskilegt er að hver mynd
sé á bilinu 5 til 8 mínútna löng,
þó ekki lengri en 15 mínútur.
_lótíL_
STEFAHÍA
96-26366 AKUREYRI 96-26366
f * w